Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1996, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996
Fréttir
Byggðasafnið Akranesi:
Eigendur skuld-
ugir við bæjar-
sjóð og banka
DV, Akranesi:
Byggðasafnið að Görðum á Akra-
nesi hefur að undanförnu safnað
nokkrum skuldum, meðal annars
við Akraneskaupstað og banka-
stofnanir. Málið var rætt á fundi
stjórnar safnsins nýlega og lagðar
fram tillögur til lausnar á vandan-
um til eigenda byggðasafnsins.
Þær ganga meðal annars út á það
að eigendur safnsins greiði með sér-
stöku framlagi yfirdrátt á reikningi,
skuld við bæjarsjóð _og viðskipta-
skuldir í réttu hlutfalli við framlag
eiganda til rekstrar. Þá verði gerður
samningur við bæjarsjóð um að
hann taki að sér reikningsfærslu,
meðferð peningamála og greiðslu
reikninga. Einnig verði samdar
reglur um starfsemi safnsins gagn-
vart forstöðumanni og stjórn.
-DÓ
Flateyringar fjölmenntu á Stútung um síðustu helgi. Hér eru frá vinstri á myndinni Magnea Guðmundsdóttir, oddviti
Flateyrarhrepps, Ingibjörg Kristjánsdóttir, verkstjóri hjá Kambi hf., Guðlaug Auðunsdóttir, Eiríkur Finnur Greipsson,
framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga, Hinrik Kristjánsson, framkvæmdastjóri Kambs, og Páll Önund-
arson bifreiðarstjóri. DV-mynd BIB
Flateyringar halda Stútung í 62. sinn:
Metaðsókn og
vaxandi vinsældir
DV, Flateyri:
„Þetta lukkaðist vonum framar. Mik-
0 þátttaka var og hafa aldrei fleiri sótt
Stútung hér á Flateyri. Skemmtunin
var með heföbundnu sniði, hófst með
þorraborði að hætti Ólafs Bjarna mat-
reiðslumeistara og skemmtiatriðum
heimamanna og endaði síðan með því
að dansað var fram á nótt,“ sögðu þau
Matthías Matthíasson og Þorbjörg Sig-
þórsdóttir, formenn Stútungsnefndar.
Þetta er sextugasta og annað árið í
röð sem Flateyringar halda þorrablót
sitt, Stútung, og var því orðin föst
hefð fyrir þorrablótum á staðnuir.
löngu áður en sjálft orðið þorrablót
varð til.
„Það er gaman að því hvað þessi
hefð hefur verið föst í sessi hér og
ekkert lát þar á heldur þvert á móti
virðist skemmtunin njóta vaxandi
vinsælda. Það komu til dæmis margir
brottfluttir Flateyringar hingað gagn-
gert til þess að njóta þessarar
skemmtunar," sögðu þau Matthías og
Þorbjörg.
Tugir brottfluttra Önfiröinga komu
til að gleðjast með heimamönnum.
-HSR
Þeir Ólafur Ragnarsson, eöa Óli poppari, og Gunnlaugur Finnsson, fyrrum alþingismaður, skemmtu sér konunglega
á Stútungi þeirra Flateyringa. Metaðsókn var að hátíðinni eða yfir 200 manns. DV-mynd BIB
Skífunnar
er í fullum
gangi að
Laugavegi 96
cl“
tur
rá 199 kr.
Mörg
þúsund
titlar.
Afsláttur
af öllum
nýjum /'
titlum.
assísk tónlist
veiijuíiiikið
úrval af geislaplötuiii
með klassískri
tóulist.
Kassettur
kr.
a.
J Myndbönd
frá 299 kr.
Tónlistar-
ínyndböiid,
bíómyndir,
[amyndir,
Linyndir.
pakkar
íkuðu
erði.
J§ Tölvuleikir
frá 499 krT
Mörg liiuidruð titlar -
margir mjög nýlegir!
áttur af öilimi
titlum.
HBDÐ
K I
A
N