Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1996, Blaðsíða 26
58
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996
Afmæli
Valgarður
Stefánsson
Valgarður Stefánsson, inn-
kaupafulltrúi Fjóðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri, til heimilis að
Borgarsíðu 17, Akureyri, er fimm-
tugur í dag.
Starfsferill
Valgarður fæddist á Akureyri
og ólst þar upp. Hann hefur verið
innkaupafulltrúi Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri frá 1974. Auk
þess hefur hann stundað nokkur
ritstörf fyrir sjúkrahúsið, m.a.
skrifað sögu þess fyrir afmælisrit
1993. Þá var hann með fasta þátta-
gerð fyrir RÚV 1986-90, hefur
samið eina skáldsögu, Eitt rótslit-
ið blóm, útg. 1983, og haldið fjölda
málverkasýninga hér á landi frá
1972 og eina í Finnlandi í boði
menningarmálanefndar Lahtiborg-
ar. Valgarður hefur þegið laun úr
launasjóði rithöfunda og hlotið
starfslaun listamanna.
Valgarður var um árabil í
stjórn Menningarsamtaka Norður-
lands, var varamaður í Menning-
armálanefnd Akureyrar 1986-90
og starfaði með nokkrum skamm-
lífum félögum er sinntu myndlist
á Akureyri. Hann hefur verið
fastur pistlahöfundur við blöð á
Akureyri og skrifað fjölda greina
um málefni myndlistarmanna á
Akureyri.
Fjölskylda
Valgarður kvæntist 11.11.1967
Guðfinnu Guðvarðardóttur, f. 2.5.
1948, nuddfræðingi. Hún er dóttir
Guðvarðar Jónssonar, málara-
meistara á Siglufirði og síðar á
Akureyri, og Kristbjargar Reykdal
húsmóður.
Böm Valgarðs og Guðfinnu em
Ragnheiður, f. 16.3.1968, sjúkra-
liði og nemi við Fósturskóla ís-
lands, búsett í Reykjavík, en mað-
ur hennar er Haraldur Þór Guð-
mundsson, verkfræðingur og
tölvufræðingur', og eru dætur
þeirra Erla, f. 28.10. 1990, og Mar-
ía, f. 9.1. 1994; Rut, f. 30.8. 1969, líf-
fræðingur í Reykjavík; Kristbjörg
Rán, f. 6.10. 1972, nemi á Akur-
eyri.
Systur Valgarðs, sammæðra:
Hanna Gerður Haraldsdóttir, f.
16.5.1949, d. 8.11.1980; Ingibjörg
Guðrún Haraldsdóttir, f. 4.5. 1951,
húsmóðir á Egilsstöðum; Ragn-
heiður Haraldsdóttir, f. 9.8. 1954,
húsfreyja að Miðhrauni í Mikla-
holtshreppi.
Systkini Valgarðs, samfeðra, er
Þorsteinn Veturliðason, f. 8.11.
1949, prentari í Hafnarfirði, Ing-
unn Susie Veturliðadóttir, f. 15.7.
1964, húsmóðir í Reykjavík.
Foreldrar Valgarðs eru Vetur-
liði Gunnarsson, f. 15.10. 1926, list-
málari í Reykjavík, og Ragnheið-
ur Valgarðsdóttir, f. 3.9. 1927,
kennari á Akureyri.
Ætt
Veturliði er bróðir Benedikts
listmálara. Veturliði er sonur
Gunnars verkamanns, hálfbróður
Páls, skólastjóra Stýrimannaskól-
ans i Reykjavík, föður Níelsar
Dungals læknaprófessors. Gunnar
var sonur Halldórs, útvegsb. að
Seljalandi í Skutulsfirði, Halldórs-
sonar, b. að Meira-Hrauni í Skála-
vík, Guðmundssonar, húsmanns
að Seljalandi, Jónssonar. Móðir
Gunnars var Guðrún Jónasdóttir.
Móðir Veturliða er Sigrún, dótt-
ir Benedikts Gabríels, sjómanns í
Bolungarvík, Jónssonar, Jónsson-
ar, húsmanns að Ósi, Sumarliða-
sonar. Systir Jóns yngra var Mar-
grét, langamma Valdimars
menntaskólakennara Örnólfsson-
ar. Móðir Benedikts var Sigríður
Friðriksdóttir, b. á Látmm, Hall-
dórssonar, Eiríkssonar, Pálssonar.
Móðir Sigrúnar var Valgerður
Þórarinsdóttir, b. á Látrum í Mjó-
afirði, Þórarinssonau:, b. þar, Sig-
urðssonar, b. þar, Narfasonar.
Ragnheiður er dóttir Valgarðs,
stórkaupmanns á Akureyri, bróð-
ur Davíðs, skálds frá Fagraskógi.
Valgarður var sonur Stefáns,
alþm. í Fagraskógi, Stefánssonar,
prests á Kvíabekk, Ámasonar.
Móðir Stefáns alþm. var Guðrún
Jónsdóttir, b. á Brúnastöðum í
Fljótum, Jónssonar. Móðir Val-
gerðar var Ragnheiður, systir
Ólafs þjóðsagnasafnara. Ragnheið-
ur var dóttir Davíðs, prófasts á
Hofi í Hörgárdal, Guðmundsson-
ar, og Sigríðar Briem, systur Har-
alds, langafa Davíðs forsætisráð-
Valgarður Stefánsson.
herra. Sigríður var dóttir Ólafs,
timburmeistara á Grund, Gunn-
laugssonar, ættfóður Briemættar-
innar, Guðbrandssonar.
Móðir Ragnheiðar var Guð-
munda Ágústa Stefánsdóttir,
kaupmanns á Eskifirði, Runólfs-
sonar og Guðrúnar Ásgeirsdóttur,
silfursmiðs í Reykjavík, Kristjáns-
sonar Möllers.
Valgarður er að heiman í dag.
Mæva Friðrún Sólmundsdóttir
Mæva Friðrún Sólmundsdóttir,
þjóðhagfræðingur, búfræðikandi-
dat og bóndi með lífrænan búskap
að Litla-Búrfelli í Svínavatns-
hreppi í Austur-Húnavatnssýslu,
er fertug í dag.
Starfsferill
Mæva fæddist Marlene
Urbschat í Flensburg í Þýskalandi
og ólst þar upp, í Kiel og í Vestur-
Berlín.
Hún fékk íslenskan ríkisborg-
Tll hamingju
með afmælið
14. febrúar
95 ára
Gestur Hannesson,
Jöldugróf 16, Reykjavík.
80 áxa
Úlfar S. Norðdahl,
Reykjalundi, Mosfellsbæ.
Guðfinna Jónsdóttir,
Bakkagerði 9, Reykjavík.
Ólöf önundardóttir,
Æsufelli 2, Reykjavík.
75 ára
Guðmundur Ingjaldsson,
Amarsmára 4, Kópavogi.
Hjörtþór Ágústsson,
Skúlagötu 40, Reykjavík.
Ingi Tryggvason,
Narfastöðum, Reykdælahreppi.
70 ára
Ríkarð J. Ásgeirsson,
Kópavogsbraut 94, Kópavogi.
Aðalbjörg Björnsdóttir,
Skeiðarvogi 43, Reykjavík.
60 ára
Höskúldur Guðmundsson,
Fjarðarstræti 38, ísafirði.
Auður Jónsdóttir,
Langholti 11, Keflavík.
Ingibjörg Gunnarsdóttir,
Háaleitisbraut 40, Reykjavik.
50 ára
Hafsteinn Júlí-
usson,
starfsmaður
Flugleiða,
Borgargerði
Reykjavík.
Kona hans er
Laufey S. Þor-
móðsdóttir,
Þau taka á móti gestum á heimili
sínu laugardaginn 17.2. kl. 20.00.
Vonast þau til að sem flestir ætt-
ingjar og vinir láti sjá sig.
Grétar Sigurbergsson,
Miðleiti 10, Reykjavík.
Sveinn Rúnar Arason,
Heiðargerði 8, Húsavík.
Edda Hulda Waage,
Holtagerði 11, Kópavogi.
Reynir Valtýsson,
Hólsvegi 17, Reykjavík.
Pétur P. Johnsson,
Álftamýri 58, Reykjavík.
40 ára
Jóhanna Finnbogadóttir,
Njálsgötu 82, Reykjavík.
Ingólfur Amar Guðmundsson,
Brautarholti 14, Snæfellsbæ.
Oddný Þorgerðiu- Garðarsdótt-
ir,
Helgafellsbraut 17, Vestmannaeyj-
um.
Sigfús Jóhannesson,
Spóahólum 12, Reykjavík.
Halldór Benóný Nellett,
Bollagörðum 71, Seltjamamesi.
Smári Þröstur Sigurðsson,
Reynihvammi 18, Kópavogi.
Sólveig Stefánsdóttir,
Amarhrauni 46, Hafnarfirði.
Katrín Leifsdóttir,
Furugrund 16, Akranesi.
Sigurður Ármannsson,
Fannafold 120, Reykjavík.
Guðrún Jónsdóttir,
Hólsvegi 11, Reykjavík.
Þórunn Ragnarsdóttir,
Norðurbrún 30, Reykjavik.
Bjöm Stefán Þorsteinsson,
Brekkugötu 21, Akureyri.
Þorgils Gunnarsson,
Fornasandi 3, Hellu.
Bjarni Hálfdán Jónsson,
Álfheimum 34, Reykjavík.
ararétt eftir tíu ára dvöl hér á
landi 1991.
Mæva stundaði nám við Techn-
isches Gymnasium í Flensburg,
stundaði nám í þjóðhagfræði og
viðskiptafræði við Christian Al-
brechts Universitat í Kiel 1974-76,
stundaði þjóðhagfræðinám við
Freie Universitát Berlin 1976-80
með sérsvið í umhverfisfræðum,
stundaði nokkrar annir í fullorð-
insfræðslu við fjarháskóla, Fern-
universitaæt Hagen í Vestur-
Þýskalandi, lauk búfræðinámi frá -
Bændaskólanum á Hvanneyri 1992 '
og er búfræðikandidat þaðan frá
1995.
Mæva var leigubílstjóri í Flens-
burg og í Vestur-Berlín, starfaði
við hænsnabú hjá Geir I Eskihlíð,
stundaði sveitastörf í Lundi eitt
sumar, flutti á Blönduós 1984 og
starfaði við Búnaðarbanka íslands
um skeið, var í verknámi hjá Jó-
hönnu Magnúsdóttur og Tryggva
Jónssyni í Ártúnum í Bólstaðar-
hlíðarhreppi en festi, ásamt
mannj sínum, kaup á jörðinni
Litla-Búrfelli sl. sumar og stunda
þau þar lífræna ræktun. Þau
komu til íslands í brúðkaupsferð
1981.
Fjölskylda
Mæva giftist 12.3. 1981 Raimund
Bemhard Brockmeyer - Urbschat,
f. 12.5. 1956, eðlisfræðingi og bú-
fræðikandidat frá Hvanneyri.
Hann er sonur dr. Gisela Marie
og Heinrich Christian Brock-
meyer sem búsett eru í Þýska-
landi.
Böm Mævu og Raimund Bern-
hard eru Gunne, f. 30.11. 1980, d.
2.12. s.á.; Sólmundur Hrafn, f. 14.6.
1982; Sunneva Jasmín, f. 23.7.
1985.
Systkini Mævu era Helmut
Urbschat, f. 14.6. 1941, verkfræð-
ingur í Neumúnster í Holsteiner-
landi; Karin Carstensen, f.
Urbschat 28.4. 1949, kennari og
listakona í Lúbeck; Hans- Wemer
Urbschat, f. 12.12.1958, trésmiður
í Flensburg.
Mæva Friðrún Sólmundsdóttir.
Foreldrar Mævu era Franz Osk-
ar Urbschat, f. 18.3. 1916, lífeyris-
þegi, og Maria Magdalena
Urbschat, f. Fuckert 22.8. 1921, líf-
eyrisþegi.
Fjölskyldan er ættuð frá Aust-
ur- Prússlandi (Neukuhren) og
Tilsit en flutti til Vestur-Þýska-
lands í seinni heimsstyrjöldinni.
Þorgeir Vilhjálmsson
Þorgeir Vilhjálmsson, lagermað-
ur í Húsgagnahöllinni, Keldu-
hvammi 4, Hafnarfirði, er fertugur
í dag.
Starfsferill
Þorgeir fæddist í Hafnarfirði.
Hann lauk gagnfræðaprófi frá
Flensborg og stundaði nám í
fyrsta bekk Iðnskóla Hafnarfjarð-
ar.
Þorgeir hóf störf hjá ísal 1973
þar sem hann vann lengst af í
steypuskála eða til 1988. Þá varð
hann lagerstjóri hjá Káess og
vann síðan við samsetningar í
húsgagnaframleiðslu hjá GKS til
1993.
Þorgeir flutti til Patreksfjarðar
1993 og var þar í fiskvinnslu hjá
Odda hf. en flutti aftur suður 1994
og hóf þá störf hjá Húsgagnahöll-
inni þar sem hann vinnur enn.
Fjölskylda
Þorgeir kvæntist 18.6. 1982
Björgu R. Ingimundardóttur, f.
29.4. 1957, ljósmóður. Þau skildu
1993.
Sambýliskona Þorgeirs er Sús-
anna S. Wuthitha, f. 8.9. 1965, hús-
móðir. Hún er dóttir Heng Wut-
hitha og Thuem Wuthitha frá
Taílandi.
Sonur Þorgeirs og Bjargar er
Sigmundur B. Þorgeirsson, f.
11.12. 1985.
Stjúpsynir Þorgeirs era Gísli
Komson Wuthitha, f. 24.11. 1982,
og Guðmundur Komkrit Wut-
hitha, f. 22.11. 1984.
Systkini Þorgeirs eru Esther
Kristinsdóttir, starfsmaður hjá
Pósti og sima á Patreksfirði;
Sveinn Rúnar Vilhjálmsson, sjó-
maður á Patreksfirði; Sesselja
Unnur Vilhjálmsdóttir, húsmóðir í
Hafnarfirði; Jónína Sigurbjörg
Vilhjálmsdóttir, húsmóðir I Hafn-
arfirði; stúlka, f. andvana.
Foreldrar Þorgeirs voru Vil-
hjálmur Guðjón Sveinsson, f. 9.9.
1927, d. 21.9. 1992, mótoristi og
verkamaður í Hafnarfirði, og
Sveinfríður Alda Þorgeirsdóttir, f.
24.10. 1929, d. 26.7. 1989, húsmóðir.
Ætt
Vilhjálmur var sonur Sveins
Guðmundssonar frá Nýlendu und-
ir Eyjafjöllum.
Þorgeir Vilhjálmsson.
Sveinfríður Alda var dóttir Þor-
geirs Sigurðssonar frá Forsæti í
Flóa og Katrínar Markúsdóttur
frá Ystu- Görðum í Kolbeinsstaða-
hreppi.
Þorgeir verður að heiman á af-
mælisdaginn en býður vinum og
frændfólki í kaffi á heimili sínu
þann 17.2. kl. 15.00.