Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1996, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1996
Fréttir
Klofningur í uppsiglingu innan Dagsbrúnar
Ný Dagsbrún orðin til
- tromp okkar ef viö verðum áfram hundsuö, segir Kristján Árnason formaður
Þeir sem stóðu að framboði B-
lista gegn lista stjórnar og trúnað-
arráðs verkamannafélagsins Dags-
brúnar fyrr í vetur hafa stofnað nýtt
verkalýðsfélag sem heitir Verka-
lýðsfélag Reykjavíkur og nágrennis
- Ný Dagsbrún. Félagið var skráð
fyrir rúmri viku. „Þetta er sannleik-
ur, við erum búnir að þessu. Þetta
er tromp okkar ef stjórn Dagsbrún-
ar ætlar að halda uppteknum hætti
að hundsa okkur og vanefna loforð
sín um að breyta Dagsbrún í lýð-
ræðislegt nútíma-verkalýðsfélag,“
segir Kristján Ámason verkamaður
og oddviti B- lista Dagsbrúnar-
manna í síðustu stjórnarkosningum
Dagsbrúnar.
Kristján segist ekki hafa orðið
var við að ný stjórn Dagsbrúnar
væri starfsöm. Samskipti félagsins
við þá mótframbjóðendur séu stirð
og hafi hann greint Guömundi J.
Guðmundssyni fráfarandi formanni
frá því og að afleiðingarnar gætu
orðið alger sprenging.
Aðalfund Dagsbrúnar á sam-
kvæmt félagslögum að halda í febr-
úar en það hefur dregist og þar með
að nýja stjórnin taki formlega við
stjórnartaumunum. Ástæða þessa
er sú að ekki er búið að ganga frá
reikningum félagsins.
- En hvað þarf að gerast að mati
Kristjáns til þess að hin nýja Dags-
brún verði vakin upp sem fullgilt
verkalýðsfélag og klofningurinn
þannig staðfestur veruleiki?
„Það kemur ekki í ljós fyrr en að
loknum aðalfundi. Ef þeir þar lýsa
því yfir að þeir ætli að hjakka svona
áfram í sama farinu og þeir hafa
gert undanfarin 50 ár, án nokkurra
lagabreytinga sem leiða félagið í
lýðræðisátt, þá mun Dagsbrún
klofna endanlega. Hinir vinnandi
Dagsbrúnarmenn munu fylkja sér
yfir til okkar. Hinir geta þá haft elli-
lífeyrisþegana og öryrkjana í hinni
Dagsbrúninni ef þeir vOja,“ segir
. Kristján.
-SÁ
Stofnun nýrrar Dagsbrúnar:
Lýsir undarlegum
lýðræðisskilningi
- segir Halldór Björnsson, formaður Dagsbrúnar
Dagsbrún hefur forgangsrétt til
vinnunnar á félagssvæði sínu, segir
Halldór Björnsson.
DV-mynd GVA
Pitsusendlar:
Lögreglan
vill ekk-
ert gera
„Skilaboð lögreglunnar eru að
þetta sé allt í lagi,“ segir Hafþór
Pálsson, hjá Pitsa 67, um við-
brögð lögreglu viö að ráðist er á
sendla frá fyrirtækinu og fleiri
pitsufyrirtækjum þegar þeir
skila vöru sinni til kaupenda.
Nú um helgina var einn send-
ill barinn svo á sá en Hafþór seg-
ir að lögreglan hafi ekki viljaö
koma á staðinn og nú, þegar átti
aö kæra atburðinn, hafi engin
skýrsla veriö til og sendlinum
sagt að koma eftir hálfan mán-
uð.
Hjá lögreglunni er sagt að
auðvitað korai hún á vettvang ef
til átaka kemur. Hins vegar
komi oft upp mál þar sem um
sviksemi er að ræða og kaup-
andinn neitar að borga pitsuna.
í þeim tilfellum sé um einkamál
aö ræða. Vissulega geti þó kom-
ið upp vafatilvik þar sem tregða
kaupandans við að borga leiði
til handalögmála.
-GK
„Mér dettur auðvitað ekki í hug
að banna mönnum að stofna félag
enda hef ég ekkert vald til þess.
Hins vegar er þetta í fyrsta sinn í
mínu minni sem framboð sem verð-
ur undir í kosningum sættir sig
ekki við lýðræðisleg úrslit kosn-
inga. Þetta sýnir í mínum augum
nýja hlið á lýðræðinu," segir Hall-
dór Bjömsson, formaður Dagsbrún-
ar.
„Ef þetta á að verða stéttarfélag
þá veröur að benda á að Dagsbrún
hefur forgangsrétt til vinnunnar á
félagssvæði sínu og hefur samnings-
réttinn gagnvart viðsemjendum sem
eru fyrst og fremst Vinnuveitenda-
sambandið, Vinnumálasambandið,
ríkið og sveitarfélögin og annað fé-
lag getur ekki að svo komnu máli
komið þar að,“ segir Halldór.
Halldór segir stofnun nýs verka-
lýðsfélags vera á skjön við almenn-
an vilja fólks að fækka félagseining-
um og stækka um leið. „Viðræður
mUli Framsóknar og Dagsbrúnar
eru þegar hafnar um sameiningu fé-
laganna og þessi vinnubrögð B-lista-
manna eru í andstöðu við það starf
sem unnið er við að búa til stærri
og voldugri einingar. Hins vegar
hlýtur þessi stefna þeirra félaganna
að falla félagsmálaráðherra vel í geð
enda í samræmi við hans hugmynd-
ir um uppbyggingu vinnumarkaðar-
ins í margar smáar einingar,“ segir
Halldór.
Hann segir jafnframt að nafnið
Dagsbrún eigi sér 90 ára hefð sem
nafn á félagi reykvískra verka-
manna. Félagið muni því láta kanna
út frá lagalegum sjónarmiðum
hvort annað félag geti tekið sér
nafnið á þann hátt sem hið nýja fé-
lag hefur gert. -SÁ
Indriði Helgason rafvirki afhendir öskubakkana sína.
DV-mynd BG
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600. 8?
39,90 kr. mínútan. S ,
Já 1J
Nei 2 |
,r « d d
FOLKSINS
904-1600
Á að skerða lífeyrisréttindi
opinberra starfsmanna?
Reykti í sautján ár:
Erfitt að hemja matarlystina
„Ég hef reykt í sautján ár og mig
hefur lengi langað að hætta. Mér
fannst það ekkert sérstaklega erfitt
og ég þurfti ekki að nota nein hjálp-
artæki," segir Indriði Helgason raf-
virki sem DV hitti að máli þegar
hann skilaði inn öskubökkunum
sínum í gær hjá Krabbatneinsfélag-
inu.
Nokkuð hefur verið um^aö fólk
skili inn öskubökkum sínum í apó-
tekum, hjá Krabbameinsfélaginu og
Bylgjunni. Indriði er nýhættur að
reykja og með því að skila ösku-
bökkunum ætlar hann að gera
heimili sitt alveg reyklaust. Vina-
fólk hans hefur tekið því vel. Ind-
riða finnst nú tóbakslyktin ógeðsleg
en erfitt hefur honum fundist að
hemja matarlystina. Að sögn Þor-
varðar Örnólfssonar hjá Krabba-
meinsfélaginu, hafa fáir skilað inn
öskubökkum þangað en langir listar
hafi borist Bylgjunni. -em
Hinir vinnandi Dagsbrúnarmenn
munu fylkja sér yfir til okkar, segir
Kristján Árnason. DV-mynd GVA
Stuttar fréttir
Dauðir fuglar
Hundruð olíublautra fugla
hafa drepist í fjöru á Suðurlandi
í kringum Vík í Mýrdal síðustu
daga. Ástæðan er talin olíu-
mengun í sjónum en ohuflekkir
hafa þó ekki fundist.
Fleiri apótek
Með gildistöku nýrra lyfjalaga
er ljóst að apótekum mun fjölga
verulega á næstunni. Sam-
kvæmt RÚV vilja flestir opna
apótek á höfuðborgarsvæðinu
en hátt í 10 umsóknir Uggja á
borði heilbrigðisráðherra um
rekstur apóteka.
Ógn af Heimskautsráði
Alþjóða náttúruverndarsjóð-
urinn telur að stofnun Heim-
skautsráðs geti ógnað umhverfi
norðurskautsins en ísland er
meðal 8 stofnríkja, samkvæmt
frétt RÚV.
Dufl i Hellisfirði
Sprengjusérfræðingar Land-
helgisgæslunnar gerðu í fyrra-
dag óvirkt rússneskt dufl sem
fannst í HeUisfirði inn af Norð-
fjarðarflöa um helgina. RÚV
greindi frá þessu.
Skítur í Þorlákshöfn
Ógemingur hefur verið að
þrífa mörg hús í Þorlákshöfn
sem borið hafa brúngulan lit.
Samkvæmt frétt Stöðvar 2
leikur grunur á að orsökina sé
að finna í loðnu sem var dreift i
landgræðsluskyni í haust en
fauk í óveðrinu á dögunum.
Átak í verðbréfasölu
Viðskiptaráðherra vill efna til
átaks í að selja útlendingum
íslensk verðbréf. Samkvæmt
Ríkissjónvarpinu telur hann
verðtryggingu fæla erlenda fjár-
festa frá landinu.
Kornakrar plægðir
Sökum rjómablíðu síðustu
daga eru komræktarbændur á
Suðurlandi þegar byrjaðir að
plægja akra sína. Þetta kom
fram á Ríkissjónvarpinu.
Sextán sóttu um
Sextán umsóknir bámst um
stööu yflrmanns innlendrar dag-
skrárdeildar hjá Ríkissjónvarp-
inu.
Númeragjald lækkað
Að tillögu allsherjarnefndar
Alþingis hefur gjald fyrir einka-
bílnúmer verið lækkað úr 50 í 25
þúsund krónur í frumvarpi
dómsmálaráðherra.______-bjb