Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1996, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1996
Eréttir
5
DV
## Samtök landflutningamanna:
Okuritana burt
- útilokaö, segir dómsmálaráðuneytiö
Samtök landflutningamanna hafna
því alfarið að tekin verði upp hér á
landi lögbundin notkun ökurita og
hraðatakmarkara. í Samtökum land-
flutningamanna eru Bandalag ts-
lenskra leigubílstjóra, Félag hóp-
ferðaleyfishafa, Félag sérleyfishafa,
Félag vinnuvélaeigenda, Landssam-,
band vöruhifreiðastjóra, Trausti, Fé-
lag sendibilstjóra og Ökukennarafé-
lag íslands.
„Það var fundur fyrir skömmu um
þetta mál 1 utanríkisráðuneytinu og
niðurstaða hans er sú að það er úti-
lokað að fá undanþágu frá þessu,“
segir Guðni Karlsson, deildarstjóri í
dómsmálaráðuneytinu. Ekki sé held-
ur lengur hægt að fresta gildistöku
laga EES um þessi mál þar sem að-
lögunartími, sem íslendingar fengu,
sé þegar liðinn og gefnar hafa verið
þær undanþágur sem ráðuneytið tel-
ur sér stætt á að veita gagnvart lög-
um um þessi mál sem gilda innan
EES.
í sameiginlegri ályktun félaganna
innan Landvara segir að engin brýn
þörf sé á að samræma reglur um
þessi mál við þær reglur sem gilda í
Evrópu. Allar aðstæður, bæði varð-
andi vinnumarkað sem og umferðar-
mannvirki, séu aðrar hér. Afkoma
landflutningamanna byggist á
sveiflukenndum og árstíðabundnum
toppum sem bera afkomuna uppi.
Þess í milli sé ládeyða. Evrópskar
reglur geri það ómögulegt að anna
verkefnum á háannatímanum nema
með óheyrilegum kostnaði sem muni
kippa rekstrargrundvellinum undan
rekstrarafkomunni. Þá eigi að skylda
menn til að taka upp gamlar gerðir af
ökuritum nú þegar nýjar og full-
komnar gerðir eru rétt ókomnar á
markað. Þetta muni hafa í for með
sér hundraða milljóna króna kostnað
fyrir greinina. Samtök landflutninga-
manna fara þess á leit við dómsmála-
ráðherra að hann felli þegar í staö úr
gildi reglugerðir um ökurita og hvíld-
artima ökumanna ásamt reglugerð
um hraðatakmarkara. „Samkvæmt
reglunum er það ekki hægt,“ segir
Guðni Karlsson. -SÁ
BURÐARGJALD-
GREITT ÍÖjÍD)
ISLAND
Leyfi nr. 129
'ToL’ clM-
(JTMAOo 4-
130
ára
qfrnœlistónleikar
íNorræna húsinu,fimmtudaginn 21. mars 1996,
kl. 20:30
TRÍÓ ÓLAFS STEPHENSEN
GuðmundurR. Einarsson, trm.
Tómas R. Einarsson, bs.
Draumur allra ungra manna er að eignast snjóbretti. Þau eru í tísku núna en
venjuleg skíði þykja heldur gamaldags þótt þeir fullorðnu telji að þau séu
fullboðleg. í Bláfjöllum hafa menn nýtt sér skíða- og snjóbrettafærið vel síð-
ustu daga en vissara er að vera vel klæddur. DV-mynd ÞÖK
Lýsing á Reykjanes-
braut frá Hafnarfirði
í Leifsstöð
DV, Suðurnesjum:
„Eitt mikilvægasta verkefnið til
að minnka hættu við akstur um
Reykjanesbrautina er þessi lýsing.
Það hefur komið fram í úttektum,
sem gerðar hafa verið erlendis, að
lýsing á vegum lækkar svokallaðan
hættustuðul verulega. í þessu tilviki
gerum við ráð fyrir að hættustuðull-
inn geti lækkað um 30%,“ sagði
Kristján Pálsson alþingismaður í
samtali við DV I morgun.
Á fundi þingmanna Reykjanes-
kjördæmis og fulltrúa frá Vegagerð
ríkisins á miðvikudag náðist sam-
staða um að Reykjanesbrautin yrði
lýst eða sá hlutinn sem eftir er frá
Leifsstöð 1 Hafnarfjörð. Vegalengdin
er 30 km og verður tekin í einum
áfanga. Framkvæmdir hefjast næsta
haust og standa fram á vetur.
Áætlaður kostnaður er 159 millj-
ónir króna en með útboði er talið að
hægt sé að lækka kostnað verulega.
Fyrirhugað er að vinna fyrir 115
milljónir I ár en mismunurinn yrði
fjármagnaður á næsta ári og þá tek-
in lán upp í hann. Menn gæla samt
við að með útboði væri hugsanlega
hægt að hafa þessa framkvæmd inn-
an ramma fjárlaga í ár. Rekstrar-
kostnaður við lýsinguna er talinn 5
milljónir á ári. Um brautina fara
5000 bílar að meðaltali á sólarhring
en 7700 þegar mesta umferðin er.
Gert er ráð fyrir að verkið verði
boðið út næstu daga.
„Sem fyrsta framkvæmd til að
bæta öryggi Reykjanesbrautarinnar
er að lýsa hana upp og það átak sem
hægt er að gera á sem skemmstum
tíma skilar mesta árangrinum fyrir
minnsta peninga. Hitt verkefnið,
sem áfram verður unnið að, er að
breikka brautina. Það myndi kosta
1200-1300 milljónir ásamt öðrum úr-
bótum sem nauðsynlegar eru,“
sagði Kristján. -ÆMK
Ókyrrð í Helgu-
víkurhöfn
DV, Suöurnesjum:
„í norðaustanátt er ókyrrð í höfninni
vegna ffákasts sem kemur ífá suðaustur-
hlutanum í Helguvíkinni. Það er því nauð-
synlegt að mynda grjótfláa í bergið til að
brjóta ölduna svo hún skelli ekki á kletta-
veggnum áður en hún berst inn í höfnina,"
sagði Pétur Jóharinsson, hafnarstjóri í
Reykjanesbæ.
Komið hefur í ljós að mikill órói er við
legukantinn í höfninni í norðaustanátt.
Hafnarstjórin hefur fjallað um málið og er
talið nauðsynlegt að sprengja fláa í bergið
til að brjóta ölduna sem gert hefur mönn-
um lífið leitt í starfi í höfhinni. -ÆMK
Ólafur Stephensen, pno.
Hlefnið er sjömgsafmæli Guðmundar R. Einarssonar, sem einnig fagnar
fimmtíu ára starfsafmæli sem tónlistarmaður og sextugsafmæli Ólafs Stephensen.
Svo á Tómas R. Einarsson bara venjulegt afmæli á mánudaginn kemur!
Slagharpan er sérstaklega stil/t
afSigurði Kristinssyni
TOSHIBA
Fermingargjöf
til framtíöar
NOi
á Topp 10 listanum
hjá WHAT VIDEO
JÉfcl\
P%\ Topp 10 á
forsíðu if&jámWMtL£
*XA Pro - Drum
■P m,ndh«,.in
TOSHIBA
videotækin eru með
PRO-DRUM myndhausnum - bylting frá eldri gerðum,
betri myndgæði, 40% færri hlutir, því minni bilanatíöni.
Kynntu þér TOSHIBA tækin - 6 geröir.
Toshiba V-205w, PRO - Drum, Long play, NTSC afspilun
KU Einar
MmÆ Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 “S 562 2901 og 562 2900
Kr. 3S.S10
Seljum úrval stereosamstæða frá
AIWA - AKAI - DAEWOO