Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1996, Qupperneq 16
28
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1996
íþróttir
Ince aftur í
enska hópinn
- Neville-bræðurnir báðir valdir
Paul Ince, leikmaöur með Inter
Milano á Ítalíu, var i gær valinn í
enska landsliðshópinn í knatt-.
spyrnu á ný eftir árs fjarveru.
Englendingar mæta Búlgörum í
vináttuleik á Wembley næsta mið-
vikudag.
Terry Venables valdi 26 manna
hóp í gær og í honum eru nýlið-
arnir PhO Neville frá Manchester
United, Robbie Fowler frá Liver-
pool og Ugo Ehiogu frá Aston
Villa. Bróðir Phils, Gary Neville,
er einnig í hópnum og þeir gætu
orðið fyrstu bræðumir til að spila
saman með enska landsliðinu í 26
ár, síðan Bobby og Jack Charlton
spiluðu þar saman síðast.
Ian Walker frá Tottenham og
Trevor Sinclair frá QPR hafa held-
ur ekki spiiað landsleik en þeir
hafa áður verið í landsliðshópn-
um.
Mark Wright, miðvörður Liver-
pool, er valinn á ný eftir þriggja
ára fjarveru og Jamie Redknapp
frá Liverpool og David Platt eru
aftur með eftir fjarveru vegna
meiðsla.
Aðrir í hópnum eru: David Sea-
man, Tim Flowers, Rob Jones,
Steve Howey, Stuart Pearce, Gar-
eth Southgate, Steve Stone, Paul
Gascoigne, Dennis Wise, Peter
Beardsley, Alan Shearer, Les
Ferdinand, Teddy Sheringham,
Robert Lee, Steve McManaman og
Nicky Barmby. Tony Adams og
Gary Pallister eru fjarverandi
vegna meiðsla. -VS
Leikmaður ársins í Englandi:
Sex tilnefndir
- Ruud Gullit er ekki í þeim hópi
Á sunnudagskvöldið kemur verð-
ur knattspyrnumaður ársins í
Englandi útnefndur en það eru leik-
mennirnir sjálfir sem kjósa hann.
Birt hafa verið nöfn þeirra sex sem
til greina koma og þar vekur athygli
að Ruud Gullit frá Chelsea, sem
margir höfðu spáð titlinum, kemst
ekki á blað.
Sexmenningarnir eru: Les Ferd-
inand, Peter Beardsley og David
Ginola frá Newcastle, Alan Shearer
frá Blackburn, Steve Stone frá Nott-
ingham Forest og Robbie Fowler frá
Liverpool. Það er einnig athyglis-
vert að Ginola er eini útlendingur-
inn í þessum hópi.
Robbie Fowler er talinn öruggur
með að verða útnefndur efnilegasti
leikmaður úrvalsdeildarinnar. Aðr-
ir sem nefndir eru til sögunnar í því
kjöri eru Steve McManaman frá
Liverpool, Gary Neville og Nicky
Butt frá Manchester United, Trevor
Sinclair frá QPR og Ugo Ehiogu frá
Aston Villa.
Sigurvegararnir fá glæsilegar
styttur og það er sjálfur Pele sem
mætir og afhendir þær.
-VS
íslandsmótið í kata um helgina:
Fílefldur ísraeli
gestur á mótinu
- brýtur 100 múrsteina á 127 sekúndum
íslandsmeistaramótið í kata
verður haldið í Haukahúsinu í
Hafnarfirði á laugardaginn kemur. f
tengslum við mótið kemur hingað
til lands Rassi Livin frá ísreal sem
er 8. dan í íþróttinni. Fyrir
aflraunir sínar hefur nafn hans
komist í Heimsmetabók Guinness
fyrir að brjóta 100 múrsteina á 127
sekúndum.
Hann hefur farið víða um
heiminn til að sýna listir sýnar en
þetta er í fyrsta sinn sem hann
kemur til íslands. Á íslandsmótinu
á laugardaginn mun hann meðal
annars brjóta múrsteina og verður
þá sjón sögu ríkari.
-JKS
Juwan Howard hefur leikið vel með Washington í vetur en lið hans mátti
sætta sig við tap gegn San Antonio á heimavelli í nótt. Washington er í
tíunda sæti Austurdeildar en á enn wþá von um að komast í úrslitin.
NBA-deildin í körfuknattleik í nótt:
Endurnyjað lið Miami
er til alls líklegt
Eftir mikil umskipti á leikmönn-
um á dögunum virðist lið Miami
vera að smella saman. Miami lék
frábærlega í' nótt og vann góðan
sigur á Detroit og er nú komið á
hælana á Charlotte í baráttunni
um áttunda og síðasta úrslitasætið
í Austurdeildinni.
Pat Riley, þjálfari Miami, varð 51
árs í gær og fékk því góða afmælis-
gjöf frá leikmönnum sínum. „Þetta
var bara tímaspursmál. Við geng-
um í gegnum gífurleg umskipti en
nú höfum við náð að venjast hver
öðrum,“ sagði Alonzo Mouming,
hinn öflugi leikmaður Miami.
Úrslitin í nótt:
Boston-Orlando ...........90-112
Wesley 22, Fox 12, Brown 12 - Hardaway
35, Shaq 28, Grant 19.
New York-Indiana..........102-99
Ewing 31, Starks 19, Mason 16, Harper 12
- Miller 25, McKey 20.
Washington-San Antonio . . 101-112
Muresan 30 - Robinson 33, Johnson 19.
Miami-Detroit ............102-93
Mourning 24, Gatling 24, Chapman 20 -
Hill 21, Houston 21.
Atlanta-Vancouver .........98-93
Smith 26, Henderson 16 - Reeves 20.
Toronto-Charlotte .........107-89
Stoudamire 24, Rogers 24, Tabak 18 -
Johnson 19.
Milwaukee-Sacramento .... 97-122
Newman 19 - Grant 30, Polynice 20.
Utah-Philadelphia ..........107-84
Malone 24 - Higgins 18, Weatherspoon 14.
LA Clippers-Minnesota .... 110-96
Dehere 23, Rogers 20, Vaught 16 - Rider 31.
„Ef hugarfar leikmanna er rétt
eigum við möguleika á meist-
aratitlinum," sagði Jeff Van
Gundy, hinn nýi þjálfari New
York, eftir fjórða sigur liðsins í röð
undir hans stjórn, gegn Indiana.
Þrír leikmenn voru reknir af
velli í leik Utah og Philadelphia,
Jeff Hornacek hjá Utah og Jerry
Stackhouse og Vernon Maxwell hjá
Philadelphia.
Shaquille O’Neal setti persónu-
legt met þegar hann átti 8 stoðsend-
ingar i yfirburðasigri Orlando í
Boston.
Steve Smith skoraði 19 stig fyrir
Atlanta á siðustu 5 mínútunum
„gegn Vancouver.
San Antonio tryggði sér sæti í
úrslitakeppninni með góðum sigri í
Washington. -VS
Miljkovic
kemur í maí
Zoran Mfljkovic, júgóslav-
neski varnarmaðurinn sem hef-
ur spilað með íslandsmeisturum
ÍA í knattspyrnu undanfarin tvö
ár, er væntanlegur á Skagann
þann 5. maí. Hann er þessa dag-
ana að leika með ÍA á alþjóðlega
mótinu á Kýpur.
Miljkovic skipti á dögunum úr
ÍA yflr í júgóslavneska félagið
BSK Batajnica. Hann fékk leyfi
til þess frá ÍA með því skilyrði
að hann yrði með á Kýpur og
kæmi til landsins 5. maí.
-DÓ/VS
Tómas áfram
í Borgarnesi
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum DV verður Tómas
Holton áfram þjálfari úrvals-
deildarliðs Skallagríms í körfu-
boltanum.
Eiginkona hans var nýlega
ráðin framkvæmdastjóri lands-
mótsins sem haldið verður í
Borgarnesi á næsta ári. Þannig
að alla vega verður Tómas eitt ár
tfl viðbótar með Skallagrím.
-DÓ/JKS
Georgíumaður
til Man. City
Manchester City hefur krækt
sér í annan Georgíumann, leik-
mann að nafni Mikhail Kavelas-
hivla, en fyrir hjá félaginu var
Kinkladche sem raunar hefur
slegið í gegn í vetur. City þarf að
borga Spartak Vladikawaz um
140 mflljónir króna.
Aðeins er eftir að ganga frá at-
vinnuleyfí og er Alan Ball bjart-
sýnn á að það fáist án erfiðleika.
Ef aUt gengur að óskum leikur
Mikhail fyrsta leik sinn gegn
Bolton á laugardaginn kemur.
Hodgson leitar
í Þýskalandi
Roy Hodgson, þjálfari Inter,
hefur sagt forráðamönnum liðs-
ins að hann vilji styrkja liðið
með tveimur ákveðnum leik-
mönnum og voru útsendarar frá
Inter sendir tU Þýskalands í síð-
ustu til viðræðna við leikmenn-
ina. Þeir eru Mario Basler hjá
Werder Bremen og Ciriaco
Sforza hjá Bayem.
Hodgson sagði við Gazzetta
deUa Sport að hann væri nokk-
uð viss um að Paul Ince myndi
snúa á ný tU Englands eftir þetta
timabU.
Svissneskt lið
„ -
leitar a Islandi
Svissneskt 1. deUdar lið í
handbolta leitar hér á landi eftir
spUandi þjálfara. Liðið sem hér
um ræðir heitir TV Langgasse
frá Bern. Ráðningarsamningur
er frá júní í sumar.
Þeim sem hafa áhuga á þessu
starfi er bent á símanúmer 0041-
319725400 eða fax 0041-319725403.
-JKS
í kvöld
Körfubolti - undanúrslit karla:
Grindavík-Haukar ....20.00
Körfubolti - úrslit 1. deildar:
KFÍ-Þór Þ............20.00
Handbolti - undanúrslit karla:
Afturelding-Valur....20.00