Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1996, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 28. MARS 1996 Fréttir_______________________________________________________________________________________pv Smuga 1 lögum gefur nokkrum hálaunastéttum góða eftirlaunauppbót: Atvinnuleysisbætur til viðbótar við eftirlaunin - löglegt en siðlaust, segir deildarstjóri vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytis Nokkrar hátt launaðar starfsstétt- ir notfæra sér smugu í lögum um at- vinnuleysisbætur og fá greiddar at- vinnuleysisbætur þótt fólk sé komið á full eftirlaun. Hér er einkum um að ræða sérhæfðar stéttir eins og flugmenn og ýmsa hálaunaða ríkis- starfsmenn, svo sem flugumferðar- stjóra og lækna. Margrét Tómas- dóttir, deildarstjóri vinnumálaskrif- stofu félagsmálaráðuneytisins stað- festir að þetta sé rétt. Að sögn Margrétar fer þetta fólk gjarnan á atvinnuleysisbætur eftir að því hefur verið sagt upp störfum meðan það er enn á aldri sem er skilgreindur sem vinnumarkaðsald- ur, þ.e. undir 70 ára, samkvæmt lög- um um atvinnuleysisbætur. Þrátt fyrir að þetta fólk komist á eftirlaun strax getur það skráð sig sem at- vinnulaust og fengið atvinnuleysis- hætur til viðbótar við eftirlaunin, að því tilskyldu að þvi sé sagt upp störfum. „Lögum samkvæmt er þetta hægt. Það er ekkert í gildandi lögum sem bannar þetta,“ segir Margrét við DV. Aðspurð hvort hafa megi um þetta fleyg orð um löglegt en siðlaust athæfi svarar Margrét játandi. „Viðhorfm hafa breyst mjög varðandi mál af þessu tagi undan- farin ár. Fólk telur einfaldlega að það eigi rétt á þessu,“ segir hún. Flugmenn hjá Flugleiðum hætta nú orðið störfum hjá félaginu 63 ára gamlir og fara beint á eftirlaun sem nema hátt á annað hundrað þúsund kr. á mánuði. Jafnframt geta þeir skráð sig atvinnulausa samtímis og geta því verið á bótum jafnframt til sjötugs, t.d. með því að vera duglegir við að sækja námskeið til að falla ekki út af bótum. Lífeyris- sjóður atvinnuflugmanna byrjar að greiða eftirlaun við 63 ára aldur. En til þess að tryggja þessum hópi betri afkomu er hinum 63 ára „sagt upp“ störfum og fara þeir þá um leið á at- vinnuleysisbætur til þess að „brúa bilið“ til sjötugs. Samkvæmt lögum um atvinnu- leysistryggingar er aðeins um einn viðmiðunarlaunaflokk að ræða sem eru laun fiskverkunarfólks í landi. Lögin taka til allra launþega og meðan fólk er gjaldgengt á vinnu- markaöi, þ.e. undir sjötugu, á það rétt til atvinnuleysisbóta sé það án vinnu og í atvinnuleit. Lögin gera ekki ráð fyrir því að einhverjar stéttir geti verið komnar á eftirlaun fyrir sjötugt. Flugmenn og flugum- ferðarstjórar fara hins vegar á eftir- laun 63 ára gamlir. Engin heimild er í lögunum til að meina þeim að taka atvinnuleysisbætur. Þessir menn eru gjaldgengir á vinnumark- aði og álitamál hvort margir þeirra kæra sig um að fara að vinna við hvað sem er eftir að vera komnir á full eftirlaun. Atvinnuleysisbæturn- ar þýða tekjuauka upp á u.þ.b. 50 þúsund krónur á mánuði eftir að búið er að draga frá skatta. -SÁ Árni Sigfússon, oddviti borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna, ■ hópi sjálfstæðismanna á ráðstefnu um framtíðar- sýn fyrir Reykjavík sem haldin var í gær. DV-mynd GS Sjálfstæðismenn spá skuldaaukningu hjá borginni: Dýr kosningaloforð sem ekki er hægt að efna - að mati Árna Sigfússonar borgarfulltrúa Sýkna í selamáli: Samtök sela- bænda sitja uppi með rannsóknar- kostnað Fjölskipaöur dómur Héraðs- dóms Vestfjarða sýknaði í gær tvo ísfirðinga af ákæru um stór- felld eignaspjöll og ólöglegar sel- veiðar með því að hafa drepiö um 40 útseli og eyðilagt selalát- ur í landi Skjaldabjarnarvíkur á Ströndum í október 1994. Mönnunum var gefið að sök að hafa tekið kjálkana úr selun- um og síðan skilið blóðug hræin eftir í látrunum og þannig vald- ið varanlegum spjöllum á sela- látrunum. Mál þetta hefur verið talið all- sérstakt, m.a. í ljósi þess aö eng- ir sjónarvottar voru að drápun- um. Ákæran var aðmestu leyti byggð á frásögn eigendanna í Skjaldabjarnarvík. Dómurinn taldi málið ekki þess eðlis að hægt væri að sak- fella ákærðu. Þeir hefðu ávallt neitað sakargiftum eindregið og einnig hefðu rannsóknaraðilar ekki farið á vettang. Auk þess voru myndir ekki lagðar fram af vettvangi þar sem hin blóðugu hræ voru. Samtök selabænda kröfðust þess að sakbomingarnir greiddu fyrir DNA-rannsókn sem kost- aði um eina milljón króna og samtökin höfðu sjálf óskað eftir og greitt fyrir. Því hafnaði dóm- urinn og sagði að varsla sýn- anna hefði verið handahófs- kennd og ómarkviss. Sakar- kostnaður, þar með talin 180 þúsund króna málsvamarlaun fellur á ríkissjóð. Héraðsdómaramir Jónas Jó- hannsson dómsformaður, Hjört- ur O. Aðalsteinsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson kváðu upp dóminn. „Það er ljóst að það er engan veginn hægt að efna þau loforð sem R-listinn hefur gefið, þau eru svo mörg og þau eru svo dýr að það er ekki til neins. Við reynum því að meta störf R-listans inn í einhvern raunveruleika og framtíðarhorfur til næstu tíu ára,“ segir Árni Sigfússon, oddviti borgarstjórnar- flokks sjálfstæðismanna í Reykja- vík. Borgarstjórnarflokkur sjálfstæð- ismanna hélt í gær borgarmálaráð- stefnu ásamt fulltrúaráði flokksins í Reykjavík. Þar var kynnt stefna borgarstjórnarflokksins en í henni felst lækkun skatta, að skuldir verði greiddar niður og þjónusta borgar- stofnana efld. Á ráðstefnunni voru metin áhrif af stefnu R-listans og framkvæmdum í borgarstjórn og líklegum afleiðingum næsta áratuginn. „Til þess að ná markmiðum okk- ar,“ sagði Árni Sigfússon, „verðum við að endurskoða markmið með þjónustu Reykjavíkurborgar. í öðru lagi þurfum við að stuðla að öflugra atvinnulífi með því að liðka fyrir því í stað þess að flækjast fyrir því. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, SH, á nú 75% hlut í þriðja stærsta fisksölufyrirtæki Bretlands. Þetta gerist með samruna Icelandic Freezing Plants, sem ert dótturfyrir- tæki SH í Bretlandi, og Faroe Seafood sem að hálfu er í eigu SH. Nýja fyrirtækið heitir Icelandic Freezing Plants Ltd. Það tekur í þriðja lagi þurfum við að standa að því að einfalda borgarreksturinn og í því eru fólgnar ýmsar aðgerðir og nýir stjórnunarhættir þurfa að koma til. Ámi segir að í tveggja ára stjórnartíð R-listans hafi skuldir borgarinnar aukist úr 11 milljörðum og stefni í 16,7 milljarða í lok kjörtímabilsins þrátt fyrir auknar álögur á borgarbúa og veitustofnanir borgarinnar. -SÁ formlega til starfa um mánaðamótin og er ætlað að annast sölu á sjávar- afurðum fyrir framleiðendur sem starfa innan vébanda SH. Helstu viöskiptavinirnir i Bretlandi veröa verslana- og veitingahúsakeðjur, svo sem Marks & Spencer og McDonald’s. -GK Stuttar fréttir Lélegur brandari Harðvítug deila er milli trillu- karla og útvegsmanna um fjár- hæðir í formi veiðiheimilda, að sögn Stöðvar 2. Fórmaður trillu- karla telur hótun LÍÚ lélegan brandara. 100 störf í hættu í Grundarfirði eru 100 störf í hættu ef úthafskarfakvóta verð- ur skipt í samræmi við veiði- reynslu. Stöð 2 greindi frá. Tölvuval með forystuna Gunnar Hansson hættir sem forstjóri Nýherja. Tæknival hef- ur tekið forystu á tölvumarkað- inum. Stöð 2 sagði frá. Varaflugvellir hér Kafbátaleitarflugvélar Varn- arliðsins mega nota flugvellina á Akureyri og Egilsstöðum sem varaflugvelli til að lækka rekstr- arkostnað. Mbl. greindi frá. NAMMCO styrkist Sjávarútvegsráðherra telur að Rússar og Kanadamenn styrki sjávarspendýraráðið NAMMCO. Útvarpið sagði frá. Hætta á ísöld Mikil hætta er á nýrri ísöld vegna veðursfarsbreytinga af mannavöldum. RÚV greindi frá. Sigurður dagskrárstjóri Sigurður Valgeirsson hefur verið ráðinn dagskrárstjóri inn- lendrar dagskrárdeildar Sjón- varpsins. Ofnæmí sjaldgæfara Tíðni ofnæmis er lægri hér en í öðrum löndum, skv. Stöð 2. Útvegsmenn átelja Útvegsmannafélag Norður- lands átelur stjórnvöld fyrir undanlátssemi við útgerðar- menn smábáta. Tilkynning umframboð? Búist er við að Ólafur Ragnar Grímsson tilkynni um forseta- framboð eftir páska. Alþýðu- blaðið sagði frá. Leikur þríbrotin Helga Bachmann leikkona hefur leikið síðustu daga með glóðarauga og þríbrotið kinn- bein. Mbl. sagðj frá. Fæðingarorlof skert Karlanefnd jafnréttisráðs mótmælir þeim áformum um skerðingar á fæðingarðrlofsrétti sem birtist í frumvarpi um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. -GHS -Ótt 904-1600 Er rétt að takmarka skemmtanahald um páska? Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringla í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. Já _lj Nei J2j ,r ö d i FOLKSINS SH styrkir stöðu sína í Bretlandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.