Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1996, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 28. MARS 1996 Fréttir Búist viö auknum aflaheimildum innan skamms: Engan hitt sem ekki býst við aukningu aflaheimilda - segir Einar K. Guöfinnsson alþingismaður „Ég tel auðvitað mjög æskilegt að auka þorskveiðiheimildir en ég vil fá fram vísindalegar forsendur fyrir því sem ákvörðun verður síðan byggð á,“ segir Siv Friðleifsdóttir al- þingismaður. „Þegar glugg- að er í skýrslu Hafrannsókna- stofnunar frá því í fyrra þá gerir hún ráö fyrir því að afli á sóknareiningu aukist á þessu ári. Ég hef eng- an hitt sem ekki býst við umtals- verðri aukningu á aflaheimildum, ekki síst í ljósi frétta af vaðandi þorski alls staðar. Menn virðast vera á harðahlaupum undan þorsk- inum og í vandræðum með að ná öðrum tegundum," segir Einar K. Guðfinnsson alþingismaður. Enginn gegn auknum veiðum Á fundi sem Fiskifélag íslands stóð fyrir í fyrrakvöld kom fram hjá öllum þeim sem til máls tóku að þorskgengd væri mjög mikil á mið- unum kringum landið og sjálfsagt að auka þorskveiðiheimildir þegar í stað. Kristinn Pétursson, fiskverkandi og fyrrv. alþingismaður, lýsti þeirri skoðun sinni að þorskstofninn nú væri að líkind- um 900 þúsund til milljón tonn. Það þýddi miðað við núverandi grundvöll sem veiöiheimOdir byggjast á 230-250 þúsund tonna viðbót- araflamark. Fram kom að togararn- ir í togararallinu á dögunum hefðu aflað mjög vel. Niðurstöður eru hins vegar ekki farnar að birtast úr því en á dögunum sagði Jakob Jakobs- son, forstjóri Hafrannsóknastofnun- ar, við blaðamann DV að það væri nýtt fyrir sér að menn tryðu tölum Ekki er hann fríður risavaxni hlýrinn sem fiskbúðin á Sundlaugavegi keypti á fiskmarkaðnum á ísafirði. Talið er að þetta sé annar stærsti fiskur sinnar tegundar sem veiðst hefur hér við land. Flikkið er í kringum 130 sm á lengd og 24 kíió og sést við hliðina á hlýra í venjulegri stærð. Sá stærsti var 142 sm og 32 kíló. Að sögn Steingríms Ólason- ar starfsmanns stendur til að stoppa kvikindið upp. DV-mynd GS úr togararalli og gott ef það væri nú allt í einu að breytast og menn teknir að trúa á rallið. „Það er óhætt að auka heimild- ir verulega og helst á stund- inni,“ segir Ásgeir Guðbjartsson, einn aðaleig- enda og skip- stjóri á aflaskip- inu Guðbjörgu ÍS. Hann kveðst telja að skilyrð- in í sjónum ráði meiru um nýlið- un og viðgang fisksins en sjó- sókn. Skilyrðin hafi batnað undan- farið og fiskgengd þar með aukist. Aukning iiggur í loftinu „Ég held ekki að rétt sé að rjúka til þótt aðstæður virðist góðar. Þess- um málum verður að halda á vís- indalegu plani en þekking vís- indamanna okk- ar er það hald- bærasta sem stjórnvöld hafa við að styðjast þegar aflamark er ákveðið," seg- ir Siv Friðleifs- dóttir alþingismaður. Siv segir að það liggi í loftinu að aflaheimildir verði auknar á næst- unni. Þannig sé búið að ganga frá rýmkuðum veiðiheimildum til krókaleyfisbáta um fast hlutfall af heildarkvóta, 13,5%, og hlutdeild í hugsanlegri aukningu kvótans. Þótt samkomulagið við smábátasjómenn eigi eftir að hljóta endanlega af- greiðslu þingsins þá sé það vísbend- ing um framhaldið. „Smábátasjó- menn hafa aukið hlut sinn í heild- arkvóta úr 3% í 13,5% og mér sýnist að með samkomulaginu sé verið að staðfesta það sem þegar hefur gerst og festa í sessi. -SÁ Lárus Grímsson, skipstjóri á Júpiter ÞH: Loðnuvertíðin flautuð af í dag „Þú getur haft það eftir mér að í dag eða á morgun verði loðnuvertíðin flautuð af. Vertíðin er búin enda þótt maður sé að kroppa þetta. Það má vel vera að einhverjir skoði þetta hér í Faxaflóanum á morgun en það verður líka það alsíðasta,“ sagði Lárus Grímsson, skipstjóri á Júpiter ÞH, í samtali við DV í gær. Hann var þá á heimleið með nokkuð af loðnu og sagði það vera síðustu ferðina að sinni. Það hafa gengið tröllasögur um að mikið af þorski sé með loðnunni í nót- inni, jafnvel svo að til vandræða horfi vegna kvótaskorts. „Það má vera að það sé heldur meira af þorski nú en síðustu ár en það hefur alltaf komið þorskur upp með loðnunni. Eins og nú er rekur þorskurinn loðnuna saman í torfur sem við erum svo að veiða. Það er því alveg óhjákvæmilegt að eitthvað komi með af þorski. Það er þó ekki meira en í soðið handa mannskapnum í svona mánaðartíma, saltað og sigið,“ sagði Lárus. Hapn sagðist vera búinn að fá rúm- lega 30 þúsund lestir á allri loðnuver- tíðinni, haustið þar meðtalið. Það vantaði því á milli 20 og 30 þúsund lestir upp á að hann næði kvóta skipsins. Ástæðurnar eru einkum tvær; lítil veiði í haust og mikil loðnu- frysting í vetur sem tefur veiðamar mjög mikið. -S.dór Dagfari Hundavinskapur Fólk gerir sér ýmislegt tii dund- urs. Eitt er það að ganga í félög. Þar geta menn orðið formenn og fund- arstjórar og svo geta félögin stofnað landssamtök og landssamtökin kjósa sér formenn og fundarstjóra og fulltrúar þessara samtaka ganga síðan í alþjóðasamtök og þar eru formenn og fundarstjórar og allt er þetta af áhuga og ánægjunnar vegna. Ein slík samtök nefnast Dýraverndunarfélag íslands. Þau samtök eru aö vísu að nafninu til kennd við dýrin sem félagsmenn vilja vernda en auðvitað snýst hið raunverulega starf um fólkið sem vill vernda dýrin, enda geta dýrin ekki verið án fólksins ef ekkert fólk er til að vernda dýrin fyrir öðru fólki sem ekki vill vernda dýr. Um daginn var haldinn aðal- fundur í Dýraverndunarfélaginu og þá kom i Ijós að ekki lá á lausu hvaða félög voru aðilar að Dýra- verndunarfélaginu. Einkum var óvissa um þátttöku hundavina sem hafa með sér sérstök samtök af því að hundar eru ekki dýr í þeim skilningi dýraverndunar að vernda þurfi hunda eins og önnur dýr. Hundavinir eru greinilega ekki heldur eins og aðrir dýravinir að hugsa um vemd dýranna. Hunda- vinir vilja vernda sjálfa sig frá öðr- um dýravinum. Þess vegna hafa þeir eigin samtök til að þeim verði ekki ruglað saman við aðra dýra- vini. Að þessu leyti eru hundavinir líkir þjóðflokknum í Langholts- sókn að þeim er ekki sama með hverjum þeir starfa. Hundavinir hafa með sér tvö félög, annars veg- ar hundavinafélagið sjálft og svo hundaræktunarfélag sem þýðir væntanlega að eitt er að vera vinur hundanna og annað að rækta hunda sem ekki eru endilega vinir manns. Á aðalfundi Dýraverndunarfé- lagsins kom sem sé upp ágreining- ur um það hverjir ættu aðild að fé- laginu, hundavinir eða hundarækt- unarmenn. Hundaræktunarmenn höfðu betur þegar þeim tókst að kljúfa hundavinafélögin og taka að- alfundinn yfir og fólkið sem hefur það áhugamál að vernda dýr gat ekki verndað sig fyrir fólkinu sem ræktar hunda og gekk af fundi. Nú er þetta mál komið til umhverfis- ráðuneytisins, sem út af fyrir sig er réttur staður því það eru að sjálfsögðu umhverfisspjöll ef dýra- verndarsinnar eru hraktir úr sín- um eigin félagsskap af öðru fólki sem ræktar hunda og vill ekkert með dýravernd hafa að gera. Umhverflð er ekki óspillt nema dýr séu vemduð og dýr verða ekki vernduð nema dúravemdunarsinn- ar stjórni dýravernduninni. Um- hverfismál eru í fullkomnum ólestri meðan hundavinir eru ofur- liði bornir af hundaræktunar- mönnum. Þeir gera meira að segja aðsúg að formanni dýraverndunar- samtakanna þannig að formaður- inn á fótum sínum fjör að launa undan þessum óaldarlýð, sem ræktar hunda en hefur andstyggð á fólki sem vill vernda dýr. Það kemur svo ekki á óvart að hundavinir úr Hafnafirði sviku lit og gengu í raðir hundræktunar- manna á þessum aðalfundi. Hafn- firskir hundavinir eru ekki vinir annarrra hunda en hafnfirskra og þeir eru ekki vinir annarrra hundavina en þeirra sem rækta hunda, en vilja ekki endilega vera vinir þeirra sömu hunda. Á þessu tvennu er nefnilega mikill munur. Nú kemur til kasta umhverfis- ráðherra og þá skiptir máli hvort ráðherrann vill vernda dýrin fyrir fólkinu eða hvort hann vill vernda sumt fólk fyrir öðru fólki, eftir því í hvaða félagi allt þetta fólk er. Svona er nú gaman að vera í félög- um og vera formaður og fundar- stjóri og hafa dýravernd að áhuga- máli þegar áhugamálið snýst upp i það að lokum að verja sig fyrir þeim sem vilja vernda dýrin. Ánægjan skín úr hverju andliti. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.