Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 1. APRÍL 1996 5 I>V Fréttir Ályktun stjórnar Sjúkrahúss Suðurnesja: Vonar að ró og festa komist aftur á 'DV, Suðurnesjum: Á stjórnarfundi Sjúkrahúss Suð- urnesja nýverið var rætt um bráða- birgðatillöguf samstarfsnefndar um hagræðingu og sparnað með aukinni samvinnu og verkaskiptingu flög- urra sjúkrahúsa í Reykjavík og á Reykjanesi. Stjórnin fagnar og telur mjög mikilvægt að nú liggi fyrir drög að skilgreiningu á hlutverki sjúkrahússins í heilbrigðisþjónust- unni, þannig að mögulegt sé fyrir fjárveitingavaldið að meta fjárþörf þess. Stjórnin telur að meginmarkmið þess sé að tryggja íbúum Suðurnesja grunnþjónustu og öryggi á sem hag- kvæmastan hátt. Stjórnin kemur ekki auga á rökin fyrir því að nýta ekki skurðstofuna fyrir þær al- mennu skurðaðgerðir sem hafa verið gerðar þar því nauðsynlegar bak- vaktir eru fyrir hendi og búið að leggja fjármagn til. Stjórnin bendir á, eins og fram kemur 1 skýrslu Rik- isendurskoðunar, að rekstrarkostn- aður sjúkrahússins er lægstur i sam- anburði hennar á sjö sjúkrahúsum. Það liggur líka fyrir að flóknari að- gerðir eru sendar til hátæknisjúkra- húsanna í Reykjavík og svo mun alltaf verða, segir í ályktun stjórnar. Stjórnin hefur á undanfórnum vikum unnið úr þeim sparnaðartil- lögum sem tilsjónarmaður lagði til og eru teknar upp úr minnispunkt- um þeim sem stjórnin hafði lagt fyr- ir ráðuneytið. Stjórnin telur að til- lögur nefndarinnar gangi á ýmsan hátt í aðra átt og segir, án þess að leggja nú dóm á þær, að slæmt sé að á nokkurra vikna fresti skuli hrært í starfseminni. Það veldur óþarfa áhyggjum hjá starfsfólki sem og íbú- um. svæðisins. Stjórnin væntir þess að við frekari úrvinnsíu á tillögum nefndarinnar verði haft samráð við stjórnina. Vonar hún að því starfi ljúki sem fyrst svo unnt sé að koma tillögum í framkvæmd og ró og festa komist aftur á starfsemi sjúkrahúss- ins, segir í ályktun stjórnarinnar. -ÆMK thugið! Þjónusta Stajfeetning *>• Skrifstofa Skútuvogur1B Afgreiösla í'armbréfa Skútuvogur1B - Farmsöludeild Skútuvogur 1B »" Vöruafgreiósla Héöinsgata 3 - Úttlutningur Héðinsgata 3 Óbreytt síma- og faxnúmer Mánudaginn 1. apríl verður skrifstofa fraktdeildar Flugleiða flutt í Skútuvog 1B. Vöruafgreiðsla verður eftir sem áður að Héðinsgötu 3. FLUGLEIDIR F R A K T -fyrír nðkvæma ferðagarpa! ATC-1100 m./ áttavita, hæðarmæli, hitamæli o.fl. 16.900 kr.stgr. ■ I ALT-6200 m hitamæli 11.900 Tilboð! Vandaður bakpoki fylgir hverju úri. Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500 ■M| ,cúkk'-Á‘ ^jó\VtfsvYe* Sóluaðili: Freyja HF Súkkulaði veitir ánægju

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.