Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 1. APRÍL 1996 7 DV Sandkorn Nýr foringi Ljóst virðist að Kristján Ragnarsson, fonnaður LÍÚ, hefur orðið undir í glímunni við Arthur Boga- son, foringja smábátaeig- enda, i kvótamáltun. Kristján sit- ur eftir sár og reiður og skammar Þorstein Pálsson sjávar- útvegsráðherra fyrir undirgefhi við smábátaeigendur. Arthur Bogason var eitt sinn frábær kraftlyftingamaður enda tröll að burðum og var eitt sinn talinn sterkasti maður landsins. Hann er ekki bara líkamlega sterkur, hann er það á öðrum sviðum líka. Gárungar eru uppi með þá kenningu að nú verði LÍÚ að skipta um formann. Útvegsmenn verði að fá Magnús Ver Magnús- son, sterkasta mann heims, x for- ingjasætið til að hafa eitthvað að gera í Arthur Bogason í kvótaslagnum. Að glamra með Það var fyrir allmörgum árum að eitt af skipum Eimskipafé- lagsins hafði verið lengi I siglingum er- lendis. Þegar það kom heim fór það beint á ströndina. Mönnum var að vonum orðið mál að heyra í sínum nán- ustu og þustu því á símstöðina í fyrsta þorpinu sem skipið kom tO á ströndinni. Þetta var fyrir tima farsíma og annarrar slikrar fjar- skiptatækni. Þegar á símstöðina kom leit afgreiðslustúlkan ekki við mönnunum heldur masaði við vinkonu sina í símann. Þegar mönnum fór að leiðast þófið tók einn þeirra út úr sér folsku tenn- umar og skellti þeim á borðið fyrir framan afgreiðsludömxma og sagði: „Mega þessar ekki glamra meö?“ Sagan segir að afgreiðslu- daman hafi verið fljót að slíta samtalinu og afgreiða mennina. Loftpressan Kristleifur Þorsteinsson á HúsafeOi hefur í hyggju að búa tO mik- inn ísheOi í Langjökli. Með því ætl- ar hann að draga að ferðamenn. Sögur ganga xxm það í uppsveitum Borgarfjaröar aö þegar hann hafi ætlað að hefja framkvæmdir við isheOinn hafi hann farið niður í Borgames og leigt sér þar loft- pressu tO verksins. Þegar harm kom með hana á staðinn gerðist heldur litið. Loftpressan var svoköOuð 10 kOóa loftpressa og gárungai- sögðu að það hefði tekið Kristleif 5 ár að búa tO Utinn ís- heOi með þessari loftpressu. Fundi slitið íslendingar eru funda- glaðir meim. Það er alveg viss passi að ef frétta- merm ætla að ná í opin- beran starfs- maxm fyrir hádegi þá er haxm sagður á fundi. Og i sumum fyrir- tækjum em ráðamenn á fundi frá morgni tO kvölds. Svo koma aOir klúbbafundimir og félagafúndim- ir á kvöldin. Gísli Brynjólfsson mun háfa ort eftirfarandi vísu sem fundargerö af einum slíkum kvöldfundi: Fundur settur, fáir mættir, flóir vin um aílar gættir. Flestir drukku frá sér vitið, fundi slitið! Umsjón Sigurdór Sigurdórsson. Enn einu sinni siær aiiua í gegn með ævintýralegu tilboði á enn öflugri hljómtækjum í tilefni ferminganna er boðinn sérstakur 10.000 kr. afsláttur af þessum einstöku tækjum. NÚ kr. 3fin900stgr. aiuia NSX-V8 84 vött Þessi 49.900 kr. stæða er nú boðin á sérstöku tilboðsverði. Fullkominn geislaspilari, tónjafnari með rokk/popp/djass, karaoke kerfi með radddeyfi, super bassi, útvarp með 32 stöðva minni, tvöfalt segulband, klukka/timer, fjarstýring. Núkr.4ð.960« aillia NSX-V30 90 vött Þessi 59.900 kr. stæða er nú boðin á sérstöku tilboðsverði. 3 diska geislaspilari, útvarp með 32 stöðva minni, tvöfalt segulband, tónjafnari með rokk/popp/klassík, super T-bassi, hátalarar, fjarstýring. NÚ kr. 59a90© stgr. aili/a NSX-V50 130 vött Þessi 69.900 kr. stæða er nú á sérstöku tilboðsverði. 3 diska geislaspilari, Front Surround hátalarar, 3S hljómkerfi, 7 banda tónjafnari með rokk/popp/klassík, útvarp með 32 stöðva minni, super T-bassi, karaoke kerfi með radddeyfi, tvöfalt segulband, segulvarðir hátalarar, fjarstýring. NÚ kr.69.90® stgr. &LIXU3L NSX-V70 250 vött Þessi 79.900 kr. stæða er nú á sérstöku tilboðsverði. 3 diska geislaspilari, Front Surround hátalarar, DSP hljómkerfi, 9 banda tónjafnari með rokk/popp/klassík, útvarp með 32 stöðva minni, super T-bassi, BBE hljómkerfi, karaoke kerfi með radd- deyfi og digital echo, tvöfalt segulband, segulvarðir hátalarar, fjarstýring. Það er ekki spurning um yfirburði, heldur hversu mikla yfirburði sum hljómtæki hafa framyfir önnur Ármúla 38 (Selmúlamegin), 108 Reykjavík Sími 553 1133 • Fax 588 4099

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.