Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 1. APRÍL 1996 Fréttir 17 Þröstur Ólafsson, Sveinn Runólfsson og Logi Ólafsson, framkvæmdastjóri íslensks markaðar. DV-mynd ÆMK íslenskur markaður gefur milljón til Landgræðslu: Hagavatn stækkað til að hefta sandfok Dy Suðurnesjum: „Ég vona að þetta verði fordæmi fyrir aðra sem áhuga hafa á þessum málum. Þetta er brýnt forgangs- verkefni,“ sagði Sveinn Runólfsson, landsgræðslustjóri ríksins, eftir að hafa tekið við gjöf - einni milljón króna - úr hendi Þrastar Ólafsson- ar, stjórnarformanns íslensks mark- aðar hf. í Leifsstöð. Framlagið fer í stuðning við upp- græðslu örfoka lands og verður í þessu tilfelli notað við stækkun Hagavatns í Árnessýslu, sunnan Langjökuls, og koma því fyrra horf auk þess að græða upp land þar. Að mati sérfræðinga er stækkun Haga- vatns talin árangursríkasta aðgerð- in til að hefta sandfok frá auðnun- um við Langjökul,' einhverjum stærstu uppblásturssvæðum lands- ins. Hagavatn er nú 5 km2 en var 70 km2 fyrir 70 árum. „Eftir því sem vatnið hefur minnkað hefur það skilið eftir sig meiri sandauðnir - efnivið í frekara sandfok sem átt hefur greiða leið tugi km suður heiðarnar á móts við byggð í Árnessýslu," sagði Þröstur. Áætlaður kostnaður við fram- kvæmdina er er talinn 30 milljónir króna. „Tilraunir hafa sýnt að erfítt er að græða upp þennan gamla vatns- botn. Skynsamlegra er að stækka vatnið, halda vatnsyfirborðinu stöð- ugu og stöðva þannig þessa upp- sprettu sandfoks frá vatnsbotnin- um,“ sagði Sveinn. -ÆMK Ný sending Stuttkápur bleiserjakkar og heilsársúlpur .900 Veríö velkomin Mörkinnl 6 (við hliðina á Teppalandi). Sími 588-5518 Páskatilboð Heilsársúlpur, sumarjakkar mörg snið kr. 4.900 Póstsendum Bílastæði við búðarvegginn Motorola 8200 PÓSTUR OG SÍMI Söludeild Ármúla 27, sími 550 7800 Þjónustumiðstöð í Kirkjustræti, simi 550 6670 • Söludeild Kringlunni, sími 550 6690 • Póst- og simstöðvar um land allt Þetta er ekki aprílgabb!! Beocom 9500 .5T.S74 kr 49 193 st 2ÍL500 kr. 59.92:? stgr. * : Motorola Flare Sagem RC 430 46.599 kr. 39.949 stgr 4£^S9" stgr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.