Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 1, APRÍL 1996 Spurningin Hvernig tónlist líkar þér best? Elín Jóhannsdóttir kennari: Klassík og ýmis dægurlagatónlist. Sigrún Helga Sigurjónsdóttir nemi: Alls konar tónlist. Kristín Anna Guðbjartsdóttir, vinnur hjá öldruðum: Rokk. Ragna Ragnarsdóttir, vinnur við heimaþjónustu: Rokk. Ólafur Þ. Guðmundsson pípu- lagningarmaður: Öll tónlist nema helst rapptónlist. Lesendur BSRB í fullu fjöri BSRB sprungið og eyrissjóðir gjaldþrot öm Guömundsson skrifar: Afturhaldiö hjá forystuliöi opin- berra starfsmanna ríöur ekki viö einteyming. Upphlaupiö hjá BSRB- foringjanum vegna frumvarpsins um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna og um lífeyrissjóðinn er meö ólíkindum. - Þar talar málsvari svartnættis og stöðnunar. Þetta kerfi á eftir að springa innan frá með miklum látum fyrr en var- - Sú gerjun er löngu byrjuö. Kennarar, leikskólakennarar, slökkviliösmenn, simvirkjar og fleiri og fleiri eru famir. Aðrir eru á leiöinni burt. Opinberir starfs- menn hafa uppgötvaö að þeim er mun betur borgiö annars staöar en undir handarjaðri BSRB og for- manns þess. Hvert félagið af ööru hefur sagt sig úr lögum við BSRB á síöustu árum og menn hafa fengiö launahækkanir og betri aöild aö líf- eyrissjóöum hjá öðrum launþega- hreyfingum. Rafeindavirkjar hjá ríkinu hafa t.d. langflestir fariö yfir I Rafiönaö- arsambandiö og eru þar meö mun hærri umsamin laun en þeir sem sitja eftir í BSRB. Þannig hafa stór- Fó lífeyrissjóös ríkisstarfsmanna hefur brunniö upp. - BSRB þar í stjórn? er m.a. spurt í bréfinu. Eru ekkl fulltrú Lesendabréfið í DV 26. þ.m. sem er tilefni skrifa Sigurðar. Sigurður Á. Friðþjófsson, upplýs- ingafulltr. BSRB, skrifar: Örn Guðmundsson skrifar lesenda- bréf í DV þriðjudaginn 26. mars undir fyrirsögninni BSRB sprungið og lífeyrissjóðir gjaldþrota. Bréfið er tæpast svaravert en þar sem í því er farið með margar rangfærslur er nauðsynlegt að leiðrétta þær. í stuttu máli sagt er BSRB ekki sprungið og Lífeyrissjóður starfs- manna ríkisins ekki gjaldþrota. Þvert á móti er Bandalag starfs- manna ríkis og bæja í fullu íjöri eins og sást best í þeirri fundaher- ferð sem farin var til að mótmæla leiftursókn ríkisstjórnarinnar gegn launafólki. Vel á annan tug þús- unda opinberra starfsmanna sótti fundi um allt land þar sem þess var krafist að ríkisstjórnin drægi frum- vörp sín til baka. Þessi herferð hef- ur þegar borið þann árangur að rík- isstjórnin dró til baka frumvarp sitt um Lífeyrissjóð starfsmanna rikis- ins að sinni. Örn talar um afturhald og mái- svara svartnættis og stöðvunar í forystuliði opinberra starfsmanna sem hafi staðið fyrir upphlaupi vegna frumvarps um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Það er hans einkaskoðun en ekki þeirra þúsunda launamanna sem sótt hafa fundi um allt land. Sök sér er þótt menn viðri einka- skoðanir sínar undir nafni á opin- berum vettvangi eins og lesendasíð- um dagblaðanna. Það er kannski ekki heldur við þá að sakast þótt fá- fræði þeirra verði til þess að í slík- um skrifum sé farið með rangfærsl- ur. Hins vegar hlýtur að verða að gera þá kröfu til alvöru dagblaðs að það sé ekki að bera á borð staðleys- ur; þar er ekki hægt að skýla sér á bak við nafnbirtingu þess sem með ruglið fer. í grein Arnar segir að leikskóla- kennarar, slökkviliðsmenn og sim- virkjar hafi yfirgefið BSRB. Félag íslenskra leikskólakennara, Lands- samband slökkvUiðsmanna og Félag íslenskra simamanna eru í BSRB. Örn talar um að rafeindavirkjar hjá ríkinu séu með hærri umsamin laun en þeir sem enn eru innan BSRB. Rökin fyrir því hafa ævinlega verið þau að réttindi þeirra sem eru í samtökum opinberra starfsmanna séu meiri er hjá þeim sem eru á al- menna vinnumarkaðinum. Nú þeg- ar einhliða stendur tU að skerða þessi réttindi, án þess að jafnframt sé samið um að sú skerðing sé bætt með hærri launum eða á annan hátt, bregðast samtök opinberra starfs- manna eðlilega við. Sérstöku púðri eyðir Örn á lífeyr- ismál opinberra starfsmanna. Hann fuUyrðir að lífeyrissjóðir ríkisins og sveitarfélaga séu gjaldþrota. Það er rangt. Lífeyrisréttindi sjóðfélaganna eru trygg. Þau eru svo örugg að rík- isstjórnin hefur gert sér grein fyrir þvi að þau verða ekki rýrð eins og tU stóð að gera. Það er ábyrgðarhluti hjá DV að birta fuUyrðingu á borð við þá sem þarna var borin á borð. Lífeyrisþeg- ar gera kannski ekki aUir greinar- mun á fréttaskrifum blaða og öðrum dálkum, eins og t.d. lesendabréfum. Lífeyrisþegar eiga lífsafkomu sína undir þvi að sjóðirnir geti staðið við skuldbindingar sínar. Uppsláttur síðunnar var flennifyrirsögn um að lífeyrissjóðir opinberra starfsmanna væru gjaldþrota, auk þess sem það var ítrekað í myndatexta að fé líf- eyrissjóðs ríkisstarfsmanna hefði brunnið upp. Slíkt er ekki rétt. Spámaðurinn Kristján og samstaðan Ásgeir V. Eggertsson skrifar: í viðtali í DV við Kristján Árna- son, formann nýstofnað verkalýðs- félags, kemur fram orðrétt: „Hinir vinnandi Dagsbrúnarmenn munu fylkja sér yfír til okkar. Hinir geta þá haft ellilífeyrisþegana og öryrkj- ana í hinni Dagsbrúninni ef þeir vUja.“ Spámaðurinn Kristján Árnason segir og í viðtalinu að Dagsbrún muni klofna endanlega og að sam- skiptaörðugleikar hans við stjórn Dagsbrúnar geti leitt til algjörrar sprengingar. Því miður er ekki hægt að ræða við hvern sem er á eðlUegum við- ræðugrundveUi, það er öUum Ijóst. Hinir ágætu B-lista menn unnu þarft verk þegar þeir buðu fram á móti núverandi stjórn Dagsbrúnar en hótanir um sprengingar og klofn- ing innan verkalýðshreyfmgarinn- ar eru ekki það sem við þurfum og vUjum. - Launþegar góðir, látum ekki glepjast af orðum spámannsins Kristjáns, B-lista manns. Dagsbrúnarmenn og aðrir laun- þegar, það er samstaða sem við þurfum - einnig með eUilífeyrisþeg- um, öryrkjum og atvinnulausum. Þá birtir upp á ný hjá B-lista mönn- um. Styðja, styðja - sitt á hvað Gunnar Guðjónsson skrifar: Pólitíkin hér er ekki annað en eitt allsherjar „skuespil" sem hvert mannsbam sér í gegnum. Að vísu ekkert sérstætt fyrir ísland. í Amer- íku segja menn gjarnan þegar þeir eru spurðir hvers vegna almenning- ur sé svo lítið pólitískur sem raun ber vitni: „Politics and poker“ og láta það svar nægja. AUt er falt og ráðamenn framkvæma ekkert án undangenginna samninga í bak og fyrir og með hvaða flokki, mótherja eða samflokksmanni sem er. sima lli kl. 14 og 16 þjónusta allan Eg styð þig í þessu og þú mig í hinu. - Skiptir stuðningur þingmannsins við ráðherrann sköpum? Fróðleg voru ummæli Einars K. Guðfinnssonar alþm. í DV nýlega. Hann sagði upphlaup LÍÚ-manna af- káralegt og úr öUu samhengi vegna samkomulags sjávarútvegsráðherra við smábátasjómenn. - í annarri frétt studdi hann svo útgerðarmenn með því að segja að hann byggist fastlega við auknum aflaheimildum á þorski. - Þarna var einfaldlega verið að milda sjávarútvegsráð- herra og styðja í smábátamálinu. Styðja, styðja - sitt á hvað. Og nú getur þingmaðurinn búist við já- kvæðum tóni ráðherra um auknar þorskveiðiheimildir. Framboð til forseta Svanhildur Jónsdóttir skrifar: Eftir að framboð Ólafs Ragn- ars Grímssonar er orðiö að veru- leika eykst harkan að líkindum verulega í þessu fimmta forseta- kjöri hér. Viðbúið er að nú taki forsætisráðherra sína ákvörðun í málinu. Satt að segja verð ég undrandi ef báðir þessir menn ákveða að fara fram því þeir munu ekki eiga annars úrkosti en að reyta fylgið hvor af öðrum. Konurnar tvær munu berjast um fyrsta sætiö, það liggur í hlutar- ins eðli þar sem mikill meiri- hiuti er á þeirri skoöun að halda beri embætti forseta í höndum konu enn um sinn. - Þetta getur því orðið nokkuð snúið fyrir karimenn í framboði. Sammála séra Jakobi Þórarinn hringdi: Það er varla hægt annað en vera sammála því sem séra Jak- ob Ágúst Hjálmarsson dóm- kirkjuprestur segir um kirkjuna. Hún á aö taka frumkvæöið í að- skilnaðarumræðunni á meðan hún hefur enn tækifæri. Og ég bæti við: það er ekki víst nema kirkjan verði innlyksa með sín- ar skoðanir taki hún ekki af skarið því á það er nú lögð áhersia að aðskilnaður kirkju og ríkis verði að veruleika fyrr en síðar. Og eins og séra Hjálmar bendir á; það væri kirkjunni til góðs að vera sjálfstætt og frjálst trúfélag í íslenska þjóðfélaginu. Leikhúsfarsinn hjá L.R. Þ.S.P. skrifar: Hann ætlar að endast, farsinn hjá Leikfélagi Reykjavíkur, og eins og vera ber er hann bráð- skemmtilegur. Nú fara að takast á þeir sem ekki hafa fengið ráðn- ingu (ég á við starfsráðningu, ekki hirtingu) hjá Borgarleik- húsinu. Átökin verða á jaöirétt- isgrundvelli að sjálfsögðu og eru í því fólgin að þeir sem sóttu um starf leikhússtjóra á sínum tíma krefjast nú einhvers konar „bóta“ eins og formaður kæru- nefndar jafnréttismála orðar það svo snyrtilega. Við vitum til þess að fólk hafi fengið svona bætur, segir hún. Já, við vitum lika til þess, skattborgararnir - og finn- um fyrir því. Ekki stjórn- málamann Gísli Guðmundsson skrifar: Ég hélt að þjóðin hefði fyrir löngu sammælst um að kjósa ekki stjórnmálamann í embætti forseta, a.m.k. ekki beint úr at- inu, jafnvel úr ráðherrastóli. Erum við ekki búin að fá nóg af loforðum stjórnmálamanna? Er eitthvert vit i því að umbuna stjórnmálamanni, með alla sína eftirlaunasjóði og bætur, með því að fara í forsetaembætti ofan á allt annað? - Ég bara spyr. Verkalýðsfor- ystan gengur of langt Björn Jónsson hringdi: Ég tel að verkalýðsforingjam- ir gangi nú of langt í herferð sinni gegn félagsmálaráðherra og ríkisstjóminni í heild þegar þeir krefjast þess að frumvarpið um séttarfélög og vinnudeiíur verði tekið til baka. Þetta er álitamál meðal launþega. Margir eru því einmitt mjög hlynntir að frumvarpið verði að lögum, óbreytt, og telja að það hefði fyr- ir löngu átt að leggja fram - ná- kvæmlega eins og það er.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.