Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Síða 6
6
MÁNUDAGUR 1. APRÍL 1996
Fréttir
Rækjuveiðarnar á Flæmska hattinum við Kanada:
Ohemjufjölgun veiðiskipa
frá ýmsum löndum
- búist við að íslensku skipunum Qölgi úr 13 í 40 á þessu ári
„Það hefur orðið þarna stórfelld
fjölgun á veiðiskipum frá því í
fyrra. Bara íslensku skipunum fjölg-
ar úr 13 til 15 í fyrra í um 40 skip í
ár. Þar af eru um 20 skip af Norður-
landi. Síðan hafa ýmsar þjóðir, eins
og Rússar, Færeyingar, Danir,
Grænlendingar og Litháar, svo ein-
hverjir séu nefndir, stórfjölgað skip-
um á miöunum," sagði Snorri
Snorrason, skipstjóri á Dalborgu
EA, í samtali við DV.
Talið er að þessi fjölgun veiði-
skipa standi í sambandi við þá
ákvörðun NEAFC að vera meö sókn-
arstýringu á veiðunum i ár en taka
upp kvótakerfi á næsta ári. Menn
séu að afla sér reynslu í ár til að fá
kvóta á næsta ári. Sóknarstýringin
nú virðist ætla að leiða til taum-
lausrar veiði ef mið er tekið af þess-
ari miklu fjölgun veiðiskipanna.
Snorri sagðist ekki trúa því að
bara yrði stuðst við afla skipa í ár
þegar kvótinn verður ákveðinn á
næsta ári.
„Ég trúi þvi varla að ekki verði
stuðst við síðustu tvö árin þegar
aflareynslan verður metin,“ sagði
hann.
Hann sagði að auðvitað leiddi
þessi aukna veiði til verðlækkunar
á rækju.
„Það segir sig sjálft að ef skipun-
um Qölgar úr 13 í 40 kemur það ein-
hvers staðar niður, svo ekki sé nú
talað um þegar það bætist við ein-
munatið og veiðar á rækju hér
heima. Enda eru allar frystigeymsl-
ur fullar af rækju hér á landi um
þessar mundir,“ sagði Snorri.
Þegar DV ræddi við hann var
hann að koma frá því að prófa sig
áfram með tvö troll.
„Verið er að setja upp tvö troll
hjá okkur. Öll skip á Flæmska hatt-
inum eru farin að draga tvö troll í
einu. Við vorum áður með 4 þúsund
möskva troll en nú verðum við með
tvö 3 þúsund möskva troll. Afkasta-
getan ætti að aukast í samræmi við
þessa stækkun,“ sagði Snorri
Snorrason skipstjóri
-S.dór
Flæmski hatturinn:
Mátti reikna með
fjölgun skipa
- segir Þorsteinn Pálsson
„Þetta er það sem mátti reikna
með að yrði eftir að NEAFC ákvað
sóknarstýringu. Það hefur hins veg-
ar ekkert verið ákveðið hvort kvóti
verði tekinn upp á næsta ári. Við
mótmæltum takmörkunum á veið-
inni þannig að það mátti reikna
með fjölgun skipa,“ sagði Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráðherra í
samtali við DV um aukna sjósókn
íslenskra skipa til rækjuveiða í
Flæmska hattinum.
Aðspurður hvort sér fyndist þetta
of mikil sókn sagði Þorsteinn að það
færi eftir mati á stofnstærðinni.
Vísindanefndin heföi talið ástæðu
til að takmarka sóknina en íslensk
stjórnvöld hefðu verið andvíg því.
Um hættu á verðfalli á rækju
sagði Þorsteinn að viðbrögð mark-
aðarins yrðu bara að koma í ljós.
- Hvort finnst að taka eigi mið af
veiði þessa árs eða lengra aftur í
tímann ef ákveðið verður að taka
upp kvóta i Flæmska hattinum á
næsta ári?
„Venjan er sú að yfirleitt eru tek-
in nokkur ár til viðmiðunar. Ég get
ekki sagt hvort slíkt verði gert,
enda hefur ekki verið ákveðin nein
stjórnun á veiðunum. Það er í sjáffu
sér út í hött að tala um slíkt á þessu
stigi,“ sagði Þorsteinn.
-bjb
Fj ölmiðlakönnun Félagsvísindastofnunar:
Aukning í lestri
hjá körlum og
Helgarblað DV í
mikilli sókn
Fegurðardrottning Norðurlands 1996 var valin í Sjallanum á Akureyri síðastliðið föstudagskvöld. Fyrir valinu varð
Auður Geirsdóttir, í öðru sæti varð Telma Sigtryggsdóttir og í því þriðja Þórdís Ólafsdóttir. Hér er verið að setja kór-
ónuna á Auöi. DV-mynd gk
Umtalsverð verðlækkun á rækju:
Góðærið er að koma
í bakið á okkur
- segir framkvæmdastjóri rækjuvinnslunnar Rits hf.
Mikil aukning varð í lestri á DV
hjá körlum ef bornar eru saman
niðurstöður fjölmiðlakönnunarinn-
ar sem framkvæmd var 2. til 8. mars
sl. og niðurstöður sambærilegrar
könnunar sem framkvæmd var í
október. Alls lesa 50% karla að
meðaltali hvert eintak af DV nú í
samanburði við 48% í október. Mest
varð aukningin í lestri Helgarblaös
DV. Alls lesa 59% karla Helgarblað
DV nú miðað við 55% í október.
Hækkunin nemur þvi alls 4 pró-
sentustigum.
AIls lesa 56% kvenna Helgarblað
DV sem er sama hlutfall og í októ-
ber. Mikil aukning varð á lestri
kvenna í október en í þeirri könnun
jókst lestur hjá konum á Helgar-
blaði DV um alls 9 prósentustig.
Sl. ár hefur lestur á Helgarblaði
DV aukist um 14% og jókst lestur-
inn nú um 1 prósentustig. Greini-
legt er að mikil ánægja er með
Helgarblaðið. Eins og fram kom í
Helgarblaði DV sl. laugardag eru
lesendur mjög ánægðir með þær
breytingar sem hafa átt sér staö á
Helgarblaðinu. í könnun sem Fél-
agsvísindastofnun gerði fyrir DV í
lok febrúar kom fram að 85% svar-
enda voru ánægð með breyting-
arnar.
Fjölmiðlakönnunin er dagbókar-
könnun og nær til notkunar sjón-
varps og útvarps og lesturs dag-
blaða og tímarita. Tekið var 1.500
manna úrtak úr þjóðskrá á aldrin-
um 12-80 ára af öllu landinu. Alls
bárust til baka 74% af útsendum
dagbókum.
Lestur á
okt. mars okt. mars
Ipyl
„Ástæðurnar fyrir þessu eru ein-
faldlega einmunatíð, góðar gæftir og
mokafli. Það er auðvitað með ólík-
indum að það skuli ekki hafa fallið
úr nema tveir eða þrír dagar á allri
rækjuvertíðinni hér á ísafirði í vet-
ur. Elstu menn muna ekki annað
eins. Eins hefur verið einmunatíð
hjá þeim sem eru á úthafsveiðum.
Og við þessar góðu gæftir bætist síð-
an að afli hefur verið einstaklega
mikill og góður og framleiðslan þar
af leiðandi mikil. Hreint út sagt er
bara um offramleiðslu að ræða.
Þetta vita kaupendur ósköp vel og
halda að sér höndum en auk þess er
tíminn eftir áramót lakasti sölutím-
inn á rækjunni. En það virðist stað-
reynd, þótt ljótt sé að segja það, að
þetta góðæri er að koma í bakið á
okkur,“ sagði Halldór Jónsson,
framkvæmdastjóri rækjuvinnslunn-
ar Rits hf. á ísafirði, í samtali við
DV.
Hann sagði að verðlækkunin að
undanföru hefði verið á bilinu 7 til
12 prósent. í fyrra varð mikil verð-
hækkun á rækju eða rúm 50 prósent
á árinu.
„Það náði hins vegar ekki að vega
upp það verðhrun sem varð á
rækjumarkaðnum á árunum 1990 til
1994,“ sagði Halldór.
Hann sagði menn vongóða um að
verðið kæmi upp aftur þegar liði
lengra fram á árið. Enda þótt aukin
rækjuveiði á Flæmska hattinum
hefði eitthvaö að segja varðandi of-
framleiðsluna taldi Halldór hana
ekki skipta sköpum varðandi verð á
innfjarðarrækjunni.
Hann sagði að kvótinn á innfjarð-
arrækju væri að verða búinn og
sennilega væri búið að veiða um 60
prósent af úthafskvótanum.
DV hefur heimildir fyrir því að
víða séu allar frystigeymslur og
frystigámar full hjá rækjuframleið-
endum. Einnig að menn séu farnir
að halda að sér höndum varðandi
sölu vegna verðlækkunarinnar.
-S.dór