Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Qupperneq 18
18
MÁNUDAGUR 1. APRÍL 1996
Fréttir
íslensk uppfinning sem eykur öryggi dýra:
Búnaður sem hleypir stórgrip-
um út úr brennandi húsum
Tveir íslendingar, Elías Ein-
arsson, veitingamaður í Rúg-
brauðsgerðinni, og Axel Eiríks-
son rafvélavirki hafa í samein-
ingu hannað og smíðað sleppi-
búnað sem hleypir stórgripum
út úr brennandi húsum þó að
enginn maður sé þar nærri.
„Þetta er frumhugmynd að
þessum búnaði og hann getur
virkað mjög vel. Búnaðurinn er
reykskynjari, stjómstöð og seg-
ull.
Þetta virkar þannig að þegar
reykur kemur í skynjarann
sendir hann boð í stjórnstööina
og staraumurnn rotnar á seglin-
um, gormur kippir í þannig að
dýrin losna og hurð opnast út,“
sagði Elías í samtali við DV.
„Ég fékk þessa hugmynd upp-
haflega þar sem ég tengist hesta-
mönnum. Ég fékk Axel með mér
til að hanna í þetta rafmagnið.
Það er búið að smíða tækið og
sjá að það virkar,“ sagði hann.
Elías sagði að um það bil
fimm ár væru síðan hann fékk
þessa hugmynd og um tvö ár síð-
an búið var aö útfæra hana.
Hann sagði að þeir félagar hefðu
ekki mikið reynt að koma henni
á framfæri.
„Menn hafa ekki áhuga fyrr
en dýrin brenna inni. Þetta er
ekki dýrt í uppsetningu og við
myndum setja þetta upp ef óskað
væri,“ sagði Elías.
| . i ; j j ]jf
! ' ; ' • H 5 I fs'V .j
« ual*' I I
i ‘ s j í i yg ' I f ? r - , j W | 1 ■■ i , ] , : •' J.
.
Elías Einarsson, vinstra megin, og Axel Eiríksson við búnaðinn þegar búið er að setja hann upp.
Bændasamtökin
jákvæð
Höskuldur Frímannsson
rekstrarhagfræðingur hefur
sýnt málinu áhuga og telur
hugmyndina vel þess virði að
þróa hana.
„Ég er nýlega kominn að
þessu máli og er að skoða
það. Mér sýnist í fljótu bragði
alveg klárt að þetta er mjög
þarft verk og getur alveg
gengið upp. Ég hef talað við
menn hjá Bændasamtökun-
um og þeir eru mjög jákvæð-
ir,“ sagði Höskuldur.
Höskuldur hittir þá Axel og
Elías í næstu viku og verður
þá búinn að gera áætlun um
hvað þarf að gera til að koma
þessu í gang.
„Þetta er á vöruþróunar-
stigi en það þarf að koma því
i framleiðslu. Það sem vefst
fyrir manni er verðið, þetta
kostar auðvitað sitt en ég er
ekki búinn að reikna út hve
mikið. Bændur geta auðvitað
tryggt sig fyrir alls konar
áfóllum en mér sýnist þeir
hugsa um skepnurnar sem líf-
verur en ekki bara sem pen-
inga. Tryggingamar myndu
veita afslátt út á þetta en
hvort hann er nægur til að
það dugi veit ég ekki,“ sagði
Höskuldur. -ÞK
Því niiður verður nýi Páskaísinn fní Kjörís aðeins seldur uni páskíina.
Viljir þú njóta hans lengur og kynnast jnnilialdiuu betur, sltaltu
tryggja þór nóg iif liouuin strax.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita viöurkenningarskjöl:
Besta umhverfið og
mesta hreinlætið
Samtök sunnlenskra sveitarfé-
laga veittu nýlega nokkrum eftirlits-
skyldum aðilum, sem þóttu skara
fram úr varðandi umhverfis- og
heilbrigðiseftirlit, viðurkenningu.
Viðurkenningamar vom veittar í
tengslum við verkefnið Hreint Suð-
urland.
Veittar voru viðurkenningar fyr-
ir hótel og veitingahús, gistihús - í
flokki Ferðaþjónustu bænda - sund-
laugar, tjaldsvæði, matvöruverslan-
ir og umhverfismál.
í flokknum hótel og veitingahús
hlaut Hótel Edda, Kirkjubæjar-
klaustri, viðurkenningu fyrir fram-
úrskarandi gæði varðandi hollustu-,
heilbrigðis- og hreinlætisþætti,
hreinlæti og snyrtimennsku í veit-
ingasal, eldhúsi og á herbergjum.
Einnig fyrir fjölbreyttan matseðil og
framúrskarandi gæði rétta.
í flokknum gistihús - Ferðaþjón-
usta bænda - hlutu Hunkubakkar í
Skaftárhreppi, Ragnheiður Björg-
vinsdóttir og Hörður Kristinsson,
viðurkenningu fyrir framúrskar-
andi gæði varðandi umhverfi, holl-
ustu-, heilbrigðis- og hreinlætis-
þætti. Hreinlæti og snyrtimennsku í
gistiskálum, umhverfi þótti einstakt
og sérlega snyrtilegt.
í flokki sundlauga varð sundlaug-
in að Geysi, Biskupstungnahreppi
fyrir valinu. Þar hlutu Sigríður Vil-
hjálmsdóttir og Már Sigurðsson við-
urkenningu fyrir framúrskarandi
gæði varðandi umhverfi, hollustu-
heilbrigðis og hreinlætisþætti.
Hreinlæti og snyrtimennsku í bún-
ingsaðstöðu gesta og laug og snyrti-
legt umhverfi. Þá þóttu mannvirki
vel hönnuð, einnig umhverfi.
í flokki tjaldsvæða hlaut tjald-
svæðið Kirkjubæ II, Skaftárhreppi
viðurkenninguna. Ólöf Benedikts-
dóttir, sem það rekur, fékk viður-
kenningu fyrir framúrskarandi
gæði varðandi umhverfi, heilbrigð-
is- og hreinlætisþætti og snyrti-
mennsku á tjaldsvæði. Gestaaðstaða
þótti til fyrirmyndar og umhverfi
snyrtilegt.
Sú matvöruverslun sem viður-
kenninguna fékk er KÁ á Selfossi
fyrir framúrskarandi gæði, fjöl-
breytni og hollustu matvæla, auk
heilbrigðis- og hreinlætisþátta í
matvörudeild sem þóttu tU fyrir-
myndar.
Einnig voru veitt verðlaun í
flokki umhverfísmála. Það var Sorp-
stöð Rangárvallasýslu bs. sem fékk
viðurkenningu fyrir forgöngu i þró-
un umhverfismála á Suðurlandi,
fyrirbyggjandi mengunarvarnir og
uppbyggingu og rekstur á flokkun-
ar- og móttökustöð fyrir úrgang að
Strönd í Rangárvallasýslu.
-ÞK
KENWOOD
kraftur, gœði, ending
Armúla 17, Reykiavfk, sími 568-8840