Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Qupperneq 19
MÁNUDAGUR 1. APRÍL 1996
31
Húsið við Hvanneyrarbraut 11, eina húsið byggt af einstaklingum á Sigló á síðasta ári. DV-mynd Örn
Sigluijörður:
Einstaklingar hvatt-
ir til húsbygginga
DV, njótum:
Bæjarstjórn Siglufjarðar hefur
ákveðið að fella niður svokallað A-
gatnagerðargjald til þeirra sem
hefia nýbyggingar á íbúðarhúsnæði
á Siglufirði. Gjaldið miðast við
stærð húsa og getur lækkað kostnað
hjá húshyggjanda um 260 þúsund
krónur á 160 fermetra húsi.
Samþykktin gildir til 1. maí 1998
eða út yfirstandandi kjörtímabil
sveitarstjórnar. Einnig er í gildi
samþykkt þess efnis að ekki þurfi
að greiða fasteignaskatt af íbúðar-
húsnæði fyrstu tvö árin eftir að það
er fokhelt.
Að sögn Sigurðar Hlöðverssonar
bæjartæknifræðings vilja bæjaryfir-
völd með þessu örva einstaklinga til
húsbygginga. Nánast ekkert hefur
verið hyggt af íbúðarhúsnæði í bæn-
um undanfarin ár nema í félagslega
húsnæðiskerfinu.
Á síðasta ári var brotið blað þeg-
ar ung hjón byggðu sér einbýlishús
ásamt búskúr. Þau nutu niðurfell-
ingar A-gjaldsins og þykir bæjar-
stjórn sanngjarnt að aðrir hljóti
sömu fyrirgreiðslu.
Að sögn Sigurðar er nokkuð um
óbyggðar lóðir í bænum en nú er
einkum litið á eyrina sem bygging-
arsvæði meðan nýtt hættumat
vegna snjóflóða liggur ekki fyrir.
-ÖÞ
Eitt verkefna nemanda á sýningunni. DV-mynd JS
ÖxarQöröur:
Þemavika í
Lundarskóla
DV, Kelduhverfi:
Skólastarf í Lundi hér í Öxarfirði
hefur verið með óhefðbundnum
hætti síðustu vikuna - þemavika,
sem fékk nafnið Samvinna enda
gekk samstarfið vel.
Unnið var í fjórum hópum eða
eins og bekkjaskipan er í skólanum.
Lundur er sveitaskóli með rúmlega
40 nemendum og er þess vegna þó
nokkur samkennsla. Fyrsta til
fjórða bekk er kennt saman, þá 5.-7.
og 8.-9. en 10. bekkur nýtur forrétt-
inda að vera að mestu kennt sér
enda stefna þeir nemendur á sam-
ræmd próf.
10. bekkur var með listasýningu
sem kölluð var Rykmaur og sett var
upp í heimavist skólans. Ekki skorti
þar hugmyndaflugið i tjáningu nem-
enda undir stjóm kennara sinna.
8. og 9. bekkur byggði eyju og þar
var fjallgarður úr pappamassa - og
á eyjunni bjó Jesús og rak bama-
heimili. Saminn var söngur fyrir
eyjuna.
Nemendur 5.-7. bekkjar voru með
tvær eyjar. Undirstaðan var úr gifsi
og hús úr kubbum. Þar var einnig
hægt að fræðast um goð og ásatrú.
Yngstu nemendurnir bjuggu til
fingrabrúður, saumuðu á þær kjólá
og bjuggu til leiksvið því leikþáttiu'
var saminn fyrir brúðumar. Þá
gáfu nemendur út skólablað og
seldu.
-JS
Góð fermingarjyjöf
sem lefjffurgrunn að fursœlum fjúrhuff
Öndvefjisbréfi Öndvegisbréf em verðbréfasjóður sem fjárfestir eingöngu í ríkis-
tryggðum verðbréfiim, s.s. spariskírteinum. Öndvegisbréf hafa gefið
7,77% raunávöxtun á ári sl. 5 ár.
Islandsbréfi Helstu kostir íslandsbréfa eru stöðugleild í ávöxtun, góð eignadreifing
og hagstæð innlausnarkjör. Islandsbréf henta vel ungu fólki, sem getur
þurft að nýta peningana með stuttum fyrirvara t.d. vegna skólagöngu.
Islenski íslenski fjársjóðurinn er hlutabréfasjóður sem fjárfestir í íslenskum
fjársjóðurinn: fyrirtækjum. Islenski fjársjóðurinn er spennandi kostur fyrir ungt
fólk sem vill stíga fyrstu skrefin til fjárfestingar í íslensku atvinnulífi.
Þú færð bréfið afhent í fallegri möppu.
i^ Lattdsbréfstyrkja
jjr jafningjafr&öslu
gegn vímuefnaneyslti j
Hafðu samband við
ráðgjafa Landsbréfa eða
umboðsmenn í öllum
útibúum Landsbankans.
, LANDSBREF HF.
yffiefyhx- - ^hx-fihh*