Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Blaðsíða 36
FR ÉTTAS KOTIÐ
SIMINN SEM ALOREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjalst ohað dagblað
MÁNUDAGUR 1. APRÍL 1996
Keflavíkurflugvöllur
Meint nauðgun
til rannsóknar
Rannsóknarlögreglan á Keflavík-
urflugvelli rannsakar nú meinta
nauðgun sem á að hafa átt sér stað
__^á Keflavíkurflugvelli um helgina.
Fómarlambið er ung íslensk kona.
Málið er á frumstigi rannsóknar og
fengust litlar upplýsingar hjá lög-
reglu. -pp
Par tekið með
landa
Lögreglan í Reykjavík handtók í
fyrrinótt karl og konu í bíl í Hlíðun-
um grunuð um landasölu. Við leit í
bíl skötuhjúanna fundust 16 lítrar af
landa og var fólkið flutt á lögreglu-
stöð. Eftir yfirheyrslur var því
sleppt. -pp
Séra Kristján Björnsson, sóknarprestur á Hvammstanga:
Biskup ekki í jafnvægi
til aö sinna embætti
„Ég vil aö biskup víki meðan
verið er að vinna í þessu máli. Það
er ekkert markmið að hann hætti
alveg, það verður bara að koma í
ljós þegar búið er að vinna í mál-
inu hvað verður," sagði Kristján
Bjömsson, sóknarprestur á
Hvammstanga, í samtali við DV
en hann lýsti þessari skoðun sinni
í laugardagspistli I Degi síðastlið-
inn laugardag.
„Það er út af viðbrögðum hans
og ýmsum mistökum sem hafa
orðið síðan ásakanir um nauðgun-
artilraun hans og kynferðislega
áreitni kom fram. Ég get ekkert
verið að dæma í þessu máli en ég
hef rökstutt það í bréfi til hans að
skynsamlegast sé að hann víki.
Hann sendi mér bréf eins og
öðram prestum eins og frægt er
orðið og ég svaraði þvi eins og
eðlilegt er. Ég tel hann hafa sýnt
það að hann er alls ekkert í jafn-
vægi tfl þess að sinna embættinu.
Það ber auðvitað hátt þetta með
bréfið sem hann sendi fjölmiðlum.
Mér finnst það brot mjög alvaiiegt
eins og biskup segir sjálfúr. Ég
vona bara að kirkjumálaráðherra
taki á þessu máii.“
Kristján telur að það þurfi ekki
bara að skoða þetta mál lögfræði-
lega, heldur þurfi þessir aðilar að
fara í gegnum það á faglegan hátt
með sérfræöingum.
„Ólafur er búinn að draga bisk-
upsembættið niður. Þetta er mál
Ólafs Skúlasonar en ekki biskups
íslands, það varðar hann sjálfan.
Ég ber mig illa undan þessum við-
brögðum hans. Ég tel að hann hafi
brugðist á allan hátt og að hans
mestu mistök séu að sitja áfram og
hann er að uppskera það. Ég ber
umhyggju fyrir honum og og bið
fyrir honum og fjölskyldu hans,“
sagði séra Kristján. -ÞK
Séra Kristján Björnsson var á Blönduósi á laugardaginn að skíra barn.
Hér er hann, t.h, á tali við Benedikt Axelsson bónda eftir skírnina.
DV-mynd G.Bender
Þessi fimm börn voru fermd í Kotstrandarkirkju í gær. Þau eru öll systkina-
börn. DV-mynd Sigrún Lovísa
Anyksciat úr landi með allar eigur Sogs:
Eigum meira að segja
blankskó skipstjórans
„Við vorum rólegir með að skipið
færi ekki. Það er engin spurning að
allar eigur fyrirtækisins eru um
borð í skipinu. Við höfðum íjárfest í
tækjum og búnaði fyrir tugi millj-
óna króna og greitt alla leigu sem
búið var að semja um í skrifuðum
samningum við Euro Liutas í
Litháen. Mig minnir að við greidd-
um 32 milljónir í leigu á síðasta ári.
Við álítum að þarna hafi verið
stolið frá okkur og siglt burt með
allar okkar eigur. Við áttum meira
að segja blankskóna sem skipstjór-
inn gengur á,“ sagði Gísli Jónsson,
annar eigenda Sogs hf., en fyrirtæk-
ið leigði litháíska togarann
Anyksciat sem sigldi úr Hafn-
arfjarðarhöfn fyrir helgi.
Gísli sagði að Sog ætti vinnslu-
línu um borð, veiðarfæri og ýmis
tæki og tól tengd þeim. Allan vinnu-
fatnað skipverjanna tuttugu, þ.m.t.
flotgalla, kuldagalla, vettlinga, ullar-
sokka og stígvél.
„Við erum ráðþrota en ætlum að
kanna okkar stöðu nánar. Það gefur
auga leið að við höfum ekki efni á
að reka málið fyrir dómstólum. Það
liggur beinast við að fyrirtækið fari
á hausinn," sagði Gísli en Sog var
stofhað árið 1994. -bjb
Öll fermingarbörnin systkinabörn
DV, Hverageröi:
Fimm börn voru fermd í Kot-
strandarkirkju í gær, pálmasunnu-
dag. Það sem var sérstakt við þá
fermingu var að þau eru öll systk-
inaböm.
Þau heita Anna Katrín Guð-
mundsdóttir frá Sauðárkróki, dóttir
Guðrúnar Kristófersdóttur og Guð-
mundar Pálssonar, Hákon Daði
Hreinsson, Heiðmörk 31 í Hvera-
gerði, sonur Ingibjargar Sigmunds-
dóttur og Hreins Kristóferssonar,
Katrín Ösp Emilsdóttir úr Hruna-
mannahreppi, dóttir Lilju Ölvisdótt-
ur og Emils Kristóferssonar,
Lucinda Árnadóttir úr Reykjavík,
dóttir Bjarkar Kristófersdóttur og
Árna Vigfússonar og Sigurgeir Már
Sigurðsson úr Reykjavík, sonur
Hlífar Kristófersdóttur og Sigurðar
Sigurgeirssonar.
SL
ÞAÐ ER MEIRA EN
SKÍTALYKT AF MÁLINU -
ÞAÐ ER LÍKA TÁFÝLA!
Veðrið á morgun:
Hægviöri
víöast hvar
Á þriðjudaginn er gert ráð
fyrir hægri vestlægri átt víðast
hvar á landinu en norðlægri
við norðurströndina. Skýjað
verðúr um mestallt land, nema
helst á Austur- og Suðaustur-
landi, og rigning meö köflum
norðanlands og “vestan. Á
annesjum syðra má þó búast
við smáéljum. Hiti verður á bil-
inu l-ö stig, svalast norðan til.
Veðrið í dag
er á bls. 44