Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1996, Síða 3
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996
3
Fréttir
Roksala á húsnæöisbréfum:
1.650 milljónir seldust
upp á fjórum dögum
- vísbending um vaxtalækkun, segir VÍB
Sala á öðrum áfanga húsnæðis-
bréfa Byggingarsjóðs verkamanna
hófst 1. apríl sl. Stefnt var að því að
selja skuldabréf að andvirði 1.500
milljóna króna en viðtökur fjárfesta
urðu það góðar að 1.650 milijónir
seldust upp á fjórum dögum. Sölu
bréfanna er því lokið en Verðbréfa-
markaður íslandsbanka, VÍB, sá um
hana fyrir Húsnæðisstofnun. I kjöl-
far sölunnar hefur VÍB hafið við-
skiptavakt með húsnæðisbréf á
Verðbréfaþingi.
Stærstu kaupendur bréfanna
voru stofnanafjárfestar, einkum líf-
eyrissjóðir. Um var að ræða löng
skuldabréf með árlegum afborgun-
um, annars vegar til 24 ára og hins
vegar til 42 ára. Ávöxtun bréfanna
samsvaraði vöxtum húsbréfa á eftir-
markaði.
VÍB sá einnig um sölu fyrsta
áfanga bréfanna en frá áramótum
hafa verið seldir rúmir 3 milljarðar
í húsnæðisbréfum. Húsnæðisstofn-
un lét fara fram útboð á meðal verð-
bréfafyrirtækjanna um sölu bréf-
anna og var VÍB með lægsta tilboð í
báðum tilvikum. Með þessum
tveimur áföngum húsnæðisbréfa
hefur tekist að fjármagna félagslega
húsnæðiskerfið fyrir fyrri hluta
þessa árs en alls var reiknað með 5
milljörðum á árinu öllu í útgáfu
húsnæðisbréfa.
Erum í
lausu lofti
- segir Arthur Morthens
Við, 23 starfsmenn fræðsluskrif-
stofu Reykjavíkur sem erum ríkis-
starfsmenn, erum í lausu lofti. Við
erum með uppsagnarbréf í höndun-
um og hefur verið sagt að einhver
okkar verði hugsanlega endurráðin.
Málið virðist alfarið vera í höndum
Gerðar Óskarsdóttur, nýráðins for-
stöðumanns fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur. Hún hefur sagt okkur
að við höfum engan forgang tO
starfa í Fræöslumiðstöðinni og
verðum að sækja um auglýstar stöð-
ur þar eins og aðrir."
Þetta eru orð Arthurs Morthens,
fulltrúa á fræðsluskrifstofu Reykja-
víkur. Hann segist mjög undrandi á
Ögmundi Jónassyni, formanni
BSRB, Eiríki Jónssyni, formanni
Kennarasambandsins, og Birgi
Birni Siguxjónssyni, framkvæmda-
stjóra BHM, og öðrum fulltrúum
ríkisstarfsmanna. Þeir hafi fengið
mál starfsmannanna tO meðferðar
fyrir tæpum tveimur mánuðum en
ekkert komið út úr því. „Við höfum
því í raun bara verið skOin eftir og
það sýnist mér vera staðfest í sam-
þykkt skólamálaráðs Reykjavíkur í
gær“ segir Arthur Morthens. -SÁ
Lækkun á vöxt-
um ríkisvíxla
Seðlabankinn lækkaði í gær
ávöxtun í viðskiptum bankans með
ríkisvíxla á Verðbréfaþingi íslands
um 0,75%. Hliðstæð lækkun varð á
ávöxtun í tilboðum bankans í þá tvo
flokka ríkisbréfa sem eru á gjald-
daga á þessu ári og bankinn er við-
skiptavaki fyrir.
I tOkynningu frá Seðlabankanum
segir að lækkunina megi' rekja til
þróunarinnar á gjaldeyris- og pen-
ingamörkuðum að undanfórnu sem
birtist m.a. í bættri gjaldeyrisstöðu
bankans og lækkun markaðsverð-
bréfaeignar hans. -bjb
„Þetta eru löng skuldabréf þannig
að maður skyldi ætla að þetta væri
einhver vísbending um vaxtalækk-
un. Fjárfestirnar virðast leggja sig
fram við að tryggja sér löng bréf. Ég
get verið sammála þeim í ■ þessu
mati. Daginn eftir að sölunni lauk
lækkaði húsbréfakrafan um tvo
punkta," sagði Ásgeir Þórðarson hjá
VÍB við DV, aðspurður hvað olli
góðum viðbrögðum fjárfesta.
-bjb
Jmiuycjy'
J'Jai/t aá /j’jri-i ú sjú/j'xurp
/íjyfjdbiifjd í i/jivu/j/ii. Þú
mmB
Innbyggt
'Sfnintemet.
tenging! _
Fjarstýríng
til að skipta um
sjónvarpsrásir og
lög í geisladrifinu
Skipbolti 21 • Sími 51/ 5111
Heimastðan: bttp.llwww. apple. is
PowerMacintosh 5200
hann hefur'
ijtplvunni.
Órgjörvi: PowerPC 603 RISC . _
Tiftíðni: 75 megarið
Vinnsíuminni: 8 Mb
Skjáminni: 1 Mb DRAM rkf
Harðdiskur: 800 Mb
Geisladrif: Apple CD600Í (fjórhraða)
Hátalarar: Innbyggðirtvíóma hátalarar
Skjár: Sambyggður Apple
15“ MultiScan
Diskadrif: 3,5“ les Mac og Pc -diska
Hnappaborð: Apple Design Keyboard
Stýrikerfi: System 7.5.1 sem að
sjálfsögðu er allt
á íslensku
Kostaöi áður með þessum búnaði: 210.000 kr. stgr.