Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1996, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996
5
DV
Silfursjóðurinn:
Kæra Mið-
húsahjóna
tekin fyrir
í dag
Kæra hjónanna í Miðhúsum á
hendur ráðamönnum Þjóðminja-
safhsins og VUhjálms Arnar VU-
hjálmssonar, starfsmanns þess,
vegna silfursjóðsins fræga, verð-
ur tekin fyrir í héraðsdómi
Reykjavíkur í dag.
Hlynur Halldórsson, silfur-
smiður í Miðhúsum, vUdi ekki
ræða málið neitt í gær sökum
þess á hve viðkvæmu stigi það
er. Þarna er um að ræða bæði
meiðyrðamál og skaðabótamál
vegna meintra aðdróttana að
hjónunum í Miðhúsum í tengsl-
um við silfursjóðinn. -S.dór
Heræfingar við
íslandsstrendur
DV, Suðurnesjum:
„Þetta er ekki endanlega
ákveðið en ef af heimsókninni
verður er um að ræða hluta her-
æfmgar Atlantshafsbandalagsins
á Norður-Atlantshafinu, einkum
við strendur Skotlands, í haust
og mun bera nafnið Norðurljós.
Það verða hér 3-5 skip á veg-
um flotadeildar Atlantshafs-
bandalagsins og stefnt að því að
þau komi til Reykjavikur. Það er
verið að kanna legumöguleika
og fleira í því sambandi," sagði
Hannes Heimisson, staðgengill
skrifstofustjóra á varnarmál-
skrifstofunni, í samtali við DV.
Eitt af þeim skipum sem koma
hingað til lands er mjög stórt
bandarískt skip, 200 metra langt,
og verður notað sem fljótandi
stjórnstöð. Það nýtist í margs
konar aðgerðir og hefúr verið
notað sem móðurstöð fyrir
þyrlusveitir. Þá koma einnig
tundarspillar og freigátur í
heimsókn.
„Þetta er árleg æfing og ekki
stór I sniðum. Varnarliðsstöðin
á Keflavíkurflugvelli er í sam-
hæfingu við undirbúning æflng-
arinnar," sagði Hannes. -ÆMK
Fréttir
Smábátasjómenn ekki á eitt sáttir um samkomulagið við sjávarútvegsráðherra:
Að hræra línu og
færi í graut er rugl
- segir Eövald Eðvaldsson, formaður Bárunnar, félags smábátaeigenda í Hafnarfirði
„Það er ekki rétt að almenn
ánægja ríki raeð samkomulag
Landssambands smábátaeigenda
við sjávarútvegsráðherra. Sannleik-
urinn er sá að sl. haust var uppkast
að samkomulaginu fellt í tvígang og
í bæði skiptin með yfirgnæfandi
meirihluta og það hefur ekki nokk-
ur skapaður hlutur breyst síðan
þá,“ segir Sigurgeir Jónsson smá-
bátasjómaður.
„Það eru margar hliðar á þessum
málum. Til dæmis hreinlega báðu
um það bil 108 af um 400 smábáta-
sjómönnum um kvóta í skoðana-
könnun sem gerð var innan Lands-
sambandsins. Þá er það ljóst að
hreint engin sátt er um að hræra
saman í einn graut bátum sem
veiða á línu og á handfæri. Lína og
handfæri eru sitt hvor hluturinn og
að flokka það saman er algert rugl
og hefur alltaf verið,“ segir Eðvald
Eðvaldsson, smábátasjómaður og
formaður Bylgjunnar, félags smá-
bátaeigenda í Hafnarflrði. Þeir Eð-
varð og Sigurgeir eru alls ekki á því
að sátt ríki innan raða smábátaeig-
enda um samkomulag Landssam-
bandsins og sjávarútvegsráðherra
sem lagt hefur verið fram á alþingi
til afgreiðslu.
Aflaaukningin hjá línubát-
unum
Eðvald telur að línubátar, sem
yfirleitt eru stórir og öflugir bátar,
eigi ekki heima innan kerfis smá-
báta. „Það eru þeir sem hafa valdið
allri aflaaukningunni. í janúar voru
haldnir fundir í smábátafélögunum
í kringum allt landið. Alls staðar
var ályktað um það að aðskilja línu
og handfæri og alls staðar með
miklum meirihluta en stjórn Lands-
sambandsins, eða öllu heldur for-
maðurinn, vill hafa þessa grautar-
skál áfram og vill hafa línu og hand-
færi í sama potti, sem er bara rugl.
Svo þegar skert er, er skert jafnt
yfir alla línuna og skerðingará-
kvæðin eru áfram inni í nýja sam-
komulaginu," segir Eðvarð.
Smábátaútgerð er einyrkjarekst-
ur þar sem eigandi vinnur sjálfur
við hann. Þegar hann hættir hefur
það sýnt sig að rekstrareiningin
hverfur. Sigurgeir Jónsson segir að
það framsal aflaheimilda sem sam-
kvæmt samkomulaginu við ráð-
herra sé leyft til annarra smábáta-
eigenda innan Landssambandsins
sé einnig umdeilt. Sumir telji að það
muni ganga eftir en aðrir, þar á
meðal hann sjálfur, telji að þar sem
kvótinn sé eign þjóðarinnar gangi
það ekki upp að selja annarra eign.
„Ég tel það óeðlilegt að menn geti
selt annarra eigur.
Smábátasjómenn í þrælkun
Þá hefur að sögn Sigurgeirs kom-
ið á daginn að með því að sameina
aflaheimildir og úrelda báta muni
það gerast að fiskverkendur og
stærri aðilar kaupi veiðiheimildirn-
ar og láti síðan sjómennina á bátun-
um róa áfram á þeim upp á eitt-
hvert smáræði. Engir samningar
séu til um kjör á þessum bátum og
hvorki Sjómannasambandið né
FFSÍ komið nálægt samningum um
þetta.
„Ég og fleiri sjáum ekki að hag-
fræðilegar forsendur séu til þess að
í landinu verði í gangi tvö kvóta-
kerfi. Þess vegna muni þetta ein-
faldlega ganga inn í kvótakerfið sem
fyrir er og með þetta er megn óá-
nægja," segir Sigurgeir. -SÁ
i
meö klakavél
þurnkarum
af tvöföldum arne
na rennandi vatm
reykjavík
iaugaveg