Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1996, Page 7
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996
7
Fréttir
Þetta er sko ekkert hundalíf, glugginn opinn og loftið leikur um kroppinn.
Hundar eru þefnæmir með afbrigðum og það skyidi þó aldrei vera að þeir
séu farnir að finna lyktina af sumrinu. „Skyldi Ijósmyndarinn vera ánægður
með prófílinn?" DV-mynd BG
Evrópuráðsnefnd gegn pyntingum:
Séra Jón Bjarman
endurkjörinn
Séra Jón Bjarman, sjúkrahús-
prestur og fyrrverandi fangaprest-
ur, hefur verið endurkjörinn í sér-
staka nefnd á vegum Evrópuráðsins
til varnar gegn pyntingum og
ómannúðlegri og niðurlægjandi
meðferð eða refsingu. Aðildarríki
Evrópuráðsins, 30 að tölu, tilnefna
þrjá einstaklinga í nefndina og síð-
an kýs Evrópuráðið einn úr þeim
hópi, þó ekki sem fulltrúa viðkom-
andi ríkis heldur sem sjálfstæðan
einstakling. Jón var endurkjörinn í
nefndina til næstu fjögurra ára en
varamenn hans hér á landi eru Mar-
grét Heinreksdóttir og Guðrún Agn-
arsdóttir.
Jón sagði í samtali við DV að
nefhdin kæmi saman fjórum sinn-
um á ári. Þess utan færu nefndar-
menn í eftirlitsferðir tU aðildarríkj-
anna að skoða stofnanir sem vista
fólk sem svipt hefur verið frelsi
sínu, s.s. fangelsi, lögreglustöðvar,
geðsjúkrahús og unglingahæli. Ná-
kvæmum skýrslum væri skUað tU
viðkomandi stjórnvalda í kjölfar
slíkra ferða. Það væri síðan í verka-
hring stjórnvalda að gera skýrslurn-
ar opinberar.
Skýrsla af þessu tagi hefur komið
út um ástandið á Islandi. Þar var
fundið að ýmsu sem Jón sagði að
hafi verið bætt i flestum tUvikum
en að sjálfsögðu mætti ávaUt gera
betur.
Lára Margrét Ragnarsdóttir þing-
maður er formaður íslandsdeUdar
Evrópuráðsins. Hún sagði við DV
að sér hefði ekki komið á óvart að
Evrópuráðið hefði endurkosið Jón.
Hann hefði staðið sig mjög vel í
nefndinni.
-bjb
Borgarrað vill viðræð-
ur við Landsvirkjun
Borgarráð Reykjavíkur hefur
samþykkt tUlögu frá borgarstjóra
um að óska eftir formlegum viðræð-
um við Landsvirkjun um raforku-
vinnslu á Nesjavöllum í framhaldi
af nýlegum óformlegum viðræðum
mUli veitustofnana borgarinnar og
Landsvirkjunar um málið.
Vegna undirbúnings að gerð
þriggja ára fjárhagsáætlunar borg-
arinnar og fyrirtækja hennar telur
borgarstjóri brýnt að Reykjavíkur-
borg geti haft sem besta yfirsýn yfir
verklegar framkvæmdir á því tíma-
bUi, m.a. hjá veitustofnunum borg-
arinnar.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks i borg-
arráði lögðu fram bókun við af-
greiðslu tillögu borgarstjóra. í
henni segir að nú þegar séu starf-
andi tvær nefndir með fuUtrúum
borgarinnar í viðræðum um skipu-
lag orkumála og hlutverk Lands-
virkjunar. Nú eigi að setja á stofn
þriðju nefndina tU að ræða um raf-
orkuvirkjun á NesjavöUum. Sjálf-
stæðismenn telja mjög mikilvægt að
þessar nefndir leiti samráðs um
stefnumarkandi aðgeröir í orkumál-
um.
-SÁ
íslendingar
Ari Sigvaldason, DV, Kaupmannahöfn:
íslendingar eru fyrirferðarmestir
í þeim sístækkandi hópi fólks sem
dönsk yfirvöld senda aftur tU síns
heima gegn vUja sínum vegna þess
sendir heim
að viðkomandi geta ekki séð fyrir
sér sjálfir. Eru þrír útlendingar af
ýmsum þjóðemum sendir heim á
degi hverjum. Þeir hafa þá verið á
atvinnuleysisbótum um lengri tíma
og eru yfirleitt skuldum vafðir.
Húnaflói:
Loðna tekur
fyrir línuveiðar
DV, Hólmavik:
„Það hefur aUtaf verið þokkaleg-
ur afli og oft góður undanfarið en
nú hefur orðið vart loðnu í
Húnaflóa svo hætt er við að fljótlega
taki að mestu fyrir afla á línuna á
svæðinu," sagði Ingólfur Andrés-
son, útgerðarmaður og bóndi á Bæ á
Selströnd, sem stundað hefur línu-
veiðar í vetur. Er nú að skipta um
veiðiskap og hefja grásleppuveiðar
eins og flestir eigendur minni báta
sem leyfi hafa fyrir þann veiðiskap.
Það sem skyggir á að þessu sinni
er að nokkurs hafíss hefur orðið
vart á hluta af veiðislóðinni vegna
langvarandi vestanáttar sem fært
hefur talsverðan ís tU austurs að
landinu. Ingólfur segir að aðeins
norðaustlæg átt næstu daga ásamt
hlýjum sjó geti komið i veg fyrir að
hafísinn verði tU óþæginda fyrir
veiðimenn og aðra sjófarendur
næstu vikunnar.
-GF
Ingólfur skipstjóri á báti sínum.
DV-mynd GF
Enn fær Björk verðlaun
DV, Akranesi:
Björk Guðmundsdóttir og
unnusti hennar Goldie fengu fyrstu
verðlaun á alþjóðlegri keppni í
dansmúsik á dögunum. Fengu hvort
um sig verðlaun sem besta söngkon-
an og besti söngvarinn við athöfn í
Forum Kentish Town í Lundúnum.
Sérstök dómnefnd færði þeim verð-
launin og auk þess fengu M People
verðlaun fyrir dansatriði, Leftfield
fyrir geisladisk og Shaggy fyrir
reggietónlist.
-DÓ
Módel: Brynjar og Guðrún Edda,
sigurvegarar í unglingakeppni
módel 79.
Útsölustaðir
Reykjavík: Frísport, Laugavegi 6
Sportkringlan, Kringlunni
Útih'f, Glæsibæ
íþróttabúðin, Borgartúni 20
Hafnarfjörður: Fjölsport, Miðbæ
Kópavogur: Sportbúð Kópavogs
Keflavík: K-Sport
Selfoss: Sportbær
Akureyri: Sportver, Glerárgötu
Egilsstaðir: Táp og fjör
ísafjörður: Sporthlaðan
Sauðárkrókur: Heilsurækt
Húsavík: Skóbúð Húsavíkur
Akranes: Akrasport
Borgames: Borgarsport
Flúðir: Sportvömr
Hella: Apótek
Hvolsvöllur: Apótek
Ólafsvík: Versl. Vík
Djúpivogur: BH-búðin
Vestmannaeyjar: Smart
Ath. Óvlst er að allar tegundir táist á hverjum
útsölustað á birtingartíma auglýsingar.