Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1996, Qupperneq 15
14
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996
27
íþróttir
Iþróttir
Brian Clough á við mikla
vanheilsu að stríða.
Brian Clough
Brian Clough, einn sigursæl-
asti framkvæmdastjórinn í
ensku knattspyrnunni, á við
mikla vanheilsu að stríða og
segja læknar að erfiðleikana
megi að miklu leyti rekja til
óhóflegrar neyslu á áfengi.
Sjálfur hefur Clough viður-
kennt að hafa drukkið meira en
gengur og gerist. Á dögunum var
hann fluttur í skyndi á sjúkra-
hús vegna nýrnakvilla. Var hon-
um um tíma vart hugað líf. Ekki
eru nema nokkrar vikur frá því
að Clough var fluttur í skyndi á
sama sjúkrahús en þá var það
lifrin sem gaf sig.
-SK
John Rhodes
áfram hjá ÍR
Allar líkur eru á því að John
Rhodes verði áfram þjálfari og
leikmaður úrvalsdeildarliðs ÍR í
körfuknattleik á næsta keppnis-
tímabili.
Sjálfur hefur Rhodes mikinn
áhuga á að vera áfram hér á
landi og samkvæmt heimildum
DV er áhugi einnig fyrir hendi
hjá ÍR-ingum.
-SK
Eins gott að
„Keisarinn"
var í golfi
Franz Beckenbauer hefur ver-
ið óragur við að gagnrýna
frammistöðu leikmanna Bayern
Munchen í þýsku knattspyrn-
unni í vetur og verið mjög óá-
nægður með leik liösins.
í gærkvöld lék Bayem gegn St.
Pauli og mátti þakka guði og
Jurgen Klinsmann fyrir að ná
jafntefli. Klinsmann jafnaði leik-
inn, 1-1, á lokamínútunni.
Bayern náði þar með aftur efsta
sæti í úrvalsdeildinni en líklega
var það eins gott fyrir leikmenn
Bayern að „Keisarinn" var í
golfi á Marbella á Spáni á meðan
leikurinn fór fram.
Werder Bremen sigraði
Borussia Mönchengladbach, 2-0,
í gærkvöldi, Dusseldorf vann
Kaiserslautem, 2-1, og Famburg
og Freiburg gerðu markalaust
jafntefli.
-SK
Atletico vann
Atletico Madrid varð í gær-
kvöld spænskur bikarmeistari í
knattspyrnu með því að sigra
Barcelona, 1-0, í úrslitaleik. -SK
Enn sigrar Milan
Úrslit í ítölsku knattspyrn-
unni í gærkvöld: Atálanta-Bari
1-2, Cagliari-AC Milan 1-2, Inter-
Sampdoria 0-2, Juventus-Udi-
nese 2-1, Lazio-Fiorentina 4-0,
Napoli-Torino 1-0, Padova-Rcma
1-2, Parma-Cremonese 2-0, Pi-
acenza-Vicenza 0-1.
-SK
Júlíus farinn
til Þýskalands
- Rúnar Sigtryggsson aftur kominn til Vals frá Víkingi
Júlíus Gunnarsson, vinstri hand-
arskyttan úr íslandsmeistaraliði
Vals í handknattleik, hélt
til Þýskalands í morgim
en þangað er hann að
fara til að líta á aðstæð-
ur hjá þýska 3. deild-
arliðinu Hildesheim.
„Forráðamenn félags-
ins höfðu samband við
mig og buðu mér að
koma út. Ég ákvað að slá
til enda tapa ég ekkert á
því að skoða þetta dæmi.
Þetta félag er í 3. deild-
inni og er í baráttunni um að kom-
ast upp í 2. deild, að mér skilst. Ég
á ekki von á því að gera neinn
Júlíus.
samning þarna úti en þetta verður
bara koma í ljós,” sagði Júlíus í
samtali við DV í gær.
Valsmenn vilja ekki
missa Július úr liði
sínu enda nýbúnir að
missa Dag Sigurðsson
og Ólaf Stefánsson.
„Við komum til meö
að leggja áherslu á að
halda Júlíusi,” sagði
Brynjar Harðarson,
formaður handknatt-
leiksdeildar Vals, við
DV í gær.
missa leikmenn því Rúnar Sig-
tryggsson hefur ákveðið að ganga til
liðs við Hlíðarendaliðið að
nýju. Rúnar kemur úr Vík-
ingi en hann lék með Val
keppnistímabilið 1993-94 og
varð þá íslandsmeistari
með liðinu.
Rúnar.
Rúnar aftur til Vals
Valsmenn eru ekki bara að
Jón áfram með meist-
aralið Vals
Allt útlit er fyrir að Jón
Kristjánsson verði áfram
þjálfari liðsins og staðfesti
Brynjar Harðarson, formaður hand-
knattleiksdeildar Vals, það i samtali
viö DV.
-GH
Butt dæmdur i leikbann
- og missir af tveimur næstu leikjum með Man Utd
Nicky Butt, miðvallar-
leikmaðurinn knái í liði
Manchester United, verð-
ur ekki með í tveimur af
síðustu fjórum leikjum
liðsins í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu.
Aganefnd enska knatt-
spyrnusambandsins
dæmdi Butt í tveggja
leikja bann í gær en hann
hafði þá unnið sér inn 33
refsistig á tímabilinu.
Butt, sem leikið hefur frá-
bærlega með United í vet-
ur, hefur þótt heldur
óstýrilátur inni á leik-
vellinum og hefur verið
iðinn við að næla sér í gul
spjöld.
Leikirnir sem Butt
missir af eru gegn Leeds
og Nottingham Forest.
Keith Gillespie er ekki
ánægður með vistina hjá
Newcastle en þangað var
hann seldur frá
Manchester United fyrir
tímabilið. Útherjinn
snjalli vill nú koma aftur
heim og hafa forráða-
menn United og
Newcastle hafið viðræður
um skiptin. Alex Fergu-
son átti um helgina við-
ræður við Liverpool um
kaup á Steve McManam-
an frá Liverpool og var
Ferguson tilbúinn að
reiða fram 700 milljónir
króna. Svörin sem hann
fékk frá Liverpool voru
þau að McManaman yrði
hjá Liverpool til lífstíðar.
„ Hélt ég hefði
misst sjónina"
- Milan Jankovic slasaðist illa á auga í æfingaferð í Skotlandi
„Mér leið alveg hrikalega illa og ég var mjög
hræddur. Ég sá ekkert með hægra auganu í 5-6
klukkutíma. Leikmaðurinn hefur örugglega
verið með langar neglur þegar hann fór með
puttann upp í augað á mér þvi það var alveg
hörmung að sjá mig,“ sagði Milan Jankovic,
varnarjaxlinn öflugi í knattspymuliði Grind-
víkinga, í samtali við DV í gærkvöld.
Jankovic var á keppnisferðalagi með Grind-
víkingum í Skotlandi um páskana. Hann varö
fyrir því óhappi í æfingaleik gegn skosku liði að
einn andstæöingurinn rak fingur upp í augað
á honum með þeim afleiðingum að augnlokið
rifnaði og myndaðist djúpur skurður. Jankovic
þurfti að vera í tvo daga á sjúkrahúsi og gekkst
undir aðgerð þar sem saumuð voru fimm spor.
Hann var í klukkustund á skurðarborðinu.
„Það voru fimm læknar að skoða mig í upp-
hafl, þetta leit það illa út. Bólgan er eiginlega
farin úr þessu núna. Ég fer til læknis í dag og
þá verða saumarnir teknir úr. Ég hef ekki náð
fullri sjón á auganu en læknar segja að þetta
lagist alveg með tímanum. Læknar bönnuðu
mér að æfa í tvær vikur en vonandi get ég byrj-
að fyrr,“ sagði Jankovic í gærkvöld en hann á
ekki skemmtilegar minningar frá þessari æf-
ingaferð til Skotlands.
Víðismenn voru í æfingaferð í Skotlandi á
sama tíma og Grindvíkingar og eins og kom
fram í DV í gær varð Steinar Ingimundarson
fyrir grófri líkamsárás í æfingaleik gegn skosku
liði þar sem einn leikmanna skoska liðsins
kjálkabraut Steinar. Dómari leiksins sagðist eft-
ir leikinn ekki muna eftir að hafa séð jafn grófa
líkamsárás og á skoski leikmaðurinn, sem ætti
að snúa sér að einhverju öðru en íþróttum, vit-
anlega von á löngu keppnisbanni og kann það
að vara í allt að þrjú ár. -SK/-ÆMK
Charlotte niður á jörðina
Shaquille O’Neal átti frábæran leik þegar lið hans Orlando Magic lagði Cleveland á
heimavelli í bandaríska körfuboltanum í nótt. Shaquille skoraði 39 stig í leiknum og
tók 17 fráköst enda kappinn engin smásmíð. Penny Hardaway kom næstur honum í
stigaskoruninni með 17 stig.
Charlotte fór niður á jörðina í
nótt en liðið fékk þá skell á heima-
velli gegn Miami. Eins og frægt er
gerði Charlotte sér lítið fyrir og
sigraði Chicago á útivelli í síðasta
leik. Tim Hardaway skoraði 29 stig
fyrir Miami.
Washington vann sinn fimmta
leik í röð. Juwan Howard gerði 26
stig fyrir Washington.
Urslit leikja í nótt:
Boston-Washington 108-122
Orlando-Cleveland 116-104
Charlotte-Miami 95-116
Detroit-Philadelphia 92-76
Minnesota-LA Lakers 90-111
San Antonio-Vancouver 105-82
Utah Jazz-Phoenix 103-79
Seattle-Sacramento 108-89
Detroit lék frábæra vörn gegn
Philadelphia og 8. sigur liðsins í röð
var staðreynd. Otis Thorpe skoraði
24 stig fyrir Detroit og Clarence We-
atherspoon skoraði 24 stig fyrir
76’ers.
LA Lakers gerði góða ferð til
Minnesota. Elden Campbell og
Sedale Threatt fóru fyrir liði
Lakers, Campbell 28 stig og Threatt
20 stig. Þess má geta að Magic John-
son tók 10 fráköst í leiknum.
Shaquille O’Neal var firnasterkur
gegn Cleveland með sín 39 stig. Lið-
ið þótti leika mun betur en í síðustu
leikjum. Dan Majerle skoraði 25 stig
fyrir Cleveland.
San Antonio lék Vancouver
sundur og saman og var þetta 33.
tap nýliðanna í 35. leikjum.
-JKS
Hilmar i Stjornuna
Hilmar Þórlindsson hand-
knattleiksmaður er genginn til
liðs við Stjörnuna frá KR og
hefur skrifað undir tveggja
ára samning við Garðabæjar-
liðið.
Hilmar er öflug skytta sem
skorað hefur grimmt með KR-
ingum á Islandsmótinu undan-
farin ár.
„Við erum mjög ánægðir
með að fá Hilmar í okkar rað-
ir og vonandi að hann nái að
fylla í ákveðin skörð hjá okk-
ur,” sagði Októ Einarsson, for-
maður handknattleiksdeildar
Stjörnunnar, við DV í gær.
Stjörnumenn hafa þurft að
horfa á eftir tveimur sterkum
leikmönnum. Rússinn Dmitri
Filippov mun leika með þýska
liðinu Wuppertal undir stjórn
Viggó Sigurðssonar og Magn-
ús Sigurðsson hefur skrifað
undir samning við þýska 3.
deildarliðið Willstadt.
„Það er auðvitað slæmt að
missa þessa leikmenn en við
erum ekki á flæðiskeri stadd-
ir.
Við eigum marga unga og
efnilega leikmenn sem fá nú
tækifæri til að sanna sig. Þá
fáum aftur Rögnvald Johnsen
frá Fylki, en við lánuðum
hann í fyrra og svo kemur
Sigurður Viðarsson (Símonar-
sonar) inn í þetta að nýju en
hann sleit krossbönd í hné í
haust.
Við bindum miklar vonir
við þessa stráka,” sagði Októ.
Stjörnumenn hafa ekki
gengið frá ráðningu á þjálfara
í stað Viggós Sigurðssonar en
stefnt er að því að klára það
fljótlega, að sögn Októs.
-GH
Elsa á góða möguleika
Elsa Nielsen á mjög góða möguleika á að keppa i einliðaleik í badminton
á Ólympíuleikunum í Atlanta í sumar. í síðustu viku var Elsa í 7. sæti á
varamannalistanum en í dag er hún næst inn því þær sex sem voru á und-
an henni voru eru búnar að tryggja sér þátttökurétt á leikunum.
Elsa verður að öllum líkindum eini keppandinn frá íslandi í badminton-
keppni ólympíuleikanna því þeir Ámi Þór Hallgrímsson og Broddi Kristjáns-
son eru í 12. sæti á varamannalistanum. -GH
George Weah vill
leika í Englandi
Líberíumaðurinn George Weah, knattspyrnumaður ársins 1995, hefur
mikinn áhuga á að spfla í Englandi. Hann segist fylgjast vel með ensku
knattspyrnunni og hrífist mjög að frammistöðu Eric Cantona hjá
Manchester United og liði Newcastle.
„Ég hefði getað verið í búningi Newcastle á þessu tímabili en Kevin
Keegan bauð í mig 700 milljónir. AC Milan varð hins vegar á undan en ég
heyrði fyrst af tOboði Newcastle eftir að ég skrifaði undir hjá Milan. Mér
finnst París SG ekki hafa komið heiðarlega fram við mig vegna þess að
Newcastle sýndi mér áhuga áður en AC Milan kom inn í dæmið og ég hefði
ekki skrifað undir hjá Milan hefði ég vitað af tilboði Newcastle. Hvort ég
spila á Englandi kemur í ljós á næstunni þegar samningaviðræður hefjast
við Milan um nýjan þriggja ára samning.
Leikið verður tvívegis
gegn Færeyingum
Elsa Nielsen á enn góöa möguleika
á að keppa í Atlanta i sumar.
Næsta verkefni íslenska landsliðsins í
handknattleik eftir mótið í Kumamoto
eru tveir landsleikir gegn Færeyingum
ytra dagana 10.-13. maí.
Æfingar hefjast svo að fuUu 10. júní og
ákveðið hefur verið að fara til Sviss um
mánaðamótin júní-júlí og leika tvo
landsleiki við Svisslendinga. Að sögn
Þorbjarnar Jenssonar verður það loka-
verkefni fyrir leikina í undankeppni
heimsmeistaramótsins sem hefjast í
haust.
AðspurðurO hvort það væri ekki já-
kvætt fyrir íslenska landsliðið að nokkr-
ir af landsliðsmönnunum hafa ákveðið
að leika erlendis á næsta tímabili sagði
Þorbjöm: „Það er bæði jákvætt og nei-
kvætt. Það er jákvætt fyrir landsliðið að
strákarnir kynnast alþjóðlegum hand-
knattleik betur en það er neikvætt að
því leyti að minna verður um æfingar
hjá landsliðinu og erfiðara verður að
kaUa landsliðshópinn saman,” sagði Þor-
björn.
Hilmar Þórlindsson.
Fjölmennasta fimleikamótið
Um næstu helgi fer fram fjölmennasta fimleikamót ársins, Unglinga-
og seniormeistaramót íslands. Um 160 keppendur keppa þá í
Laugardalshöll. Mótið fer fram á laugardag og hefst kl. 13 og því lýkur
kl. 17. KR og Stjarnan eru umsjónaraðilar mótsins. -SK
„Höfum getu til að vinna mótið"
íslendingar lögðu Bandaríkjamenn, 30-24, í öðr-
um leik sínum á æfingamótinu í Japan í gærmorg-
un. íslendingar höfðu forystu aUan tímann og í
hálfleik var staðan 12-10. Með sigrinum er íslenska
liðið öruggt í undanúrslit en í morgun léku strák-
amir gegn Japönum.
„Þetta var nokkuö góður leikur af okkar hálfu.
Við vorum að þreifa fyrir okkur í fyrri hálfleik en
í þeim síðari gekk þetta betur. Könunum hefur far-
ið mikið fram og eru með mun betra lið nú en á
heimsmeistaramótinu heima í fyrra,” sagði Valdi-
mar Grímsson í spjalli við DV í gær.
Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari var í heild
nokkuð sáttur við leik sinna manna.
„Það var stígandi í þessum leik eftir leikinn gegn
Áströlum en í þehn leik sat mikil þreyta í strákun-
um eftir langt feröalag. Almennt voru menn að
spila þokkalega gegn Bandaríkjamönnum.
Það var kannski enginn að skara fram úr. Liðs-
heildin var sterk en ég get nefnt að Júlíus Jónas-
son var að spila nokkuð vel svo og Valgarð
Thoroddsen. Markmiðið er að vinna þetta mót. Við
höfum getu til að gera það og ég yrði svekktur ef
það tækist ekki,” sagði Þorbjöm í samtali við DV.
Mörk íslands: Júlíus Jónasson 7/3, Sigurður
Bjarnason 5, Ólafur Stefánsson 4, Róhert Sighvats-
son 4, Valgarð Thoroddsen 4, Dagur Sigurðsson 3,
Davíð Ólafsson 1, Björgvin Björgvinsson 1, Valdi-
mar Grímsson 1.
Guðmundur Hrafnkelsson lék allan tímann í
márkinu. Hann varð 17 skot og lék vel.
Þorbjöm Jensson sagðist hafa sparað Patrek Jó-
hannesson í leiknum fyrir átökin sem fram undan
eru.
Önnur úrslit á mótinu hafa orðið þannig: Jap-
an-Bandaríkin 21-21, Noregur-S-Kórea 32-30,
Hvíta-Rússland-Kína 40-25, Noregur-Hvita-Rúss-
land 23-18, Kína-S-Kórea 13-34.
-GH
Handbolti:
Fýrsti leikur
Stjörnunnar
og Haukanna
Fyrsti úrslitaleikur Stjöm-
ímnar og Hauka um íslands-
meistaratitilinn í handknattleik
kvenna fer fram i Ásgarði í
kvöld og hefst klukkan 20.
Stjarnan á íslandsmeistaratitil
að verja en Haukamir eru að
leika til úrslita í fyrsta skipti.
Knattspyrna:
Stjarnan - ÍA
Einn leikur er á dagskrá
deildarbikarkeppninnar í knatt-
spyrnu í kvöld. Stjaman og ÍA
eigast við á Stjörnuvellinum í
Garðabæ og hefst leikurinn
klukkan 19. Báðum liðum hefur
vegnað vel í keppninni og verður
fróðlegt að sjá hvernig þessari
viðureign lyktar. -GH
Sigrar hjá KR
og Létti
KR sigraði Fram í leik liðanna
í A-deild Reykjavíkurmótsins í
knattspyrnu í gærkvöld.
KR-ingar skoruðu eina mark
leiksins úr vítaspyrnu þegar
skammt var til leiksloka og var
Guðmundur Benediktsson þar
að verki. í B-deild sigraði Léttir
lið Ármanns ömgglega og loka-
tölur urðu 4-0.
-SK
Rangers slapp
Glasgow Rangers tapaði í gær-
kvöldi fyrir Hearts I skosku úr-
valsdeildinni, 2-0. Á sama tíma
náði Celtic aðeins jafntefli gegn
Kilmarnock, 1-1.
í ensku 1. deildinni vann
Millwall Birmingham, 2-0. -SK
Keflavík - Grindavík í kvöld:
„Ég tippa á
sjö leiki“
- segir Gunnar Þorvarðarson
DV, Suðurnesjuin:
„Ég trúi því ekki fyrr en ég sé
það að Keflavík tapi þremur
heimaleikjum í röð. Ég á þó von á
jöfnum leik og Keflvíkingar hljóta
að koma brjálaðir til leiks. Ég
tippa á sjöunda leikinn í Grinda-
vík og ef svo fer þá eiga liðin jafna
möguleika á titlinum," sagði
Gunnar Þorvarðarson, fyrrum
leikmaður og þjálfari í körfubolt-
anum, í samtali við DV í gær-
kvöldi.
Keflavík og Grindavík leika
sjötta leik sinn í baráttunni um ís-
landsmeistaratitilinn í Keflavík í
kvöld. Vinni Grind-
víkingar eru þeir
íslandsmeistarar
en vinni Keflvík-
ingar þarf að leika
sjöunda leikinn í
Grindavík um
næstu helgi.
„Ég hef verið að
vonast eftir jöfnum
og skemmtilegum
leikjum í Keflavík
en það er eins og
leikmenn Keflvík-
inga hafi ekki verið
tilbúnir í að spila
þesa leiki og berjast
fyrir því sem þeir ætluðu sér að ná
á heimavelli sínum. Það er eins og
þeir hafi ætlað að vinna heima-
leikina án þess að hafa nokkuð fyr-
ir því. Bæði liðin hafa reyndar ver-
ið að leika illa á sínum heimavefli
þannig að erfitt er að gera sér
grein fyrir því við hverju má bú-
Gunnar Þorvarðarson
sjöundu viðureigninni.
ast,“ segir Gunnar og heldur
áfram:
„Lykiflinn að sigrinum hjá Kefl-
víkingum i síðasta leik var að taka
bakverði Grindvíkinga úr sam-
bandi. Ef þeim tekst að gera það
aftur í kvöld þá aukast sigurlíkur
Keflvíkinga til muna. Bakverðir
Grindvíkinga eru nefnilega mjög
mikilvægir sínu liði. Grindvíking-
ar þurfa að passa skotmenn Kefl-
víkinga vel og helst ekki að gefa
þeim frið í skotum sínum. Ef
Grindvíkingar fara vel út á móti
skotmönnum Keflvíkinga þá hefur
það sýnt sig að hittni þeirra verð-
ur lakari. Hins vegar hefur það
komið í ljós að ef
Falur og Guðjón
eru heitir þá stöðv-
ar þá engin vörn.
Guðjón er ótrúlega
góður leikmður og
kemur stundum
upp á milli stóru
leikmannanna og
skorar á ótrúlegan
hátt,“ sagði Gunnar
Þorvarðarson.
Leikurinn hefst í
íþróttahúsinu í
Keflavík kl. 20.
Leiksins er beðið
með mikilli eftir-
væntingu. Þrátt fyrir að stuðnings-
menn Keflvíkinga hafi látið sig
vanta á síðustu heimaleiki liðsins
má búast við því að þeir fjölmenni
á leikinn í kvöld og það munu
stuðningsmenn Grindvíkinga
einnig gera. Það verður því án efa
heitt í kolunum. -SK/-ÆMK
spair