Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Blaðsíða 13
13
LAUGARDAGUR 4. MAI1996
Landsbankamótið ítvímenningi 1996:
Björn Eysteinsson og
Sverrir Armannsson
Islandsmeistarar 1996
Þaö er óhætt að segja að landslið-
seinvaldurinn Björn Eysteinsson
með dyggri aðstoð Sverris Ár'-
mannssonar gefi landsliðinu gott
fordæmi með árangri sínum á lið-
inni bridgevertíð.
Fyrir Stuttu varð Björn íslands-
meistari í sveitakeppni ásamt félög-
um sínum í sveit Samvinnu-
ferða/Landsýnar og mörgum er enn
í fersku minni þegar Björn og Sverr-
ir unnu meistaratitil Reykjavíkur í
tvímenningi fyrir nokkrum mánuð-
um. Frábær árangur hjá þeim félög-
um.
Keppnin var mjög spennandi og
skiptust nokkur pör á um forystuna
til að byrja með. Þégar 25 umferðum
var lokið komust Bjöm og Sverrir í
efsta sætið, jafnir Jóni Baldurssyni
og Sævari Þorbjömssyni, með 137
stig yfir meðalskor.
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Björn og Sverrir skomðu síðan
látlaust og slepptu ekki efsta sætinu
meðan Jón og Sævar sigu niður á
við.
Lokastaðan var síðan þessi:
Björn Eysteinsson-Sverrir Árraannsson 212
Steinar Jónsson-Jónas P. Erlingsson 179
Siguröur Vilhiálrasson-Magnús Magnússon 139
Jón Baldursson-Sævar Þorbjörnsson 125
Páll Valdimarsson-Ragnar Magnússon 110
Aöalsteinn Jörgensen-Ásraundur Pálsson 101
Sigurvegaramir unnu sér rétt til
þess að taka þátt í afmælismóti
finnska bridgesambandsins sem
haldið verður í lok mai.
Ég kom að borði Bjöms og Sverr-
is í þriðju síðustu umferðinni og
meðan ég staldraði við tóku þeir
„gulltopp" í eftirfarandi spili.
4 K832
* 875
■f DG7
* 1086
Suður Vestur Norður Austur
1 tígull 2 hjörtu pass pass
dobl pass pass pass
Með Björn og Sverri í n-s og Ólaf
Jóhannesson og Eggert Þorgríms-
son í a-v gengu sagnir eins og að
ofan greinir. Einn tígull var gervi-
sögn (Precision) og tvö hjörtu vora í
djarfara lagi. Björn beið rólegur eft-
ir doblinu, sem hann vonaðist eftir.
Björn lagði af stað með spaða-
drottningu, siðan spaðagosa, sem
bæði fengu að eiga slagina. Þá kom
lítið lauf, ásinn og meira lauf. Fljótt
á litið virðist tígull til baka vera
betra, en vestur hefði áreiðanlega
drepið á ásinn, verandi viss um að
Sverrir væri ekki að gefa honum
ókeypis svíningu. Björn drap seinna
laufið með kóng og spilaði tígul-
kóng. Það var líklegra að Sverrir
ætti tígulás en hjartaás og þá var
kóngurinn bara fyrir. AÍIa vega gat
það aldrei kostað neitt. Sagnhafi
drap á ásinn og gerði sitt besta með
þvi að spila litlu hjarta. Sverrir
drap á ásinn og spilaði tígli sem
Björn trompaði. Trompdrottningin
var síðan sjöundi slagur vamarinn-
ar. Það voru 500 og hreinn toppur.
S/A-V
4 106
4» KG432
4 Á932
* D2
Það er óhætt að segja að landsliðseinvaldurinn Björn Eysteinsson með
dyggri aðstoð Sverris Ármannssonar gefi landsliðinu gott fordæmi með ár-
angri sínum á liðinni bridgevertíð. DV-mynd ÍS
KENWOOD
kraftur, gceði, ending
Ármúla 17, Reykjavík, sími 568-8840
♦ liimTM!
♦ mwMmmmmmm
AKAI
FISHER
GRliriDIG
HITACHI
KDL5TEF
Schneider
XEHSAí
SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI568 9090 • OPIÐ LAUGARDAGA