Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Blaðsíða 56
Alla laugardaga Vertu viðbúin(n) vinningi! tSSF@®fíÆi > C3 O FRETTASKOTIÐ L-LJ ' SÍMINN SEM ALDREI SEFUR S <=} s LTD «=c Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. oo 1 1— LQ 1— 550 5555 Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 4. MAÍ1996 Akureyri: Gæsluvarðhald framlengt Gæsluvaröhald yfir bóndanum á Steinsstöðum I í Öxnadal hefur ver- ið framlengt um tvær vikur að - -kröfu sýslumannsins í Eyjafjarðar- sýslu. Maðurinn er grunaður um að hafa orðið systur sinni að bana um síðustu helgi. Hann hefur verið í gæsluvarðhaldi upp frá því. Systirin var gestkomandi á bæn- um og fannst hún þar látin. Bróðir hennar er grunaður um að hafa ver- ið undir áhrifum áfengis þegar at- burðurinn varð. -GK Neskaupstaður: Skemmdarverk upplýst Tveir unglingar hafa viðurkennt að hafa brotist inn í Tröllanesti, söluskála í Neskaupstað, fyrr í vik- unni og unnið þar skemmdarverk. Fóru þeir inn um nótt og brutu allt og brömluðu innan dyra en stálu engu. Piltarnir eru 17 og 19 ára og voru í gær í yfirheyrslum hjá lögregl- unni. Munu þeir báðir hafa verið drukknir þegar þeir brutust inn. -GK Þrjár fluttar suður með sjúkraflugi Þrjár stúlkur voru fluttar til Reykjavíkur með sjúkraflugvél í fyrrinótt eftir bílveltu í Berufirði. Varð ein þeirra undir bílnum og fór úr axlarliði. Hinar tvær hlutu óveruleg meiðsl og eru þær nú allar komnar af sjúrkahúsi. Bíllinn er ónýtur. -GK Tók peninga hjá bónda Unglingur hefur viðurkennt að hafa farið inn í bóndabæ i Rangár- vallasýslu og tekið þar ófrjálsri hendi nær 30 þúsund krónur. Var þjófurinn undir áhrifum áfengis. Fénu hefur nú verið komið í hendur bónda að nýju og er málið að fullu upplýst. -GK Kylfingur fékk kúlu í höfuðið Kylfingur var fluttur rænulítill á sjúkrahús í gær eftir að hann fékk kúlu í höfuðið við leik á golfvell- inum í Grafarholti. Sló maðurinn kúluna af öllu afli en hún lenti í steini og rotaðist kylf- ingurinn þegar hann fékk kúluna úr endurkastinu. Hann mun ekki al- ^arlega slasaður. -GK Maður handtekinn eftir að hafa reynt að svíkja fé af vistmanni í þjónustuíbúð: Kom með lítið barn til að svíkja aldraða - fólk kvatt til að leita til starfsmanna eða öryggisvarða Maður var handtekinn í Félags- og þjónustumiðstöð aldraðra við Vitatorg á fimmtudagskvöldið, eft- ir að reynt hafði verið að svíkja út peningalán frá aldraðri konu sem þar býr. Maðurinn var með lítið barn þegar lögreglan hafði af- skipti af honum. Samkvæmt upplýsingum DV var hringt í viðkomandi konu og sagði maður að hann væri skyld- menni hennar. Hann bað hana jafnframt um peningalán. Konan gaf engin loforð en maðurinn kom síðan á staðinn og hringdi dyra- bjöllu hjá henni. Þá hafði verið kannað hvort maðurinn væri skyldur konunni og kom í ljós að svo reyndist ekki vera - hann var henni því algjörlega óviðkomandi. Þegar maðurinn kom var hann með kornabarn með sér, sam- kvæmt upplýsingum Arnar Jóns- sonar, fulltrúa framkvæmda- stjóra. Honum var þá „kippt inn fyrir“ og kallað á lögreglu. Örn sagði að enginn vissi hvaða afleiðingar það hefði haft ef konan hefði ekki látið öryggisvörð vita um símhringingu mannsins. „Þetta er allt of algengt, fólk reynir allt. Fólk er að hringja hér í dyrasíma og þykist tfl dæmis vera sölufólk, það er alþekkt dæmi,“ sagði Örn. Hann sagði að einnig væru brögð að því að hringt væri I vistfólk, síðan kom- ið á staðinn og gamla fólkið hleypti því síðan inn í góðri trú. „Fólkið er svo grunlaust - það opnar bara í sakleysi sínu. Ef fólk er eitthvað í vafa á það að snúa sér til starfsmanna eða öryggis- varða því ekki næst alltaf í ætt- ingja," sagði Öm. -Ótt [S^Zim [>] nl il 1 f 1 Minkur beit tvö lömb á túninu við bæinn Efri-Brunnastaði á Vatnsleysuströnd. Lárus Kristmundsson bóndi sá þeg- ar minkurinn beit lömbin. Hann sótti því byssu og skaut dýrið. Lömbin eru illa farin á fótum og óvíst hvort þau lifa. - sjá nánar á bls. 2 DV-mynd ÞÖK Húsaskóli: Skólabjallan vek- ur nágrannana á frídögum Ibúar í nágrenni Húsaskóla í Grafarvogi í Reykjavík eru mjög óá- nægðir með það að þegar frídagur er í miðri viku, til dæmis sumardag- urinn fyrsti, fyrsti maí og fyrsti des- ember og frí er í skólanum hringir skólabjallan eins og fufl kennsla sé í gangi frá því tíu mínútur yfir átta á morgnana og fram að síðdegiskaffi. íbúarnir hafa kvartað við Skóla- málaráð en engar undirtektir feng- ið. „Það er óskiljanlegt árið 1996 að ekki skuli hægt að stöðva bjölluna þegar ekki er kennsla," sagði íbúi í nágrenni skóians. Um helgar þegir bjallan og um jól og páska en á áðurnefndum frídögum er ekki frið- ur. Valgerður Selma Guðnadóttir, skólastjóri Húsaskóla, kom af fjöfl- um þegar DV sagði henni frá óá- nægju nágrannanna. „Það hefur enginn kvartað við mig. Bjallan er stiflt á haustin. Ég er að heyra það fyrst frá þér núna að bjallan hringi þessa daga og að fólk hafi kvartað. Það vifl þannig til að- ég er áheyrnarfulltrúi í Skóla- málaráði og ég hef ekki heyrt þetta. Mér finnst einkennilegt að enginn hafi kvartað við mig. Annað árið, sem skólinn starfaði, en nú er fimmta starfsár hans, voru vand- ræði með bjölluna, þá hringdi hún á öllum tímum en það var lagað,“ sagði Valgerður Selma. „Nú hefur enginn kvartað, að minnsta kosti ekki við mig. Við þurfum að fylgjast með þessu og kippa þessu í liðinn. Ég hefði viljað fá að heyra þetta frá íbúunum," sagði hún. Ekki náðist í Viktor Guðlaugs- son, formann Skólamálaráðs. -ÞK Síldarsmugan: Enn reynt að ná samkomulagi Norðmenn hafa boðið til ráð- herrafundar í Ósló á morgun þar sem reynt yrði að ná samkomulagi um veiðar og eftirlit með veiðum í Síldarsmugunni. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra var í gær í Færeyjum og bar þar saman bækur sinar við færeyska ráðamenn. Enn mun óákveðið hvort boði um við- ræður í Ósló verður tekið. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sagði í útvarpsfréttum í gær- kvöld að aðilar að Síldarsmugudeil- unni hefðu rætt saman undanfarnar vikur en ekki átt formlegar viðræð- ur. Hann taldi lausn deilunnar ekki á næsta leiti en þó væri vert að reyna enn að ná sáttum enda mikil- vægt fyrir íslendinga að koma í veg fyrir ofveiði á síld í sumar. -GK f PETTA VAR ÓVENJU- I LEG HOLA I HÖGGI! Veðrið á sunnudag og mánudag: víða um landið Á sunnudag og mánudag verð- ur fremur hæg austlæg eða breytileg átt og smáskúrir víða um landið. Hiti verður. á bilinu 1 til 10 stig, hlýjast sunnanlands en kaldast við ströndina norðan til. Veðrið í dag er á bls. 61 V J| • V 6° oo V • v 7° • 6° <- • 4 v V •. V7 8°^ ; ; 1* 8°g^ 10° “ V ■< 8° Éfc; # v . • V Veður á sun. og mán. brother. Litla merkivélin loksins meö Þ og Ð Nýbýlavegi 28, sími 554 4443 Móttaka á brotajárni allan sólarhringinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.