Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Blaðsíða 34
42 LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1996 JU&"1I/" Vréttir - Af hverju fórstu í framboð? „Ég fór í framboð að lokinni vandlegri íhugun eftir að ég komst að þeirri niðurstöðu að forsetaemb- ættið er kjörinn vettvangur þar sem hægt er að leggja sitt af mörkum til að bæta íslenskt samfélag, styrkja innviði þess og jafnframt að treysta stöðu íslands á alþjóðavettvangi. Ég tel að embættið bjóði upp á svigrúm þar sem hægt er að hafa einstakt frumkvæði til þessa.“ - Hver telur þú helstu gildin vera sem embætti forseta íslands á að standa fyrir? „Ég held að embættið sé marg- þætt. Það er sameiningartákn fyrir þjóðina og þannig á forsetinn að leggja ríka áherslu á að virkja þau öfl sem sameina þjóðina. Enn frem- ur gildi samstöðu, samhjálpar og gildi mannræktar sem felst m.a. í því að hlúa að og mennta einstak- lingana í landinu þannig að allir fái notið hæfileika sinna til hins ýtrasta og geti þess vegna lagt sitt af mörkum til samfélagsins. Forsetinn þarf að standa vörð um sjálfstæði þjóðarinnar og vera málsvari mann- réttinda, umhverfisverndar og frið- ar, bæði heima og heiman.“ Legg áherslu á menntun____________________ - Hverjar verða þínar áherslur á Bessastöðum, náir þú kjöri? „Ég mun hafa ýmsar áherslur, einkum þær sem varða menntun þjóðarinnar. Ég held að menntun skipti beinlínis sköpum í framtíð okkar og sjálfstæði sem þjóðar. Það þarf að mennta þjóðina frá blautu barnsbeini til æviloka. Þá á ég ekki bara við bóknám heldur einnig verknám og listnám. Allt sem getur laðað fram og eflt sköpunarþrótt okkar og færni þannig að við verð- um aflögufær og þar með sam- keppnisfær í umheimi sem verður okkur stöðugt nákomnari. Að við getum gefið ekki siður en þegið á al- þjóðavettvangi. Ég mun leitast við að standa vörð um íslenska sérstöðu og sóknarfæri og vera málsvari ís- lenskra hagsmuna eins og allir landsmenn þurfa að vera. Þetta tel ég mjög mikilvægt og forsetaemb- ættið getur vegið þungt í þessum efnum. Það getur orðið hvati að því að styðja brýn langtímaverkefni sem oft eru vanrækt á vettvangi stjórnmála þar sem skammtíma- sjónarmið vilja ráða.“ - Telur þú að forsetinn eigi að beita ákvæði um neitunarvald sitt á lagasetningar á Alþingi? „Ég held að þetta sé fyrst og fremst neyðarúrræði og hafi verið hugsað þannig þegar lögin voru sett. Sjálf vildi ég stuðla að því að það yrðu sett í lög ákvæði sem leyfðu fólki þjóðaratkvæðagreiðslu um mikilvæg mál eftir settum regl- um, t.d. að tíundi hluti kjósenda gæti farið fram á slika atkvæða- greiðslu, sem væri annaðhvort ráð- gefandi eða bindandi fyrir Alþingi. Þetta tel ég vera lýðræðislega ráð- stöfun þó ég beri fyllsta traust til þingræðis sem er vitaskuld horn- steinn stjórnskipunar okkar.“ - Hvert er þitt álit á þeim mikla kostnaði sem orðið hefur á endurbótunum á Bessastöðum? „Ég hef ekki kynnt mér það í smáatriðum. Þó tel ég að það sé skylda þjóðarinnar að að viðhalda sameignum sínum sómasamlega og láta ekki dragast of lengi að fram- Guðrún Agnarsdóttir forsetaframbjóðandi. DV-mynd ÞÖK - Nú hefur fylgi við þig mælst innan við 10% í undanförnum skoðanakönnunum. Hefur hvarflað að þér að hætta við framboð? „Nei, ég tek ekki mikið mark á þessum könnunum núna. Frambjóð- endur hafa verið að bætast í hópinn að undanförnu og ekki víst að allir séu komnir fram. Kynningar eru rétt að byrja og sameiginlegar um- ræður frambjóðenda hafa varla haf- ist. Margir bíða átekta, eru að velta þessu fyrir sér og ekki búnir að taka afstöðu. Ég tek ekki mikið mark á þessum tölum. Þær eiga eft- ir að breytast. Ég er bjartsýn og gal- vösk, tel mig hafa góðan málstað og finn góða strauma hvar sem ég kem.“ - Hafa þingkonur Kvennalist- ans lýst yfir stuðningi við þig? „Já, þær hafa allar gert það í aug- lýsingum undanfarið." - Hvað með stuðning Ingibjarg- ar Sólrúnar Gísladóttur borgar- stjóra? Telurðu þig hafa stuðning hennar? „Ég veit ekkert hvar hún stendur. Ég hef ekki leitað eftir hennar stuðningi. Mér finnst mjög eðlilegt að borgarstjóri blandi sér ekki beint inn í forsetakosningar." - Nú áttir þú frumkvæði að stofnun Neyðarmóttöku á Borg- arspítalnum fyrir þá sem beittir hafa verið kynferðislegu ofbeldi. Styður þú málstað kvennanna sem telja að biskup íslands hafi beitt þær kynferðislegu ofbeldi eða styður þú biskupinn? „Ég hef ekki kynnst því máli nema í fjölmiðlum og hef engar for- sendur til að taka afstöðu til þess í blaðaviðtali.“ kvæma sjálfsagðar viðgerðir. Það verður auðvitað að gera með hag- sýni og ráðdeild og innan þess ramma sem eðlilegt er. Ég held hins vegar að flestir vilji að forsetinn geti sýnt íslenska gestrisni en rekst- ur embættisins verður að vera í takt við lífið í landinu og efnahags- lega getu okkar.“ - Verður erfitt fyrir þig að hverfa aftur til fyrri starfa, náir þú ekki kjöri? „Nei, það get ég ekki ímyndað mér.“ - Þú yrðir ekki tapsár? „í fyrsta lagi reikna ég alls ekki með því að tapa. Þetta er þó ákveð- in áhætta sem maður tekur. Ég lít fyrst og fremst á þetta sem heillandi verkefni og verð reynslunni ríkari, hvernig sem fer.“ Veiti ekki tóbak________________ - Ertu hlynnt því að forsetinn veiti áfengi og tóbak í veislum sínum og móttökum? „Tóbak mun ég alls ekki veita. Ákveðnar hefðir og venjur hafa skapast með áfengið. Þeim er auð- vitað hægt að breyta. Allt fer þetta eftir tækifærunum. Það ætti frekar að veita létt vín en sterk og gæta hófs. En tóbak mun ég engum veita, hvorki sem forseti né í öðru hlut- verki í lífi mínu.“ - Ertu hlynnt inngöngu Islands í Evrópusambandið? „Ég held að það sé ekki mikilvæg ákvörðun fyrir okkur í bili. Við þurfum að fylgjast vel með þróun Evrópusambandsins og ég tel að það hljóti að þurfa að verða mikil um- ræða um málið áður en til þess kemur að hægt sé að vega og meta kosti og galla. Aðild að Evrópusam- bandinu er erfiðari fyrir fámenna þjóð sem lifir mestmegnis á einum atvinnuvegi, fiskveiðum. Þess vegna þurfum við að huga betur að okkur heldur en margir aðrir. Mér finnst það vera grundvallaratriði að eftir mikla og Itarlega umræðu fái þjóðin að greiða um það atkvæði hvort af inngöngu yrði.“ Yfirheyrsla Björn Jóhann Björnsson - Á forsetinn að vera þjóðkjör- inn? „Já, það styrkir stöðu forsetans sem er í raun eini þjóðkjörni emb- ættismaður þjóðarinnar. Mér finnst það vera kostur.“ - Hver er áætlaður kostnaður við framboðið þitt? „Það er óljóst enn þá vegna þess að það er rétt að byrja. Maður veit ekki hvernig spilast úr þessari kosningabaráttu. Ég vona að kostn- aðurinn verði ekki of mikill vegna þess að þetta byggist allt á fórnfúsu og duglegu fólki sem vinnur í sjálf- boðavinnu. Enn fremur á hefð- bundnum fjáröflunaraðferðum í kosningabaráttu, þ.e. framlögúm einstaklinga og ef til vill fyrirtækja, gjöfum af ýmsu tagi og happdrætti. Ég er svo heppin að hafa gætna, ábyrga og úrræðagóða aðila i fjár- málahópi með mér sem ég treysti til að halda vel utan um þetta.“ Kostnaður hámark 10 milljónir - Hver mundir þú telja að há- markskostnaður yrði? „Ég veit það ekki. Menn hafa ver- ið að ræða um 10 milljónir. Það verður að koma í ljós. Ætlunin er að sníða okkur stakk eftir vexti og gæta þess að fjármálin fari ekki úr böndum.“ - Hver fjármagnar baráttuna? „Fyrst og fremst eru það einstakl- ingar með sín framlög, enn sem komið er. Við höfum ekki enn kom- ið okkur upp happdrætti eða ein- hverju slíku. Vonandi verður eitt- hvað sem fyrirtæki geta lagt af mörkum en það þarf auðvitað að leita eftir því.“ - Er eitthvað í þinni fortíð sem gæti skaðað þig sem forseta? „Nei, ekkert sem ég veit um.“ - Þú tekur ekki afstöðu til þess hvort biskup eigi að segja af sér eða ekki? „Nei.“ Vil umræðu um tvöfaída umferð_____________ - Finnst þér að breyta eigi kosningafyrirkomulaginu og hafa t.d. tvöfalda umferð þannig að forseti sé ekki kjörinn með kannski þriðjungsfylgi? „Ég held að eðlilegt sé að ræða þessa hugmynd. Ég hef ekki tekið afstöðu til hennar sjálf endanlega en finnst ekki óeðlilegt að umræðan komi upp. Það kann að vera að fleiri kostir en gallar séu við tvöfalda um- ferð. Umræðan er nauðsynleg núna.“ - Heldurðu að fleiri eigi eftir að gefa kost á sér? „Ég hef ekki hugmynd um það. Það hlýtur að vera á brattann á sækja fyrir þá sem koma seint inn í baráttuna. Þetta er mikið verk að vinna. Tíminn styttist og landið og miðin eru stór.“ - Hvað ertu komin með marga meðmælendur? „Ég veit þaö satt að segja ekki. Söfnunin er í fullum gangi um allt land. Við förum að kalla listana inn og ég veit ekki annað en að söfnun hafi gengið mjög vel. Ég vona að meðmælendur séu orðnir nógu margir nú þegar.“ -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.