Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Blaðsíða 37
X>V LAUGARDAGUR 4. MAÍ1996 45. íijlíl , ft j ■ ■ ip ^ / ■ -'ý -í s r\ íffflfíli •jillflsi ilíBIII ' i' f mL • *íÆ mk Frú Pfeiffer varð að kaupa hesta á uppsprengdu verði til ferðalaga sinna hér á landi. Enginn vildi leigja henni hesta og að loknu ferðalagi hennar vildi enginn kaupa hestana af henni aftur. Mynd Þjóðminjasafnið meira en lítið undrandi er ég sá til dæmis fylgdarmann minn, sem að: eins var óbreyttur almúgamaður, heilsa sex sýslumannsdætrum og konum og börnum prestanna eða sjálfum sýslumanninum og fleirum á þennan hátt og komst að raun um að kveðjum hans var vel tekið. Sinn er siður í landi hverju." Vanhelgun guðshúsa Á ferðalögum sínum gerði frú Pfeiffer sér far um að gista í kirkj- um, enda geðjaðist henni ekki að að dveljast næturlangt í torfhýsum ís- lendinga. Ekki var hún þó þar með laus við ýmsan óþef þar sem lands- menn notuðu kirkjurnar ekki ein- ungis til trúarlegra athafna. í þeim voru meðal annars geymd matvæli. „Ég dreg í efa að slík vanhelgun guðshúsa myndi leyfð nokkurs stað- ar annars staðar, jafnvel meðal- frumstæðustu þjóða. Raunar var mér sagt að nú væri í þann veginn verið að banna þessa notkun. En slíkt hefði aldrei átt að leyfast og ég er engan veginn viss um að þessu verði breytt í framtíðinni því að hvar sem ég fór stóðu kirkjurnar mér til boða til næturgistingar og gat ég gengið að því vísu að þær væru hálffullar af fiski, tólg og ýms- um öðrum lyktarvondum varningi." Meðal þeirra kirkna sem frú Pfeiffer gisti í var kirkjan í Krísu- vík. Þar varð hún fyrir sérkenni- legri lífsreynslu þegar hún hugðist kom sér fyrir. Hún skrifar: „Allt fólkið í kotunum kom í ein- um hóp til þess að skoða mig og inn- an lítillar stundar var ég umkringd af ungum og gömlum sem troðist höfðu inn í kirkjuna og þrengdu að mér á allar hliðar. Svo óskemmti- legt sem gláp þeirra var neyddist ég þó til þess að sætta mig við það því það hefði verið ógerningúr að reka allan þennan hóp út án þess að valda miklum móðgunum. Þess vegna opnaöi ég mal minn og gerði mig líklega til þess að hita mér kaffi í viðurvist safnaðarins. Þá fóru áhorfendurnir að stinga saman nefj- um og þegar ég kveikti í spíritusn- um virtust þeir alveg falla í stafi. Og nú fylgdu þeir hverri hreyfingu minni með augunum. Ekki bryddi á því að þeir sýndu á sér neitt farar- snið þótt ég lyki kvöldverði mínum svo að ég afréð að reyna betur á þol- inmæði þeirra. Ég tók dagbók mína og byrjaði að skrifa. Fólkið horfði þegjandi á mig nokkur andartök þar til allt í einu að margir hrópuðu i einu: „Hún er að skrifa, hún er að skrifa!" En ekki varð þess enn vart að neinn hugsaði til brottferðar. Það stóð grafkyrrt og hvert auga mændi látlaust á mig í fulla klukkustund. Ég gæti hér um bil trúað að ég sæti þar enn ef ég hefði ætlað að skrifa uns það hrökklaðist burt. En loks þraut mig þolinmæðina og þegar mér svo tókst að koma því í skiln- ing um að ég vildi fara að sofa hypjaði það sig burt.“ Hrákarnir gengu í allar áttir Nokkru síðar, þegar frú Pfeiffer gisti á bóndabæ einum, varð hún enn fyrir óskemmtilegri lífsreynslu. „Mér til mikillar gremju þyrptist all fólkið í kringum mig, ekki að- eins úr þessum kofanum heldur einnig hinum. Og þarna tók það sér stöðu, sumt í mínu herbergi og sumt í næsta herbergi, svo að ég var enn vendilegar umsetin heldur en ég hafði þó verið í Krísuvík. Það var eitthvað í útliti mínu sem kom fólk- inu svo nýstárlega fyrir sjónir að það þreyttist aldrei á því að stara á mig. Konurnar urðu brátt svo hug- rakkar að þær þorðu að þreifa á föt- um mínum og þukla hverja flík, sem ég var í, en böm lögðu óhrein höfuðin í keltu mína. Þetta var sannarlega ferlegur söfnuður. Sóða- skapurinn var dæmalaus, svitinn bogaði af fólkinu, það var sífellt að taka í nefið, (þó að engir væru vasa- klútarnir) og hrákarnir gengu í all- ar áttir. Aðsókn þess kvaldi mig meira en lengsta fasta.“ Heillaðist af fegurð landsins Þrátt fyrir að frú Pfeiffer hafi ým- islegt við land og þjóð að athuga þá greinir hún einnig frá ýmsu já- kvæðu í fari íslendinga. Hún fékk víða góðar viðtökur og margir voru boðnir og búnir að gera allt sem í þeirra valdi stóð til að gera henni íslandsdvölina sem ánægjulegasta. Það kom henni einnig verulega á óvart að flestir viðmælendur henn- ar gerðu ráð fyrir þvi að hún byggi yfir kunnáttu sem venjulega var einungis á færi karlmanna. íslend- ingar héldu auðsýnilega að útlendar konur hlytu að vera eins lærðar og karlmenn. Þannig hafi prestar ávallt ávarpað hana á latínu en síð- an orðið mjög undrandi þegar í ljós kom að hún kunni ekki neitt í tungumálinu. Að sögn frú Pfeiffer leitaði almenningur einnig ráða hjá henni við alls kyns vandamálum sínum. Getur hún þess meðal ann- ars að hún hafi verið leidd fyrir langt leiddan holdsveikisjúkling og beðin um ráð honum til handa. Þótti henni það mjög ógeðfelld sjón. Frú Pfeiffer heUlaðist af fegurð landsins og notar um það hástemmd lýsingarorð. Uppi á toppi Heklu skrifaði hún meðal annars: „Ég er hrædd um að penni minn sé mikils til of sljór til þess að lýsa því sem bar fyrir augu mín. En guði mínum þakka ég fyrir að hann skyldi leyfa mér að sjá þetta stórbrotna sköpun- arverk hans.“ Eftir tveggja mánaða veru hélt frú Pfeiffer af landi brott, áleiðis til Noregs og Svíþjóðar. Um ferðir sín- ar þar skrifaði frúin einnig ýmislegt athyglisvert en hér verður látið staðar numið að sinni. Jónas Sigurgeirsson Sími 562 2262 * A 4 stöðum - 4 x betra 26 • Reykjavík • S.562 2262 14 • Reykjavík • S.567 2900 Skeifunni 5 • Reykjavík • S.581 4788 Bæjarhrauni 6 • Hafnarfiröi • S.565 5510 GRAND CHEROKEE LTD ÁRGERÐ 1996 Þessi nýi bíll kostar 5.100.000 en vegna hagkvæmra innkaupa selst hann nú á 4.750.000 stgr. Vagnhöfða 23 - 112 Reykjavík Sími 587 0 587 Harbo furuhusgogn Harfman plasthúsgögn Opið á laugardag kl. 10 - 16 SEGLA Eyjaslóð 7 ÞU GETUR TREYST FAGOR 9 RÖNNING BORGARTÚNI 24 SÍMI 562 40 11 FAGOR S30N Kælir: 265 I - Frystir: 25 I HxBxD: 140x60x57 cm ***■ 41.800 FAGOR D27R Kælir: 212 I - Frystir: 78 I HxBxD: 147x60x57 cm 49.800 FAGOR D32R Kælir: 282 I - Frystir: 78 I HxBxD: 171x60x57 cm SVM- 54.S00 FAGOR C31R ■ 2 pr. Kælir: 270 I - Frystir: 110 I HxBxD: 170x60x57 cm Stgr.kr. 67*800 FAGOR C34R - 2 pr. Kælir: 2901 - Frystir: 1101 HxBxD: 185x60x57 cm **■*■ < k800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.