Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1996 Ég er oftast ósköp feginn þegar ég vakna á morgnana en ekki þó alltaf. Fyrir kemur að í mér er svo mikil ólund að mér finnst ekki taka því að fara fram úr til þess eins að upplifa enn einn tilgangs- lausan dag. Vaknað upp úr leikhúsmartröð í gærmorgun fékk ég ógnvekj- andi leikhúsmartröð þegar ég var að losa svefninn, en leikhúsmar- tröð eru draumfarir leikara svona þegar dregur að frumsýningu. Leikhúsmartröðin er eiginlega alltaf eins. Maður er einhvers stað- ar fastur í umferðaröngþveiti, for- arpytti eða familíuboði og orðinn alltof seinn á sviðið til að leika að- alhlutvérkið í leikriti sem maður veit sáralítil deili á og langur veg- ur frá því að maður hafi hugmynd um hvað maður á að segja eða gera í verkinu þó löngu sé uppselt. Upp úr svona draumförum vaknaði ég í gærmorgun klukkan sjö og auðvitað alveg ósegjanlega feginn að vera laus úr martröðinni Flosi Ólafsson fer á kostum í söngleiknum Hamingjuránið sem frumsýndur er á smíðaverkstæði Þjóðleikhúss- ins í kvöld. DV-mynd ÞÖK Ort í gufunni Svo fór ég niður í Þjóðleikhús á leikæfinguna, sem sagt að taka við nótum frá leikstjóranum um það hvernig tekist hefði til á síðustu æfingu. Þar sagði leikstjórinn mér það umbúðalaust að ég hefði ekki átt að vera með hendur i vösum þegar ég sagði setninguna: „Það var þó ég sem keypti handa þér fiðluna", sem er auðvitað hárrétt hjá henni. Það sér hver heilvita maður. Eftir æfmguna fór ég svo í sund- laug Vesturbæjar, synti 200 metrana á fullu, fór svo í gufuna og orti þar aðra sonnettu um kon- una sem ég elska, fékk meiraðsegja lánaðan blýant hjá baðverðinum og skrifaði hana niður. Illu heilli. Ég er eiginlega að komast á þá skoðun að það eigi aðrir en ég að vera í því að yrkja sonnettur. Svo fór ég á kvöldæfingu á vor- söngleik Þjóðleikhússins, Ham- ingjuráninu, sem á semsagt að fara að frumsýna. Salurinn var fullur af fólki sem boðið hafði verið á æfinguna og al- menn kátína. Dagur í lífi Flosa Ólafssonar leikara: Sonnettur ortar fyrir ruslafötuna - meira að segja svo feginn að ég sofnaði strax aftur og fékk svona eins og mínimartröð, en það fyrir- brigði köllum við leikarar „ör- tröð“. Ég vaknaði aftur um hálfátta- leytiö og fór fram úr, knúinn af blöðruhálskirtlinum, sjænaði mig svo og gerði á mér morgunverkin á baðinu, leit svo út um gluggann og fagnaði blessaðri vorkomunni af hjartans grunni. Réttur maður á ráttum stað Svo kíkti ég aðeins í hlutverkið mitt í Hamingjuráninu sem er vor- söngleikur Þjóðleikhússins í ár og verður frumsýndur 4. maí. Og við það komst ég í sólskins- skap, eins og alltaf þegar mér finnst reglulega gaman í vinnunni. í Hamingjuráninu leik ég gaml- an kommúnista sem kominn er í hundana og orðinn róni og bland- ast víst engum hugur um að þar er réttur maður á réttum stað. Ég átti ekki að mæta á æfingu fyrr en klukkan tólf svo ég ákvað að nýta hið jákvæða sálarástand mitt til hins ýtrasta og yrkja ástarljóð tO konunnar minnar og gefa henni það í æfmælisgjöf á merkisafmæl- inu hennar þann 5. maí sem ber upp á aðra sýningu á Ham- ingjuráninu. Ég setti mig í stellingar og orti sonnettu til konu minnar svona, þið vitið, um það hvað hún hefði alla tíð staðið mér við hlið í blíðu og stríðu. Einhver örlagagrautur var líka í ljóðinu: ástin, vorið, fugl- arnir og óendurgoldnar gjafir. Þegar ég var búinn að yrkja son- nettuna fékk ég mér kaffi og kíkti svo aftur á ljóðið og fleygði því svo í ruslakörfuna. Eftir æfinguna fór ég heim, al- sæll yfir því að fá að vinna með svona elskulegum leikstjóra í glöð- um og samstilltum leikarahópi. Og í þessu sálarástandi tók ég á mig náðir, blessaði forsjónina, þakkaði guði fyrir daginn.og fékk þunga leikaramartröð um leið og ég festi svefninn. Vinningshafar fyrir þrjú hundruð fimmtugustu og sjöundu getraun reyndust vera: Nafn: _ Heimili: 1. Edda Garðarsdóttir Skaftahlíð 26 105 Reykjavík 2. Stefanía Árnadóttir Hátúni 7 735 Eskifirði Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáö kem- ur í Ijós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þinu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: SHARP vasadiskó með útvarpi að verðmæti kr. 7.100, frá Hljómbæ Skeif- unni 7, Reykjavík. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr. 1.790. Annars vegar James Bond-bókin Gullauga eða Goldeneye eftir John Gardner og hins vegar bók Luzanne North, Fin og rík og liðin lík. Vinningarnir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 357 - c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.