Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Side 31
LAUGARDAGUR 4. MAI 199ÍÍ
sviðsljós
Misheppnaðar myndir, skilnaður og hneyksli með hórumömmunni:
Charlie Sheen
39
Blómatilboð
3 plöntur að eigin vali á aðeins kr. 2.790
orðinn trúaður
eftir erfiðleikana
Charlie Sheen hefur átt frekar
erfitt uppdráttar seinustu árin. Sið-
an hann lék í stórmynd Stones um
árið, Platoon, og Wall Street, árið
eftir, hafa fáar myndir hans gengið
upp. Ef frá eru taldar Major League
hafa aðrar myndir hans gjörsam-
lega floppað. Framhald tveggja síð-
astnefndu myndanna skiluðu litlu
sem engu í kassann. Sömu sögu er
að segja af Skyttunum þremur sem
í léku, ásamt Charlie, þeir Kiefer
Sutherland og Chris O’Donnel, The
Chase og nú síðast Terminal Veloc-
ity.
í fehrúar gerðust svo atburðir
sem enn urðu til að auka á andbyr
þann sem hann hefur mætt. Charlie
skildi við eiginkonu sína til nokk-
urra mánuða. Skömmu áður höfðu
farið fram réttarhöld yfir hóru-
mömmunni í Hollywood, Heidi
Fleiss, og kom í ljós við rannsókn
málsins að Charlie Sheen greiddi
hálfa fjórðu milljón til 27
vændiskvenna Heidi með ferðatékk-
um. í skiptum fyrir friðhelgi vitnaði
Charlie gegn fyrrum vinkonu sinni,
Heidi.
Skotspónn slúðurdálka
Á dögunum átti tímaritið US við-
tal við Charlie á veitingastað i Los
Angeles. Blaðamaður lýsir því þeg-
ar kappinn, sem hefur verið aðal-
viðfangsefni slúðurdálka undanfar-
ið, stormar inn á veitingastaðinn og
augu allra mæna á hann. Líkur eru
leiddar að því að líklega veki hann
meiri athygli nú en áður þar sem
sögusagnir eru á kreiki um að hann
hafi tekið upp fyrra liferni; að heim-
sækja strippstaði og fara út með
klámmyndastjörnum.
Stjarnan er klædd i bláan Ver-
sacejakka, með demantsskreytt Ro-
lexúr um úlnliðinn og með bleikleit-
an baug á fingri. Hann kallar á þjón-
ustustúlkuna og lendir strax í orða-
skaki við hana. Hún lætur hann fá
það óþvegið og lætur háðsleg um-
mæli falla um síðustu mynd hans,
Terminal Velocity.
Þarf góða dóma
Charlie er fullljóst að honum er
lifsnauðsynlegt að' nýjasta mynd
hans, The Arrival, sem leikstýrt er
af David Twohy, gangi vel. Hann
segist þurfa á hlutverki að halda
sem er eins fjarri gamanleikjum og
hægt er.
Aðspurður um slúðurfréttir sein-
ustu daga varðandi það að hann
hafi borgað fyrir brjóstastækkunar-
aðgerð á nektardansmær og farið út
með klámmyndastjörnu segir hann
þetta ekki alls kostar rétt. Vissulega
hafi hann farið út að borða með
nektardansmær og þau hafi rætt
um barm hennar. Hún hafi kvartað
yfir aðgerð sem hún hefði nýlega
farið í og meira hefði ekki gerst.
Hvað við kemur klámmyndastjörn-
unni hefði hann hringt í umboðs-
skrifstofu hennar og beðið um síma-
númer hennar. í ljósi þess að hann
væri að skilja gæti hann opinber-
lega ekki hitt kvenfólk enn og því
hefði hann ætlað að hringja í hana
seinna. Hvað úr yrði vissi enginn
nú.
Treystir á eðiisávísunina
Charlie segir að ástæða hjóna-
skilnaðar hans hafi verið sú að
hann hafi alltaf treyst á eðlisávísun
sína - hún hafi í raun haldið í hon-
um lífi - svo að segja. „Að auki hef
ég fundið Guð. í raun frelsaðist ég
fyrir nokkrum mánuöum," segir
Charlie.
Hann segist hafa verið orðinn
leiður á einsemdinni og heyrt rödd
sem sagði honum hvert hann ætti
að fara. Hann segist þó ekki lifa
neinum meinlætalifnaði eftir þessa
trúarreynslu. Hann sé enn að vinna
úr henni.
Charlie segist ekki sjá eftir því
sem varð Heidi Fleiss-látunum vald-
andi. í raun hafi hann ekki verið
eina stjarnan í Hollywood sem þar
hafi átt í hlut þótt hann hafi verið
sá sem tók á sig skellinn. Hann hafi
verið beðinn um að koma upp um
marga félaga sína en neitað þrátt
fyrir að vera hótað fimm ára fang-
elsi fyrir. Hann sagði sannleikann
sem að sér sneri og líður mun betur
á eftir. Aðspurður hvort hann haldi
að uppistandið í kringum réttar-
höldin komi til með að hafa áhrif á
feril hans segist hann vona að svo
verði ekki. Enginn geti þó sagt til
um það nema áhorfendur mynda
hans og aðdáendur. Hann segist þó
feginn að þessum þætti lífs síns sé
lokið.
Engin tilfinningaleg
tengsl
í lok viðtalsins er Charlie spurð-
ur að því hvernig á því standi að
maður í hans stöðu - jafn myndar-
legur, vinsæll og vel stæður - kaupi
sér blíðu kvenna. Hann segir ástæð-
una fyrst og fremst felast í þvi að
hann sé að þessu til að losna við að
mynda tilfinningaleg tengsl við kon-
ur. Þarna hafi ekki verið um konur
á kafi í dópi að ræða heldur snyrti-
legar konur.
„Þetta var þó hreinlegra en að
sitja í bíl sínum með vændiskonu,"
segir Charlie og biður að þessum
orðum sögðum vin sinn Hugh Grant
afsökunar.
Charlie ásamt eiginkonu sinni til nokkurra mánuði, Donnu Peele. Hann sagði
brúðkaupið hafa komið til fyrir þá sök að hann hefði orðið að gifta sig fyrir
þrítugsafmælið.
Fíkus
80-100 cm
kr. 1.190
Dvergpálmi
70-80 cm
kr. 1.190
Drekatré
90-110 cm
kr. 1.190
Gullpáhni
70-90 cm
kr. 1.190
Vorlaukar og garðskálaplöntur
20-40% afsláttur
STOFUASKUR KR. 295
KROTON KR. 390
HYPOCYRTA KR. 390
SMÁPLÖNTUR
5 plöntur
að eigin vali
á aðeins kr. 990.
staðgreiðslu- og greiðslukortaafsláttur og
stighækkandi birtingarafsláttur
auglýsingar
550 5®°°
Ert þú að láta ófaglærðan mann vinna við raflögnina heima hjá þér?
Ert þú að taka þá áhættu að ekki sé unnið samkvæmt
reglum og raflögn því ekki örugg að öllu leyti?
Tryggðu öryggi og velferð á þínu heimili.
Láttu viðurkenndan fagmann vinna verkið.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
LANDSSAMBAND
ÍSLENSKRA RAFVERKTAKA
RAFIDNAÐARSAMBAND
ÍSLANDS
SL+JL