Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Qupperneq 35
43
, 'f LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1996
Samræmi ótrúlega gott
segir Kristinn Hugason
Ný kynbótadómaaðferð var notuð
í fyrsta skipti í Gunnarsholti. Nú
dæmir hver dómari fyrir sig jafnt
byggingareinkunn sem hæfileikana
en þó fara dómararnir saman yfir
dóma í yfirlitssýningum.
Hrossaræktarráðunautarnir
Kristinn Hugason, Jón Vilmundar-
son og Guðlaugur Antonsson
dæmdu að þessu sinni.
„Við héldum vinnufund eftir
fyrsta vinnudag og ræddum sýning-
arstörfin," segir Kristinn Hugason.
„Við vorum mjög ánægðir með
samræmið því niðurstaðan var
mjög samhljóma. Það var undan-
tekning ef bæri mikið í milli og var
auðskýrt. Það gerðist einungis í
þremur færslum af fjórtán hundruð
að munaði einum heilum í ein-
kunnagjöfmni.
Þetta nýja kerfi nær auðsýnilega
tilgangi sinum því yfirleitt var með-
altal rétt. Ef um misræmi var að
ræða var það yfirleitt matsatriði.
Við verðum þó að taka tillit til þess
að hér Voru þrír af fiórum reynd-
ustu dómurum landsins að dæma.
Verður að
passa teygnina
Það neikvæöa er aö óljós bending
kom fram um meiri miðlægni ein-
kunna. Það dregur úr einkunna-
teygni og getur haft afgerandi slæm
áhrif. Að forðast miðlægni er grund-
völlur þessa dómakerfis. Það verð-
um við að athuga á samræmingar-
Kynbótahrossadómar hefjast yfirleitt með
hinum árlegu dómum stóðhesta á Stóðhesta-
stöðinni í Gunnarsholti og á því er engin
breyting þetta árið.
Síðastliðinn þriðjudag og miðvikudag voru
fulldæmdir fjörutíu og níu stóðhestar og í
framhaldi af dómum yfirlitssýning á fimmtu-
daginn. Tólf stóðhestar fengu eingöngu bygg-
ingardóm.
Þrettán þessara stóð-
hesta fengu 8,00 í aðal-
einkunn og nítján aðal-
einkunn milli 7,75 og
8,00. Sautján fengu
minna en 7,75 sem er
töluverður fjöldi.
Tuttugu og einn
stóðhestur í elsta
flokki var full-
dæmdur. Átta
stóðhestanna
fengu 8,00 eða
meira í aðalein-
kunn og fjórir
milli 7,75 og
8,00.
Galsi frá Sauð-
árkróki stóð efstur
með 7,87 fyrir byggingu, 9,01
fyrir hæfileika og 8,44 í aðal-
einkunn. Hæfileikaeinkunnin
er með því hæsta sem gefið
hefur verið í kynbótadómi og
skipar Galsi sér í fremstu
röð stóðhesta. Galsi er
undan Ófeigi frá
Flugumýri og Gnótt
frá Sauðárkróki og
er í eigu Andreas
Trappe.
Hjörvar frá Ket-
ilsstöðum fékk
7,80 fyrir bygg-
ingu, 8,81 fyrir
hæfileika og 8,30 í
aðaleinkunn.
Hjörvar er undan Otri frá Sauðárkróki og
Hugmynd frá Ketilsstöðum og er i eigu Bergs
Jónssonar.
Asi frá Kálfholti fékk 8,08
fyrir byggingu, 8,38 fyrir
hæfileika og 8,23 í aðalein-
kunn. Asi er undan Feyki
frá Hafsteinsstöðum og
Stjörnu frá Kálfholti og er í
eigu Jónasar Jónssonar.
Galdur frá Laugarvatni
Fimm vetra
hestarnir lofa góðu
Nítján fimm vetra hestar fengu fullnaðar-
dóm. Fjórir þeirra fengu 8,00 eða meira í
aðaleinkunn og ellefu að auki milli 7,75
og 8,00.
Kormákur frá Flugumýri II stóð
efstur með 8,19 fyrir byggingu, 8,30
fyrir hæfileika og 8,24 í aðalein-
kunn. Hann er í eigu Eyrúnar
Önnu Sigurðardóttur og Páls B.
Pálssonar. Kormákur er undan
Kveik frá Miðsitju og Kolskör frá
Gunnarsholti.
Valberg frá Arnarstöðum kom
næstur með 8,21 fyrir byggingu, 8,12
fyrir hæflleika og 8,16 í aðalein-
kunn. Hann er í eigu Gunnars B.
fékk 8,22 í aðalein-
kunn, Askur frá Keldu-
dal 8,20, Hrynjandi frá
Hrepphólum fékk 8,20, Þorri
frá Þúfu 8,20 og Þinur frá
Laugarvatni 8,04.
Galsi fra Sauðarkroki fekk hæstu
hæfileika- og aðaleinkunn á dómum á
Stóðhestastöðinni í Gunnarsholtí.
DV-mynd E.J.
Gunnarssonar og Guðríðar Þ. Valgeirsdóttur.
Valberg er undan Gassa frá Vorsabæ og Kol-
finnu frá Arnarstöðum.
Glaður frá Hólabaki var í þriðja sæti meö
8,18 fyrir byggingu, 8,06 fyrir hæfileika og 8,12
í aðaleinkunn. Glaður er í eigu Björns Magn-
ússonar og er undan Garði frá Litla-Garði og
Lýsu frá Hólabaki.
Jarl frá Búðardal fékk 8,09 og Hrókur frá
Glúmsstöðum II 8,01.
Orrasynir efstir í yngsta flokki
Enginn fjögurra vetra stóðhestanna fékk
yfir 8,00 í aðaleinkunn. Ellefu fengu fullnaðar-
dóm og var grisjun töluverð því einungis fjór-
ir þeirra fengu 7,75 í aöaleinkunn eða meira
og var ekki mikill munur á aðaleinkunn
þeirra.
Roði frá Múla stóð efstur með 8,10 fyrir
byggingu, 7,85 fyrir hæfileika og 7,98 í aðal-
einkunn. Hann er í eigu Sæþórs Fannbergs
Jónssonar. Roði er undan Orra frá Þúfu
og Litlu Þrumu frá Múla.
Skorri frá Blönduósi var í öðru sæti
með 7,94 fyrir byggingu, 7,75 fyrir
hæflleika og 7,85 í aðaleinkunn.
Skorri er undan Orra frá Þúfu og
Skikkju frá Sauðanesi og er í
eigu Eyjólfs Guðmundssonar.
Heljar frá Gullberastöð-
um var í þriöja sæti
með 8,10 fyrir
byggingu,
7,55 fyrir
hæfileika
og 7,83 í að-
aleinkunn.
Hann er í
eigu Kari Berg.
Heljar er undan
Pilti frá
Sperðli og
Helenu frá
Skarði II.
-E.J.
Gísli Gíslason í Stangarholti og Daníel Jónsson komu báðir með stóðhesta
á sýninguna í Gunnarsholti. DV-mynd EJ
Menn eru ekki
nógu kröfuharðir
segir Kristinn Hugason
hefur mælt með að halda folum
ógeltum en ræktendurnir verða að
vera kröfuharðir og velja af mikilli
einurð úr folunum. Þeir verða að
ganga til dóms með það í huga að
dómurinn sé vegvísir til raunveru-
legs úrvals.
Ég vil ekki kvarta yfir fjöldanum,
finnst raunar að hrossin hefðu mátt
vera fleiri því við verðum að fá
fram fleiri góða hesta á hverju ári.
Ungfolarnir verða aö fá að sanna
sig en ef þeir standa sig ekki vel í
þjálfun verður að ganga hreinlega
tU verks og gelda þá. Menn halda
þeim oft gröðum þegar betra væri
að gelda þá því margir þpirra gætu
orðið afbragðs góðhestar," segir
Kristinn Hugason að lokum. E.J.
Nú dæmir hver dómari fyrir sig og færir einkunnir á sérstakt eyðublað. Páll
B. Pálsson, lengst til vinstri, og svo Guðlaugur Antonsson, Jón Vilmundar-
son og Kristinn Hugason. DV-mynd E.J.
námskeiði sem verður haldið fljót-
lega.
Einnig fannst okkur þetta kerfi
miklu leiðinlegra í löngum dómalot-
um. Það er skemmtilegra að vinna
með góðum félögum heldur en vera
einn. Þá er einnig stór hætta á vill-
um hjá einstaklingum.
Ég er á því að þetta sé ekki fram-
tíðarfyrirkomulag. Ég tel betra að
hver dæmi fyrst fyrir sig byggingu
og hæfileika en strax að því loknu
komi dómarar saman, ræöi niður-
stöður og rökstyðji dóma. Ef rök
eins eða tveggja dómara teljist full-
gild gildi einkunn þeirra en annars
meðaltal, segir Kristinn Hugason að
lokum. E.J.
„Auðvitað er ég ánægður að það
komu fram gripir sem sópaði veru-
lega að og það er jákvætt,“ segir
Kristinn Hugason um kynbóta-
hrossin í Gunnarsholti.
„Áður dæmdir hestar sönnuðu
sig, svo sem Galsi frá Sauðárkróki,
og einnig komu fram nýir hestar,
svo sem Kormákur frá Flugumýri.
En mér flnnst þó skorta á að
ræktendur hafi komið fram með
nóg að nýju hestum. Ég held að
menn hafi ekki lagt öll spilin á borð-
ið strax og hlakka til að sjá hross á
forsýningu fyrir fjórðungsmótið á
Hellu.
Við þurfum á því að halda að fá á
hverju ári töluverðan flokk góðra
stóðhesta. Leiðbeiningarþjónustan