Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Blaðsíða 50
58 afmæli
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1996 TV\7~
Lilja Margeirsdóttir
Lilja Margeirsdóttir, húsfreyja
og fyrrv. verslunarmaður, til heim-
ilis að Bergi í Reykholtsdalshreppi,
verður sextug á morgun.
Starfsferill
Lilja fæddist í Þórshöfn í Færeyj-
um og ólst þar upp fyrstu níu árin
en síðan í Reykjavík. Hún lauk
gagnfræðaprófi frá Gagnfræða-
skóla Vesturbæjar og stundaði síð-
ar nám við húsmæðraskóla í Dan-
mörku.
Lilja stundaði afgreiðslustörf hjá
Magnúsi Benjamínssyni úrsmið,
skrifstofustörf hjá SÍS, afgreiðslu-
störf hjá Kornelíusi Jónssyni á
Skólavörðustíg, skrifstofustörf hjá
BP og var sölustjóri hjá Steinavör
hf. á árunum 1969-89. Þau hjónin
fluttu að Bergi 1989 og hefur Lilja
stundað hrossabúskap og trjárækt
síðan jafnframt heimilisstörfum.
Lilja er ritari sóknarnefndar,
syngur í kirkjukór og Freyjukórn-
um og starfar með ungmennafélag-
inu og kvenfélaginu í sinni sveit.
Þá er hún trúnaðarmaður SÁÁ.
Fjölskylda
Lilja giftist 25.8.1956 Flosa Ólafs-
syni, f. 27.10. 1929, leikara, rithöf-
undi og hagyrðingi. Hann er sonur
Ólafs Jónssonar, f. 1905, d. 1989,
verslunarmanns, og Önnu Odds-
dóttur, síðar Stephensen, f. 1908, d.
1980, kaupkonu. Kjörforeldrar
Flosa voru Flosi Sigurðsson,. f.
1874, d. 1952, trésmiður, og Jónína
Jónatansdóttir, f. 1869, d. 1946, hús-
móðir.
Sonur Lilju og Flosa er Ólafur, f.
13.10.1956, tónlistarkennari í Kaup-
mannahöfn, kvæntur Elísabetu G.
Halldórsdóttur, nema í handa-
vinnukennslu, og eru börn þeirra
Anna Ólafsdóttir, f. 22.4. 1980, og
Flosi Ólafsson, f. 25.3. 1992.
Systkini Lilju eru Margrét, f.
22.5. 1933, sölufulltrúi í Reykjavík;
Guðjón, f. 6.3. 1942, forstjóri í
Reykjavík; Ingólfur, f. 4.5. 1948, rit-
höfundur og blaðamaður í Reykja-
vík; Sigurjón, f. 8.2. 1953, d. s. á;
Óskar Helgi, f. 11.6. 1954, vinnu-
maður í Reykjavík.
Foreldar Lilju: Margeir Sigur-
jónsson, f. 22.11. 1907, d. 1.11. 1987,
forstjóri í Reykjavík, og eftirlifandi
k.h., Kristín Laufey Ingólfsdóttir, f.
2.7. 1910, húsmóðir.
Ætt
Margeir var sonur Sigurjóns,
söðlasmiðs í Hafnarfirði, bróður
Finnboga Arndals skálds. Sigurjón
var sonur Jóhanns, b. í Ósgröf,
bróður Jónasar, langafa rithöfund-
anna Svövu og Guðrúnar Jakobs-
dætra og bróður þeirra, Jökuls,
föður rithöfundanna Elísabetar, 111-
uga, Hrafns og Unnar. Jóhann var
sonur Jóns, b. í Mörk, Finnboga-
sonar.
Móðir Margeirs var Margrét,
systir Guðrúnar, móður Ingveldar
Gísladóttur, myndlistarmanns og
rithöfundar í Hafnarfirði. Margrét
var dóttir Þorleifs, b. í Vatnsholti,
Jónssonar, b. í Hrútsstaðahjáleigu,
Bjarnasonar, b. á Syðra-Velli, Þor-
grímssonar, bróður Ingimundar,
langafa Jóns í Hellukoti, langafa
Gísla, langafa Einars Más Guð-
mundssonar rithöfundar. Ingi-
mundur var faðir Beinteins, sem
var langafi Helgu, langömmu Ját-
varðs Júlíussonar rithöfundar;
langafi Elísabetar, langömmu Guð-
mundar, foður Jónasar rithöfund-
ar, og langafi Sigríðar, langömmu
Júlíu, móður Sveinbjöms I. Bald-
vinssonar rithöfundar. Þorgrímur
var sonur Bergs, ættföður Berg-
sættarinnar, Sturlaugssonar. Móð-
ir Margrétar var Margrét Eyjólfs-
dóttir af Kópsvatnsætt.
Laufey er dóttir Ingólfs, verk-
stjóra í Reykjavík, Daðasonar, b. á
Setbergi, bróður Kristjáns, afa Sig-
fúsar Daðasonar skálds. Daði var
sonur Daníels, b. í Litla-Langadal,
Sigurðssonar, Sigurðssonar, skálds
og hreppstjóra þar, Daðasonar.
Móðir Ingólfs var María er varð
hundrað og sex ára, systir skáld-
anna Herdísar og Ólínu. María var
dóttir Andrésar, formanns í Skál-
eyjum, Andréssonar. Móðir Andr-
ésar var Guðrún Einarsdóttir, syst-
ir Þóru, móður Matthíasar
Jochumssonar skálds, og systir
séra Guðmundar á Kvennabrekku,
föður Theodóru Thoroddsen skáld-
Lilja Margeirsdóttir.
konu, ömmu Dags Sigurðarsonar
skálds. Móðir Maríu var Sesselja
Jónsdóttir, systir Sigríðar, móður
Björns Jónssonar ráðherra, fóður
Sveins forseta.
Móðir Laufeyjar var Lilja Hall-
dórsdóttir, systir Lárusar, prests á
Breiðabólstað. Móðir Lilju var Elín
Bárðardóttir. Móðir Elínar var Sol-
veig, systir Ragnheiðar, ömmu Jó-
hanns Gunnars Sigurðssonar
skálds.
Lilja er að heiman.
Til hamingju með afmælið 5. maí
90 ára
Karl Bergmann Sveinsson,
JJjörvasundi 9, Reykjavík.
Indiana Albertsdóttir,
Fannborg 1, Kópavogi.
85 ára
Míarfríður Sigurðardóttir,
Hátúni 10A, Reykjavík.
80 ára
Ragnheiður
Jóhannsdóttir,
húsfreyja að
Bakka, Ölfusi,
verður áttræð á
þriðjudaginn.
Eiginmaður
hennar er Engil-
bert Hannesson,
bóndi á Bakka.
Þau hjónin taka á móti gestum í
Hraunholti, Dalshrauni 15, Hafn-
arfirði, á afmælisdaginn milli kl.
16.00 og 19.00.
Anna M. Vest,
frá Sunnba á
Suðurey.J'ær-
eyjum;
Stáfnesvegi 14,
Sandgerði.
verður áttræð á
mánudaginn.
Eiginmaður
hennar var Jak-
ob Vest frá Vági á Suðurey sem
er látinn.
Anna heldur upp á daginn með
bömum og nánustu vinum í
Verkalýðshúsinu í dag, laugardag-
inn 4.5.
Guðlaug Sigurbergsdóttir,
Skólabraut 3, Stöðvarfirði.
75 ára
Ingibjörg Jóns-
dóttir (Imma),
brigader í Hjálp-
ræðishernum,
Freyjugötu 9,
Reykjavík.
Eiginmaður
Ingibjargar er
Óskar Jónsson,
brigader í Hjálpræðishemum.
Imma tekur á móti gestum í sal
Hjálpræðishersins - Herkastalan-
um, Kirkjustræti 2, Reykjavík, á
morgun, sunnudaginn 5.5., kl.
14.00-17.00.
Ragnhildur Guðbjörnsdóttir,
Hábæ 33, Reykjavík.
Guðmundur HaOdórsson,
Ásmundamesi, Kaldrananes-
hreppi.
70 ára
Skarphéðinn Pálsson,
Hátúni 12, Reykjavík.
Skarphéðinn
tekur á móti ætt-
ingjum og vin-
um í félagsheim-
ili Sjálfsbjargar í
Reykjavik,
Hátúni 12, á
morgun,
sunnudaginn
5.5., eftir kl.
17.00.
Borghildur Þorleifsdóttir,
Bláskógum 11, Hverageröi.
Borghildur tekur á móti ættingj-
um og vinum í félagsheimili Ölf-
usinga í Hveragerði í dag, laugar-
daginn 4.5., frá kl. 15.00.
Sigurður Ámason,
Nýbýlavegi 64, Kópavogi.
Ingibjörg Steinþórsdóttir,
Árbraut 17, Blönduósi.
Valgerður Pálsdóttir,
Túngötu 47, Eyrarbakka.
Guðlaug Gísladóttir,
Grensásvegi 60, Reykjavík.
60 ára_________________________
Erla Óskarsdóttir,
Hlégerði 31, Kópavogi.
Sigursteina Margrét Jónsdóttir,
Neðstaleiti 2, Reykjavík.
John WiUiam Mc.Tiernan,
Austurgötu 7, Stykkishólmi.
Edda Magnúsdóttir,
Bjarnastöðum, Hvítársíðuhreppi.
Haudiur Bergsteinsson,
Bræðratungu 4, Kópavogi.
50 ára
Sigríðiu: Guðmundsdóttir,
Vogalandi 6, Reykjavík.
Guðrún Sigursteinsdóttir,
Nönnugötu 14, Reykjavík.
Gunnar Njálsson,
Dalseli 33, Reykjavík.
40 ára________________________
Úlfar Arason,
Klöpp, Svalbarðsstrandarhreppi.
Kristrún HaUgrímsdóttir,
Bakkastíg 15, Eskifirði.
Egill Aðalsteinsson,
Kársnesbraut 127, Kópavogi.
Vignir Jónsson,
Óðinsgötu 22A, Reykjavík.
Rebekka Jónsdóttir,
Nökkvavogi 18, Reykjavík.
Elisabet Guðrún Nönnudóttir,
Hjallabraut 19, Hafnarfirði.
Aðalheiður Guðmundsdóttir,
Seftjörn 13, Selfossi.
Guðrún Stefánsdóttir,
Sigríðarstöðum, Hálshreppi.
Ingibergur H. Hafsteinsson,
Skúlaskeiði 14, Hafnarfirði.
Björg Einarsdóttir,
Hæðagarði 6, Höfn í Hornafirði.
Jakob Þór Pétursson,
Frostaskjóli 26, Reykjavík.
Jóna María Sigurgísladóttir,
Esjuvöllum 3, Akranesi.
Þórey Jónsdóttir
Þórey Jónsdóttir fótaaðgerða-
fræðingur, Flyðrugranda 2, Reykja-
vík, verður sextug á morgun.
Starfsferill
Þórey fæddist á Þorvaldsstöðum
í Breiðdal í Suður-Múlasýslu og
ólst upp í Breiðdalnum við öll al-
menn sveitastörf. Auk þess vann
hún í fiskvinnslu á vetrum á Fá-
skrúðsfirði.
Þórey flutti tvítug til Þingeyrar
við Dýrafjörö þar sem hún var bú-
sett næstu fimm árin. Hún flutti til
Akraness 1960. Auk húsmóður-
starfa var hún þar starfsmaður
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi í fjölda ára, starfaði í
mörg ár hjá Haraldi Böðvarssyni
og Co, starfaði við leikskóla á
Akranesi og var næturvörður við
heimili fjölfatlaðra á Akranesi.
Þórey flutti til Reykjavíkur 1986
og hóf þá nám í fótaaðgerðum. Síð-
ustu sex árin hefur hún starfað við
fótaaðgerðir á Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund.
Þórey hefur sungið í kór og starf-
að í leikfélaginu og verklýðsfélagi á
Akranesi, auk þess sem hún sat í
stjórn þessara félaga. Hún er nú fé-
lagi í Myndlistarklúbbi Hvassaleit-
is.
Fjölskylda
Þórey á fjórar dætur frá tveimur
hjónaböndum. Dætur hennar eru
Guðný Jóna Ólafsdóttir, f. 3.2.1957,
sjúkraliði og húsmóðir á Akranesi,
en maður hennar er Guðjón Guð-
mundsson alþm. og eiga þau þrjú
börn, Eyþór Ólaf, Kristjönu og Erlu
Þóru; Daðey Þóra Ólafsdóttir, f.
15.7. 1959, bæjarritari á Siglufirði,
og á hún eina dóttur, Ólöfu Völu
Schram; Erla Ólafsdóttir, f. 29.9.
1961, bókari í Domus Medica en
maður hennar er Fjölnir Þorsteins-
son rafeindatæknir og eru börn
þeirra Fanndís og Þorsteinn Freyr;
Eygló Peta Gilbertsdóttir, f. 30.5.
1972, háskólanemi í Múnster í
Þýskalandi.
Systkini Þóreyjar eru Sigurður,
f. 1916, nú látinn, kaupmaður og
formaður Bílstjórafélagsins
Trausta; Kristín Björg, f. 1917, nú
látin, húsmóðir á Fáskrúðsfirði;
Árni Björn, f. 1918, leigubílstjóri á
Hreyfli; Björgólfur, f. 1919, bóndi á
Tungufelli í Breiðdal; Helga Björg,
f. 1920, fyrrv. húsfreyja að Geithell-
um í Álftafirði, nú búsett á Egils-
stöðum; Einar Björgvin, f. 1922,
húsasmíðameistari í Borgarnesi;
Oddný Aðalbjörg, lengst af hús-
móðir á Fáskrúðsfirði, nú búsett í
Reykjavík; Hlíf Þórbjörg, f. 1924,
húsmóðir á Seltjarnarnesi; Jónas, f.
1926, nú látinn, vegaverkstjóri á
Breiðdalsvík; Hlífar Pétur, f. 1929,
bóndi að Þorvaldsstöðum í Breið-
dal; Guðmundur Þórður, f. 1930,
bóndi að Þorvaldsstöðum í Breið-
dal; Óskar Sigurjón, f. 1932, húsa-
smíðameistari á Seltjarnarnesi.
Haraldur Sveinsson
Haraldur Sveinsson (Búi) verk-
stjóri, Bláhömrum 4, Reykjavík, er
sjötugur í dag.
Starfsferill
Haraldur fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Saltvík á Kjalarnesi. Að
lokinni skólagöngu hóf hann störf
hjá Reykjavíkurborg þar sem hann
hefur .starfað síðan, eða í fimmtiu
og fimm ár.
Fjölskylda
Haraldur kvæntist 4.6. 1949
Stellu Lange Sveinsson, f. 14.7.
1928, húsmóður. Hún er dóttir
Jörgens P. Lange og Guðrúnar Ein-
arsdóttur Lange.
Börn Haralds og Stellu eru Reyn-
ir Haraldsson, f. 4.3. 1949, deildar-
stjóri í Reykjavík, kvæntur Esther
Halldórsdóttur húsmóður og eru
börn þeirra Halldóra Ósk og Hörð-
ur Rafn; Gunnar Haraldsson, f.
7.10. 1950, sendibílstjóri í Reykja-
vík, kvæntur Unni Einarsdóttur
húsmóður og eru dætur þeirra
Kristjana Stella, Guðrún Bryndís
og Erna Sif en fósturdóttir Gunn-
ars og dóttir Unnar er Guðný Sig-
ríður Jónsdóttir og er hennar mað-
ur Jón Guðmundsson; Einar Har-
aldsson, f. 9.7. 1955, lagermaður í
Danmörku, en kona hans er Bryn-
dís Ingibjörg Jónsdóttir húsmóðir
og eru dætur þeirra Eva Dögg og
Aníta en fósturdóttir Einars og
dóttir Bryndísar Ingibjargar er Sig-
urlaug Ýr; Sonja Haraldsdóttir, f.
14.9. 1957, skrifstofumaður i Hafn-
arfirði, en maður hennar Þorlákur
Guðbrandsson vélaverkstæðismaö-
ur og eru dætur þeirra Linda Rós
og Bóel Eir sem er látin; Stefán
Örn Haraldsson, f. 27.10.1960, verk-
stjóri í Reykjavík.
Systkini Haralds: Haukur
Sveinsson, f. 28.9. 1917; Sigrún
Sveinsdóttir, f. 25.1. 1920; Sveindís
Foreldrar Þóreyjar voru Jón
Björgólfsson, f. 1881, bóndi á Þor-
valdsstöðum í Breiðdal, og Guðný
Jónasdóttir, f. 1891, húsfreyja á
Þorvaldsstöðum.
Ætt
Jón var sonur Björgólfs, b. í
Snæhvammi og á Kömbum í Stöðv-
arfirði, Stefánssonar, b. í Snæ-
hvammi, Þórðarsonar. Móðir
Björgólfs Stefánssonar var Þórunn
Eyjólfsdóttir.
Móðir Jóns var Kristín Jónsdótt-
ir, b. á Þverhamri, Bjarnasonar og
Vilborgar Björnsdóttur.
Guðný var dóttir Jóns, b. á Dísa-
stöðum, Erlendssonar.
Haraldur Sveinsson.
Sveinsdóttir, f. 11.11. 1922, d. 16.5.
1989; Theodóra Sveinsdóttir, f. 28.5.
1924; Guðrún Sveinsdóttir, f. 6.11.
1928, d. 6.7. 1991; Konráð R. Sveins-
son, f. 22.3. 1930.
Foreldrar Haralds voru Sveinn
Jónsson, f. 13.6. 1889, d. 12.3. 1966,
áhaldavörður hjá Reykjavíkur-
borg, og Kristín Sigurðardóttir, f.
21.7. 1898,'d. 8.9. 1979, húsmóðir.
í tilefni dagsins taka Haraldur
og Stella á móti gestum að heimili
sínu að Bláhömrum 4 eftir kl. 16.00
í dag.