Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1996, Page 5
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996
5
Fréttir
Ráðstefna um grænbók Evrópusambandsins:
Verjum lægra hlutfalli
tekna til nýsköpunar
en aðrar þjóðir
- jákvætt að Islendingar mennti sig erlendis
aðrar þjóðir,"
„Margt áhugavert kom fram á
ráðstefnunni. Evrópumenn hafa
haft af því áhyggjur að þeir væru að
dragast aftur úr miðað við Japani
og Bandaríkjamenn sérstaklega. Að-
allega hafa þeir áhyggjur af að þeim
takist ekki að nýta þær nýjungar
sem koma fram og gera úr þeim við-
skiptalegar hugmyndir," sagði Jón
Ásbergsson, framkvæmdastjóri Út-
flutningsráðs, um ráðstefnu sem
haldin var hér á landi nýlega á veg-
um framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins um nýútkomna um-
ræðuskýrslu, svokallaða grænbók,
Evrópusambandsins um stöðu ný-
sköpunar í Evrópu undir yfirskrift-
inni Framtíð Evrópu - nýsköpun
sem vopn í samkeppni. Rannsóknar-
ráð íslands og Útflutningsráð ís-
lands önnuðust skipulag ráðstefn-
unnar hér í samráði við iðnaðar-
ráðuneytið.
Fundir eins og þessi eru haldnir í
hverju landi á Evrópska efnahags-
svæðinu. Þar kemur sjónarmið
hvers lands fram. í lok maí verður
haldinn sameiginlegur fundur í
Róm þar sem kynntar verða niður-
stöður allra fundanna.
Víðtækari skilgreining á
nýsköpun
„Evrópusambandið ýtir þessu
átaki um stöðu nýsköpunar í Evr-
ópu úr vör, íhugar hverju sé ábót-
vant og hvað megi bæta. Evrópu-
sambandsmenn gefa sér víðtækari
skilgreiningu á hugtakinu nýsköp-
un en verið hefur, það miðast ekki
bara við tækni heldur óhlutbundin
atriði eins og stjórnun, markaðs-
færslu' eða félagslega þætti svo
framarlega sem þetta eru breyting-
ar. Breytingarnar eða nýsköpunin
verður að vera viðurkennd af mark-
aðnum,“ sagði Jón.
Hann sagði að á ráðstefnunni
hefði verið tekið saman á einn stað
allt það sem lýtur að nýsköpun á
skipulagðari máta en oft áður. Bent
hefði verið á að íslendingar þyrftu
að laga sínar reglur og lög að því
sem gerðist í Evrópu.
„Við erum með tiltölulega fá
einkaleyfi skráð hér, 2-3 á ári en
þau ættu að vera 20 til 30 miðað við
það sem gerist annars staðar. Bent
var á margt sem þótti sérstakt við
ísland, svo sem að svokölluð tækni-
vöktun, eða það hvernig við nálg-
umst erlendar nýjungar, sem marg-
ar þjóðir hafa miklar áhyggjur af, er
þannig hér að við sendum námsfólk
okkar í mám til útlanda meira en
flestar aðrar þjóðir. Þessu er talið
rétt að viðhalda. Menn töldu einnig
að það væri jákvætt að námsfólk
hér hefði gott samband við atvinnu-
lífið með sumarvinnu og þótti sjálf-
Stutt í ruglun
á Stöð 3
DV, Akranesi:
„Við byrjum að rugla dagskrána
um miðjan maí þó ekki séu allir af-
ruglararnir sem við pöntuðum
komnir til landsins. Það er ekki
byrjað að dreifa þeim. Margir hafa
beðið með að ganga frá áskrift þar
til ruglað verður. Áskriftartímabilið
verður miðað við fimmta dag hvers
mánaðar,“ sagði Guðmundur Hann-
esson, tæknistjóri Stöðvar 3, við
fréttamann DV í gær.
„Stöðin næst nú þegar á Akranesi
og í Reykjanesbæ auk Reykjavíkur-
svæðisins og svo getur farið að
strax í ár eða á næsta ári náist Stöð
3 um allt land. Það fer nokkuð eftir
samningum við P&S. Þetta er bara
framkvæmdaratriði," sagði Guð-
mundur. -DÓ
sagt að halda því. En við verjum
lægra hlutfalli tekna okkar til ný-
sköpunar en
hann.
sagði
-ÞK
Frá ráðstefnunni á Scandic Hótel Loftleiðum. Frá vinstri Hallgrímur Jónas-
son, forstjóri Iðntæknistofnunar, Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Út-
flutningsráðs íslands, og Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Rann-
sóknarráðs íslands.
dagar
\.3 14“ sjónvarp með íslensku textavarpi
kr. 32.900
f*j Ferðageislaspilari með heyrnatólum
kr. 9.990 f
nMeiriháttar HiFi myndbandstæki,
verðlaunatæki af laaangbestu gen
kr. 64.950 1
Fullkomin hljómtækjasamstæða með öllu
kr. 37.900
O Bílgeislaspilari með útvarpi
kr. 34.900
Nett rafmagnsrakvél...i vasann
kr. 950,,,,
Ferðatæki með geislaspilara
kr. 16.900
stgr.
Vasaútvarp með kassettutæki
kr. 3.890
Örbylgjuofn með tölvustýringu
C kr. 17.900