Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1996, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1996
Fréttir
Maður sem falsaði nöfn fólks á skuldabréf fyrir á aðra milljón króna:
Dæmdur í fangelsi fyrir
verðbréfasvik í bílaviðskiptum
Hjörtur Líndal Guðnason, 32 ára
Reykvíkingur, hefur verið dæmdur
í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa
falsað þrjú skuldabréf að andvirði á
aðra milljón króna og notað þau til
að kaupa þrjá bíla seint á síðasta
ári. Hann var jafnframt sakfelldur
fyrir innbrot í hús við Goðatún í
Garðabæ þar sem hann stal veruleg-
um verðmætum af íbúum.
í október síðastliðnum notaði
Hjörtur skuldabréf upp á 440 þús-
und krónur til að kaupa bíl á bíla-
sölunni Bilfangi í Borgartúni. Áður
hafði hann falsaði á það nöfn sjálf-
skuldarábyrgðarmanna og vitund-
arvotts. Þegar þeir fengu síðan til-
kynningar frá SPRON um að þeir
væru ábyrgðarmenn komst hins
vegar upp um hin folsku bilavið-
skipti.
Þann 24. nóvember keypti Hjört-
ur annan bíl og seldi þá Hafnfirð-
ingi skuldabréf að andvirði 300 þús-
und krónur. Ákærði hafði faisað
bréfið með því að rita á það nöfn
ákveðins útgefanda, tvö nöfn sjálf-
skuldarábyrgðarmanna sem hvergi
komu nærri og síðan tveggja vit-
undarvotta.
í þriðja málinu keypti Hjörtur bíl
á Hellu af manni frá Þykkvabæ.
Hann greiddi með 400 þúsund króna
skuldabréfi og falsaði á það nöfn
ábyrgðarmanna og vitundarvotta á
sama hátt og áður.
í málinu var ákæröi jafnframt
dæmdur fyrir að hafa brotist inn á
efri hæð húss í Garðabæ. Þar hafði
hann á brott með sér 201 geisladisk,
myndbandstökuvél, linsur á mynda-
vélar, leifturljós, sjónauka, fatnað
og fleira.
Samkvæmt upplýsingum DV ligg-
ur ekki fyrir að þeir sem lentu í því
að nöfn þeirra voru fölsuð á skulda-
bréf hafl orðið fyrir tjóni. 300 þús-
und króna skaðabótakrafa var lögö
fram vegna viðskiptanna við fram-
angreindan Hafnfirðing. Henni var
hins vegar vísað frá dómi þar sem
„tjónþolinn" hafði fengið umrædda
bifreið í hendur eftir að krafan var
lögö fram. -Ótt
Dalvík:
Enn kosið um
áfengisútsölu
DV, Akureyri:
Þegar Dalvíkingar ganga að
kjörborðinu í lok næsta mán-
aðar til að kjósa nýjan forseta
íslands munu þeir einnig geta
greitt atkvæði um hvort þeir
vilja að opnuð verði áfengis-
útsala í bænum.
Tilskildum fjölda undir-
skrifta þeirra sem vilja áfeng-
isútsölu í bænum var skilað
inn og verður nú kosið í
þriðja skipti um það hvort
þess verður farið á leit við
ÁTVR að opnuð verði áfengis-
verslun í bænum. Slík tillaga
hefur tvívegis verið felld og
Dalvíkingar hafa sótt „sopann
sinn“ til Akureyrar.
-gk
Flöskuskeyti níu ár frá Bandaríkjunum
Ótrúleg
vegalengd
- segir finnandinn, Tryggvi Gunnarsson
„Ég fann flöskuskeytið á Meðal-
landsfjöru og bréfið var svo snjáð að
ég ætlaði varla að geta lesið það,“
sagði Tryggvi Gunnarsson sem
margir kannast við frá því að hann
spilaði fótbolta hjá ÍR.
Tryggvi fann glerflöskuna sem
bréfið var í er hann tók þátt í leit að
neyðarsendi við Kirkjubæjarklaust-
ur með Slysavarnafélaginu. Myrkur
var þá skollið á svo það má teljast
mikil tilviljun að flaskan fannst.
„Flöskuskeytið sendi stúlka í
Norður-Karólínu fyrir 9 árum og er
það hreint ótrúlegt hversu langa
vegalengd það hefur borist. Hún er
nú orðin 23 ára gömul, er atvinnu-
sjóskíöakona og hefur unnið marga
titla á því sviði.“
Tryggvi skrifaði bréf til
stúlkunnar og skýrði frá því hvar
og hvenær skeytið fannst. Svar
barst frá stúlkunni stuttu seinna og
sagðist hún hafa verið búin að
gleyma því að hafa sent flösku-
skeytið en munað eftir því eins og
það hefði gerst í gær er hún fékk
bréfið.
„Hún bað mig svo að hafa sam-
band ef ég kæmi til Bandaríkjanna.
Hún og fjölskylda hennar reka sjó-
skíðaskóla svo það er aldrei að vita
nema ég fari í heimsókn og læri á
sjóskíði ef ég verð staddur þarna
nálægt," sagði hinn heppni finn-
andi.
-SF
-
Tryggvi Gunnarsson finnur
flöskuna í Meðallandsljöru
viö Kirtgubaejarklaustur í
april 1996.
iftk
April Coble hendir floskunm i sjoinn
viö strönd Core Blanks í Noröur-
Karólínu áriö 1987.
... ,
ov
Dagfari
Þakka ykkur fyrir stundina
Það var púað á Pál Pétursson fé-
lagsmálaráðherra í fyrradag. Al-
þýðusambandsmenn streymdu á
Austurvöll í tíu rútum til þess að
hitta forseta Alþingis. Forsetinn tók
á móti mótmælum gegn frumvarpi
ríkisstjómarinnar um stéttarfélög
og vinnudeilur. Ólafur Garðar tók
komumönnum vel, svo sem vænta
mátti, og lofaði að koma mótmælun-
um til skila við þingheim.
Fulltrúum alþýðu þótti þó ekki
nóg að gert og særðu því fram á
þinghúströppurnar óvininn sjálfan
holdi klæddan, Pál Pétursson, fé-
lagsmálaráðherra og bónda á
Höllustöðum. Páll var einmitt
minntur á uppruna sinn og sjálf-
sagt minnast einhverjir þess að
Páll þótti heldur til vinstri í Fram-
sókn áður en hann gekk í eina
sæng með Davíð Oddssyni.
Alþýðusambandsforsetinn sagði
fulltrúa alþýðunnar mætta á Aust-
urvöll til þess að reyna að koma í
veg fyrir meiri háttar slys. Forseti
þings ASÍ bætti um betur og sagði
fulltrúana fimm hundruð hafa 60
þúsund manns á bak við sig og sá
massi væri algerlega einhuga í
málinu. Það mætti Höllustaða-
bóndi vita.
Páll bóndi og ráðherra er kjark-
maður og mætti því andskotum
sínum á Austurvelli. Hann glotti
framan í fulltrúa alþýðunnar en
sagði ekki orð. „Ætlarðu ekkert að
segja?“ hrópaði alþýðufulltrúi að
glottandi fulltrúa valdsins. Ráð-
herra hafði þá sýnt á sér fararsniö
og ætlaði aftur inn í mjúkan valda-
stól þingsins.
Það var þá sem bóndinn og ráð-
herrann sneri sér aftur að fulltrú-
um alþýðunnar. Þessir fulltrúar
hafa í margar vikur ausið fúkyrð-
unum yfír ráðherrann og púuðu
auk þess á hann þar sem hann stóð
andspænis þeim. Menn vildu ræðu
og svör ráðherrans og þeir fengu
ræðu. Hún var svo stutt að hún
verður endurflutt hér. Hún var svo
sérstök að hún verður að varðveit-
ast. Innhaldið var ekki neitt en
flutningur og látbragð svo sem best
gerist hjá atvinnuleikara. Sigurinn
var ráðherrans því fulltrúar alþýð-
unnar máttu ekki mæla. í raun var
ræðan því alger snilld.
Ræðan var orðrétt svona: „Það
er mér sérstök ánægja að hitta
ykkur og ég vildi gjarnan að þið
væruð meira sammála mér heldur
en þið eruð. En úr því að svo er
ekki þá verður bara að hafa það.
Ég lít svo á að þiö vinnið mikil-
vægt starf og ég árna samtökum
ykkar allra heilla og vænti góðs
samstarfs við þau í framtíðinni.
Þakka ykkur fyrir stundina."
Svo mörg voru þau orð. Alþýðu-
fulltrúarnir hafa ólmast vikum
saman. Félagsmálaráðherrann er
sagður vera að höggva að rótum
verkalýðshreyfingarinnar. Sjálfu
ASÍ-þinginu var frestað svo menn
kæmust í tíu rútum til mótmæla á
Austurvelli. Það sem upp úr því
hafðist var glott félagsmálaráð-
herrans frá Höllustöðum, sérstök
ánægja hans að hitta liðið og ástar-
þakkir fyrir stundina. Það vantaði
ekkert nema „í guðs friði“.
Höllustaðabóndinn er þéttur á
velli og þéttur í lund. Tíu þéttskip-
aðar rútur höfðu ekkert í hann. Því
var það um leið og tímamótaræðu
ráðherrans lauk að þingfulltrúar á
ASÍ-þingi sneru aftur til Kópavogs-
fundar. Ráðherrann hafði þakkað
þeim fyrir stundina.
Ráðherrann vissi sem var að
honum var óhætt að senda þing-
fulltrúum tóninn. Þótt þeir létu svo
að þeir hefðu sextíu þúsund manns
á bak við sig hafði Höllustaðabóndi
tromp uppi i erminni. Gallup sjálf-
ur hafði kannað málið aö ósk ráð-
herra. Þar kom í ljós að meirihluti
alþýðunnar vildi auka völd al-
mennra félagsmanna á kostnað
stjórna verkalýðsfélaga og trúnað-
armannaráða. Alþýðan var sem
sagt hundóánægð með fyrirkomu-
lag kjarasamninga og stjómendur
verkalýðsfélaganna. Og hverjir eru
þeir? Jú, einmitt fulltrúarnir fimm
hundruð sem særðu Pál út á þing-
húströppumar.
Það var því von að ráðherra
glotti fyrir ræöu, á meðan á henni
stóð og eftir hana. Hann er að
breyta lögunum gegn vilja verka-
lýðsforystunnar en telur sig hafa
stuðning alþýðunnar. Hann leyfði
sér því að flytja hina mögnuöu
ræðu undir stanslausu púi meintra
alþýðufulltrúa.
Við þökkum líka fyrir stundina.
Dagfari