Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1996, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1996, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996 5 dv_____________________________________________________________________________________Fréttir Fjórmenningamir í tryggingasvikamálunum sæta þungum ákærum en ekki vegna Vesturgöturánsins: Rán skipulagt en ósannað hvaða rán það átti að vera - málið er óupplýst en er ekki búið, að sögn Rannsóknarlögreglu ríkisins Grímuklæddir og vopnaöir sérsveitarmenn, leitarhundur og fjölmennt lögregluliö dugöi ekki til aö upplýsa hverjir þaö voru sem stóöu aö ráninu i Búnaöar- bankanum. Ýmsar talsvert sterkar vísbendingar voru ekki nægilegt efni í ákæru. DV-mynd BG Þó svo að legið hafi fyrir að fjórir ungir menn, sem í vetur voru grun- aðir um að hafa staðið að ráninu í Búnaðarbankann við Vesturgötu þann 18. desember síðastliðinn, hafi á síðasta ári undirbúið og skipulagt nákvæmlega rán með því að klæð- ast hettum og samfestingum og hrundið hluta af áætlun sinni í framkvæmd þá telur RLR ekki að sannanir séu fram komnar sem nægi til að ákæra þá fyrir ránið. Staðan er því sú að þótt margt bendi til sektar þeirra eru sannanir ekki taldar liggja fyrir til að láta reyna á ránsmálið fyrir dómstólum. Grunin- um hefur samt sem áður „ekki ver- ið aflétt". Rannsóknin, sem beindist að því aö upplýsa að hve miklu leyti rán- sundirbúningurinn tengdist beinlín- is bankanum við Vesturgötuna í desember, bar hins vegar ekki þann árangur þegar upp var staðið að ætla mætti að viðkomandi yrðu sak- felldir. Fréttaljós Óttar Sveinsson „Málið er óupplýst enn þá en það er ekki búið,“ sagði Hörður Jóhann- esson, yfirlögregluþjónn hjá RLR, þegar hann var spurður um Vestur- göturánið. Vesturgöturánið var spegil- mynd Skeljungsránsins Aðferðirnar við ránið á Vestur- götu voru, svo ekki sé meira sagt, svipaðar og í svokölluðu Skeljungs- ráni sem einnig er óupplýst. í báðum tilfellum voru þrír hettu- klæddir menn í samfestingum að verki. Einnig voru í bæði skiptin notaðir stolnir bdar sem stolið hafði verið aðfaranótt mánudags. Á þeim voru einnig stolnar númeraplötur. Bæði ránin voru síðan framin laust eftir klukkan tíu á mánudags- morgni. Nægar sannanir til aö úrskurða í gæslu en... Fjórmenningarnir hafa nú allir verið ákærðir fyrir fjársvik og tryggingasvik með þvi að hafa svið- sett bæði slys, óhöpp, innbrot og fleira. I þeirri rannsókn komu fram- angreindar vísbendingar fram um að þeir hefðu einnig staðið að bankaráninu. Þær voru taldar það sterkar í vetur að dómari féllst á að úrskurða þá í gæsluvarðhald og síð- an að framlengja það í sumum til- fellum. Mennirnir viðurkenndu að miklu leyti það sem þeir voru grunaðir um í fjársvikamálunum en gæslan nægði þó ekki til að nægar sannan- ir kæmu fram gagnvart þeim um ránið. Einn mannanna, Benedikt Orri Viktorsson, 28 ára, var ákærð- ur strax í vetur fyrir önnur trygg- ingasvikamál og var hann dæmdur í 15 mánaða fangelsi i febrúar á meðan hann sat í gæsluvarðhaldi vegna hinna afbrotamálanna. Ann- ar úr hópnum kærði hins vegar gæsluvarðhaldsúrskurð sinn til Hæstaréttar en hann hafði fjarvist- arsönnun, hafði verið í klippingu á meðan ránið var framið og það fékkst staðfest. Engin sönnun liggur fyrir um að sú „fjarvist" hafl verið ráðgerð fyrir fram. Tjóniö af svikunum hátt í 20 milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur þing- festi í júní ákæru á hendur fjór- menningunum og einum öðrum að- ila vegna fimm fjársvikamála. Bene- dikt Orri er eini aðilinn sem kemur við sögu í þeim öllum samkvæmt sakargiftum. I þremur tilvikum voru umferð- arslys sett á svip þar sem björgun- arlið og þyrla komu m.a. við sögu. í fjórða tilvikinu var kveikt í Mercedes Benz bifreið og hún eyðilögð og bætur fengust greiddar út á kaskótryggingu. í síðasta tilvik- inu var um að ræða tilraun til svika. Miðað við að stór hluti sakar- giftanna hefur verið viðurkenndur má Benedikt Orri því eiga von á þungum dómi til viðbótar því 15 mánaða fangelsi sem hann var dæmdur til að sæta í vetur. Þeim dómi var áfrýjað en hann fékkst staðfestur í Hæstarétti. Tjónið sem varð í málunum fimm, sem nú hefur verið ákært fyr- ir, er hátt í 20 milljónir króna. Hreinar bótakröfur nema hins veg- ar 13,5 milljónum króna. Annar kostnaður nam um 4 milljónum króna, þar á meðal ferð þyrlu Land- helgisgæslunnar. Bótakröfurnar i ákærunum felast fyrst og fremst í vátryggingabótum en einnig er bóta krafist frá Trygg- ingastofnun, Verkalýðsfélaginu Dagsbrún, Sjúkrasjóði Félags bóka- gerðarmanna og bílaleigu. Hvað sem því líður eru ránin tvö, Skelj- ungsmálið og ránið í Búnaðarbank- anum við Vesturgötu, óupplýst enn þá. ESTT sHBeSff .'fNTOsfölT /IV 860 Þvottavél ■ Vinduhraði 800 sn/mín. 1 14 þvottakerfi 1 Stiglaus hitastillir 1 Orkunotkun 2,3 kwst GR 1860 H:1 17 B:50 D:60 cm Kælir: 140 Itr. Frystir 45 Itr. stgr. í/H. ' GR 2260 H:140 B:50 D:60 cm Kælir. l 80 Itr. Frystir 45 Itr. GR 2600 H:152 B:55 D:60 cm Kælir ] 87 Itr. Frystir: 67 Itr. GR 3300 H:170 B: 60 D:60 cm • Kælir:225 Itr. Frystir 75 Itr. <^índesíí .../ stöðugri sókn! KÆU- SKÁPAR —°g þvottavélar i BRÆÐURNIR í©lQRMSSON Lágmúla 8 • Sími 533 2800 Umbobsmenrt um land allt Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúð.Búðardal Vestfirðir: Geirseyrarbúöin, Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvík.Straumur.ísafirði. Norðurland: Kf.Steingrímsfjarðar.Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúö.Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Siglufirði.Ólafsfirði og Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urð, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstððum. Kf.Vopnfirðinga, Vopnafirði. Verslunin Vík, Neskau, 'Staö. Kf.Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfirði. KASK, Höfn Suöurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell.Keflavík. Rafborg, Grindavík. itstr {^2£5jjj^UjmLlfctfi£SmfcUi£^IÍ^ÖE21LiÍá£ÍE5HiíiíÍ£SELJiilJ -— j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.