Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1996, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 24. JULI1996
Viðskipti
Nýtt dagblað í burðarliðnum:
DT - Dagur-Tíminn fæð-
ist fyrir miðjan ágúst
- hlutafé útgáfufélagsins 47 milljónir
Dagur-Tíminn eða DT er vinnu-
heitið á nýju blaði sem þessa dag-
ana er að verða til við sameiningu
úfgáfu Dags á Akureyri og Tímans í
Reykjavík. „Við vonumst til þess að
geta sýnt fyrsta eintak hins nýja
blaðs fyrir miðjan ágúst,“ segir
Hörður Blöndal, framkvæmdastjóri
Dagsprents, í samtali við DV
Sameining Dags og Tímans og út-
gáfa nýs blaðs í þeirra stað á sér
ekki langan aðdraganda en viljayfir-
lýsingar um kaup Frjálsrar fjölmiðl-
unar, útgáfufélags DV og Tímans, á
nýjum hlutabréfum í Dagsprenti
fyrir um 24 milljónir króna voru
undirritaðar i fyrradag á Akureyri.
Sólarlandaferöir:
Aukaflug í
haust til
Flórída
- flogið til Barcelona út október
Flugleiðir hafa bætt við sjö
aukaferðum í haust til Flórída.
Þetta er viðbót við sumaráætlun
félagsins vegna mikillar eftir-
spurnar.
Fyrsta aukaferðin verður farin
11. september og síðan verður
flogið vikulega á þriðjudögum þar
til sumaráætlun rennur út í lok
október. Þannig verða tvö flug í
viku til Orlando frá Keflavík,
aukaferðirnar á þriðjudögum og
föstu ferðirnar á sunnudögum.
Sólarlandaferðir hafa verið eft-
irsóttar í sumar meðal íslenskra
og erlendra viðskiptavina Flug-
leiða, ekki síst til Flórída og
Barcelona á Spáni, og verður flog-
ið til Barcelona eins lengi og sum-
aráætlun félagsins er í gildi, sem
er óvenjulegt. -SÁ
Núverandi hlutafé Dagsprents er
um 23 milljónir króna að nafnverði.
Dagsprent er almenningshlutafé-
lag og stærstu hluthafarnir hafa til
þessa verið KEA og Kaffibrennsla
Akureyrar. Ætlunin er að auka
hlutafé Dagsprents í tæplega 47
milljónir króna að nafnverði og er
gert ráð fyrir því að Frjáls fjölmiðl-
un eigi stærsta hluta viðbótarhluta-
fjárins og eigi rúman meirihluta í
fyrirtækinu. Samkomulag um þetta
var undirritað í fyrradag milli
Frjálsrar fjölmiðlunar og fyrr-
nefndra eigenda meirihluta hluta-
flár í Dagsprenti sem eiga um 80%
núverandi hlutafjár. Hluthafafund-
ur verður haldinn í næstu viku þar
sem samkomulagið verður lagt fram
til samþykktar. Tvo þriðju hluta at-
kvæða þarf til að samþykkja hluta-
fjáraukninguna og kaup Frjálsrar
fjölmiðlunar á því.
Rekstur Dagsprents og útgáfa
Dags hefur gengið þokkalega að
undanfórnu og var 3,6 milljón króna
hagnaður af rekstrinum á síðasta
ári og það sem af er árinu er talið að
hagnaður sé um 5 milljónir. Eigna-
staða fyrirtækisins er sterk en það á
eigið húsnæði og eigin prentvél og
eftir hlutafjáraukninguna í 47 millj-
ónir verður eiginfjárhlutfallið um
65%
Að sögn Harðar Blöndal, fram-
kvæmdastjóra Dagsprents, er sam-
anlagður kaupendafjöldi Dags og
Tímans um 12 þúsund manns og er
vonast til að sá hópur verði uppi-
staða kaupendahópsins í fyrstunni
en vaxi fljótt flskur um hrygg og
verði áður en árið er liðiö orðinn
mun stærri, eða um 20 þúsund.
„Sameiginlega hafa þessi tvö blöð
nú sterka stöðu í hinum dreifðu
byggðum landsins, ekki síst á Norð-
ur- og Suðurlandi, og ef allar áætl-
anir ganga eftir þá verður hið nýja
blað með yfirburðastöðu á lands-
byggðinni," segir Hörður Blöndal.
-SÁ
Iöntæknistofnun:
Nýtt gæðastjórnunarkerfi
- íslenskt forrit helsta hjálpartækið
Iðntæknistofnun hefur keypt for-
ritið Gæðavörð af hugbúnaðarfyrir-
tækinu Hópvinnukerfi ehf. Iðn-
tæknistofnun hefur verið að endur-
skoða gæðastjórnunarkerfi sitt og
gera gæðahandbók stofnunarinnar
aðgengilega fyrir alla starfsmenn á
tölvuneti.
Gæðakerfi Iðntæknistofnunar er
allflókið og þarf að vera nothæft fyr-
ir deildir sem fást við ólík viðfangs-
efni tengd rannsóknum, þjónustu og
upplýsingum og ráðgjöf og því þarf
hugbúnaðurinn að gefa möguleika á
að útbúa margar notendahandbæk-
ur úr einni gæðahandbók.
Einmitt þetta er hægt 1 Gæða-
verði en í forritinu er safn hugbún-
aðartækja sem gerð eru í Lotus Not-
es og eru hönnuð með það fyrir aug-
um að auðvelda fyrirtækjum og
stofnunum að innleiða og reka
gæðakerfi. -SÁ
Kaupsamningur löntæknistofnunar og Hópvinnukerfa ehf. um gæðakerfis-
forrit undirritaður. Frá vinstri; Hörður Olavsson, framkvæmdastjóri Hóp-
vinnukerfa, Smári S. Sigurðsson, gæðastjóri Iðntæknistofnunar, og Örn
Gylfason, fjármálastjóri löntæknistofnunar.
Gengi Marelbréfa úr 14,30 í 11,85
Heildarviðskipti á Verðbréfaþingi
íslands og opna tilboðsmarkaðinum
námu í síðustu viku 238.119.355
krónum og voru mest viðskipti með
bréf Eimskips eða fyrir 14.191.854
kr. og var gengi þeirra 7,30.
Næstumfangsmestu viðskiptin
voru með bréf í íslandsbanka, fyrir
6.671.313 kr., og var gengi bréfanna
1,73. Þingvísitala hlutabréfa sem
sprengdi 2000 stiga múrinn í síðustu
viku hefur ekki gert það nógu ræki-
lega því að hún er nú fallin niður
fyrir hann aftur og er nú 1994,48
stig.
Hlutabréf í Marel, sem verið hafa
á mjög háu og hækkandi verði, féllu
í vikunni úr genginu 14,30 niður í
11,85 og verður spennandi að sjá
hvernig þau munu spjara sig á
næstu vikum og hvort þau hafi náð
hátindinum og muni halda áfram að
falla.
Nýgræðingurinn á Verðbréfa-
þingi, tölvufyrirtækið Tæknival,
spjarar sig þokkalega svona fyrsta
kastið og voru viðskipti með Tækni-
valsbréf upp á 516 þúsund krónur og
gengi bréfanna fór hækkandi. í
hlutafjárútboðinu á dögunum varð
meðalgengi bréfanna 4,30 en hæsta
verð sem fékkst í vikunni var á
genginu 5,50.
Gengið á hlutabréfum í Útgerðar-
félagi Akureyringa féll úr 5,30 í 4,90
en viðskipti með bréfin námu sam-
tals 3.796.188 kr. Til félagsins hefur
nú verið ráðinn nýr framkvæmda-
stjóri, Guðbrandur Sigurðsson, sem
kemur frá þróunarsviði íslenskra
sjávarafurða. Guðbrandur tekur til
starfa í september nk.
Álverð sem verið hefur lágt und-
anfarið virðist hafa náð botninum
því að í síðustu viku tók það að
stíga. Búist er við því að það stígi
enn frekar næstu daga og eru
ástæðurnar einkum tvær, yfirvof-
andi verkfall í 220 þúsund tonna ál-
veri Alcan og í öðru lagi lækkandi
gengi Bandaríkjadollars. Þó þykir
ólíklegt að verð þess fari yfir 1500
dali.
Engar 'skipasölur fóru fram er-
lendis fremur en undanfama mán-
uði. Verð á gámaþorski í Bretlandi
féll miðað við vikuna á undan og í
stað 141,55 króna kílóverðs fengust
nú 123,60 fyrir kílóið af gámaþroski.
-SÁ
Gámaþorskur
Dollar
Mark
Pund
Flugleiðir
Pingvísit hlutabr.
Þingvísit. húsbr.
Olíufélagið
Skeljungur
DV
102,88
154
1700
150
100
156
DV
Umboð fyrir Rank Xerox:
Optima tekur
við af Nýherja
- rós í hnappagat Optima
Optima, Ármúla 8, hefur tekið
við umboði á íslandi fyrir Rank
Xerox ljósritunarvélar af Nýherja.
Varahluta- íhluta- og viðgerðar-
þjónusta fyrir Rank Xerox færist í
áföngum frá Nýherja til Optima
og verður að fullu komin á hend-
ur fyrirtækisins um næstu ára-
mót.
Að sögn Þorsteins Jónssonar,
sölustjóra Optima, gerir Rank
Xerox mjög strangar kröfur um
þjónustu við kaupendur og eig-
endur véla af þessari gerð og við-
hald vélanna. „Þetta er eina fyrir-
tækið í heiminum sem framleiðir
sjálft alla hluta vélanna og allt
sem til þeirra þarf. Rank Xerox
vandar mjög til framleiðslunnar
og til allrar þjónustu við kaupend-
ur vélanna og við teljum að það sé
rós í hnappagat fyrirtækis okkar
að því sé falið umboðið fyrir Rank
Xerox. Þá gerir Rank Xerox mikl-
ar kröfur um fyrirbyggjandi við-
hald vélanna og er það fram-
kvæmt eftir fyrir fram gerðu
prógrammi sem er svipað við-
haldsprógrammi flugvéla," segir
Þorsteinn Jónsson.
Fyrirtækið Optima hefur um
langt skeið verið sérhæft í skrif-
stofuvélum og var fyrst fyrirtækja
hér á landi til að flytja inn og
selja ljósritunarvélar árið 1953.
Árið 1965 fékk fyrirtækið umboð
fyrir Nashua ljósritunarvélar sem
nú heita Nashuatec og eru hund-
ruð þeirra í notkun um allt land.
-SÁ
Verðbréfaþing íslands:
Tæknival komið
á skrá á Verð-
bréfaþingi
Hlutabréf Tæknivals hafa verið
skráð á Verðbréfaþingi íslands og
er það í fyrsta sinn sem tölvufyr-
irtæki fær skráningu á þinginu.
Forsvarsmenn Tæknivals telja að
skráningin sé mikill ávinningur
fyrir Tæknival og styrki það og
skapi færi á að ná betri kjörum á
fjármagnsmarkaði.
Fyrr í sumar vár hlutafjárút-
boð í Tæknivali á vegum verð-
bréfadeildar Búnaöarbankans fyr-
ir 20 milljónir króna en tilgangur-
inn var að fjölga hluthöfum og
atyrkja almenna fjárhagsstöðu
fyrirtækisins. Hlutafjárútboðið
var lokaskrefið að því takmarki
að skrá Tæknival á Verðbréfa-
þingi íslands. Öll hlutabréfin
seldust á þremur dögum á geng-
inu 3,95.
Tæknival er stærsta tölvu- og
hugbúnaðarfyrirtæki á íslandi.
Velta þess var 1,5 milljarðar
króna á síðasta ári og hcifði auk-
ist um 50% frá árinu þar á undan.
Starfsmenn eru 140 og hlutafé er
120 milljónir króna að nafnverði.
-SÁ
Aðalfundur ísal:
338 milljóna
hagnaöúr
Ársreikningar Isal 1995 voru
samþykktir á aðalfundi félagsins
í síðustu viku en samkvæmt þeim
var hagnaður af rekstrinum 338
milljónir króna eftir afskriftir
sem námu 750,9 milljónum króna,
greiðslu framleiðslugjalds í ríkis-
sjóð upp á 633,8 milljónir kr. og
greiðslufærslu skattskuldbind-
inga upp á 318,1 milljón kr.
í skýrslu forstjóra kemur fram
að gert er ráð fyrir 3% fram-
leiðsluaukningu á þessu ári.
Hagnaður á fyrri helmingi ársins
nam 400 milljónum eftir gjald-
færslu á framleiðslugjaldi að upp-
hæð 180 milljónir króna og skatt-
skuldbindinga að upphæð 35
milljónir króna.
Stjórn félagsins er óbreytt frá
síðasta ári. -SÁ