Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1996, Síða 8
Utlönd
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996
Stuttar fréttir dv
Flugslysiö viö Long Island:
Misvisandi fregnir
um orsök slyssins
Enn er ekki hægt aö segja um með
vissu hvað grandaði flugvélinni úti
fyrir ströndum Long Island á
fimmtudaginn. Misvísandi upplýs-
ingar af rannsókn málsins berast nú
til gölmiðla. Flestir telja enn að um
sprengju hafi verið að ræða og það
vakti því athygli þegar Bill Clinton
Bandaríkjaforseti sagði í gær að
hann gæti ekki staðfest fregnir um
að sprengjuleifar hefðu fundist á
braki vélarinnar.
„Það eru efnaleifar á flakinu sem
búið er að rannsaka en samkvæmt
þeim skýrslum sem ég hef fengið, og
ég fæ skýrslur reglulega, get ég ekki
sagt að sönnunargögn sýni enn fram
á orsök slyssins," sagði Bill Clinton í
gær.
Talsmaður Hvíta hússins tók í
sama streng.
„Við höfum ekki enn þá fundið
efnaleifar sem bent hafa til að um
sprengju hafi verið að ræða. Rann-
sóknir sýna engar leifar af
sprengju.“
Rannsóknarmenn og fjölmiðlar
virðast samt enn ganga út frá því að
um hryðjuverk hafi verið að ræða.
James Kallstrom, sem sér um rann-
sóknina fyrir hönd alríkislögregl-
unnar, sagði í gærkvöld að hann úti-
lokaði ekkert.
„Ég hélt að ég hefði tekið það
skýrt fram í gærkvöld að við rann-
sökum þetta eins og um sprengju eða
eldflaugarárás hafi verið að ræða.
Við höfum sönnunargögn sem benda
i þá átt,“ sagði Kallstrom. Fregnir
um að kafarar hefðu fundið allt að
hundrað lík til viðbótar í braki vél-
arinnar voru bornar til baka í gær-
Hér má sjá eiginkonu manns sem
fórst í flugi PWA 800 við Long Isiand
bíða eftir upplýsingum um orsök
slyssins.
kvöld.
„Við höfum ekki fundið nein lik
sem ekki hefur verið komið i land,“
sagði talsmaður björgunarmanna.
Þessar misvísandi fréttir af gangi
mála hafa enn aukið á angist ætt-
ingja og vina þeirra sem fórust i
slysinu. Tvær fjölskyldur hafa þegar
ráðið lögfræðinga sem unnu að
skaðabótamáli fyrir fjölskyldur fórn-
arlamba Lockerbie-slyssins árið
1988.
„Fólkið spyr hver réttur þess sé og
hvers vegna það fái engin svör,“ seg-
ir Lee Kreindler, einn lögmannana.
í dag munu kafarar svo rannsaka
brak úr vélinni sem fannst nýlega.
Einnig verður mikil áhersla lögð á
að finna svörtu kassana tvo sem
innihalda upplýsingar um flug vélar-
innar.
MORE O'FERRALL
B 8 46
Auglýsingaskilti, með mynd af þremur nöktum konum sem hylja geirvörtur sínar með töppum af Perrier-vatnsflöskum, hefur hér verið atað málningu. Kven-
réttindasamtök í Evrópu hótuðu víðtækum aðgerðum gegn framleiðanda Perrier hætti hann ekki við auglýsingaherferðina. Sögðu konurnar auglýsinguna
bera vott um karlrembu og kvenfyrirlitningu. Peir hjá Perrier gáfu eftir og tilkynntu í gær að hætt yrði við auglýsingaherferðina sem átti að vara til júlíloka.
Símamynd Reuter
Blaðafulltrúi
Díönu hættur
Blaðafulltrúi Díönu, prinsessu af
Wales, sagði starfi sínu lausu í gær.
Jane Atkinson, 48 ára og þriggja
barna móðir, tilkynnti um uppsögn
sína í handskrifuðu bréfi til Díönu.
Metur Díana stöðuna svo að ekki sé
lengur þörf fyrir blaðafulltrúa.
Uppsögnin hefur ýtt undir getgát-
ur þess efnis að konumar hafi rifist
vegna ákvörðunar Díönu um að
hætta stuðningi við 100 góðgerðar-
samtök. Sú ákvörðun var gagnrýnd
í breskum fjölmiðlum sem sögðu Dí-
önu einfaldlega hafa farið í fýlu yfir
að hafa tapað sæmdarheitinu Yðar
konunglega hátign. Reuter
Árangursríkur fundur Arafats með Levy:
Fundurinn kom friðar-
viðræðunum af stað
Friðarferlinu í Miðausturlöndum
var komið á sporið á ný eftir fund
Davids Levys, utanríkisráðherra
ísraels, og Yassers Arafats, forseta
Palestínu, á Gazasvæðinu í gær. Er
þetta i fyrsta sinn sem ráðherra úr
nýrri harðlínustjórn í ísrael hittir
Arafat að máli.
Einn af ráðherrum Arafats sagði
að á fundinum, sem stóð í hálfan
Til sölu við Álftamýri
Mikiö endurnýjuö og falleg íbúö í nýmáluöu fjölbýlishúsi.
Parket á stofu, flísal. baöherb., tvö svefnherbergi.
Verö 6,5 millj., áhv. 3.450 þ. í hagst. langtímaláni.
Fyrstur kemur.............
Ársalir ehf. - Fasteignasala
Lágmúla 5-108 Reykjavík
553 4200 - 852 0667 - 567 1325
David Levy, utanríkisráöherra Isra-
els, á blaðamannafundi eftir fund
sinn meö Yasser Arafat.
Símamynd Reuter
annan tíma, hefði verið gerð alvar-
leg tilraun til að koma friðarviðræð-
unum aftur af stað.
Friðarviðræður ísraela og araba
strönduðu þegar Benjamin Netanya-
hu bar sigurorð af Simoni Peres í
kosningunum í lok maí og síðan
hafa arabar verið mjög uggandi um
framhaldið. Ástæða þess var að Net-
anyahu virtist ekki vilja hitta Ara-
fat, sem átt hefur ótal fundi með
Peres og forvera hans, Itzhak Rabin,
auk þess sem Netanyahu hafnaði
þeirri meginstefnu í friðarferlinu sl.
fimm ár að skila hernumdu landi í
skiptum fyrir frið.
Eftir fundinn með Arafat sagði
Levy að þeir hefðu ákveðið nánar
um samskipti sín og ramma um
ferkara starf að friði. Arafat sagði
þá félaga hafa ákveðið að framtíðar-
samskipti myndu eiga sér stað á öll-
um stjómunarstigum.
Embættismaður úr sveit Arafats
sagði að meinnirnir hefðu strax náð
mjög vel saman á fundinum. Reuter
Tilraunabann
Þrýstingur eykst nú á Kínverja
að samþykkja málamiðlunarsam-
komulag um bann við tilraunum
með kjarnorkuvopn.
Major breytir
John Major,
forsætisráð-
herra Bret-
lands, hefur
fært nokkra
ráðherra til í
starfi eftir að
tveir ráðherrar
sögðu af sér.
Svangur maður flýr
Bóndi frá Norður-Kóreu flýði
suður yfir landamærin nýlega til
þess að forðast hungurdauða.
Herða eftirlit
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
samþykkti í gær að herða refsiað-
gerðir gegn íran og Libíu.
Blaðamaður boðflenna
Blaðamaður frá New York Post
var handtekinn fyrir að þykjast
vera frændi eins fómarlamba
PWA flúgslyssins. Þetta gerði
hann til að geta verið innan um
sorgbitnu fjölskyldur og skrifað
fréttir um harm þeirra.
Vissu um hættu
Evrópusambandið vissi um
það þegar i byrjun júní að kúa-
riða gæti sýkt sauðfé.
Heimta bann
Bandarískir framleiðendur
kindakjöts hafa heimtað að bann-
að verði að flytja inn allt erlent
kindakjöt eftir fregnir um riðu-
veiki í Evrópu.
Klein rekinn
Newsweek
hefur vikið Joe
Klein, sem
skrifaði bók
um kosning-
abaráttu Bills
Clintons, tíma-
bundið frá
störfum.
Spurningar
hafa vaknað um trúverðugleika
Kleins, sem er stjórnmálaskýr-
andi, eftir að hann neitaði alltaf
statt og stöðugt að hafa skrifað
bókina.
100 ára rithöfundur
Brasilískur rithöfundur, sem
er nær hundrað ára og enn er
gefinn út, komst í heimsmetabók
Guinness nýlega sem elsti Brasil-
íumaðurinn sem skrifað hefur
bók.
Viðurkennir morð
Heimilislaus maður viður-
kenndi í gær að hafa nauðgað og
myrt þrettán ára breska stúlku á
farfuglaheimili i Frakklandi á
fimmtudaginn.
Finna póst
Leitarmenn á slysstað við
Long Island i Bandaríkjunum
fundu yfir þúsund kíló af pósti i
flaki flugvélarinnar í gær.
Hermaður deyr
Hermaður Nato lést I bilslysi í
Bosníu í gær.
Norömenn hjálpa Búrúndí
Norðmenn
hafa aukið að-
stoð sína við
Búrúndí og Rú-
anda og eru nú
helstu styrktar-
aðilar land-
anna.
Alnæmislyf virka vel
Blanda af alnæmislyfjum hefur
gefið mjög góða raun í prófunum
að undanförnu. Þetta kom fram
hjá lyfjafyrirtækinu.
Hvetja til friðar
Helsti flokkur kaþólikka á
Norður-írlandi hvatti í gær mót-
mælendur til að hætta mótmæla-
aðgerðum.