Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1996, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996
9
Utlönd
Öryggisgæsla í molum í Atlanta:
Vopnaður maður komst
inn á leikvanginn
- þar sem Bill Clinton var meöal áhorfenda
Yfírmaður öryggismála í Atlanta
viðurkenndi í gær að öryggisgæsla
hefði farið verulega úrskeiðis við
opnunarathöfn Ólýmpíuleikanna.
Fimmtíu og fimm ára gamall mað-
ur, Roland Atkins, komst þá vopn-
aður inn á öryggissvæði, dulbúinn
sem vörður. Bill Clinton, forseti
Bandarikjanna, var við opnunarat-
höfnina ásamt fjölda annarra þjóð-
arleiðtoga en búið var að handtaka
manninn áður en forsetinn kom á
staðinn.
Maðurinn, sem bar á sér skamm-
byssu og mikið af skotfærum, komst
fram hjá öryggisvörðum með því að
sannfæra þá um að hann væri sjálf-
ur vörður. Hann var kominn inn á
svæðið um klukkutíma áður en at-
höfnin átti að hefjast en þá voru eft-
irlitsmenn ekki enn þá búnir að
setja upp málmleitartæki við inn-
ganginn.
„Ef hann hefði komið klukku-
stund seinna hefði þetta ekki gerst.
Þetta var spurning um tímasetn-
ingu, sagði Dick Yarborough, sam-
skiptafulltrúi leikanna.
Atkins, sem er á sakaskrá fyrir
ýmsa smáglæpi, var handtekinn af
lögreglumanni sem fannst hann
grunsamlegur. Hann spurði hann
nokkurra spurninga og kallaði
leyniþjónustumenn til.
„Það eina sem ég get sagt er að
þetta var fyrsta kvöldið. Við erum
orðnir miklu betri núna,“ sagði
Dick Yarborough og varði þá
ákvörðun að gera atvikið ekki opin-
bert fyrr.
„Viö litum svo á að málinu væri
lokið,“ sagði Yarborough.
Þetta atvik er aðeins það seinasta
í röð mistaka og lélegrar skipulagn-
ingar sem einkennt hafa Ólympíu-
leikana. Flutningar á keppendum,
blaðamönnum og áhorfendum hafa
verið í molum og tölvkerfi leikanna
hafa verið mjög óáreiðanleg. Erlend-
ir blaðamenn eru nú þegar farnir að
kalla þetta „Ólympíuleika mistak-
anna“. Reuter
Taíland:
Búddamunk-
ur nauðgaði
japönskum
túrista
Lögregla í Taílandi hefur hand-
tekið fyrrum búddamunk fyrir að
nauöga og ræna japanskan túrista.
Maðurinn, sem hætti sem munkur
fyrir þremur dögum, var handtek-
inn eftir að 16 ára japönsk stúlka
hafði kært nauðgunina til lögreglu.
Sagði stúlkan að maðurinn hefði
tælt sig til að skoða Wat Tamkha-
opoon hofið og síðan veist að sér.
Lögregla segir að maðurinn, sem
er 18 ára, sé fíkniefnaneytandi og
hafi viðurkennt að hafa ætlað að
ræna stúlkuna svo hann ætti fyrir
fikniefnum.
Stúlkan prísar sig sæla því
búddamunkur rændi og myrti 23
ára breska stúlku í sama hofi í
fyrra. Sá var dæmdur til dauða en
fékk síðar lífstíðarfangelsi. Reuter
Eldingu
laust niður
í garöveislu
Elísabetar
Tvær miðaldra konur, sem
sóttu garðveislu Elísabetar drottn-
ingar á flötum Buckinghamhallar
í gær, rotuðust þegar eldingu laust
niður í garðinn. Konurnar voru í
hópi 8 þúsimd gesta og fengu strax
meðferð viö losti.
Sjúkraliði sem kom á vettvang
sagði að eldingu hefði aldrei áður
lostið niður i Buckinghamhöll svo
vitað væri. Hann og starfsfélagar
hans þyrftu í mesta lagi að annast
konur sem hefðu fengið hælsæri
eða blöðrur eftir að hafa tiplað á
hælaháum skóm um hallarlóðina.
Lögregluþjónn á staðnum bar kon-
unum kveðju Elísabetar drottn-
ingar og óskir um góðan bata.
Annars staöar í London uröu 10
ítalskir nemendur í skólaferðalagi
að fara í sjúkrahús eftir að eld-
ingu laust niður við bakka
Thames-ár. Reuter
DÚNDUR-ÚTSALA
DIRNAR:
Skiphohi 19 Grensósvegi 11
Skni: 552 9800 Smb5886886
AUK/D ÚRVAl - BETRA VERÐ /
Söngvarinn Michael Jackson leit inn á barnaspítala í heimsókn sinni til Ungverjalands í gær og dreiföi þar leikföng-
um meöal barnanna. í heimsókninni til Ungverjalands, sem farin er til aö kynna væntanlega tónleikaferö, hitti
Jackson sex ára dreng sem var bjargað frá dauða í lifraraðgerð í fyrra. Hann á Jackson líf sitt að launa því söngvar-
inn fjármagnaöi aðgeröina. Símamynd Reuter
Forsætisráðherra Japans krefst aðgerða:
LCiTCsiiw
Stulka og eldri kona látnar
vegna matareitrunarinnar
Matareitrunarfaraldurinn í Jap-
an hélt áfram að herja á fólk í Jap-
an í gær og tók óvænta stefnu þegar
10 ára skólastúlka og 85 ára gömul
kona létust eftir stutta sjúkrahús-
vist. Þúsundir hafa sýkst af vei-
runni sem veldur eitruninni. Ryut-
aro Hashimoto forsætisráðherra er
sleginn yfir ráðaleysi yfirvalda
gagnvart faraldrinum. Kallaði hann
formann japönsku læknasamtak-
anna á sinn fund og krafðist að-
gerða.
Stúlkan og konan eru fyrstu fóm-
arlömb faraldursins sem hófst í bog-
inni Sakai 11. júlí. Þá veiktust þús-
undir skólabama eftir að hafa neytt
skólamáltíða. Alls hafa 11 látist úr
matareitrun í Japan það sem af er
sumri en heilbrigðisyfirvöld áætla
að hátt í 10 þúsund manns hafi
sýkst. Einkennin eru mikill niður-
gangur, uppköst og hiti og hætta er
á nýmaskemmdum.
í gærkvöld vom um 600 manns á
sjúkrahúsi vegna eitrunarinnar,
þar af 70 í lífshættu. Um 6.400 böm
hafa sýkst í faraldrinum sem hófst í
Sakai.
Reuter
9 0 4 - 5 0 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
Þú þarft aðeins eitt símtal
í Lottósíma DV til að fá nýjustu
tölur í Lottó 5/38, Víkingalottó
og Kínó ♦
UmÓsíMi
9 0 4 - 5 0 0 0
Tekið er við smáauglýsingum
til kl. 22 í kvöld
núna!
Smáauglýsingar