Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1996, Page 14
14
íþróttir
k
Fluttur á sjúkrahús
Þjóðverjinn Thoraas Bech,
sem sæti á í Alþjóða ólympíu-
nefndinni, var í gær fluttm- á
sjukrahús eftir vægt hjartaáfall
sem hann fékk þegar hann var
að spila tennis. Bach, sem er 42
ára, vann til gullverðlauna í
skylmingum með þýsku sveit-
inni á Ólympiuleikunum árið
1976 og var í síðustu viku kosinn
í Alþjóða ólympíunefhdina.
Kerri Strug
fótbrotin?
Síðasta stökkið í liðakeppni
kvenna í fímleikum í nótt verður
bandarísku stúlkunni Kerri
Strug eflaust lengi minnisstætt.
Með glæsilegu stökki tryggði
hún bandaríska liðinu gullverð-
launin eftir æsispennandi bar-
áttu við rússneska liðið. Þegar
hún lenti eftir stökkið meiddist
hún alvarlega á ökkla og sagði,
þegar þjálfarar hennar komu
þjótandi til hennar: „Ég held að
ég sé fótbrotin." -SK
Tók við gull-
inu í gifsi
Kerri Strug var borin út úr
íþróttahöllinni á börum en
mætti síðan á öðrum fæti í
verðlaunaafhendinguna og söng
bandaríska þjóðsönginn með
stöllum sínum í bandaríska
liðinu.
Strug var með vinstri fótinn í
gifsi við verðlaunaafhendinguna
en strax að henni lokinni var
hún flutt á sjúkrahús. Henni
gafst því lítill timi til að fagna
sigrinum með félögum sínum.
-SK
ávi CQP 111 Þjóðir irðlai eftir þjóðum - S £ m «
Bandaríkin 9 12 3
Rússland 9 5 2
Pólland 5 2 1
Kina 4 5 3
Frakkland 4 3 6
ítalla 3 2 3
Suður-Kórea 3 1 2
Tyrkland 3 0 1
Belgía 2 1 1
Suður-Afrflta 2 0 1
írland 2 0 0
Nýja-Sjáland 2 0 0
Kúba 1 5 2
Japan 1 2 0
Ástralla 1 0 5
Úkraína 1 0 2
Rúmenia 1 0 1
Armenia 1 0 0
Kosta Ríka 1 0 0
Kasakhstan 1 0 0
Þýskaland 0 6 9
Hvíta-Rússland 0 3 1
Gríkkland 0 2 0
Brasilia 0 1 2
Svíþjóð 0 1 1
Austurríki 0 1 0
Bretland 0 1 0
Finnland 0 1 0
Norður-Kórea 0 1 0
Spánn 0 1 0
Úsbekistan 0 1 0
Ungverjaland 0 0 5
Búlgaria 0 0 4
Holland 0 0 4
Kanada 0 0 2
Georgía 0 0 1
Moldavía 0 0 1
Júgóslavia 0 0 1
Ath.: 2 brons eru veitt í júdó og hnefaleikum.
Liö Bandaríkjanna sem sigraöi í nótt í liöakeppni kvenna í fimleikum. Lengst til hægri hedur þjálfari liösins, Bela
Karolyi, á Kerri Strug sem kom mikiö viö sögu í lokin og er líklega fótbrotin. Símamynd Reuter
Liðakeppni kvenna í fimleikum:
Naumur sigur
bandarísku
stúlknanna
Bandarísku stúlkurnar tryggðu
sér í gærkvöld gullverðlaunin í liða-
keppni kvenna í fimleikum, vel
studdar af 35.000 þúsund áhorfend-
um 1 fímleikahöllmni í Atlanta.
Rússnesku stúlkumar, sem háðu
harða keppni við þær bandarísku,
hlutu silfurverðlaunin og þær rúm-
ensku bronsið.
Liðakeppnin var mjög dramatisk
og réðust úrslitin ekki fyrr en í síð-
ustu umferðinni. Þá hlekktist
tveimur rússneskum stúlkum á i
æfingum á jafnvægisslá á sama
tíma og þær bandarísku náðu að
klára stökkæfingamar með sóma.
Bandarísku stúlkumar hlutu
samtals 195,556 stig, þær rússnesku
fengu 195,108 stig rúmensku stúlk-
umar hlutu 194,608 stig.
„Þetta er án efa ánægjulegasta
stundin í lífi mínu og ömgglega hjá
stelpunum líka. Maður er varla far-
inn að átta sig á þessum úrslitum og
það tekur ömgglega einhverja daga
að ná þessu. Við vissum alltaf að
við gætum þetta og stuðningurinn
sem við fengum var ómetanlegur,"
sagði Mary Lee Tracy, aðstoðar-
þjálfari bcmdaríska liðsins, eftir að
úrslitin voru ljós en þetta er í fyrsta
sinn sem Bandaríkin vinna gull-
verðlaun í liðakeppni Ólympíuleik-
anna.
Rússnesku stúlkumar gátu ekki
leynt vonbrigðum sínum með úrslit-
in, tárin streymdu niður vanga
þeirra og þær áttu erfitt með að
kyngja því að þurfa að lúta í lægra
haldi fyrir stöllum sínum frá
Bandaríkjunum.
-GH
A-riðill:
Japan-Kína.............75-72
Italía-Kanada .........59-54
Rússland-Brasilia......68-82
B-riðill:
Bandaríkin-Úkraína .. . 98-65
Ástralía-Zaire.........91-45
Kúba-S.-Kórea..........78-55
I Atlanta er í fyrsta skipti keppt í svokölluðu strandbiaki á Ólympíuleikum.
Fyrstu leikirnir fóru fram í gær og skemmtu margir áhorfendur sér vel viö
aö berja föngulegar stúikurnar augum. Myndin hér aö ofan var tekin í leik
Brasilíu og Indónesíu en Brasilía vann, 15-2. Símamynd Reuter
Knattspvrna karla:
C-riðill:
S.-Kórea-Mexíkó.........0-0
Ghana-Ítalía.............3-2
Mexíkó 4 stig, Suður-Kórea 4,
Ghana 3, Ítalía 0.
D-riðill:
Brasilía-Ungveijaland .... 3-1
Japan-Nígería............0-2
Nígería 6 stig, Brasilía 3, Japan
3, Ungverjaland 0.
Knattsovma kvenna:
E-riðill:
Danmörk-Kina............1-5
Bandaríkin-Svíþjóð .....2-1
F-riðill:
Brasilía-Japan..........2-0
Noregur-Þýskaland ......3-2
Blak karla:
A-riðill:
Kúba-Pólland............3-0
Brasilía-Búlgaría.......0-3
Argentína-Bandaríkin ... 0-3
B-riðill:
Holland-Rússland........3-0
Ítalía-Túnis.................3-0
Júgóslavia-S-Kórea ..........3-0
3. Þýskaland............3:17,20
200 m bringusund kvenna:
1. Penny Heyns, S-Afr...2:25,41
2. Amanda Beard, Band. ... 2:25,75
3. Agnes Kovacs, Ungv....2:26,57
100 m flugsund kvenna:
1. Amy van Dycken, Band. . . 59,13
2. Limin Liu, Kína.......59,14
3. Angel Martino.........59,23
Körfubolti kvenna:
Sund:
400 m skriðsund karla:
1. Danyon Loader, Band. ... 3:47,97
2. Paui Palmer, Bretl.....3:49,00
3. Daniel Kowalski, Ástr. . . 3:49,39
100 m baksund karla:
1. Jeff Rouse, Band........54,10
2. Falcon Cabrera, Kúbu .... 54,98
3. Neisser Bent, Kúbu......55,02
4x100 m skriðsund karla:
1. Bandaríkin ...........3:15,41
2. Rússland..............3:17,06
MIÐVIKUDAGUR 24. JULI1996
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996
35
íþróttir
ítalirnir eru á heimleið
- og Brasilía stendur tæpt þrátt fyrir sigur
ítalir ætla ekki að gera það endasleppt í knattspymunni í ár. Þeir hurfu
snemma heim úr Evrópukeppninni á Englandi í síðasta mánuði og í nótt tapaði
Ólympíuliðið þeirra, 3-2, fyrir Ghana og getur þar með farið að pakka saman í Atl-
anta eftir tvo ósigra. Mexíkó, Ghana og Suður-Kórea berjast um sætin tvö í 8-liða
úrslitunum.
Brasilía vann Ungverjaland, 3-1, með mörkum frá Ronaldo, Juninho og Bebeto
en er hvergi nærri örugg með að komast áfram. Brasilíumenn mæta hinu sterka
liði Nígeríu í lokaumferð riðlakeppninnar og þurfa á sigri að halda.
Eykst aðsókn
karlmanna?
Landslið Ástralíu í
körfuknattleik kvenna hefúr
tekið upp á því að mæta til leiks
í níðþröngum búningum.
Þær áströlsku vilja freista
þess að auka aðsókn á leiki sína
og vilja með nýju búningunum
sérstaklega höfða til karlmanna.
-SK
„Veit ekkert um hana“
- segir Elsa Nielsen sem keppir í dag
„Ég veit mjög lítið um andstæðing minn og hef aldrei séð hana spila,“
sagði badmintonleikarinn Elsa Nielsen sem leikur í dag gegn tælenskri
stúlku í 1. umferð einliðaleiks kvenna í badminton í Atlanta.
Tælenska stúlkan er í 15. sæti á styrkleikalista keppendanna í Atlanta
en Elsa er í 32. sæti á listanum. „Ég er búin að æfa mjög vel og er í mjög
góðri æfingu líkamlega. Mér hefúr gengið mjög vel á æfingum hér í
Atlanta og nú er bara að sjá hvernig undirbúningurinn skilar sér þegar
út í alvöruna er komið,“ sagði Elsa Nielsen. -MT
„Eg var alls ekki
nægilega grimmur"
- Logi Jes og Eydís nokkuö frá sínu besta í sundinu
DV, Atlanta:
Logi Jes Kristjánsson og
Eydís Konráðsdóttir kepptu
bæði í sundi á ÓLympíuleik-
unum í Atlanta í gær.
Þau syntu nokkuð frá
sínum bestu tímum en Eydís
náði þó lágmarkinu fyrir
Evrópumeistaramótið á
næsta ári.
Logi Jes synti 100 metra
baksund á 58,53 sekúndum
sem er tæpri sekúndu undir
hans hesta tíma. Hann varð í
sjötta sæti í sínum riðli af
átta keppendum. Keppendur
voru 53 talsins í undanrásun-
um og var Logi Jes með 40.
besta tímann.
Eydís Konráðsdóttir varð í
29. sæti af 44 keppendum en
hún synti 100 metra flugsund
á 1:03,41 mínútu sem er
hennar 3. besti tími.
„Byrjaöi of hægt“
„Ég var alls ekki nægilega
grimmur í þessu sundi. Eg
fann eftir 50 metra að ég fór
of hægt'af stað. Ég reyndi
slðan að bæta við hraðann
en það dugði ekki til,“ sagði
Logi Jes Kristjánsson eftir
100 metra baksundið í gær.
„Ég var mjög strekktur
fyrir þetta sund og fór afsíð-
is fyrir keppnina og reyndi
þar að slaka vel á. Það getur
verið að ég hafi verið orðinn
of rólegur þegar kom að
sundinu. Mér leið hins vegar
vel í upphituninni og hún
gekk vel.
Maður verður þrátt fyrir
tímann að líta á björtu hlið-
amar. Það er gífurlega mikið
innlegg á reynslubanka-
reikninginn að keppa á
svona stórmóti en þetta var
mitt fyrsta stórmót. Fram
undan er hlé en síðan byrja
æfingar aftur fljótlega fyrir
EM,“ sagði Logi Jes Krist-
jánsson.
-MT
—
Penny Heyns frá Suöur Afríku er sundkona Ólympiuleikanna til þessa ásamt írsku
sundkonunni Michelle Smith. Heyns vann önnur guliverðlaun sín á leikunum í nótt er hún
sigraði af nokkru öryggi í 200 metra bringusundi. Hér fagnar hún sigrinum meö verðlaun
aö bringusundinuloknu. Símamynd Reuter
Eydís Konráðsdóttir:
„Var sátt viö sundið hjá mér”
„Ég var sátt við sundið hjá mér þegai- ég kom við bakkann og þetta var eitt besta
morgunsund hjá mér. Ég náði að keyra upp hraða í lokin þegar ég sá að sundkonan á
2. brautinni var að skríða fram úr mér. Ég var hissa hvað ég var afslöppuð og þetta
var allt annað en þegar ég var aö keppast við að ná lágmarkinu.
Ég hugsaði bara um sundið rétt áður en ég stakk mér og að laugin væri vinur minn.
Nú þegar þetta er búið ætla ég að njóta þess að vera hér úti og slaka á eftir erfiðar æf-
ingar,” sagði Eydís Konráðsdóttir eftir 100 metra flugsundið.
-MT
Jeff Rouse frá Bandaríkjunum, lengsttil vinstri, fagnar langþráöum gullverölaunum á Ólympíuleikum í 100 metra
baksundi. Á ÓL1988 og 1992 missti hann óvænt af gullinu en tókst loks aö innbyröa þaö í nótt. Tveir Kúbumenn
lentu í næstu sætum og unnu til fyrstu verðlauna Kúbu í sundi á ÓL. Símamynd Reuter
11
Arangurinn hefur komið
skemmtilega á óvart“
- Penny Heyns og Daynon Loader unnu sín önnur gullverðlaun í sundinu í nótt
Penny Heyns gerði sér lítið
fyrir í 200 metra bringusund-
inu í Atlanta í nótt og krækti í
önnur gullverðlaun sín á leik-
unum. Heyns synti þessa vega-
lengd frábærlega vel og setti
nýtt Ólympíumet.
Hún hefði eflaust sett nýtt
heimsmet ef keppninautar
hennar í sundinu hefðu veitt
henni meiri keppni. Svo var
ekki því yfirburðir Heyns voru
umtalsverðir.
í undanrásum sundsins fyrr
um daginn setti Heyns Ólymp-
iumet og bætti það síðan aftur
í nótt. Amanda Beard frá
Bandaríkjunum lenti i ööru
sæti sundsins í nótt og ung-
verska stúlkan Agnes Kovac
vann bronsverðlaun en hún er
aðeins 14 ára að aldri.
Þessi suðurafríska sund-
kona hefur skráð nafn sitt í
sögu sundsins á Ólympíuleik-
um með árangri sínum í Atl-
anta.
Hún varð á sunnudaginn
fyrsti suðurafríski íþróttamað-
urinn til að vinna gull á
Ólympíuleikum í 44 ár.
Eftir sigurinn í nótt sagðist
Heyns varla eiga orð og árang-
urinn hefði komið sér
skemmtilega á óvart. „Ég ætl-
aði að standa mig í Atlanta en
árangurinn hefur kannski far-
ið fram úr björtustu vonurn,"
sagði Heyns eftir sigurinn í
nótt.
Daynon Loader frá Nýja-Sjá-
landi var enginn eftirbátur
Heyns i nótt. Hann bætti
einnig við öðrum gullverðlaun-
unum með því að vinna sigur í
400 metra skriðsundi en hann
vann í 200 metra skriðsundi
um síðustu helgi.
Bretinn Paul Palmer varð
annar og Daniel Kowalski frá
Ástralíu lenti í þriðja sæti.
Heimsmethafinn Jeff Rouse
frá Bandaríkjunum vann ör-
uggan sigur í 100 metra
baksundi karla eins og allir
bjuggust við.
Rodolfo Falcon og Neisser
bent frá Kúbu urðu í öðru og
þriðja sæti en þetta eru jafn-
framt fyrstu verðlaun sem
Kúbverjar vinna til í sundinu í
sögu Ólympluleikanna.
„Ég reyndi hvað ég gat til að
slá heimsmetið mitt. Það tókst
ekki en ég er engu að síður
sáttur. Síðustu átta ár í sund-
inu hafa verið góður skóli fyr-
ir mig,“ sagði hinn 26 ára Rou-
se sem tekur þátt í Ólympíu-
leikum í síðasta sinn.
Bandaríska stúlkan Amy
van Dyken háði mikla keppni
við Kínverjann Limin Liu í 100
metra flugsundi og mátti vart
á milli sjá hvor hafði haft sig-
ur.
Van Dyken vann nauman
sigur en sundið var eitt það
jafnasta á leikunum fram að
þessu. Angel Martino frá
Bandaríkjunum hreppti brons-
verðlaunin.
„Þetta var meiriháttar sigur
fyrir mig. Ég lét mig dreyma
um sigur og hann var sætur
þegar til hans kom,“ sagði Van
Dyken eftir sundið.
Bandaríska karlaboðsunds-
sveitin sigraði glæsilega í
4x100 metra skriðsundi og setti
um leið nýtt Ólympíumet.
Rússneska sveitin varð í öðru
sæti og Þjóðverjar tóku brons-
verðlaunin.
-JKS
Með hníf og byssu
Maður vopnaður hníf og byssu
náði að tala sig í gegnum örygg-
isvörslu á opnunarhátíð Ólymp-
íuleikanna áður en hann náðist.
„Maðurinn var stöðvaður af lög-
regluveröi vegna þess að hann
hegðaði sér grunsamlega," sagði
talsmaður lögreglunnar í Atl-
anta. Roland Atkins, 55 ára, var
handtekinn og kærður fyrir
ólöglegan vopnaburð og fyrir að
hafa svindlað sér inn á leikvang-
inn án þess að borga.
Fámennasta þjóöin
Fámennasta þjóðin á leikun-
um í Atlanta er svo fámenn að
það myndi vafalaust fara vel um
hana í Ólympíuþorpinu einu og
sér. En íbúar litlu Kyrrahafseyj-
arinnar Nauru eru samt sann-
færðir um að þeir muni vinna
gullverðlaun á sínum fyrstu
Ólympíuleikum. Þjóðin leggur
traust sitt á lyftingakappa sem
er svo vinsæll að andlit hans er
á frímerkjum þar í landi. Það
eru aðeins 8.000 íbúar á Naum
en keppendur 1 Atlanta eru
10.000.
Leikarnir vinsælli en
trúarbrögö
Juan Antonio Samaranch
neitaði því að hafa sagt að
Ólympíuhreyfingin væri
mikilvægari en kaþólska
kirkjan en sagði hins veg-
ar að hún hefði fleiri
stuðningsmenn heldur en
helstu trúarbrögð í heim-
inum.
Þetta minnir eilítið á fræg
ummæli Johns Lennons
þegar hann sagði að „Bítl-
arnir væru vinsælli en
Jesús.“ Það hafði veriö
vitnað í Samaranch í vik-
unni þar sem hann átti að
hafa sagt þessi umtöluðu
orð. t*
Hvatningarræða
Clintons forseta
Forseti Bandaríkjanna,
Bill Clinton, hélt hvatningar-
ræðu fyrir keppendur frá Banda-
ríkjunum áður en Ólympíuleik-
amir hófúst þar sem hann sagði
þeim að þeir væru fyrirmyndir,
hæði í landi sínu og heimin-
umöllum. „Ég vil að þið vinnið
öll þau verðlaun sem þið getið og
ég vil að þiö vitið að bara það að
sjá ykkur þar sem þið eruð núna
fyllir þjóðina miklu stolti," sagði
Clinton. -JGG
FRÍ:
Leggur til að
Siggi og Pétur
fái að keppa
Frjálsíþróttasamband Islands
sendi í gær Ólympíunefnd ís-
lands greinargerð varðandi
keppnisrétt Sigurðar Einarsson-
ar spjótkastara og Péturs Guð-
mundssonar kúluvarpara á leik-
unum í Atlanta.
Frestur til að draga keppend-
ur út úr keppni á leikunum
rennur út kl. fjögur í dag. Pétur
og Sigurður hafa ekki náð lág-
mörkum í greinum sínum á
þessu ári þrátt fyrir margar til-
raunir en FRÍ krefst þess engu
að síður. að þeir fái að keppa í
Atlanta.