Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996
Neytendur
DV
Kartöflu-
verðið
heldur
lækkandi
íslenskar kartöflur hafa verið
á mjög háu verði undanfarið en
nú eru þær heldur farnar að
lækka. Verðið er mjög misjafnt
og því rétt að athuga það vel. í
Skagaveri á Akranesi kostar
kilóiö af nýjum, íslenskum kart-
öflum 89 kr. en var á 98 kr. 1
Bónusi kostar kílóið 99 krónur í
lausri vigt en 114 krónur í
tveggja kílóa pokum.
Víða eru kartöflumar mjög
dýrar enn þá, til dæmis kostar
gullauga 171 krónu kílóið í
tveggja kílóa pokum í Vöruhúsi
KB i Borgarnesi. í 10-11 kostar
gullauga 138 krónur kílóið, rauð-
ar 139 kílóið í tveggja kilóa pok-
um. í Hagkaupum kosta rauðar
kartöflur 149 krónur kílóið og
gullauga 159 kílóiö.
Samkvæmt upplýsingum
Neytendasiðunnar er þó ekki bú-
ist við meiri verðlækkun fyrr en
um mánaðamótin þegar fram-
boðið eykst til muna. -ÞK
Síldin löör-
andi í sykri
Neytandi hafði samband við
Neytendasíðuna og vildi vekja
athygli á sykri í unnum matvör-
um. Sífellt væri verið að hvetja
fólk til að minnka sykurát og
borða hollan mat og talað um að
börnin drykkju mikið kók og
borðuðu sælgæti.
Hann sagðist hafa verið í sum-
arbústað um daginn með fjöl-
skyldunni og með í farangrinum
hefði meðal annars verið krukka
af sild með girnilegu nafni. Rúg-
brauð og smjör var til staðar.
Þegar síldin var brögðuð kom í
ljós að hún var mjög sæt.
Umræddum neytanda finnst
orðið erfitt að varast sykur ef
hann er meira að segja að flnna
í síld. Sagðist hann hafa farið að
hugsa til annarra tegunda unn-
innar matvöru, til dæmis mjólk-
urvöru og sósu sem fæst í pökk-
um og er ætluð út á kjöt. -ÞK
Berjauppskriftir
„Fyrir skömmu kom upp tilvik
þar sem barn reyndist vera sýkt af
bakteríu sem við höldum að hafi
komið frá ógerilsneyddri mjólk sem
verið var að bjóða upp á verslun í
Reykjavík," segir Ólafur Stein-
grímsson, yfirlæknir sýkladeildar
Landspítalans.
„Við reynum að fylgjast vel með
iðrasýkingum sem eru kannski
100-200 tilvik á sumri en eru yfir-
leitt ekkert tiltökumál. Við höfum
þó haft áhyggjur af ógerilsneyddri
mjólk sem bannað er að selja og ég
get ekki ímyndað mér annað en að
bannað sé þá að bjóða upp á hana,“
segir Ólafur og nefnir sem dæmi
dreng sem sýktist í sumar af ábrest-
um.
Ólafur telur ástæðu til að vekja
athygli á þessu því að hann viti að
uppi séu hugmyndir um að selja
ógerilsneydda mjólk sem hann telur
skref aftur á bak í heilbrigðismál-
um. -saa
íspitsur
ísbúðin, Hjarðarhaga 47,
Dairy Queen, selur nú íspitsur
sem eru nýjung hér á landi.
íspitsur hafa notið vinsælda í
Bandaríkjunum að undanförnu
og samkvæmt upplýsingum frá
isbúðinni benda fyrstu viðbrögö
í vesturbænum til svipaðrar
niðurstöðu.
Velja má um fjórar tegundir,
ávaxta-, hnetu og tvær gerðir af
sælgætispitsum. Botninn er
blanda af kexi og súkkulaði sem
Dairy Queen is er lagður á.
Pitsumar em seldar frystar í
sérstökum pitsukössum og má
geyma þær í frysti í nokkra
daga. -ÞK
Þar sem berjatíminn er í fullum
gangi er hér haldið áfram þar sem
frá var horfið síðasta fostudag og
birtar nokkrar berjauppskriftir.
Þessar em allar gamlar og án efa
hafa ýmsir spreytt sig á þeim.
Bláberjaeftirréttur
1 bolli haframjöl
% bolli hveiti
% bolli púðursykur
y2 bolli smjörlíki
1 lítri ber, bláber, t.d.
1 msk. kartöflumjöl
sykur eftir smekk
Blandið haframjöli, hveiti og púð-
ursykri saman. Myljið smjörlíki út í
þar til allt er vel blandað. Látið
helminginn af deiginu í form. Sjóð-
ið ber, kartöflumjöl og sykur saman
og látið þykkna. Hellið í formið og
látið síðan hinn helminginn af
haframjölsdeiginu ofan á. Bakið í 40
mínútur viö 200 gráða hita.
Berið fram með ís
eða þeyttum rjóma.
Súr bláberjasaft
2 kg bláber
3-4 dl vatn
Látið suðuna
koma hægt upp á
berjum og vatni.
Sjóðið þar til
berin hafa sjatn-
að og saftin runn-
ið úr. Hellið berjam-
aukinu í síu úr klút og látið saftina
renna í pott. Sjóðið. Hellið saftinni
gegnum trekt í hreinar, heitar flösk-
ur og lokið strax.
Sæt soðin saft
Saftina má búa til úr hverri teg-
und fyrir sig eða fleiri tegundum
saman.
Tegund kg vatn sykur í 11 af saft
Bláber 1 2-3 dl 250 g
Krækiber 1 l-iy2dl 250 g
Rifsber 1 5 dl 300-500 g
Notið sömu aðferð í byrjun og
við súra bláberjasaft. Mæl-
ið saftina, hellið í pottinn
og látið sjóða. Bætið
sykrinum út í og sjóðið í
um það bil 10 mínútur.
Hellið á flöskur.
Soðið berjahlaup
Tilvalið er að búa til hlaup úr
berjasaft. Hér eru
uppskriftir að blá-
berja- og rifs-
berjahlaupi. Á
móti einum lítra
af saft fara
600-800 g af sykri í
rifsberjahlaup en
800-1000- g í bláberja-
hlaup
Vinnið saftina úr
berjunum. Sjá hér á
undan. Látið suðuna
koma upp á saftinni. Bæt-
ið sykrinum út í og hrærið
vel þangað til allur sykur er runn-
inn. Sjóðið saftina við vægan hita,
hrærið ekki í eftir að sykurinn er
runninn. Ekki er hægt að segja hve
langa suðu saftin þarf til þess að
hlaupa, það fer eftir því hver
þroskuð berin eru, hvað þau hafa
verið soðin í miklu vatni, hve mik-
ið af sykri er notað o.fl. Best verður
hlaupið eftir stutta suðu en suðu-
tíminn er 2-20 mínútur.
Prófið hlaupið með því
að láta dropa
af því á
kaldan
disk. Ef
dropinn verður
seigur þegar
hann er orð-
inn kald-
ur er
hlaupið tilbú-
ið. Sjóðið ekki of lengi, þá missir
hlaupið bragð og lit og saftin hleyp-
ur ekki ef hún er soðin of lengi.
Hellið í lítil glös og látið kólna.
Lokið ekki fyrr en hlaupið er kalt.
Snöggsoðið hlaup
Þetta hlaup er búið til á sama
hátt og soðið hlaup. Þó er sykurinn
ekki soðinn með saftinni. Snöggsoð-
ið hlaup er mjög bragðgott og fallegt
á litinn. Mælið saftina og látið suð-
una koma upp. Setjið sykurinn út í
og hrærið þar til hann er runninn.
Helliö strax í glös og lokið ekki fyrr
en hlaupið er kalt. -ÞK
Nýju réttirnir í 1944 línunni eru tilbúnir á nokkrum mínútum og þess
vegna mjög þægilegir aö grípa til fyrir tímalausa þjóð. DV-mynd JAK
* Nýir 1944 réttir:
Italskir pastatöfrar og kindabjúgu
Sífellt bætast við nýir réttir í
1944 vörulínuna. Að þessu sinni
eru það kindabjúgu í uppstúfl með
kartöflum og ítalskir pastatöfrar,
þ.e. pasta með tómötum, beikoni
og sveppum.
Með þessum tilbúnu réttum
undir vörumerkinu 1944 býður
Sláturfélag Suðurlands úrval rétta
sem eru tilbúnir á örfáum mínút-
um. Framleiðsluaðferðimar gera
kleift að selja réttina kalda en ekki
frosna og er ferskleikinn tryggður
þannig.
Meðal þeirra rétta sem nú eru
fáanlegir í 1944 línunni eru: kjöt í
karríi, lasagne, súrsætt svínakjöt,
bolognese, stroganoff, grjónagraut-
ur, saltkjöt og baunir, indverskur
lambakjötsréttur, kjötbollur í
brúnni sósu, sjávarréttasúpa og
sveppa- og blómkálssúpa. Von er á
fleiri réttum innan tíðar.-ÞK
íslensk börn drekka flest mikið af mjólk en
eru
sennilega ekki vön að drekka hana ógerilsneydda.
Sala á ógerilsneyddri mjólk:
Skref aftur á bak
í heilbrigðismálum
- aö mati Ólafs Steingrímssonar, yfirlæknis sýkladeildar Landspítalans