Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Side 7
FÖSTUDAGUR 16. AGUST 1996 Sandkorn Fréttir Undir fjögur Ekki þarf skarpan mann tö aö komast að þeirri niður- stöðu að ein- eygðir hafi ekki álika góða sjón og þeir sem hafa bæði aug- un i lagi. Það liggur í augum uppi. Eineygðir eru þó færir í flestan sjó nema hvað Sandkomsritari væri hikandi í að stiga upp i flugvél, vitandi um ein- eygðan flugstjóra við stýrið. Til allr- ar hamingju geta eineygðir verið húmoristar líkt og aðrir menn en sagan segir af eineygðum vélstjóra sem kailaður var afsíðis af vinnufé- laga sínum. „Komdu og talaðu við mig undir íjögur,“ sagði vinnufélag- inn, alvarlegur í bragði. Sá eineygði leit í kringum sig og sagði, um leið og hann gjóaði auga til nærstaddrar konu: „Eigum við þá ekki að kalla hana Jónu til lfka?“ Eins og Clinton Fulltrúar ís- lenskra stjóm- valda, Lands- virkjunar og nokkurra fleiri aðila hafa sið- ustu daga fund- að með forráða- mönnum bandariska ál- fyrirtækisins Columbia Ventures. Col- umbia vill reisa álver á íslandi og allt gott um það að segja. Eig- andi Columbia, Kenneth Peterson, gaf hérlendum fjölmiðlum færi á sér skömmu eftir komuna til lands- ins og hitti fulltrúa þeirra hvem á fætur öðrum. Fyrst tóku sjónvarps- stöðvarnar við hann viðtöl og loks settist hann niður með fréttamönn- um útvarpsstöðva og dagblaða. Greinilegt var að honum líkaði at- hyglin ekki illa, enda sagði hann á milli viðtalanna: „Mér líðm1 eins og að ég sé Bill Clinton." Tvíbrotið mannsefni Samfara flölg- andi brúðkaup- um hafa svokölluð Ss -■ steggja- og gæsapartí notiö vinsælda. Mörg- um hefur þó of- boðið að heyra frá ótrúlegum fíflalátum í K feft9S. þessum partí- 1 um. Þannig seg- ir sönn saga af tilvonandi brúð- guma sem fékk ótrúlega meðferð í steggjapartíi. Frá vínarbrauös- og hamborgarakappáti var honum skellt í listflugvél og þaðan í svif- flugu. Næst var honum hent í sjó- inn í Sundahöfn og dreginn af hrað- báti á 60 km hraða. Þá tók við hjólabrettarall þar sem brúðguminn tÚvonandi datt mjög illa. Meiðslin afgreidd sem tognun og steggjarpar- tíið hélt áfram um víðan völl. Áður en farið var á næturklúbb var hækjum reddað á mannsefnið og djammaö fram á nótt. Þrautir í fót- um jukust og loks farið á spítala. Þar var brúðguminn úrskurðaöur tvífótbrotinn og partíið endaði þvi í hjólastól. Þó hann sé tvíbrotinn vonum við að hann veröi ekki einnig „hryggbrotinn“ fyrir framan altariö um helgma! Ársgamla kvígan Mogginn birti litla frétt á mið- vikudaginn um slys í Eyjafjarð- arsveit sem hófst á þessa leið: „Ekið var á ársgamla kvígu....“ Frétt- in vákti strax athygli Sand- komsritara þvi gott var nú að vita að kvígan var ársgömul en ekki fjörgömul. Mogginn sagði jafnframt frá því að kvígan hefði verið frá Kristnesi. Sömuleiðis mjög gott að vita af því nema hvað fjölskylduaðstæður vant- aöi í fréttina. Loks sagði Moggi að kvígan hefði sloppið úr hólfi. Af hverju? Jú, látum Moggann eiga lokaorðið: „...vegna þess að hlið var skilið eftir opið.“ Umsjón: Bjöm Jóhann BJörnsson Heimir Steinsson í klípu með meirihluta útvarpsráðs fylgjandi Lilju Á. Guðmundsdóttur: Markús Örn mælti með Sigurði G. Tómassyni - Lilja hafði stuðning Sjálfstæðisflokks og Kvennalista en framsóknarmenn studdu Sigurð „Það er útvarpsstjóri sem ræður í þessa stöðu. Mér skilst að fram- kvæmdastjóri útvarpsins hafi mælt með því að ég yrði ráðinn áfram. Ég sótti um vegna þess að ég tel að ég hafi skilað góðu starfi á rás 2. Hef rekið þá útvarpsstöð í landinu sem mest er hlustað á og skiptir Ríkisút- varpið miklu máli, hæði hvað efn- isumfjöllun varðar og auglýsinga- tekjur," sagði Sigurður G. Tómas- son í samtali við DV um niðurstöðu útvarpsráðs á miðvikudag í at- kvæðagreiðslu um stöðu dagskrár- stjóra rásar 2. Sigurður hefur gegnt starfinu sl. 4 ár en það var auglýst laust til umsóknar í vor og var Sig- urður á meðal þrettán umsækjenda. Á fundi útvarpsráðs fékk Sigurð- ur 3 atkvæði en Lilja Á. Guðmunds- dóttir, kennari og varaþingmaður Þjóðvaka í Reykjanesi, fékk 4 at- kvæði. Vegna fréttar í DV í gær um atkvæðagreiðsluna hafði Gissur Pétursson, varaformaður útvarps- ráðs og annar fulltrúa Framsóknar- flokksins í ráðinu, samband og sagði það rangt að Framsóknar- flokkurinn hefði klofnað í afstöðu sinni. Þótt atkvæðagreiðslan hefði verið leynileg gæti hann upplýst að báðir framsóknarmennirnir greiddu Sigurði atkvæði sín. Hinn Heimir Steinsson. Markús Orn Antonsson. Siguröur G. Tómasson. Lilja Á. Guð- mundsdóttir. fulltrúi- Framsóknarflokksins í ráð- inu er Kristjana Bergsdóttir. Eftir stendur, og er rétt, að full- trúar Sjálfstæðisflokksins, þær Anna K. Jónsdóttir, Þórunn Gests- dóttir og Laufey Jóhannsdóttir greiddu Lilju atkvæði sín og fjórða atkvæðið til hennar kom frá Þór- unni Sveinbjarnardóttur, fulltrúa Kvennalista. Laufey sat fundinn sem varamaður Gunnlaugs S. Gunnlaugssonar, formanns útvarps- ráðs. Svanhildur Kaaber, varamað- ur Guðrúnar Helgadóttur frá Al- þýðubandalagi, greiddi síðan Sig- urði G. sitt atkvæði. „Mér finnst eðlilegt að þeir sem ekki greiddu mér atkvæði, sem ég veit ekki hverjir voru þar sem at- kvæðagreiðslan var leynileg, geri grein fyrir því hvaða atriði í mínum starfsferli á rás 2 valdi því að þeir treysti mér ekki til áframhaldandi staifa. Að minnsta kosti hef ég ekki fengið athugasemdir frá útvarpsráði til þessa við mín störf,“ sagði Sig- urður en hann átti í morgun fund með Heimi Steinssyni sem frá því í gær hefur rætt við umsækjendur. Útvarpsstjóri í erfiðri stöðu Heimildarmenn DV, sem þekkja vel til í Efstaleitinu, segja Heimi vera í afar erfiðri stöðu. Til þessa hafi hann ekki gengið gegn vilja út- varpsráðs en meðmæli Markúsar Amar með Sigurði hafi sett hann í enn meiri vanda. Vitað hefur verið um þrýsting úr Sjálfstæðisflokknum um að koma Sigurði frá eftir að hann lýsti opinberlega yfir stuðn- ingi við R-listann í síðustu borgar- stjórnarkosningum. Samkvæmt heimildum DV voru gerðar skipulagsbreytingar innan rásar 2 eftir að staða Sigurðar var auglýst laus. Fenginn var skrifstofu- stjóri til að sjá um aðra stjórnun en þá sem lýtur að beinni dagskrár- gerð. Eftir þessa breytingu hafi Markús Öm og Heimir getað sætt sig við Sigurð í starfinu áfram. Markús Örn vildi ekkert tjá sig um málið þegar DV hafði samband við hann, sagði það alfarið í hönd- um útvarpsráðs og útvarpsstjóra. Heimir Steinsson sagði við DV að hann hefði ekki gefið útvarpsráði nein meðmæli. Fyrir fundinn hefði aðeins legið fyrir meðmæli með Sig- urði frá Markúsi Erni. Hann sagðist tilkynna endanlega ákvörðun sina í dag eða á mánudag. Þórunn Gestsdóttir, einn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í útvarpsráði, sagðist vera þeirrar skoðunEu: að breytinga væri þörf á rás 2. Nýir vendir sópuðu best. Sigurður hefði verið ráðinn til fjögurra ára og hann hefði vitað það. Þórunn sagði Lilju vel hæfa í þetta starf, hún hefði góða menntun og reynslu sem nýttist vel í útvarpi. Þórunn sagði það gagnrýnivert að útvarpsráði væri ekki gefinn kostur á að ræða við alla umsækjendur áður en greidd væru atkvæði. -bjb Columbia-menn í viðræöum við Landsvirkjun og stjórnvöld: Meiri líkur á ál- veri hér en áður - segir eigandinn Ken Peterson sem vill einbeita sér að íslandi Ken Peterson, eigandi álfyrirtæk- isins Columbia Ventures, sagði á fundi með blaðamönnum í fyrradag að nýleg ferð hans manna til Venes- úela hefði valdið honum vonbrigð- um en sem kunnugt er hefur Col- umbia sýnt áhuga á að reisa nýtt 60 þúsund tonna álver annað hvort í Venesúela eða íslandi. Peterson og tveir aðrir forráðamenn Columbia eru staddir hér á landi í viðræðum við Landsvirkjun og fulltrúa stjórn- valda. Hann sagði að nú yrði áhersla lögð á ísland og vonaðist eft- ir árangri í þessari ferð. Meiri líkur en áður væru á að álverið risi á ís- landi. Peterson sagði að þættir eins og ódýrt vinnuafl, góð staðsetning og ódýr og nægjanleg raforka hefðu verið helstu kostir Venesúela en ótryggt efnahags- og stjórnmála- ástand gert heildarmyndina ófull- nægjandi. Þeir þættir væru hins vegar íslandi í hag en Columbia á eftir að fjármagna um helming fjár- festingarinnar, eða um 5 milljarða af 10 sem álverið kostar uppsett. Ken sagðist hins vegar ekki geta sagt að Venesúela kæmi ekki lengur til greina, hann gæti fengið hring- ingu þaðan á morgun þar sem öllum óskum Columbia hefði verið full- nægt. Núna væri áhersla lögð á við- ræður við íslendinga og vonast eftir lokaákvörðun innan tveggja mán- aða. Álver Columbia myndi veita um 100 manns atvinnu. „Frá því ég var hérna í október á síðasta ári hefur ýmislegt jákvætt gerst, m.a. verið gert umhverfismat fyrir álver við Grundartanga. Við ætlum okkur núna að fá góða yfir- sýn yfir stöðuna, samningar verða ekki gerðir með vikuheimsókn. Tæknilega séð gætum við byrjað að reisa álverið á morgun en okkur er kunnugt um að Landsvirkjun hefur ekki nægjanlega orku fyrr en eftir tvö. Þetta er eitt af þeim atriðum sem við munum ræða,“ sagði Ken Peterson. Ken og félagar funda áfram í dag með fulltrúum Landsvirkjunar og á morgun hitta þeir Finn Ingólfsson iðnaðarráðherra að máli. -bjb Við qrillið á Aðalstöðinni Innkaupalisti fyrir þó sem aetla aS grilla meS matreiSslumönnum Jónatans Livingston Móvs í þættinum „ViS grilliS" ó ASalstöSinni laugardaginn 17. ógúst, milli kl. 16 og 18. 1 Uppskriftin er fyrir ó manns. Bjórlegnir lambaskankar meb Molasses marineringu. 6 stk. lambaskankar 3 1 /2 bolli lambasoS 1 B. dökkur bjór 1 stk. laukur í sneiðum 1 tsk. sjóvarsalt 1 /2 tsk. timjanlauf, þurrkuS Molasses marinering: 1 /4 bolli Molasses síróp 2 msk. balsamic edik 2 1/2 tsk. tabscosósa 1 tsk. sjóvarsalt Allt hráefni fæst hjá 11-11 búöunum. Islenskt lambakjöt - náttúrlega gott. FM 90.9i | FM 103.2 AÐALSTOÐIN Frábært afmælistilboð Vegna fjölda eftirspurna tókst okkur að útvega aðra sendingu af hinurn vinsœla Undrabrjóstahaldara. Þú kaupir einn og fœrð annan frítt. Gildir aðeins í 3 daga. Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar, lengst til hægri á myndinni, vísar hér Ken Peterson, eiganda Columbia Ventures, til sætis áður en við- ræðufundur hófst. Eins og sjá má var Ken ánægður með sætaskipanina, sagðist hafa betra útsýni út um gluggann. DV-mynd BG Athugið! Opið til kl. 24.00 á laugardag. Póstsendum. 1.1! (»<» iMl Laugavegi 66 - Sími 551-2211

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.