Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverö á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblaö 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Óttinn við uppsveifluna Saga efnahagsmála á íslandi hefur stundum sannað þá fullyrðingu að það þurfi sterk bein til að þola góða daga. Væntanlega skýrir sú reynsla að hluta til þann ótta sem fram hefúr komið hjá ýmsum aðilum að undanfórnu við þá uppsveiflu sem nú er öllum ljós og birtist til dæmis í stórbættri afkomu fyrirtækja í landinu. Efnahagsþrengingar síðustu ára hafa lent með mestum þunga á almennu launafólki. Launum hefúr verið haldið niðri með skipulegum hætti í svokölluðum þjóðarsáttum vinnuveitenda, verkalýðsforingja og ríkisvaldsins. Það samkomulag hefur haldið jaftivel þótt einstakar stéttir hafi komist upp með að nýta sérstöðu sína til að knýja fram mun meiri kjarabætur en almennt gerist. Þótt lágu launin hafi viðhaldið óeðlilega löngum vinnu- tíma þeirra sem hafa atvinnu og verða að sjá fjölskyldum sínum farborða, hefur verulegt og varanlegt atvinnuleysi grafið um sig í íslensku þjóðfélagi síðustu árin. Sú mein- semd er mikið áfall fýrir einstaklinga sem vilja vinna en fá ekkert að gera, og ftölskyldur þeirra. Um leið eru at- vinnuleysisbætur auðvitað þungur baggi á sameiginleg- um sjóðum landsmanna. Á sama tíma og þrengt hefur verið að mörgu launafólki hafa opinberir aðilar gengið lengra og lengra í skatt- heimtu af tekjrnn þess hluta þjóðarinnar sem greiðir hinu opinbera skatt af hverri krónu sem aflast. Staðgreiðslan, sem rennur til ríkis og sveitarfélaga, hefur hækkað nær árlega frá því hún var tekin upp árið 1988. Þá voru inn- heimt 35,2 prósent af launum manna í staðgreiðslu. Það hlutfall hefur stöðugt hækkað síðan og er núna 41,9 pró- sent þegar miðað er við 8,79 prósenta meðaltalsútvar. Sum bæjarfélög, sem hafa hlaðið upp skuldmn á undan- förnum árum, hrifsa hins vegar enn meira til sín en með- altalinu nemur, eða allt að 9,2 prósent af launum. Til viðbótar hefur sú ákvörðun ráðamanna að láta per- sónusafsláttinn ekki fylgja launaþróuninni í reynd aukið álögur á launafólk. Björn Grétar Sveinsson sagði frá því í DV nýverið að ráðstöfunartekjur meðalfjölskyldna innan Verkamannasambandsins hefðu rýmað um 18 prósent fr á árinu 1988 vegna hækkaðra skatta. Þá er ekki tekið tillit til þess að á undanförnum árum hafa verið tekin upp alls konar gjöld fyrir þá þjónustu sem opinberar stofhanir veita almenningi, en þau eru auðvitað ekkert annað en skattheimta með öðru nafhi. Nú þegar allt bendir til þess að erfiðleikatímabilinu sé að ljúka liggur ljóst fyrir að launafólk mun gera kröfur til þess að fá hlutdeild í uppsveiflimni, en hingað til hafa einkum tveir aðilar notið góðs af aukinni efnahagsstarf- semi í þjóðfélaginu - fýrirtækin og ríkisvaldið. Stórbætt afkoma margra fyrirtækja kemur skýrt fram í þeim milliuppgjörum sem birst hafa opinberlega að und- anfömu og sýna að fyrirtæki sem skiluðu góðum hagnaði í fyrra munu gera það mun betur á þessu ári. Gróði ríkisins hefur birst í opinberum tölum á þessu sumri. Tekjur ríkissjóðs hafa þannig stóraukist frá því sem fjárlög gerðu ráð fyrir og er áætlað að þar muni nokkrum milljörðum á árinu öllu. Það er hins vegar athyglisvert að þessum auknum tekj- um hins opinbera verður ekki varið til að ná niður hall- anum á rikissjóði, eins og þó væri eðlilegast, heldur er peningunum öllum eytt jaftióðum. Það er óskiljanlegt hvemig ráðamenn geta ætlast til að almenningur hafi hemil á eyðslu sinni, þegar loksins rofar til í efnahags- málum, fyrst þeir ganga sjálfir á undan með vondu for- dæmi- Elías Snæland Jónsson Sú leið ein er fær til að ná niður fjárlagahalla að fara betur með opinbert fé og aö efla forvarnir í segir Kristjón m.a. í grein sinni. Hinn þráláti fjárlagahalli ríkum mæli, eða þjónustu viðkom- andi fyrirtækis of dýra snýr hann sér annað eða hreinlega neitar sér um hana. í þessu tilviki er það neytandinn sem greiðir fyrir vöruna. Þegar um opinbera þjónustu er að ræða er reyndin önnur. Neytandinn er sá sem þarfnast hennar en óskyldur aðili eða skatt- borgarinn, sem hefur fjárráðin, greiðir. Þensluáhrif eöa samdráttaráhrif Sá vandi sem við er að „Því hlýtur aö vakna sú spurning að hvaða leyti fyrirtæki allra landsmanna, sem veltir á annað hundrað milljónum króna árlega, er frábrugðið hverju öðru fyrirtæki þar sem eitt meginmark- fli/ð/ð er að ná sem mestum hagnaði fyrir eigendur til langs tíma.u Kjallarinn Kristjón Kolbeins viöskiptafræöingur Umræðan um ríkisfjármálin skýt- ur reglulega upp kollinum. Áform mm hallalaus fjár- lög og nauðsyn þeirra eru kynnt. Stefnt er að því að ná saman endum í búskap ríkis og sveitarfélaga innan tiltekinna ára en engu síður hefir reynst þrautin þyngri að ná jöfn- uði í opinberum rekstri þrátt fyrir fogur fyrirheit. Hagnaöur bundinn skil- yröi Því hlýtur að vakna sú spuming að hvaða leyti fyr- irtæki allra lands- manna, sem veltir á annað hundrað milljörðum króna árlega, er frábrugð- ið hverju öðra fyr- irtæki þar sem eitt meginmarkmiðið er að ná sem mest- um hagnaði fyrir eigendur tU langs tíma. Þessi hagnaður er reyndar oft bundinn vissum hliðarskUyrðum þar sem fé getur verið varið til að styrkja ímynd fyrirtækisins gagnvart al- menningi, t.d. með því að verja nokkru tU málefna sem era vinsæl og þykja tU þjóðþrifa. Hagnaður fyrirtækja á frjálsum markaði sem búa ekki að neinu leyti við einokum hlýtur að teljast eðlilegur þegar um frjálsa sam- keppni er að ræða og neytandinn hefir fuUt val. Telji hann vörur glíma meðal flestra ríkja heims og kemur fram í sívaxandi skulda- söfnun opinberra aðUa á einmitt rætur að rekja tU þess að ekki er samræmi á mUli krafna um opin- bera þjónustu og getu eða vUja tU að greiða fyrir hana. Á sama tíma og t.d. sjúklingur, sem fengið hefur heUablóðfaU, hlotið mænuskaða eða fjöláverka í bifreiðaslysi, er tekinn tU endur- hæfingar eru Pétur og PáU að semja sín á miUi um nótulaus við- skipti í því skyni að sleppa við greiðslu ákveðinna opinberra gjalda. Framangreint dæmi er tek- ið þar eð endurhæfingarmál hafa verið mjög í brennidepli undan- famar vikur og mánuði. Heyrst hafa þær raddir að ástæðuiaust sé að hafa áhyggjur af haUa ríkissjóðs vegna þess að haUi örvi efnahagslífið og dragi úr at- vinnuleysi. HaUi á ríkissjóði hlýt- ur aftur á móti að auka skulda- söfnun opinberra aöUa, auka eftir- spum eftir lánsfé, halda uppi vöxt- um í þjóðfélaginu og draga úr fjár- festingu fyrirtækja og þar með at- vinnu og jafnvel hagvexti. Hver niðurstaðan verður ræðst þó af því hvort vegi þyngra þensluáhrif aukinna útgjalda eða samdráttará- hrif lántaka. Eina færa leiöin Sú leið hefir einnig reynst ófær að ná inn auknum tekjum með því að lækka skatta og ganga út frá þvi að í kjölfar þeirra lækkunar fylgi aukin atvinna og þar meö auknar skatttekjur. Aðferðin var reynd í Bandaríkjunum um mið- bik níunda áratugarins með þeim afleiðingum að opinberar lántökur jukust verulega, vextir hækkuðu og í kjölfar þeirra jókst eftirspurn eftir dollurum. Gengi hans hækk- aði, samkeppnisstaða bandarískra fyrirtækja versnaði og viðskipta- halli og erlendar skuldir jukust. Þar sem takmörk era fyrir því hversu mikið skattborgar era til- búnir að greiða i sameiginlegan sjóð og stórfelldur niðurskurður þjónustu virðist illframkvæman- legur er sú leið ein fær til að ná niður fjárlagahalla að fara betur með opinbert fé og að efla forvarn- ir í ríkum mæli, s.s. á sviði heil- brigðismála þar eð sá málaflokkur vegur einna þyngst innan opin- bera geirans. Kristjón Kolbeins Skoðanir annarra Einkaneyslan „Það er vissulega ástæða til þess að varast að þensla fari úr böndunum hér á landi enn á ný. Stjómvöldum hefur i gegnum árin gengið ákaflega illa að haldast á þeim árangri sem náðst hefur í efna- hagsmálum og oftar en ekki hafa þau fariö fremst í flokki i umframeyðslunni á tímum góðæris . . . Séu vaxtahækkanir nauðsynlegar til þess að draga úr þenslunni væri réttast að beina þeim að þeim þætti þenslunnar sem veldur mönnum hvað mestum áhyggjum, þ.e. einkaneyslunni." ÞV í Viðskipti/Atvinnulíf Mbl. 15. ágúst. Hriktir i stoöum „Þessa dagana er heilbrigðiskerfíð í uppnámi og er ástandið sýnu alvarlegra en oftast áður þegar deilt er um kaup og kjör heilbrigðisstétta . . . Sam- tímis tilkynnir rektor Háskóla íslands að ekki sé hægt að halda uppi lögboðinni kennslu vegna fjár- skorts og skuldasöfnunar . . . Ef þjóðin hefur ekki efni á góðri heilbrigðisþjónustu og staðgóðri mennt- un þar sem Háskóli íslands gegnir lykilhlutverki er réttast að segja það upphátt og miða stefnumörkun og rekstur ríkisins við það.“ Úr forystugrein Tímans 15. ágúst. Staöan í Hafnarfirði „Staðan í Hafnarfirði er ekkert flókin og núver- andi samstarfi er lokið. Nú er ekki í önnur hús að venda en að leita til alþýðubandalágsmanna. Það ætti að vera auðveldara mál en oft áður, þar sem við- ræður eru í gangi um samvinnu A-flokkanna, eða jafnvel samruna ... Ef farin yrði þessi leið, tel ég að annað myndi leysast auðveldlega. Fáist alþýðu- bandalagsmenn ekki til samstarfs, yrði enginn meirihluti í bæjarstjóm Hafnarfjarðar í dag og er hér ekkert flókið mál að ræða. En með lagni er alltaf hægt að flækja mál.“ Bcildvin Jónsson í Alþbl. 15. ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.