Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Side 14
14
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996
27
íþróttir
íþróttir
Afall fyrir Bolton
Enska 1. deildar liðið Bolton
varð fyrir áfalli þegar Aston
Villa keypti Júgóslavann Sasa
Curcic því Curcic var þeirra
aðal maður í sókninni og nú er
spurning hvort liðið fer upp í úr-
valsdeildina á þessari leiktíð.
Fjölmiðlar hafa spáð því að svo
verði ekki.
Aston Villa sló met í kaupum
á leikmanni þegar það keypti
Curcic á fiórar milljónir sterl-
ingspunda. Brian Little, fram-
kvæmdastjóri Villa, sagði að það
væri ólíklegt að hann myndi
spila fyrstu tvær vikumar þvi
Villa þarf að útvega honum at-
vinnuleyfi.
Dortmund vinsælt
Þýska Bundesligan hefst á
fóstudaginn og 1 dag birtu öll fé-
lög í deildinni tölur yfir þá
ársmiða sem félögin hafa selt.
Bochum, lið Þórðar Guðjóns-
sonar, hefur lítiilega aukið sölu
á ársmiðum eða úr 2000 i 2500.
Mest aukning hjá liði sem kom
upp í fyrstu deild hefur orðið á
sölu miða hjá Armenia Bielefeld,
eða úr 2000 í 9000 en hjá liðunum
sem voru i deildinni hefur Schal-
ke 04 bætt við sig flestum ár-
smiðum eða úr 7300 í 14.300.
Borussia Dortmund hefur selt
flesta ársmiða eða 32,000 og þar á
eftir kemur Bayern Múnchen
með 20.000 miða.
Grissom þjálfar
David Grissom, sem lék með
Keflvíkingum á síðasta tímabili,
var í gær ráðinn þjálfari 1.
deildar liðs Reynis úr Sandgerði.
Grissom hefur hug á að leika
með liðinu en það verður varla
fyrr en eftir áramót þegar hann
hefur náð sér af meiðslum.
Grissom lék með Reyni árin
1980-90.
Leikurinn verður
Glasgow Rangers þarf að spila
útileik sinn gegn rússnesku
meisturunum Alania Vladika-
vkaz í Vladikavkaz þrátt fyrir
átökin í Tsjetsjeníu sem eru ekki
langt frá.
„UEFA hafði samband við
okkur og eins og við bjuggumst
við verður leikurinn í Vladika-
vkaz,“ sagði formaður félagsins,
Campbell Ogilvie.
WBA kaupir tvo
Enska 1. deildar liöið WBA
hefur keypt tvo leikmenn fyrir
komandi keppnistímabil, þá
Paul Pescisolido frá Birming-
ham og Paul Groves frá Grims-
by, fyrir samanlagt 160 milljón-
ir króna.
Pescisolido er fyrrum félagi
Lárusar Orra Sigurðssonar,
landsliðsmanns og leikmanns
Stoke, en þeir léku saman í
Stoke.
WBA er spáð 5.-6. sæti í deild-
inni ásamt Bolton, liði Guðna
Bergssonar.
13.000 treyjur seldar
Forráðamenn Bayem Múnch-
en em himinlifandi þessa dag-
ana því aö nýja treyjan hans
Júrgens Klinsmanns, með núm-
erinu 18, hefur selst eins og heit-
ar lummur. í vikunni var til-
kynnt að 13.000 treyjur hefðu
selst.
Barcelona best
Samkvæmt nýjum lista frá al-
þjóðlegri stofnun um tölfræði og
sögulegan árangur er Barcelona
besta lið heims frá upphafi. Á
eftir Barcelona kemur 2. Ajax, 3.
Bayem Múnchen, 4. Milan, 5.
River Plate í Argentínu, 6. Amer-
ica Cali, 7. Juventus, 8. Paris St.
Germain, 9. Gremio frá Brasilíu
og 10. Spartak Moskva.
-JGG/ÆMK
Manchester Utd verður
liðið sem þarf að vinna
-segir Guöni Bergsson um ensku úrvalsdeildina
Stefanía Stefánsdóttir var kjörin íþróttamaður Þróttar í Reykjavík vegna frábærs árangurs í tennis á sl.
ári. Hún stóð sig mjög vel á öllum mótum, vann íslandsmeistaratitla í tvíliða- og tvenndarleik og vann
silfurverðlaun í einliðaleik.Hún vann einnig gull og silfur í unglingafiokki. Stefanía er aðeins 18 ára og
hefur verið í landsliði íslands í tennis undanfarin þrjú ár. Hún vann til bronsverðlauna á
Smáþjóðaleikunum f Lúxemborg en það eru fyrstu verðlaun sem unnist hafa í landskeppni í tennis.
Stefanía er í dag stigahæsti tennisspilarinn í kvennaflokki.
-DV mynd GS
DV náði tali af Guðna Bergssyni, fyrirliða Bolton Wanderers, í
gær og var hann að vonum ánægður með úrslitin í landsleik
íslendinga og Möltu, þótt hann hafi ekki getað spilað með sökum
meiðsla, en Sigurður Jónsson gegndi stöðu fyrirliða í leiknum.
Við fengum hann til að spá í spilin í ensku deildunum en
herlegheitin byrja um helgina og bíða margir aðdáendur góðrar
knattspymu með eftirvæntingu eftir ensku deildinni enda hafa
framkvæmdastjórar verið iðnir við að opna budduna til að kaupa
það besta sem Evrópa og aðrar álfur hafa upp á að bjóða.
Leikmenn eins og Fabrizio Ravanelli hjá Middlesbrough,
Gianluca Vialli og DiMatteo hjá Chelsea, Karel Poborsky og
Johan Cruyff hjá Manchester Utd, Patrick Berger hjá Liverpool
o.fl. o.fl.
Hvernig er að vera orðinn fyrirliði hjá Bolton?
„Það er svo sem ágætt en ég vona að maður geti bara spilað af
því maður er búinn að eiga í meiðslum. Ég efast nú um að geta
spilað í fyrsta leiknum. Okkur er spáð 5.-6. sæti i deildinni af
veðbönkum en ég held að það verði nú jöfn og hörð barátta í 1.
deildinni, eins og hún er nú gjarnan, sex-sjö lið að berjast um að
komast upp og liðin sem hafa verið nefnd eru náttúrlega liðin sem
féllu í fyrra, Manchester City, QPR og við, svo er verið að tala
um Sheffield Utd, Crystal Palace og Birmingham líka. Það er eins
og ég segi ómögulegt að segja nokkuð um deildina en það eru líka
lið eins og WBA, Stoke, Ipswich o.s.frv. þannig að það geta
auðveldlega tíu-tólf blandað sér í baráttuna um að komast upp.“
Var ekki erfitt að missa Sasa Curcic?
„Jú, hann er auðvitað góður leikmaður en hann vildi fara frá
félaginu og spila í úrvalsdeildinni og vildi komast í burtu þannig
að á endanum var hann seldur. Það þýðir ekki að halda
leikmönnum sem vilja fara.“
Hverju spáir þú í úrvalsdeildinni?
„Maður veit það ekki en eftir síðustu helgi hlýtur Manchester
Utd að teljast sigurstranglegt. Ég tel að það verði liðið sem þurfi
að vinna, þeir virka meiri liðsheild heldur en Newcastle.
Auðvitað verður gaman að sjá hvernig Liverpool kemur út en
deildin verður ekkert auðunnin fyrir Manchester Utd, langt í frá,
og það virðist nú vera að Newcastle þurfi eitthvað að huga að
vamarleiknum og reyna að bæta hann.
Átti Cantona að fá rautt í leiknum?
Þetta var auðvitað gult spjald og Philippe Albert gerði nú mikið
úr þessu en dómarinn hefði alveg getað gefið rautt spjald fyrir
þetta. Ég held samt að hann hafi valið rétta kostinn og það var
rétt hjá honum að gefa bara gult á þetta.
Einhverjir sérstakir leikmenn sem eiga eftir að setja
svip sinn á deildina?
Það eru auðvitað margir tilnefndir sem eiga eflaust eftir að
setja svip sinn á deildina. Það er mikil stemning í kringum þetta
og það koma nokkur nöfn upp í hugann án þess að maður tiltaki
einhverja sérstaka.
-JGG
20 ára Keníubúi
skráir nafn sitt
í íþróttasöguna
Reykjavíkur maraþonið á sunnudaginn:
250 útlendingar skráðir
- stefnir í svipaða þátttöku og í fyrra
Daniel Komen, 20 ára Keníubúi,
náði ekki að komast til Atlanta en
virðist nú vera á hraðferð inn í
sögubækurnar sökum frábærs ár-
angurs undanfama daga.
Eftir að hafa hlaupið á næst-
besta tíma varð þessi hávaxni
Keníubúi næstfljótasti 5000 m
hlaupari í heimi þegar hann sigr-
aði heimsmethafann frá Eþíópíu,
Haile Gebreselassie, á miðviku-
daginn á gullmótinu í Zúrich.
Þessi fyrrum tvöfaldi heims-
meistari unglinga fór til Þýska-
lands í gær til að taka þátt i Köln-
armótinu í frjálsum áður en hann
reynir við heimsmetið í næstu
tveimur gullmótum sem verða í
Brassel og Berlín seinna í mánuð-
inum.
Gebreselassie, sem setti heims-
metið á sama móti í Zúrich á síð-
asta ári, 12:44,39 sek., varð að
sætta sig við annað sætið í einu
besta 5000 m hlaupi frá upphafi,
þar sem Komen vann á frábæram
endaspretti. Hann neitaði að gefa
Gebreselassie færi á að komast
fram fyrir sig á brautinni á síð-
ustu 800 m og kom í mark á frá-
bæram tíma, 12:45,09 sek.
„Það var frábært að sigra Haile
og veitti mér mikla ánægju því ég
komst ekki til Atlanta. Ég ætla
mér að slá heimsmetið og næst
mun ég reyna í 3000 m hlaupinu
en 5000 m hlaupið er samt í uppá-
haldi hjá mér. Komen, líkt og
Gebreselassie sem er Ólympíu-
meistari í 10.000 m hlaupi, er mjög
fjölhæfur hlaupari og því mikil
ógnun af honum í öllum lang-
hlaupimum.
Þessi fyrrum hástökkvari og
markvörður í knattspyrnu náði
ekki að tryggja sér sæti í sterk-
ustu langhlaupasveit í heimi á úr-
tökumótinu í Keníu fyrir Atlanta.
En hann er heldur betur að sanna
sig þessa dagana. Hann mun
hlaupa 1500 m og 3000 m hlaupið í
Köln áður en hann reynir við
heimsmetin í 3000 m og 5000 m
hlaupunum í Brassel og Berlín.
Komen viðurkenndi á mótinu í
Monte Carlo að hann hefði ekki
verið að reyna sitt besta og skilj-
anlega var hann eilítið óstyrkur
með Gebreselassie á bakinu í
Zúrich. Engu að siður er greini-
lega frábær hlaupari hér á ferð og
er nokkuð ljóst að hann á eftir að
vekja mikla athygli á komandi
mánuðum og áram.
-JGG
Skráning í Reykjavíkur maraþonið,
sem verður þreytt á sunnudaginn kemur,
hefur gengið nokkuð vel síðustu daga.
Það stefnir í svipaða þátttöku og í fyrra
en í gær höfðu töluvert á annað þúsund
manns skráð sig í hlaupið.
250 útlendingar hafa tilkynnt þátttöku
og er líklegt að fleiri eigi eftir að bætast
við. Fólki skal bent á að skráningar eru
enn þá í fullum gangi.
Sjö hlaupurum erlendis frá hefur verið
boðið sérstaklega til hlaupsins. Má þar
nefna Chris Penny frá Bretlandi sem
hlaupið hefur maraþon á 2:19,36 klst.
Tveimur hlaupurum frá Keníu hefur ver-
ið boðið en þátttaka þeirra hafði ekki ver-
ið staðfest í gær. Annar þeirra, Bitok að
nafni, hefur hlaupið maraþon á 2:11,36
klst.
Hugh Jones, sem margir kannst við úr
fyrri hlaupum, verður með að þessu
sinni.
Dæmdur í keppnisbann
Benjamín Þór Þorgrímsson, frjálsí-
þróttamaður úr HSH, var i gær dæmdur í
tveggja ára keppnisbann af dómstól ÍSÍ.
Benjamín var staðinn að notkun ólöglegra
lyQa, svokallaðra stera, á Meistaramóti ís-
lands fyrr í sumar. íþróttamaðurinn
keppti í 100 metra hlaupi og langstökki á
mótinu en vann ekki til verðlauna. Hann
hefur viðurkennt brot sitt.
Dómstóll FRÍ á eftir að taka málið til
umfjöllunar og samkvæmt lögum alþjóða-
sambandsins fær hann þar fjögurra ára
dóm.
-JKS
J
Spennandi utandeild í sumar
Það hefur verið spennandi keppni í utandeildinni í allt sumar en um
helgina spilast síðustu leikimir í riðlakeppninni.
Þrjú lið eru komin áfram, Eimreiðin og FC Puma úr A-riðli en FC
Puma er dyggilega styrkt af Ágústi Ármann, umboðsaðila Puma á ís-
landi, og svo skemmtilega vill til að þetta er eina liðið, fyrir utan Liver-
pool, sem er styrkt af Carlsberg en Ölgerðin er umboðsaðili Carlsberg á
íslandi.
Stórliðiö FC Puma sigraði í A-riðli með 22 stig, gerði eitt jafnteíli, tap-
aði einum en vann sjö leiki, sem er nú aldeilis frábær árangur. Liðið
spilaði síðasta leik sinn á miðvikudaginn gegn Flækjufæti og kláraði
hann glæsilega, 12-1.
í B-riðli er lið Glaumbars komið áfram með 25 stig en lið Ufsa og hið
stórskemmtilega lið Þytur í Laufi berjast um annað sæti í riðlinum. Liö-
in eiga bæði leik á morgun og verður eflaust um hörkuleiki að ræða.
Þytur í Laufi mætir Moppunni en um siðustu helgi gjörsigraði liðið
Augnablik með hvorki meira né minna en 11-1. Ufsinn spilar gegn Styrk
en þeir eru með tveggja stiga forskot á Þytinn.
-JGG
Dýrustu leikmennirnir
Alan Shearer er án efa dýrasti leikmaður i heimi, enn sem komið er.
Knattspyrnutímaritið World Soccer birti í vikunni lista yfir þá leikmenn sem hafa
verið allt annað en ódýrir undanfama áratugi. Upphæðin er í pundum.
Dýrustu leikmenn í heimi
Alan Shearer frá Blackburn Rovers til Newcastle Utd, 15 milljónir, 1996
Gianluca Lentini frá Torino til AC Milan, 13 milljónir, 1992
Ronaldo frá PSV Eindhoven til FC Barcelona, 12,8 milljónir, 1996
Gianluca Vialli frá Sampdoria til Juventus, 12,5 milljónir, 1992
Jean Pierre-Papin frá Marseille til AC Milan, 10 milljónir, 1992
Dýrastir í sögu knattspyrnunnar
Á eftir listanum hér fyrir ofan koma þessir leikmenn:
Roberto Baggio frá Fiorentina til Juventus, 8 milljónir, 1990
Ruud Gullit frá PSV Eindhoven til AC Milan, 6 milljónir, 1987
Diego Maradona frá Barcelona til Napoli, 5 milljónir, 1984
Diego Maradona frá Boca Juniors til Barcelona, 3 milijónir, 1982
Paolo Rossi frá Juventus til LR Vicenza, 1,7 milljónir, 1978
Giuseppi Savoldi frá Bologna til Napoli, 1,2 milljónir, 1975
Johan Cruyff frá Ajax til Barcelona, 922.000, 1973
Pietro Anastasi frá Varese til Juventus, 500.000, 1968
Angelo Sormani frá Mantova til Roma, 250.000, 1963
Luis Suarez frá Barcelona til Inter, 142.000, 1961
Omar Sivori frá River Plate til Juventus, 93.000, 1957
Juan Schiaffino frá Penarol til Milan, 72.000, 1954
Hans Jepsson áhugamaður til Napóli, 52.000, 1952
Juan Ferraro frá Veles Sarsfield til Boca Juniors, 40.000, 1949
Ruben Bravo frá Rosario Central til Racing Avellaneda, 1946
Bernabe Ferreyra frá Tiger BA til River Plate, 23.000, 1932
David Jack frá Bolton til Arsenal, 10.890, 1928
Ricardo Zamora frá Espanol til Real Madrid, 5000, 1928
Alf Common frá Sunderland til Middlesbrough, 1000, 1905.
Það er ljóst að verð á leikmönnum hefur meira en lítiö breyst á öldinni og á eflaust eftir að
fara hækkandi á komandi árum og öld. Gaman er að sjá að Alf Common kostaði ekki nema
eitt þúsund pund áriö 1905. 91 ári seinna fer dýrasti leikmaður heims á 15 milljónir punda!
JGG
Guðni Bergsson verður fyrirliði Bolton á næsta tímabili. Hann segir að 1.
deildin eigi eftir að verða jöfn og spennandi en hann verður ekki með í fyrsta
leiknum vegna meiðsla. Veðbankar spá Bolton, sem féll úr úrvalsdeildinni á
sl. vori, sjötta sætinu en telja að baráttan verði mikil.
DV-mynd Brynjar Gauti
0 HANDBOLTI HJÁ HK ©
Handboltanámskeið er að byrja hjá HK og stendur 19.-30. ágúst.
Yngri fyrir hádegi (kl. 9-12), eldri eftir hádegi (kl. 13-16).
Umsjónarmenn:
Gunnar Gunnarsson og Ómar Stefánsson íþróttakennari.
Sigurður Sveinsson, þjálfari meistaraflokks HK, kennir
krökkunum að dúndra. Verð: 2.500 kr.
Upplýsingar og skráning í síma 554 22 30 og 55 11 189
ENGIHJALLAAPÓTEK
4. deildar úrslitin
Nú líður senn að lokum
keppni í 4. deild í knattspyrnu og
eftirtaldir leikir verða í for-
keppni:
Bolungarvík-Tindastóll spila
fóstudaginn 16. ágúst á Skeiðis-
velli klukkan 19.
Haukar-BÍ spila laugardaginn
17. ágúst á Ásvöllum klukkan 14.
Þriðjudaginn 20. ágúst verða
seinni leikirnir spilaðir en þá
mætast Tindastóll og Bolungar-
vík á Sauðárkróksvelli og
BÍ-Haukar klukkan 19 á ísafjarð-
arvelli.
Niall til Sunderland
Framherjinn hávaxni, Niall
Quinn, sem hefur skorað ófá fall-
eg mörkin í gegnum tíðina, gekk
í gær frá samningi við úrvals-
deildarliðið Sunderland fyrir 1,3
milljónir punda.
Sunderland vann sér sæti í úr-
valsdeildinni á siðustu leiktíð en
gamla lið Quinns, Manchester
City, féll i 1. deild.
Quinn skrifaði undir þriggja
ára samning við 1. deildar meist-
arana frá því í fyrra og mun
hann spila í opnunarleik þeirra
á laugardaginn gegn Ipswich.
„Niall er leikmaður sem ég hef
alltaf dáðst að,“ sagði Peter Reid,
framkvæmdarstjóri Sunderland.
Reid er einnig aö reyna að
semja við markvörð Bordeaux,
Lionel Perez, og sagðist hann
vera mjög „hrifinn af þessum
leikmanni og ég er i viðræðum
við klúbbinn hans um verðið“.
Tour de Húsavík
Nú er fram undan hjólreiða-
keppnin Tour de Húsavík og er
þetta annað árið í röð sem þetta
er á dagskrá á Húsavík.
Það er nýstofnað Hjólreiðafé-
lag Þingeyinga sem stendur fyrir
dagskránni og hentar hún bæði
byrjendum og lengra komnum.
Klukkan 11 er stutt hjólreiða-
ferð um nágrenni Húsavíkur.
Klukkan 14 er svoköfluð Smiðju-
keppni sem er brunkeppni. Strax
á eftir henni, klukkan 16, hefst
innanbæjarráflið og á sama tíma
hefst Tour de Húsavik, Flugleiða
meistarakeppnin og farin verður
um 20 km leið.
United býður í Nadal
Manchester United hefur boð-
ið spænska landsliðsmanninum
hjá Barcelona, Miguel Nadal,
fjögurra ára samning og er hann
talinn nema 320 milljónum
króna. Bobby Robson, stjóri
Barcelona, segir að Nadal megi
fara þótt samningur hans við
Barcelona renni ekki út fyrr en
1998.
Stuttgart að leita
Stuttgart leitar að þjálfara í
stað Rolfs Fringers sem tók við
svissneska landsliðinu i fyrra-
dag. Að sögn þýska blaðsins
Berliner Zeitung er Uli Stileke
.fyrrum landsliðsmaður, efstur á
óskalistanum. Einnig hefur
Nevio Scala, fyrrum þjálfari
Parma, verið inni í myndinni.
Leicester keypti
Nýliðarnir í úrvalsdeildinni,
Leicester City, styrktu sig í gær
með kaupum á tveimur leik-
mönnum frá Millwall. Þeir era
Spencer Prior og bandariski
landsliðsmarkvörðurinn Kasey
Keller og fyrir þá borgaði
Leicester samtals 130 milljónir.
Ajax vígði leikvang
Ajax vígði í gær nýjan leik-
vang félgsins sem tekur 51 þús-
und áhorfendur í sæti. AC Milan
lék gegn Ajax á þessum merku
tímamótum og sigraði ítalska
liöið, 0-3.
-JKS/JGG
ÞAÐ ER NÆSTA VÍST AÐ...
,.,ef þú spilar til að vinnal