Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Síða 22
34 FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996 Afmæli Kolbrún Aðalsteinsdóttir Kolbrún Aðalsteinsdóttir, skóla- stjóri við Skóla John Casablan- cas-Elite, Víðihlíð 27, Reykjavík, er fertug í dag. Starfsferill Kolbrún ólst upp í Reykjavík og ,V-Skaftafellssýslu. Hún lauk skyldu- námi og var síðan danskennari við Skóla Heiðars Ástvaldssonar í 12 ár. Hún lærði dans í Þýskalandi, á Spáni og í Bandaríkjunum. Síðar meir stofnaði hún Dansnýjung Kollu og kenndi þar í 8 ár. Kolbrún varð margfaldur Islandsmeistari í hóptíönsum unglinga í félagsmið- stöðvum. Hún hefur einnig unnið mikið við þjálfun leikara, dansara, hópa og fyrirtækja auk þess að vinna fyrir sjónvarp og blöö. Kolbrún lærði við ferðamálaskóla á Kýpur og starfaði sem fararstjóri þar, á Spáni og Ítalíu. Kolbrún er með sólópróf sem flug- maður og hefur auk þess gefíð út 4 bækur og ljóð. Hún hefur verið meðlim- ur í Rithöfundasambandi íslands frá 1992. Kolbrún er eigandi Skóla John Casablancas- Model Mynd Elite og rek- ur það fyrirtæki í Skeif- unni 7 í Reykjavík. Þar vinnur hún með virtum umboðsskrifstofum í Bandaríkjunum, Mílanó og París. Kolbrún kemur fyrirsætum á framfæri erlendis og er fararstjóri fyrir er- lend stórblöð og ljósmyndara þeirra hér á landi, blöð eins og Gioia, Moda, Max og Men’s Joumal. Síðastliðin 4 ár hefur Kolbrún kynnt ísland erlendis, séð um upji- setningar á tískukynningum á Is- landi og kynningarstörf innanlands og utan. Fjölskylda Kolbrún giftist Sveinjóni Jóhannessyni, f. 6.7. 1947, húsasmíðameistara. Þau skildu. Kolbrún á dóttur með Herði Sigurðssyni, f. 12.10. 1956, rannsóknar- lögreglumanni, Anitu Rut Harðardóttur, f. 19.7.1975, nema. Börn Kolbrúnar og Sveinjóns: Brynjar Öm Sveinjónsson, f. 6.9. 1978, nemi og einkaflugmaður, og Aðalsteinn Jan- us Sveinjónsson, f. 16.7. 1986. Kolbrún á einn bróður, Sigurjón Inga Aðalsteinsson, f. 10.12. 1959, húsasmíðameistara á Sólheimum í Grímsnesi. Hann er kvæntur Guð- --------------------j---------- rúnu Eggertsdóttur og eiga þau dæt- urnar Berglindi Bám, Bergdisi Björk og Ömu Rós. Foreldrar Kolbrúnar em Aðal- steinn Bjamfreðsson, f. 9.6. 1929, kaupmaður og Jóhanna Bára Sig- urðardóttir, f. 17.3. 1935. Þau hafa veriö búsett í V-Skaftafellssýslu og Reykjavík. Ætt Föðurforeldrar Kolbrúnar: Bjam- freður Ingimundarson, f. 12.9. 1889, og Ingibjörg Sigurbergsdóttir, f. 3.11. 1893. Móðurforeldrar hennar: Sigurður Sverrisson, f. 4.10.1895, og Ástríður Bárðardóttir, f. 12.6. 1904. Afmælisveislan hefst kl. 13 á Austurvelli. Þaðan verður tekin rúta á Sandskeið þar sem farið verð- ur í fallhlifarstökk og loks verður haldið upp á afmælið í Landmanna- laugum. Kolbrún Aðalsteinsdóttir. Steinar Vilberg Arnason Steinar Vilberg Árna- son leiðsögumaður, Fells- múla 19, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Steinar Vilberg er fæddur í Vestmannaeyj- um, ólst þar upp og lauk þar skyldunámi og lands- prófi. Hann tók stúdents- próf frá Menntaskólanum á Akureyri 1966 og var við nám í læknadeild HÍ 1966-68 auk þess að vera gæslumaður á Kleppsspítala. Sumr- in 1968 og 1969 var Steinar Vilberg Surtseyjarvörður. Hann var í námi í spænsku við háskólann í Barcelona á Spáni 1968-9. Steinar Vilberg var í námi við Meinatækna- deild TÍ 1969-71 og lauk meina- tæknaprófi 1971. Eftir það starfaði hann sem meinatæknir á Borgarspítala 1971-75 og á St. Jósefsspítala í Hafh- arfirði 1975-76. Steinar Vilberg varð lög- giltur dómtúlkur og skjaláþýðandi i spænsku 1974, var fararstjóri á Spáni hjá ferðaskrifstof- unni Úrval 1973-78 og var kennari í Námsflokkum Reykjavíkur og Forskóla sjúkraliða 1972-78 og 1985-88 í spænsku, ítölsku og heilbrigðis- greinum. Steinar Vilberg tók leiðsögu- mannapróf 1975 og hefur starfað sem leiðsögumaður innanlands síð- an. Hann var í námi i rómönskum málum við Háskólann í Osló og Perugia á ítaliu 1978-82 og lauk cand. mag. prófi í spænsku og ítölsku 1983. Á námsárunum i Osló vann Steinar fyrir sér sem nætur- vörður og meinatæknir. Hann starf- aði sem meinatæknir á Vifilsstaða- spítala 1982-87. Steinar Vilberg var í námi í spænsku og spænskum bókmennt- um við Háskólann í Lundi í Svíþjóð 1938-91 og lagði grunn að doktorsrit- gerð í spænskum bókmenntum. Árin 1991-96 starfaði Steinar sem meinatæknir og stundakennari á Patreksfirði. Steinar var ásamt fleirum frum- kvöðull að stofnun félagsins Ítalíu, ítalsk-íslenska félagsins, og fyrsti varaformaður þess 1986-88. Hann hefur verið þýðandi hjá Ríkissjón- varpinu af og til frá árinu 1985. Fjölskylda Steinar Vilberg kvæntist 29.7. 1970 Guðrúnu Sigríði Norðfjörð, f. 2.10.1947, sérkennara. Hún er dóttir Einars Norfjörð Jónssonar, f. 23.3. 1915, d. 13.7. 1976, húsasmíöameist- ara í Keflavík, og Sólveigar Guð- mundsdóttur, f. 3.9.1916, húsmóður. Böm Steinars Vilbergs og Guð- rúnar Sigríðar eru Ámi Bergþór Steinarsson, f. 26.3. 1973, nemi, en hann dvelst í Montreal í Kanada og Brynja Steinarsdóttir, f. 15.5. 1980, nemi í Reykjavík. Systkini Steinars em Þyri Kap Ámadóttir, f. 4.11. 1948, kennari í dönsku við MR, og Jón Atli Árna- son, f. 19.6.1959, læknir í Wisconsin i Bandaríkjunum. Foreldrar Steinars Vilbergs: Ámi Guðmundsson frá Eiðum í Vest- mannaeyjum, f. 25.6.1926, fyrrv. sjó- maður og nú húsvörður í Kópavogi, og Jóna Bergþóra Hannesdóttir frá Hæli í Vestmannaeyjum, f. 27.3. 1929. Þau voru lengst af búsett í Vestmannaeyjum en búa nú í Kópa- vogi. Steinar Vilberg Árnason. Brynja Pétursdóttir Brynja Pétursdóttir bréfberi, Ein- holti 3, Garði, er fimmtug í dag. Starfsferill Brynja er fædd og uppalin í Kirkjubæ í Vestmannaeyjum og tók gagnfræðapróf frá Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja. Brynja hefur unnið við ýmis verslunar- og fiskvinnslu- störf en hefur unnið hjá Pósti og sima undanfarin 16 ár. Brynja flutti til Reykjavíkur í Vestmannaeyjagosinu 1973 en hefur búið í Garðinum frá 1975. Brynja sat í skólanefnd Geröaskóla 1978-94, var varamaður í hreppsnefnd 1990-94 og aðalmaður í hreppsnefnd 1994. Maki Brynju er Aðalsteinn Valdi- marsson, f. 29.3. 1938, trésmiður. Hann er sonur Valdimars Ólafsson- ar og Fjólu Breiðfjörð en þau eru bæði látin. Böm: Rafnkell Jónsson, f. 27.5. 1964, vélvirki, búsettur í Keflavík, maki hans er Pálína Hildur Sigurð- ardóttir og eiga þau þrjú böm; Lilja Jónsdóttir, f. 16.11. 1969, húsmóðir, búsett í Keflavík, maki hennar er Einar Hólm og eiga þau tvær dætur; Már Eyfjörð Harðarson, f. 2.7. 1974, verkamaður, búsettur í Keflavík, maki hans er Fanney Guðrún Magnúsdóttir; Helgi Þór Harðarson, f. 16.7. 1975, nemi, búsettur í Garði; Sigfús Benoný Harðarson, f. 25.6. 1980, nemi, búsettur í Garði. Alsystkini Brynju eru Guðrún Rannveig Pétursdóttir, f. 10.12. 1939, póstafgreiðslu- maður, búsett í Garði; Ámi Pétursson, f. 4.2. 1941, yfírkennari, búsettur í Garðabæ, og Herbjört Pétursdóttir, f. 26.2. 1951, bókasafnsfræðingur, bú- sett á Melstað í Miðfirði. Hálfsystkini Brynju, samfeðra, era Jónína Ósk Pétursdóttir, f. 12.11. 1926, húsmóðir, búsett á Raufar- höfn; Guðlaug Pétursdótt- ir, f. 25.9. 1928, húsmóðir, búsett á Þórshöfn; Guð- laugur Magnús Pétursson, f. 5.8. 1931, trésmiður í Gunnarsholti; Jóna Halldóra Pétursdóttir, f. 18.8. Brynja Pétursdóttir. 1933, húsmóðir, búsett í Reykjavík og Guðjón Pétursson, f. 31.7.1935, d. 25.1. 1985, vörubílstjóri á Selfossi. Foreldrar Brynju voru Pétur Guðjónsson, f. 12.7. 1902, d. 21.8. 1982, skrif- stofumaður, og Liíja Sig- fúsdóttir, f. 11.10. 1917, d. 15.10. 1990, húsmóðir. Brynja er af Oddstaða- ætt í Vestmannaeyjum en þar bjuggu foreldrar hennar fram til 1973 en eftir það í Garði. Brynja tekur á móti ættingjum og vinum eftir kl. 20.00 á afmælisdag- inn. Lilja Árnadóttir Lilja Ámadóttir húsmóðir, Smáratúni 19, Selfossi, er sjötug í dag. Starfsferill Lilja er fædd og uppalin í Holts- múla í Landsveit i Rangárvalla- sýslu. Hún var einn vetur í Alþýðu- skólanum á Reykjum í Hrútafirði 1944-45. Lilja bjó í Reykjavik 1942-53 en fluttist þaðan að Ljósa- fossi í Grímsnesi og bjó þar til árs- ins 1992. Fjölskylda Lilja giftist 2.12. 1950 Lofti Jó- hannssyni, f. 13.12. 1923, vélfræð- ingi. Foreldrar hans vora Jóhann Bjami Loftsson, bóndi og for- maður, Sölkutóft, Eyrar- bakka, og Jónína Hann- esdóttir. Böm Lilju og Lofts: Ingólfur Sveinsson, f. 4.4. 1947, bóndi, maki hans er Svana Sigtryggsdóttir og eiga þau bömin Ólaf- íu Rósbjörgu, Unnstein Fannar, Jón Loft og Guð- björgu Lilju; Jónína Loftsdóttir, f. 25.8. 1949, dagmóðir, maki hennar er Haukur Stefánsson og eiga þau bömin Lilju, Ómar Öm og Pálma Frey; Jóhann Bjami Loftsson, f. 12.10. 1950, sálfræðingur, maki hans er Elfa Eyþórsdóttir og eiga þau bömin Björg- vin, Svanlaugu, Birki og Hörpu; Gíslunn Loftsdótt- ir, f. 13.1. 1952, bókbind- ari, maki hennar er Her- mann Bragason; Heimir Sæberg Loftsson, f. 5.5. 1959, vélfræðingur, maki hans er Stefanía Sigurðar- dóttir og eiga þau bömin Jóhönnu Lovísu, Álfheiði Björk og Bjarka Reyr. Systkini Lilju: Oddur Árnason, f. 29.6. 1921, læknir í Svíþjóö; Jóna Gíslunn Ámadóttir, f. 2.8. 1922, hús- Lilja Árnadóttir. móðir í Reykjavík; Inga Guðrún Ámadóttir, f. 3.9. 1923, húsmóðir í Reykjavík; Guðmunda Ámadóttir, f. 29.8. 1924, húsmóðir í Reykjavík; Ingibjörg Ámadóttir, f. 26.8. 1925, húsmóðir í Reykjavík; Ágúst Áma- son, f. 3.8. 1930, skógfræðingur í Skorradal; Þorsteinn Árnason, f. 23.10. 1949, raftæknir á Hvolsvelli. Foreldrar Lilju vora Ámi Jóns- son, f. 17.6. 1896, d. 16.9. 1995, og Ingiríður Oddsdóttir, f. 13.5. 1887, d. 24.2. 1937. Þau vora bændur í Holts- múla í Landsveit og bjuggu þar lengst af. Lilja tekur á móti gestum í Grænumörk 5, Selfossi, laugardag- inn 17.8. frá kl. 16.00. DV Til hammgju með afmælið 16. ágúst 85 ára Kristín Thorarensen, Hvassaleiti 6, Reykjavík. Jóhanna Guðmundsdóttir, Höfða 3, Þingeyri. 80 ára Hafliði Ketilsson, Grænumörk 5, Selfossi. 70 ára Erla Valdimarsdóttir, Álfheimum 70, Reykjavík. Haraldur Guðmundsson, Karlagötu 24, Reykjavik. Sigurjón Kristjánsson, Stóragarði 5, Húsavík. Gústaf Gústafsson, Stigahlíð 97, Reykjavík. Rannveig Sigurðardóttir, Víkurbraut 26, Homafirði. 60 ára Hrönn Sigurgeirsdóttir, Grenimel 42, Reykjavík. Guðrún Sigurðardóttir, Bogabraut 14, Skagaströnd. Svava Sigmundsdóttir, Ásbraut 19, Kópavogi. Marfa Erla Eiríksdóttir, Hjallavegi 8, ísafirði. 50 ára Jóhanna S. Kristinsdóttir, Tjamarbraut 7, Vesturbyggð. Karen O. Hannesdóttir, Krossi, Ljósavatnshrepp. Helgi Kristmundsson, Litla-Saurbæ, Ölfushreppi. Vilhjálmur Svan Jóhanns- son, Njálsgötu 59, Reykjavík. Sigrún Pétursdóttir, Máva- hrauni 4, Hafnar- firði. Sigrún Pét- m-sdóttir verslunar- maður, tekur á móti gest- um á afmælisdaginn á heim- ili sínu kl. 20.00-23.00. 40 ára Margrét Halla Ragnarsdótt- ir, Fífuhjalla 21, Kópavogi. Hrefha Guðjónsdóttir, Háaleitisbraut 30, Reykjavík. Helgi Helgason, Dalhúsum 3, Reykjavík. Eyjólfur S. Guðmundsson, Lyngbergi 3, Hafharfirði. Harpa Sigurlaug Guð- mundsdóttir, Borgarvegi 20, Reykjanesbæ. Guðni Birgisson, Kirkjuvegi 14, Reykjanesbæ. Sigurður Konráð Hauks- son, Eyjabakka 30, Reykjavík. Gestur Sigmundsson, Kappeyri, Fáskrúðsfjarðar- hreppi. Behzad Ari Valadbigi, Hörpugötu 13, Reykjavik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.