Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Side 24
36
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996
Reglugerða-
átomatið
„Hún (heilbrigðisráðherra)
hefur frá upphafi dinglað með í
þessari firrtu og illvígu aðfór að
heilbrigðisþjónustunni og ráðu-
neyti hennar oft ekki verið ann-
að en reglugerðaátomat gegn vel-
ferð lítilsmegandi fólks."
Birgir Sigurðsson, í DV.
Bubbi kóngur fitnar
„Fylgið bókstatlega hrynur af
Framsókn meðan Bubbi kóngur
fitnar og dafnar.“
Sverrir Ólafsson, í Alþýðublað-
inu.
Ummæli
Embættisleikari
„Hvað sem um hinn nýja for-
seta okkar má segja, þá höfum
við fengið þann besta leikara í
embættið sem völ var á, jafnvel
betri en þann sem var á undan.“
Jóhannes Proppé, i Morgun-
blaðinu.
Meðaljóninn
„Ég er hið algjöra meðalmenni
sem enginn getur lagt á minnið
jafnvel þótt hann vildi það.“
Þorvaldur Þorvaldsson, mynd-
listarmaður og leikskáld, i Al-
þýðublaðinu.
Argentínska listakonan Kozana
Lucca.
Söngur og
málun
Hér á landi er stödd argent-
ínska listakonan Kozana Lucca
og hefur hún þegar haldið eitt
námskeið sem heitir Raddvinna
og nú um helgina opnar hún
málverkasýningu, auk þess sem
hún verður með annað námskeið
sem hefst á mánudaginn.
Málverkasýning Kozönu
Lucca, sem hún nefnir Skógar-
húðir, verður opnuð í Listhúsi
39, Hafnarfirði, á morgun, kl. 17.
í sýningunni reynir Lucca að
vinna úr þeirri sorg sem hún
upplifði þegar lifstörunautur
hennar, Jerome Heim, féll frá, en
hann varði stórum hluta lífs sins
til að skapa jafnvægi og sátt
milli manna og trjáa.
Sýningar
Síðara námskeiðið, sem kall-
ast Rödd og litur, er ætlað söng-
elskum myndlistarmönnum,
myndelskum söngvurum,
þerapistum og öðrum sem hafa
áhuga á söng og málun. Á nám-
skeiðinu, sem stendur út næstu
viku í Flensborgarskóla, „leyfum
við hreyfiþörfinni aö kvikna og
þróast í lífsdansi tilfinninganna
og í hita leiksins teiknum við og
málum“.
Kozana Lucca fæddist í Cor-
doba í Argentínu árið 1940. Hún
er mjög fjölhæf listakona og hef-
ur meðal annars skrifað bækur,
málað, unnið skúlptúra, leikið
og leikstýrt við ýmis tilrauna-
leikhús. Á veturna kennir hún
lengra komnum nemendum við
háskólann í Tucumán í heima-
landi sínu en yfir sumartímann
leiðbeinir hún víða um heim.
Hæg norðanátt
Skammt suður af Vatnajökli er
allvíðáttumikil 990 millíbara lægð
sem þokast norðaustur og fer senn
að grynnast.
Veðrið í dag
í dag verður norðan- og norðaust-
anátt, allhvasst norðvestan til á
landinu í fyrstu, en annars kaldi
eða stinningskaldi og víða skúrir
eða rigning fram eftir morgni. Hæg-
ari norðan og norðvestan þegar líð-
ur á daginn með skúrum norðan- og
vestanlands, en úrkomulaust að
mestu suðaustan- og austanlands.
Hiti 5 til 14 stig, kaldast norðvestan-
lands.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðan- og norðaustangola eða kaldi
í fyrstu, en norðankaldi og skýjað,
en þurrt að mestu síðdegis. Norðve-
stangola eða kaldi og skýjað með
köflum í kvöld og nótt. Hiti 9 til 12
stig.
Sólarlag í Reykjavík: 21.39
Sólarupprás á morgun: 5.25
Síðdegisflóð í Reykjavik: 19.45
Árdegisflóð á morgun: 8.03
Veðriö kl 6 í morgun:
Akureyri rigning 8
Akurnes rigning 10
Bergsstaðir súld 7
Bolungarvík rign. á síö.kls. 6
Egilsstaðir skýjað 9
Keflavíkurflugv. skýjaö 9
Kirkjubkl. skýjað 10
Raufarhöfn skýjað 9
Reykjavík skýjaó 9
Stórhöfði hálfskýjað 9
Helsinki léttskýjaó 18
Kaupmannah. léttskýjað 17
Ósló skýjaó 16
Stokkhólmur þokumóða 17
Þórshöfn skýjað 12
Amsterdam alskýjaö 16
Barcelona léttskýjað 21
Chicago skýjað 21
Frankfurt léttskýjað 17
Glasgow rign. á síó.kls. 15
Hamborg þokumóða 15
London mistur 16
Los Angeles léttskýjaó 23
Lúxemborg þokumóða 14
Madrid léttskýjaó 17
Mallorca skýjað 23
París lágþokublettir 15
Róm þokumóöa 20
Valencia skýjaó 22
New York heiöskírt 21
Nuuk súld 8
Vín hálfskýjaö 16
Washington skúr á síð.kls. 22
Winnipeg heióskírt 21
Björg Bjarnadóttir, formaður Félags íslenskra leikskólakennara:
Samningamál mikið
rædd á heimilinu
„Félag íslenskra leikskólakenn-
ara er fag- og stéttarfélag leik-
skólakennara á öllu landinu og
það má segja að hlutverk félagsins
sé tvíþætt; annars vegar að sjá um
kaup og kjör og réttindi félags-
manna og hins vegar að standa
vörð um menntun leikskólakenn-
ara, leikskóla og böm almennt,"
segir Björg Bjarnadóttir, formaður
Félags íslenskra leikskólakennara,
en hún tók við formennsku í félag-
inu fyrir stuttu: „Það kom þannig
til að Guðrún Alda Harðardóttir,
Maður dagsins
sem var formaður, hefur tekið við
starfi kennara við nýstofnaða leik-
skólakennarabraut á Akureyri og
flyst því búferlum, þannig að ég
sem þáverandi varaformaður tók
við hennar embætti. Guðrún kem-
ur til meö að koma þessari nýju
deild við háskólann á laggirnar og
móta hana.“
Björg sagði að innan félagsins
væru rúmlega 1200 leikskólakenn-
arar: „Samkvæmt lögum eiga að-
Björg Bjarnadóttir.
eins að starfa menntaðir leikskóla-
kennarar á leikskólum, en raun-
vemleikinn er annar, því miður.
Það sem hefur verið þröskuldur-
inn er að Fósturskólinn, sem hef-
ur menntað leikskólakennara
hingað til, hefur búið við bágar að-
stæður og hefur ekki getað tekið
inn nægilega marga nemendur til
að fullnægja þörfinni og annar því
alls ekki þeirri öru uppbyggingu
sem er búin að vera í leikskóla-
málum undanfarin ár og hafa
færri nemendur komist að en
vilja. Að langmestu leyti eru stúlk-
ur sem leggja starfið fyrir sig, ætli
það sé ekki svona einn karlmaður
á ári sem útskrifast.
Björg er sjáif búin að starfa sem
leikskólakennari síðan 1978 og hef-
ur verið í fimm ár í stjóm félags-
ins. Hvað varðar starf formanns á
næstunni sagði Björg að stærsta
verkefnið væru kjarasamningar í
vetur: „Við erum með lausa samn-
inga um áramótin eins og aðrir og
það er augljóst að það verður aðal-
verkefni vetrarins og mikill slag-
ur.“
Eiginmaður Bjargar er Eiríkur
Jónsson, formaður Kennarasam-
bands íslands: „Það er að sjálf-
sögðu mikið rætt um kjaramálin á
heimilinu, enda erum við bæði í
víglínunni þegar á reynir í þeim
málum.“ Björg sagði að starfið
tæki mikinn tíma frá henni en
áhugamál hennar fyrir utan starf-
ið er að fara á skíði og lesa góðar
bækur. -HK
Töðugjöld
Töðugjöld eru fjölskylduhátíð
sem haldin verður að Gaddstaða-
flötum við Hellu. Verður boðið
upp á fjölbreytta dagski'á fyrir
alla aldurshópa. Þessi hátíð er
frábrugðin mörgum öðrum sam-
bærilegum vegna þess að algjör-
lega ókeypis er inn á svæðið. Aö-
gangur að öllum tækjum,
skemmtiatriðum og dansleikjum
er gestum að kostnaðarlausu. Að-
standendur hátíðarinnar segja
hana vera „með öllu“, nema mikl-
um útgjöldum fyrir þátttakendur.
Hjólastólarall
Hjólastólarall verður haldið á
Húsavík í dag, kl. 14. Markmiðið
er að vekja Húsvíkinga til um-
hugsunar um aðgengi fyrir
hreyfihamlaða í bænum.
Hátíð eldri
er yfirskrift hátiðar sem Fim-
leikasamband íslands stendur
fyrir i Laugardalnum frá og með
deginum í dag og fram á sunnu-
dag. Boðið er upp á fjölbreytta
dagskrá með vatnaleikfimi, rat-
leikjum, leikfiminámskeiðum og
sýningum. Opnun og sýning er
ld. 20 í kvöld.
Samkomur
Bítlabarinn Cavern
Um helgina verður bullandi
bítlastuð og lifandi tónlist. Eirík-
ur Einarsson, formaður Bítla-
klúbbsins, sér um að allir
skemmti sér.
Félagsvist
Félagsvist verður spiluö í Gjá-
bakka, Fannborg 8, í kvöld, kl.
20.30.
Sól Dögg á Gauknum
í kvöld og annað kvöld mun
hljómsveitin Sól Dögg skemmta á
Gauki á Stöng.
Bridge
í þessu spili, sem kom fyrir í leik
Dana og Litháa á Evrópumóti yngri
spilara, misstu báðir spilaramir í
vestur af tækifærinu til að hnekkja
fjórum hjörtum. Sagnir gengu
þannig á öðru borðanna, suður gjaf-
ari og enginn á hættu:
* Á9532 * D7 m D106 * ÁDGe * G54 N 4 G104
•e AK * 1083 * 973 V A S G32 •f 97542 * 106
Suður * K86 * 9874 * K * ÁKD82 Vestur Norður Austur
1* 14 dobl pass
2* pass 3w pass
4* p/h
Á þessu borði byrjaði Daninn
Jacob Ron á því að spila út hjartaás
og eftir það var ekki nokkur leið að
hnekkja samningnum. Á hinu borð-
inu var samningurinn sá sami og
Litháinn í vestur hóf leikinn með
því að spila út spaðaás. Eins og les-
endur sjá getur vestur hnekkt spil-
inu með því að sækja laufstungu
fyrir austur. Hann spilar þá laufi í
öðrum slag og kemst tvisvar inn á
tromp til þess að gefa félaga stungu.
En Litháinn fann ekki þá leið held-
ur spilaði hann tígli í öðrum slag og
þar með var draumurinn úti. En er
hægt að hnekkja spilinu á einhvem
annan hátt en með því að sækja
laufstunguna? Glöggir lesendur sjá
það við eftirgrennslan að til er fal-
legri leið fyrir vörnina til að sækja
sér fjóra slagi. Litháinn i vestur átti
möguleika á því, ef hann hefði spil-
að spaða áfram í öðrum slag. Vestur
kemst síðan inn á hjarta, spilar
spaða þriðja sinni og þegar hann
kemst aftur inn á hjarta spilar hann
spaða fjórða sinni! og tryggir þar
með austri slag á hjartagosann. Ef
sagnhafar hefðu hins vegar valið
þriggja granda samninginn í stað-
inn á vömin ekki nokkurn mögu-
leika. ísak Örn Sigurðsson