Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1996, Síða 9
12* \JrFÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1996
um helgina »
Frumsýning Leikfélags Reykjavíkur:
Verk eftir forseta Tékklands
„Þetta verk kemur á óvart,“ segir
María Ellingsen leikkona um leik-
ritið Largo desolato sem samið er af
forseta Tékklands, Václav Havel.
„Það er ofboðslega fyndið en ég
held að fólk búist yfirleitt ekki við
því. Yfirborðið og undirtónninn er
mjög alvarlegur en aðstæðurnar eru
einhvern veginn svo hlægilegar all-
an tímann," segir María.
Largo desolato verður frumsýnt 1
kvöld kl. 20.00 á Litla sviðinu í
Borgarleikhúsinu. Auk Maríu leika
í verkinu þau Ari Matthíasson,
Árni Pétur Guðjónsson, Björn Ingi
Hilmarsson, Ellert A. Ingimundar-
son, Jón Hjartarson, Ragnheiður
Arnardóttir, Theodór Júlíusson,
Valgerður Dan og Þorsteinn Gunn-
arsson en hann leikur aðalhlutverk-
iö. Leikstjóri er Brynja Benedikts-
dóttir.
Heimspekingur í stofu-
fangelsi
„Söguþráðurinn er á þann veg að
það er maður í stofufangelsi. Hvort
hann er þar af sjálfsdáðum eða ann-
arra manna völdum er ekki alveg
ljóst. Hann er heimspekingur sem
þjóðin lítur til sem foringja síns og
hann er að guggna undan þeirri
ábyrgð. í heimsókn til hans kemur
- sett upp í Borgarleikhúsinu
svo fjöldi fólks. Ég kem fram í lok
verksins og leik þá feiminn heim-
spekinema sem dýrkar heimspek-
inginn og kem í heimsókn til hans.
Heimspekineminn sá kemur með
vonarneista með sér og það lifnar
yfir karli. Það er svolítið skondið af
því að ég hef áður leikið í verki eft-
ir Havel og þá var það líka ung
stúlka sem kom með vonarneistann
og bjartsýnina. Þetta er þrusugam-
an,“ segir leikkonan.
Ekki vön að vera fyndin
Václav Havel er eitt mikilvægasta
leikskáld Evrópu. Hann var aðsóps-
mikill andófsmaður gegn mannrétt-
indabrotum og eins konar þjóðhetja.
Hann sat fyrir vikið í fjölda ára í
fangelsi en varð forseti lands síns
eftir byltinguna mjúku í Tékkó-
slóvakíu árið 1989. í þessu leikriti er
skáldið hvorki að fjalla beinlínis um
eigið líf né umhverfi heldur hefur
verkið víðtækar skírskotanir í hin-
um þversagnakennda heimi okkar.
„Ég hlakka til frumsýningarinn-
ar. Það eina sem ég hef áhyggjur af
er að senan sem ég leik í er frekar
fyndin og ég er ekki vön að vera
fyndin. Þess vegna á ég í mesta basli
með að springa ekki af hlátri sjálf,“
segir María að lokum.
-ilk
Heimspekingurinn fær alls konar gesti.
Leikrit eftir Megas frumsýnt:
Gefin fyrir
drama þessi
dama
- og öllum stendur
Nú er hann Megas búinn að
semja leikrit. Um er að ræða einleik
sem er þó í fullri lengd og heitir Gef-
in fyrir drama þessi dama (og öllum
stendur svo innilega á sama). Eini
leikarinn er Sigrún Sól Ólafsdóttir
en hún útskrifaðist úr Leiklistar-
skóla íslands árið 1994 og hefur tek-
ið þátt í sýningum eins og Trjóju-
dætrum og Ég var beðin að koma.
Leikstjóri er Kolbrún Halldórs-
dóttir en hún leikstýrir einnig leik-
ritunum Kardimommubænum og
Hamingjuráninu sem sýnd eru í
Þjóðleikhúsinu svo það er nokkuð
Ijóst aö hér eru engir byrjendur á
ferðinni.
svo innilega á sama
Leiksýningin verður sett upp í
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og
samhliða sýningunni verður ljós-
myndasýning í hliðarsal þar sem
Spessi ljósmyndari ræður rikjum.
Verður hann þar með skemmtilega
leikmynd sem að mestu er unnin úr
fatnaði. Einnig verður gefinn út
geisladiskur eftir Megas.
Leikritið verður sýnt um helgina,
bæði á morgun og á sunnudag, og
hefst sýningin kl. 20.00.
-ilk
Sigrún Sól Óiafsdóttir leikkona.
DV-mynd Brynjar Gauti
IEIKHÚS
Þjóðleikhúsið
Nanna systir
laugardagur kl. 20.00
sunnudagur kl. 20.00
í hvítu myrkri
fostudagur kl. 20.30
laugardagur kl. 20.30
Borgarleikhúsið
Ef ég væri gullfiskur
fostudagur kl. 20.00
Largo Desolato
föstudagur kl. 20.00
Barpar
fóstudagur kl. 20.30
laugardagur kl. 20.30
Stone Free
laugardagur kl. 20.00
laugardagur kl. 23.30
Loftkastalinn
Sirkús Skara Skripó
föstudagur kl. 20.00
laugardagur kl. 20.00
Skemmtihúsið
Ormstunga
föstudagur kl. 23.00
laugardagur kl. 20.30
4
Það er óhætt að segja að morgun-
dagurinn verði mjög menningarleg-
ur um allt land því fjöldamargar
sýningar verða opnaðar þá. Þeirra á
meðal er sýning Ólafar Oddgeirs-
dóttur sem opnuð verður í Gallerí
Horninu. Ólöf ætlar að sýna olíu-
málverk en sýningin ber yfirskrift-
ina Að nefna til sögunnar. Þar eru
nefndar til sögu formæður listakon-
unnar og birtast tilvísanir í útsaum
þeirra í verkunum.
Ólöf stundaði myndlistarnám við
Myndlistarskóla Reykjavíkur og
Myndlista- og handíðaskóla íslands.
Hún hefur haldið tvær einkasýning-
ar og tekið þátt í tveimur samsýn-
ingum.
Sýningin mun standa til 9. októ-
ber og verður opin alla daga frá kl.
11.00 til 23.30.
-ilk
Hér er eitt verka Ólafar.
íslenska óperan
Galdra-Loftur
laugardagur kl. 21.00
Höfðaborgin
Gefin fyrir drama þessi
dama...
laugardagur kl. 20.00
sunnudagur kl. 20.00