Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 Fréttir i>v 30% Vinsælustu og óvinsælustu stjómmálamennirnir w - samkv. skoöanakönnun DV - Bomar em saman vinsældir og óvinsældir tólf umdeildustu stjórnmálamannanna samkv. skoðanak. DV. Grænu súlumar sýna niðustöðu síðustu skoðanakönnunar en hún var gerð 17. okt '95 Margrét . . . Frímannsdóttir Ppfftelnn Pálsson Riamasnn „ h"0rlK Bjarnason sophusson Jón Baldvin Hannibalsson Ólafur Ragnar Grímsson Rnnur Ingólfsson Ámi Ingibjörg Johnsen Jóhanna Pálmadóttir Sigurðardóttir ' * m "f } * I Davíð Oddsson -30 Skoðanakönnun DV á vinsældum stjórnmálamanna: Davíð Oddsson er umdeildastur allra Ólafur Ragnar enn nefndur og hástökkvarar í óvinsældum eru Jóhanna Sigurðardóttir og Árni Johnsen /íð Oddsson forsætisráð- - Davíð Oddsson forsætisráð- herra er greinilega umdeildastur allra íslenskra stjórnmálamanna um þessar mundir. Hann er vin- sælasti stjórnmálamaðurinn en jafnframt sá óvinsælasti. Þrátt fyr- ir að Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum formaður Alþýðubanda- lagsins, hafi verið kjörinn forseti lýðveldisins er hann enn nefndur til sögunnar og kemst í efstu sæti yfir vinsæla og óvinsæla stjórn- málamenn. Þeir stjórnmálamenn sem mest hafa aukið óvinsældir sínar eru Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Þjóðvaka, og Árni John- sen, þingmaður Sjálfstæðisflokks á Suðurlandi. Ingibjörg Pálmadótt- ir hefur sömuleiðis aukið óvin- sældir sínar verulega. Þetta er með- Vinsælustu stjórnmálamennirnir Óvinsælustu stjórnmálamennirnir Innan sviga eru niöurstööur skoöanakönnunar DV í okt. 1995 Innan sviga eru niöurstööur skoöanakönnunar DV í okt. 1995 Atkvæöl % af heild % af afstööu Atkvæöl % af heild % af afstööu 1. (1.) Davíö Oddsson 109 (127) 18.2% (21,2%) 32,3% (36,9%) 1. (2.) Davíö Oddsson 74 (61) 12,3% (10,2%) 25,5% (19,4%) 2. (2.) Halldór Ásgrímsson 80 (68) 13,3% (11,3%) 23,7% (19,8%) 2. (1.) Jón Baldvin Hannibalsson 53 (73) 8,8% (12,2%) 18,3% (23,2%) 3. (3.) Jón Baldvin Hannibalsson 21 (33) 3,5% (5,5%) 6,2% (9,6%) 3. (8.) Jóhanna Sigurðardóttir 33 (11) 5,5% (1,8%) 11,4% (3,5%) 4. (6.) Margrét Frímannsdóttir 18 (11) 3,0% (1,8%) 5,3% (3,2%) 4. (6.) Ingibjörg Pálmadóttir 24 (13) 4,0% (2,2%) 8,3% (4,1%) 5. (6.-7.) Þorsteinn Pálsson 14 (12) 2,3% (2,0%) 4,2% (3,5%) 5. (10.) Árni Johnsen 19 (7) 3,2% (1,2%) 6,6% (2,2%) 6. (-) Björn Bjarnason 9 (-) 1,5% (-) 2,7% (-) 6. (7.) Friðrik Sophusson 10 (12) 1,7% (2,0%) 3,4% (3,8%) 7.-9. (7.-9.) Steingrímur J. Sigfússon 8 (9) 1,3% (1,5%) 2,4% (2,6%) 7. (9.) Finnur Ingólfsson 9 (10) 1,5% (1,7%) 3,1% (3,2%) 7.-9. (10.) Svavar Gestsson 8(8) 1,3% (1,3%) 2,4% (2,3%) 8. (3.) Ólafur Ragnar Grímsson 8 (38) 1,3% (6,3%) 2,8% (12,1%) 7.-9. (-) Össur Skarphéöinsson 8 (-) 1,3% (-) 2,4% (-) 9. (-) Halldór Ásgrímsson 6(2) l',0% (0,3%) 2,1% (0,8%) al þess sem lesa má út úr skoðana- könnun DV á vinsældum stjóm- málamanna. Könnunin fór fram um síðustu helgi og var gerð af mark- aðsdeild Frjálsrar fjölmiðlunar hf. Úrtakið í skoðanakönnun DV var 600 manns. Jafnt var skipt á milli kynja og eins á milli landsbyggöar og höfuðborgarsvæðis. Spurt var: „Á hvaða stjómmálamanni hefur þú mest álit um þessar mundir?" og „Á hvaða stjórnmálamanni hefur þú minnst álit um þessar mundir?" Davfð Oddsson og Árni Johnsen í léttum samræöum við þingsetning- una í síöustu viku. Davíö er bæöi vinsælastur og óvinsælastur allra stjórnmálamanna á íslandi en Árni er í hópi þeirra sem mest hafa aukið óvinsældir sinar undanfariö ár, samkvæmt nýrri skoðanakönnun DV. DV-mynd BG Þrír vinsælustu þeir sömu Alls 56,2 prósent aðspurðra tóku afstöðu til spumingarinnar um vin- sælasta stjórnmálamanninn. Alls var 31 stjórnmálamaður tilnefndur, þar af 15 með fleiri en 5 tilnefning- ar. í hópi vinsælustu stjómmála- manna em 3 kratar, 6 framsóknar- menn, 9 sjálfstæðismenn, 6 alþýðu- bandalagsmenn, 3 kvennalistakon- ur, 2 þjóðvakar, 1 R- listamaður, þ.e. borgarstjórinn, og 1 fyrrum alþýðu- bandalagsmaður, þ.e. forseti ís- lands. Eins og í fyrri könnunum DV undanfarin misseri, en síðasta vin- sældakönnun var gerð fyrir ári síð- an, reyndist Davíð Oddsson vera vinsælasti stjórnmálamaðurinn. Hann naut fylgis 32,3 prósenta þeirra sem afstöðu tóku. Sömuleiðis er óbreytt röð með tvo næstu menn, þá Halldór Ásgrímsson með 23,7 prósent tilnefninga og Jón Baldvin Hannibalsson með 6,2 prósent til- nefninga. í Qórða sæti vinsældalistans er Margrét Frímannsdóttir með 5,3 prósent tilnefninga og fer hún upp um tvö sæti frá síðustu könnun fyr- ir ári. Þorsteinn Pálsson er í fimmta sæti með 4,2 prósent tilnefninga, Björn Bjamason er nýr á listanum í sjötta sæti með 2,7 prósent tilnefn- inga og jafnir í sjöunda til níunda sæti eru Steingrímur J. Sigfússon, Svavar Gestsson og Össur Skarp- héðinsson með 2,4 prósent tilnefn- inga hver. Steingrímur er á sömu slóðum og í fyrra, Svavar rís í áliti og Össur er nýr á listanum. kvennalistakonur, 2 þjóðvakar og 1 R-listamaður, þ.e. borgarstjórinn. Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar komast á þennan lista. Miklar breytingar eru á óvin- sældalistanum frá könnim DV í október i fyrra. Þeir Davíð og Jón Baldvin hafa sætaskipti. Davíð kemst á toppinn með 25,5 prósent tilnefninga þeirra sem afstöðu tóku og Jón Baldvin fer í annað sætið með 18,3 prósent tilnefninga. í næstu þremur sætum koma þeir stjómmálamenn sem mest hafa auk- ið óvinsældir sínar undanfarið ár. í þriðja sæti er Jóhanna Sigurðar- dóttir með 11,4 prósent tilnefninga, var síðast í áttunda sæti, Ingibjörg Pálmadóttir er í fjórða sæti með 8,3 prósent tilnefninga, var í sjötta sæti í fyrra, og Árni Johnsen sem fer úr tíunda sæti í fyrra í það fimmta nú með 6,6 prósent tilnefninga. Friðrik Sophusson er í sjötta sæti á óvinsældalistanum með 3,4 pró- sent tilnefninga, Finnur Ingólfsson er í sjöunda sæti með 3,1 prósent, Ólafur Ragnar Grímsson er í átt- unda með 2,8 prósent og Halldór Ás- grímsson er nýr á listanum í níunda sæti með 2,1 prósent tilnefninga. -bjb Breytingar á óvinsældum Afstöðu til spumingarinnar um óvinsælasta stjómmálamanninn tóku 48,3 prósent aðspurðra. Alls voru 32 stjómmálamenn tilnefndir, þar af voru 15 með fleiri en 4 til- nefningar. í röðum óvinsælustu stjómmálamanna landsins eru 3 kratar, 9 framsóknarmenn, 10 sjálf- stæðismenn, 4 alþýðubandalags- menn og 1 fyrrverandi alþýðu- bandalagsmaður, þ.e. forsetinn, 2 Þú getur svarað þessari spurningu með því að hringja í sima 9041600. 39,90 kr. mínútan Já Nel j rödd FOLKSINS 904 1600 Á ríkið að endurgreiða virðisaukaskatt vegna forsetaframboðanna?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.