Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996
Viðskipti
Verslunarráö íslands:
Þingmenn sýni
ábyrgð í
fjárlögum
Stjórn Verslunarráðs íslands
kom saman á mánudag og sam-
þykkti ályktun þar sem fagnað er
hallalausu fjárlagafrumvarpi. Jafn-
framt er skorað á þingmenn, þ.m.t.
framkvæmdastjóra ráðsins, Vil-
hjálm Egilsson, að „sýna þá ábyrgð
að hækka ekki útgjaldaliöi frum-
varpsins."
Bent er á að hallarekstur ríkis-
sjóðs á undanfórnum árum hafi
valdið skuldasöfnun hins opinbera
og haldið uppi vöxtum. Meiðingar
séu m.a. þær að vaxtagreiðslur rík-
issjóðs nemi um 40 milljónum
króna á dag.
Að síðustu er bent á að enn séu
ýmis atriði í skattalöggjöf sem þurfi
breytinga við auk þess sem á næstu
árum þurfi að draga verulega úr út-
gjöldum ríkissjóðs til að greiða
megi niður skuldir og skapa að-
stæður til skattalækkana.
Gjaldeyrisstaðan:
Rýrnaði um 900
milljónir í
september
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans
rýrnaði um 900 milljónir króna i
septembermánuði. Gjaldeyrisforð-
inn breyttist lítið þar sem bankinn
tók tæplega 900 milljóna króna
skammtímalán í útlöndum og nam
forðinn 23,9 milljörðum í lok mán-
aðarins. Seðlabankinn bendir á að
frá því seint í ágúst og til loka sept-
ember seldi hann gjaldeyri á gjald-
eyrismarkaði fyrir um 2 milljarða.
Heildareign Seðlabankans í
markaðsskráðum verðbréfum jókst
I september um 1 milljarð. Eign
bankans í spariskírteinum ríkis-
sjóðs breyttist lítið, ríkisbréfaeign-
in lækkaði um 100 milijónir en rík-
isvíxlaeignin jókst um rúman millj-
arð. Samtals lækkuðu kröfur bank-
ans á ríkissjóð og rikisstofnanir um
tæpan milljarð og voru í lok sept-
ember rúmum 7 milljörðum lægri
en í árslok 1995.
ÍS og lceland
Seafood stækka
í Bandaríkjunum
Á sameiginlegum stjórnarfundi,
íslenskra sjávarafurða, ÍS, og
Iceland Seafood Corporation, sem
haldinn var í Reykjavík í síðustu
viku, var ákveðið að byggja nýja og
fullkomna fiskréttaverksmiöju í
Bandaríkjunum. Verksmiðjan verð-
ur reist í Newport News í Virginíu-
fylgi, skammt frá hafnarborginni
Norfolk.
Framkvæmdir við endanlega
hönnun og undirbúningur að bygg-
ingarframkvæmdum hefjast nú þeg-
ar og er ætlað að nýja verksmiðjan
taki til starfa haustið 1997. Verkefn-
ið er að öllu leyti fjármagnað vestra.
Gert er ráð fyrir að 200 manns
starfi við nýju verksmiðjuna. Fyrstu
vikumar verður einnig framleitt í
núverandi verksmiðju í Camp Hill í
Pennsylvaníufylki en þeirri verk-
smiðju verður lokað þegar hin nýja
hefur náð fullum afköstum. Iceland
Seafood mun flytja höfuðstöðvar
sinar frá Camp Hill til Newport
News.
Á síðustu árum hefur árleg heild-
arsala Iceland Seafood numið um 8,4
milljörðum króna. Tvo þriðju söl-
unnar má rekja til fiskrétta en ár-
legt magn þeirra hefur verið 20 til 25
þúsund tonn.
Ný bók um
staðla
Framtíðarsýn hefur í samvinnu
við Viðskiptafræðistofnun Háskól-
ans gefið út bókina Staðlar - styrk-
ur stjórnandans, eftir Guðlaugu
Richter hjá Staðlaráði íslands. í bók-
inni er gerð grein fyrir stöðlun og
stöðlunarvinnu, rakinn tilgangur og
markmið stöðlunar, ólíkum gerðum
staðla lýst og dæmi gefm. -bjb
DV
Nor-Mar, dótturfyrirtæki SÍF í Tromsö í Noregi:
Selur norskan saltfisk
fyrir hálfan milljarð
- áætlanir fyrir 1997 miðast við veltu upp á 1 milljarð
Frá því í mars á þessu ári hefur
Sölusamband íslenskra flskfram-
leiðenda, SÍF, og dótturfyrirtæki
þess í Frakklandi, Nord-Morue, rek-
ið sölufyrirtæki í Tromsö í Norður-
Noregi undir nafninu Nor- Mar.
Þrír starfsmenn eru hjá Nor- Mar og
framkvæmdastjóri er Halldór Arn-
arson sjávarútvegsfræðingur. f sam-
tali við DV sagði Halldór að salan á
árinu hefði gengið vel en fyrirtækið
kaupir eingöngu saltfísk af norsk-
um framleiðendum og selur hann til
helstu saltfiskmarkaða í Evrópu;
Frakklands, Ítalíu og Spánar. Frá
því í mars hefur Nor-Mar selt um
2.500 tonn fyrir tæplega hálfan millj-
arð króna og áætlanir næsta árs
gera ráð fyrir að selja 5 þúsund tonn
fyrir um 1 milljarð.
Hlutur SÍF í Nor-Mar er um 98%
og Nord-Morue á 2% í fyrirtækinu.
Áður en það var stofnað rak SÍF
nokkurs konar umboðsskrifstofu í
Noregi frá árinu 1994 með einum
starfsmanni.
Halldór Arnarson, framkvæmda-
stjóri Nor-Mar í Noregi sem selur
eingöngu norskan saltfisk.
DV-mynd bjb
„Við þurfum ákveðinn tíma til að
komast af stað en við erum í harðri
samkeppni við aðra norska útflytj-
endur. Okkar styrkur felst í því að
vera innan samsteypu SÍF og nýta
okkur þau sölusambönd sem þar
eru. Við skiptum við ákveðinn hóp
framleiðenda sem framleiða Scun-
kvæmt okkar gæðastöðlum. Ef áætl-
anir okkar ganga upp þá skipum við
okkur í hóp stærri útflutningsaðila
á saltfiski í Noregi. Það ætti að
takast því Norðmenn eru að mörgu
leyti á eftir íslendingum í stöðluð-
um fiskafurðum eins og saltfiski,"
sagði Halldór.
Einstaka framleiöandi
þenur sig!
Tromsö hefur sem kunnugt er
nokkrum sinnum orðið vettvangur
úthafsveiðideilna Norðmanna og ís-
lendinga. Aðspurður hvort deilurn-
ar hefðu haft einhver áhrif á rekst-
ur Nor-Mar sagði Halldór svo ekki
vera.
„Ég myndi segja að íslenskir fjöl-
miðlar geri meira úr þessum deilum
heldur en fjölmiðlar í Noregi. Ein-
staka framleiðandi er kannski eitt-
hvað að þenja sig en við sneyðum
hara framhjá þeim. Menn hafa ekk-
ert efni á að hugsa um svona hluti,
heldur þurfa þeir fyrst og fremst að
gæta fjárhagslegra hagsmuna
sinna,“ sagði Halldór.
Kom frá keppinautum
Eins og áður sagði er Halldór
sjávarútvegsfræðingur að mennt.
Hann nam fræðin i Tromsö og að
því loknu gerðist hann markaðs-
stjóri Sölusamtaka norskra fisk-
framleiðenda. Þar starfaði hann í 214
ár, eða þar til hann var ráðinn til
Nor-Mar í mars sl. Hann er því
núna í buliandi samkeppni við sína
fyrrum samstarfsmenn. Halldór
sagði að allt hefði þetta gerst í góðu
þótt vissulega væri skrítið að keppa
við gamla samherja.
-bjb
Hagvaxtarþróun:
2,5 prósent til
aldamóta
Síðustu tvö ár var hagvöxtur hér
á landi svipaður og í helstu sam-
keppnislöndunum. Áriö 1996 eru
horfur á að hagvöxtur verði meiri
hér en í nokkru öðru ríki OECD, ef
írland og Tékkland eru undanskil-
in, eða 5,5 prósent. Jafnframt eru
horfur á að fram til aldamóta verði
hagvöxtur svipaður og í nálægum
löndum, eða um 2,5 prósent að með-
altali á ári. Þetta er meðal þess sem
kemur fram úr plöggum Þjóðhags-
stofnunar í nýju fjárlagafrumvarpi
fyrir árið 1997.
í áætlun Þjóðhagsstofnunar fyrir
áriö 1997 er miðað við að dragi úr
aukningu einkaneyslu og fjárfest-
ingar. Sömuleiðis að dragi úr vexti
í inn- og útflutningi. Þjóðarútgjöld
aukist áfram meira en þjóðartekjur
og halli á viðskiptajöfnuði verði því
enn meiri en á þessu ári, eða nálægt
3 prósent af landsframleiðslu.
Þess ber að geta að spá Þjóðhags-
stofnunar um 2,5 prósenta hagvöxt
á næsta ári miðast við að frekari
stóriðjuframkvæmdir verði ekki
ákveðnar, t.d. fyrirhugað álver Col-
umbia á Grundartanga. -bjb
Hagvöxtur til aldamóta
-samkvæmt spá -
Þjóðhagsstofnunar
n — — — — —
_o — —- ■ ■ — ;
.4 ——
1988 1990 1992 1994 199É 1998 2000
Þingvísitalan þýtur upp
Þingvísitala hlutabréfa rauk upp
sl. mánudag í 2220 stig og hefur
aldrei verið hærri í sögu hlutabréfa-
viðskipta á Verðbréfaþingi Islands.
Frá áramótum hefur vísitalan
hækkað um 70 prósent. Hækkunina
á mánudag má m.a. rekja til verð-
hækkunar á bréfum SUdarvinnsl-
unnar, Flugleiða, íslandsbanka og
Olís.
Hlutabréfaviðskipti um Verð-
bréfaþing og Opna tilboðsmarkað-
inn í síðustu viku námu tæpum 135
milljónum króna, sem eru nokkru
minni viðskipti en að undanfórnu.
Mest var keypt af bréfum Síldar-
vinnslunnar í Neskaupsstað, eða
fyrir 18,5 milljónir. Næst komu
Eimskipsbréfin með 14,8 milljóna
viðskipti og Alli ríki og félagar í
Hraðfrystihúsi Eskifjarðar löðuðu
fjárfesta til sin sem nam 15,7 millj-
ónum króna. Þar á eftir komu SÍF
með 9,9 miUjónir, SR-mjöl með 9,3
mUljónir, íslandsbanki með 8,6
mUljónir og ÚA með 7,9 mUljónir.
Sem fyrr seldi enginn togari i er-
lendum höfnum í síðustu viku en í
gámasölu í Englandi seldust 272
tonn fyrir rúmar 40 mUljónir króna.
Þar af seldust rúm 120 tonn af ýsu
fyrir tæpar 15 miUjónir. Á nokkrum
vikum hefur gámaýsan hækkað í
verði um 40 prósent.
Enn lækkar áiiö
Heimsmarkaðsverð á áli heldur
áfram að lækka og nálgast 1300 doU-
ara múrinn. Þegar viðskipti hófust í
London í gærmorgun var stað-
greiðsluverðið 1309 dollarar fyrir
tonnið. Eftirspurn eftir áli er lítU
um þessar mundir en ljósið í myrkr-
inu er að á næsta ári spá spekingar
hækkandi álverði. Ekki veitir af ef
reisa á nýtt álver á Grundartanga.
Gengi gjaldmiðla hefur lítið sem
ekkert breyst undanfama viku.
Sölugengi doUars er rúmar 67 krón-
ur, pundið í rúmum 105 krónum,
markið á 44 krónur og jenið 0,60
krónur. -bjb