Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Qupperneq 11
Jj'V* MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 enmng n Náttvíg Thors vekur athygli Skáldsagan Náttvíg eftir Thor Vilhjálmsson kom út á frönsku síðastliðið vor og hefur vakið talsverða athygli í frönskumæl- andi löndum Evrópu. Gagnrýn- andi ffanska blaðsins La voix du nord líkir honum við Bukowski, Rósu Liksom og kvikmyndir Jims Jarmush, en sagan gerist ekki í stórborg heldur „fer sögu- maðurinn og leigubilstjórinn með okkur til Reykjavíkur. Til íslands sem velkist í ólgusjó frá einum bar til aimars. . .“ í svissneska blaðinu Le Nouveau Quoditien er löng grein um bókina þar sem segir meðal annars: „Stíll Thors Vilhjálmssonar er napur og ljóð- I rænn, grafinn í héluna ... í Nátt- vígum blandast raddir heljanna úr fomsögunum röddum sjávar- ins og nafnlausum röddum þeirra hetja sem nú eru á dögum.“ Það var Frangois Emion sem þýddi bókina og bókaútgáfan Act- es Sud sem gaf hana út. Sjónþing Helga Þorgils Á sunnudaginn kemur klukk- an 14 hefst Sjónþing Helga Þorgils Friðjónssonar í Gerðu- bergi. Það em Ólafur Gíslason gagnrýnandi DV og Þorri Hringsson myndlistarmaður sem leiða umræðuna. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir Djöflaeyjan úr bókum í kvikmynd Bangsaleikur Hörkulið stendur að nýrri bamaleiksýningu sem verður frumsýnd í Gerðubergi kl. 11 í fyrramálið. Hún er ætluð 2-7 ára bömum og heitir Bangsaleikur. Þar segir frá lilta Bangsa sem villist frá fjölskyldu sinni úti í hinum stóra skógi, og verður hræddur og einmana. Hann reyn- ir að laga sig að dýrum sem hann hittir til að vingast við þau, en uppgötvar að lokum að ráðið til að eignast vini er ekki að reyna að vera annar en maður er held- ur einmitt maður siálfur. Leikrit- Kvikmyndin Djöflaeyjan eftir Friðrik Þór Friðriksson, gerð eftir bókum Einars Kára- sonar Þar sem djöflaeyjan rís og Gulleyjan, hefur farið af stað eins og raketta. Allir sem vettlingi geta valdið eru búnir að sjá hana og hinir era á leiðinni. Hún fékk strax daginn eftir ffumsýningu glimrandi dóma í DV og Morgunblaðinu, og efasemdimar era varla famar að heyrast þegar þetta er skrifað. Bækumar eru óvenju vel kunnar öllum al- menningi. Þær hafa verið gefnar út bæði inn- bundnar og í kilju í stórum upplögum, og meðal annars verið lesnar í grunnskólum landsins. En nokkrar grundvallarbreytingar voru gerðar á efnisþáttum á leiðinni ffá sögum í handrit sem kunnugum koma spánskt fyrir sjónir. Til dæmis býr fjölskylda Karólínu spákonu ekki í bragga í sögunum, eins og hún gerir í kvikmyndinni, heldur i Gamla húsinu, eina „húsinu" í Thúle- kampi, og það skýrir að nokkru yfírstéttarstöðu hennar í hverfinu. Undir þá stöðu ýtir að Tómas, fyrirvinna fjölskyldunnar, er kaupmaður í sögun- um, en í kvikmyndinni vinnur hann við höfhina. Einnig er bætt við orðlausri ástarsögu Danna og stúlkunnar Hveragerðar, sem reyndar virðist ekki lengur bera það nafti með rentu í myndinni. Hvað segja bókamenn? Er bíómyndin betri - eða vora bækumar betri? Og hvað segja kvik- myndagerðarmenn. Tókst að „kvikmynda bæk- urnar“ - eða hvað? Hrafn Jökulsson ritstjóri. Mikil vonbrigði „Ég varð fyrir miklum vonbrigðum meö þessa mynd,“ segir Hrafn Jökulsson ritstjóri. „Ekki vantar íburðinn og glæsileikann, en gott söguefni er eyðilagt fullkomlega með því að persónumar era meira og minna eins og út úr áramótaskaupi, sem þær era ekki í bókunum. Mesti ljóðurinn á ráði þessarar myndar er að hverja einustu persónu skortir dýpt. Þetta hlýtur að vekja upp efasemdir tun að Friðrik Þór sé fær um að stjóma leikurum eða kalla ffam það besta í þeim til að nýta í persónusköpun. Ég efast ekki um að hann er góður kvikmyndagerðarmaður að öðru leyti, en leikarastjóri er hann augsýnilega ekki. Fyrir vikið fannst mér þessi mynd vera ys og þys út af ákaflega litlu, og eftir standa aðallega digurbarkaleg ummæli aðstandenda hennar um að þetta sé dýrasta mynd íslandssögunnar og þess vegna eigi fólk að drífa sig að sjá hana. Mér finnst þau rök duga skammt í ljósi þess að þama er gott söguefni steindrepið." Ekki sambærilegt „Ég fór að velta fyrir mér samanburði á bók og mynd meðan ég var að horfa á myndina," segir Kristin Jóhannesdóttir leikstjóri, „en svo ákvað ég að gefa það upp á bátinn. Þetta er ekki sam- bærilegt vegna þess að stíll Einars Kárasonar er svo mikill bókmenntastíll. Grundvöllur tækni hans er dásamleg frásagnargleði og stílfærsla á persónum sem gefur þeim ótrúlegt líf í rituðu máli. Það er hans aðaÚ. En það er erfitt að eiga við þessar stílfærðu persóniu- í bíómyndum. Kannski hefði verið betra að draga úr stíláhrifum Einars. En svo hætti ég að hugsa um þetta því hvoragum er gerður greiði með slíkum saman- burði.“ - Er eitthvað sem kallar á þaö í kvikmyndinni að Tommi hætti að vera kaupmaður og verði hafnarverkamaður? Era kaupmenn of fint fólk í Kristfn Jóhannesdóttir kvikmyndageröarmaöur skálar viö Friörik Þór Friöriksson af ööru tilefni. huga okkar til að Tommi geti bæði verið kaup- maður og píslarvottur? „Já, kannski. Til að stytta leiðina að samsöm- un við persónumar þurfti að gera þær eindregið að hinum síðustu hinna síðustu. Setja þær alveg niður á botn. Þegar bók er löguð að kvikmynda- handriti er alltaf mesti vandinn að stytta leiðim- ar, þjappa saman, svo að áhorfendur nái sam- bandi hér og nú, hindrunarlaust. En maður verð- ur óneitanlega dálítið hissa á að það skuli alltaf vera eitthvað i buddu verkamannsins, hversu oft sem í hana er farið. En hann er náttúrlega alltaf í eftirvinnu í slippnum. Maður skapar sér heim bókmenntaverks þegar maður les og hefur miklu meira rými til upplif- unar við lestur en í bíó. Bíómyndin þarf að ramma þetta inn á tveim tímum og hafa alltaf í huga að fólk missi ekki tengslin við þráðinn. Sá sem hefur dáð bókmenntaverkið hlýtur að tapa á bíómyndinni." Friörik Erlingsson rithöfundur. Handrit á að skila andblæ „Ég veit auðvitað aö kvikmyndahandrit eftir bók á í sjálfu sér ekki að skila bókinni," segir Friðrik Erlingsson, sem sjálfur sneri skáldsögu sinni Benjamín dúfu I kvikmyndahandrit. „Það á að skila þeim andblæ sem þar er, og þaö finnst mér takast í Djöflaeyjunni. Hins vegar hefði myndin þurft að vera lengri en hún er. Sagan er of stór, of mikil, persónumar of margar til að all- ir endar náist saman. Mér sýndist til dæmis Gijóni gufa upp. Mann langar mest til að fara aft- ur í bækurnar til að ná dýpra sambandi við per- sónumar. Það er auðvitað ágætt út af fyrir sig, en svolítið leiðinlegt ef 170 milljóna króna mynd verður auglýsing fýrir bækumar! Ég sá myndina með konu sem bjó á Gríms- staðaholtinu á þessum tíma og það var mjög skemmtilegt, hún þekkti þetta allt og myndin ork- aði mjög sannfærandi á hana. En ég held að það hefði þurft að sýna andstæðu braggalífsins betur. Vinna meira úr atriðum eins og þegar ráðist er á strákinn snemma í myndinni og kveikt í skóla- töskunni hans. Við hefðum átt að fá að sjá hann í skólanum innan um böm frá öðrum heimilum. Fyrirlitningin á braggafólkinu kemur ffarn í sam- tölum, en viö upplifum ekki skilin á milli bragga- fólksins og borgaranna. Hörðum bókmenntaunnendum finnst myndin kannski hvorki vera fugl né fiskur miðað við dýpt sagnanna, en það er ekki réttlátt að dæma myndina út frá bókunum. Mynd þarf að fara eins langt frá bók og hægt er um leið og hún er á kafi í henni. Kjaminn þarf að vera sá sami, en bók og kvikmynd eru tvennt óiíkt. í raun og vera hefði þurft að fara lengra frá bókunum til að koma að þeim aftur og ná betur utan um þær. Of margir atburðir í myndinni vekja spurninguna hvemig var þetta nú aftur í bókinni? í staö þess að myndin fúllnægi manni algerlega, eigi sitt upphaf og sinn endi, sé heil og sjálfbjarga veröld.“ er ettir rnuga Jokuisson, rit- höfund og útvarpsmann, sem áður hefur í barnabók fjallað um einmana lítinn skógarbjöm sem reynir að vingast við önnur dýr með ófyrirsjáanlegum afleiöing- um. Leikstjóri sýningarinnar er Sigrún Edda Bjömsdóttir; Guðni Franzson semur tónlistina, Helga Rún Pálsdóttir hannar búninga, og loks eru það Stefán Sturla Sig- uijónsson og Jakob Þór Einars- son sem leika. Bangsaleik er hægt að leika nánast hvar sem er, segja að- standendur sýningarinnar, sem vonast til að leika hana fyrir sem allra flest böm. Valgeröur Stefánsdóttir kennari. Merkileg kvikmynd „Mér fannst þessi kvikmynd góð en hún er al- veg sjálfstætt listaverk," segir Valgerður Stefáns- dóttir kennari. „Hún fjallar um sama efni og bæk- umar en hún vinnur ekki eins úr því, og mér finnst það flott. Sjónrænar viðbætur eins og þeg- ar Tommi leikur Chaplin til að gleðja Gijóna vora ferlega finar. Tilgerðarlausar og viðeigandi. Mér finnst eðlilegt í myndinni að fjölskyldan búi í bragga og tilheyri braggafólkinu, það hefði ekki virkað þar aö þau byggju I húsi. Persónusköpunin er öðravísi en í bókunum, en þetta era sannar persónur. Til dæmis Baddi, sem er dæmi um mann sem aldrei era gerðar kröfúr til, enda er hann fjötraður af löngunum sínum og ástríðum og gersamlega óftjáls maður sem stefn- ir beint í glötun. Enginn maður hefur sjálfsvirðingu i þessu um- hverfi nema einna helst Danni. Annaðhvort era menn gólftuskur eða gjömýta aðra, og báðir hóp- ar eru jafn óhamingjusamir og illa á sig komnir. Og þeir sem era ofan á era jafnvel verr settir. Ömurleikinn er meiri í myndinni, enda leggur Friðrik minni áherslu á fyndni en sagan og leik- gerðin. Ég upplifi þetta sem merkilegan kafla í ís- lenskri samtímasögu. Og mér finnst þetta merki- leg mynd.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.