Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Blaðsíða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996
óháð
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aöstoöarritstjóri: EUAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11,
blaóaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVlK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Fjárreiður framboða
Tveir af fimm frambjóðendum til embættis forseta
hafa nú birt endurskoðaða reikninga framboða sinna.
Reiknað er með, að hinir þrír geri það fljótlega. Fyrstu
tölur benda til, að kostnaður á hvern frambjóðanda hafi
verið frá 15 milljónum króna upp í 40 milljónir króna.
Þetta var miklu dýrari kosningabarátta en áður hafði
þekkzt í forsetakosningum. Kosningasagan sýnir eins
konar vítahring, þar sem hver ný barátta slær fyrri
kostnaðarmet. Sífellt koma til sögunnar nýjar og dýrari
baráttuaðferðir, sem menn þykjast verða að taka upp.
Búast má við, að næstu forsetakosningar verði enn
dýrari. Ekki er fráleitt að spá því, að kostnaður á hvem
frambjóðanda tvöfaldist í hvert sinn sem raunverulegar
forsetakosningar eru háðar, ef það gerist á tíu ára fresti
eða sjaldnar. Breytt kosningatækni kallar á þetta.
Til þess að fleiri en miUjónamæringar geti í framtíð-
inni boðið sig fram til forseta og til þess að fjársterkir að-
ilar ráði ekki mestu um val forsetaefna, er nauðsynlegt,
að þjóðfélagið í heild styðji framboðin með einhverjum
hætti, helzt með skattfrelsi framlaga til þeirra.
Nú gildir slíkt skattfrelsi um framlög til stjórnmála-
flokka og trúarlegra samtaka. Það er innan rammans að
láta þessar reglur gilda einnig um framlög til forseta-
frambjóðenda. Miklu minni hætta er á, að reglurnar
verði misnotaðar á því sviði en hinum tveimur fyrri.
Skattfrelsi framlaga af þessu tagi á að vera háð því, að
bókhald viðkomandi aðila sé opið og að jafnframt sé gerð
skrá yfir gjafmildustu stuðningsaðilana, svo að sjá megi,
hvaða og hvers konar aðilar eru fjárhagslega áhugasam-
astir um gengi hvers frambjóðanda.
Hér er ekki eingöngu verið að tala um bein framlög í
peningum. Framlög geta líka verið í formi kaupa á
miklu magni happdrættismiða, í formi fyrirgreiðslu og
afsláttarkjara í auglýsingum, í formi lágrar leigu fyrir
aðstöðu. Hugtakið framlög þarf að ná yfir óbeinu þætt-
ina.
Nánast alls staðar í lýðræðisríkjum er opin bókhalds-
skylda í stjórnmálunum. í Bandaríkjunum eru þar að
auki reglur um hámarksgreiðslur. Hér á landi hafa
flokkarnir hins vegar vikizt undan slíku, þótt þeir njóti
opinberrar fyrirgreiðslu í formi skattfrelsis framlaga.
Frambjóðendur til embættis forseta íslands standa
flokkunum framar á þessu sviði. Opnu bókhaldi þeirra
fylgir þó ekki skrá yfir gjafmildustu stuðningsaðilana og
samanlagðan stuðning hvers þeirra. Slík skrá mundi þó
skipta enn meiru máli í fjárreiðum flokkanna.
Dularfullt er, hversu eindregið flokkamir og eindregn-
ast stærstu flokkarnir verja hagsmuni hinna stóru og
sterku gegn almannahagsmunum. Það sýna meðal ann-
ars samskipti pólitíska valdsins við fáokunarhring
tryggingafélaga, svo sem fyrirgreiðsla í setningu laga.
í okkar þjóðfélagi, þar sem stjórnmálamenn og stjórn-
málaflokkar gera meira af því að leika hlutverk skömmt-
unarstjóra en hliðstæðir aðilar í nágrannalöndunum, er
afar brýnt, að fjármál þeirra séu öllum opin og að ljós
séu tengsl þeirra við fjársterka hagsmunaaðila.
Þannig er breytinga þörf á fleiri sviðum málsins en að
fella forsetaframboð undir sömu reglur og önnur fram-
boð. Ekki er nóg að koma á skattfrelsi í framlögum til
allra þessara aðila. Jafnframt þarf að setja reglur um
opnar og endurskoðaðar fjármálaupplýsingar þeirra.
Endurvakin umræða um þessi mál er góðs viti. Hvort
tveggja er eðlilegt, skattfrelsi framboða og birtingar-
skylda á bókhaldi, þar með taldar viðskiptamannaskrár.
Jónas Kristjánsson
Hæg eru heimatökin þegar nótin er dregin inn aö tína íslensku fiskana úr netinu
ítölsk kona í
íslenskri landhelgi
í síðustu viku
heimsótti okkur
enn einn útlending-
urinn. Haustið
byrjar sem sagt
ekki vel. Ætla þeir
aldrei að skilja að
við viljum kannski
miklu frekar vera í
friði og út af fyrir
okkur?
í þetta skiptið
var það ítölsk
kona. ítalskir karl-
menn hafa þó verið
umfangsmeira
áhugamál síðustu
misserin. Ástandið
í kringum þá hefur
verið svipað stríðs-
ástandinu fyrir
stofnun lýðveldis-
ins. Ástæðan er ör-
ugglega jafn eðlileg og veðrið. Sög-
ur endurtaka sig nefnilega oftast.
Núna lifum við samt á friðartím-
um.
Sameiginleg eign...
í siðustu viku lá þó við að enn
eitt stríðið væri
skollið á.
Það var þegar
þessi ákveðna
ítalska kona kom
og byrjaði að segja
okkur það sem
henni lá á hjarta.
Það voru orð sem
smugu um leið inn
í eyru okkar allra í
gegnum ljósvaka-
miðlana.
Við héma í Norðrinu eigum
ekki fiskinn okkar ein, segir hún.
Hann er sameiginleg eign hinna
þjóðanna í Evrópu. Þó að hann
komi vel alinn upp að fslands-
ströndum þá er hann fæddur og
uppalinn á hinu evrópska efna-
hagssvæði. Hún sagði það kannski
ekki beint, en við sáum og heyrð-
um samstundis hvert
hún var að leiða okkur.
Hún var hreinlega að
líkja framferði okkar
við söguna um litlu
gulu hænuna. Við vilj-
um öll borða brauðið
þegar það kemur úr ofn-
inum.
Fallegar íslenskar
tölur
Og áfram hélt hún.
Vildi helst draga okkur
inn i Evrópusambandið
til þess að geta gleypt
okkur endanlega. En
hver á eiginlega fisk-
ana, þessa saklausu
málleysingja úthafsins?
Auðvitað báram við
hönd fyrir höfuð okkur
og reyndum að kæfa
hana með íslenskri þögn, en ekk-
ert virtist duga.
Þá bárust töliú úr ráðuneytinú.
Þær eru alltaf umvafðar ákveðinni
en þéttri véfréttarmóðu og hafa
þess vegna sín áhrif - nema á
þessa manneskju og aðstoðar-
mann hennar. Á tímabili virtist
hún kannski allt í einu skilja og
vera á sama máli. En það var ekki
nema eitt andartak.
f tölunum kemur samt skýrt og
greinilega fram að meira en 92 af
hundraði af síldinni okkar kom
aldrei við í lögsögu Evrópusam-
bandsins á síðasta ári, áður en
hún skilaði sér endanlega heim í
reknetin okkar. Við sem vorum
líka byrjuð að sakna hennar. Síld-
in var og er týnda dóttirin og son-
urinn okkar sem við fögnum með
því að marinera ofan i tunnu.
Fleiri tölur bárust svart á hvítu en
Emma ákvað samt að skipta ekki
um skoðun. í staðinn dáðist hún
að þessum fallegu og íslensku tölu-
stöfum.
Landhelgi utan talnakerfis
Það sem er í rauninni merkileg-
ast í öllu þessu máli er að sjálf-
sögðu afrek vísindamannanna
okkar. Núna er sem sagt hægt að
fylgjast með ferðum fiskanna
svona lengst ofan í undirdjúpun-
um. Aðferðirnar, sem fiskifræð-
ingarnir beita, era enn að mestu
leyti á huldu. Manni skilst samt að
þeir merki silin á ákveðnum aldri
líkt og ákveðna fugla. Þannig séu
heimatökin hæg þegar nótin er
dregin inn og íslenskir fiskarnir
eru tíndir úr netinu. Einnig hefur
heyrst að þegar þeir gera að fisk-
inum sjái þeir um leið á hvaða
fæði hann hefur verið í gegnum
lífið og hafið - evrópsku eða ís-
lensku.
Við lærum öll í barnaskóla að
það er bannað að flytja hrátt kjöt
til landsins - nema ferðamenn. Og
þá frekar I styttri tíma. Þeir era
samt orðnir helsta tekjulind okk-
ar. Við höfum sömuleiðis hleypt
árstiðabundnum farfúglum hingað
en þeir hafa yfirleitt hypjað sig
áður en það er um seinan.
í samtölum ráðamanna við
ítölsku sendikonuna er komin enn
ein en samt glæný staðfesting á
þjóðarstolti okkar. Við viljum að-
eins leggja okkur alíslenskan fisk
til munns, ekki útlenskan eða
ókunnan.
Landhelgin er kannski 200 sjó-
mílur á kortinu en í huga okkar er
hún fyrir utan talnakerfið.
Haraldur Jónsson
Kjallarinn
Haraldur Jóns-
son
myndlistarmaður
„í samtölum ráðamanna við
ítölsku sendikonuna er komin enn
ein en samt glæný staðfesting á
þjóðarstolti okkar. Við viljum að-
eins leggja okkur alíslenskan físk
til munns, ekki útlenskan eða
ókunnan. “
Skoðanir annarra
Samkeppni um orkuna
„Landsvirkjun var bam síns tíma og án fyrirtæk-
isins hefði trúlega ekki verið ráðist í nauðsynlegar
stórvirkjanir. Landsvirkjun mun vafalaust áfram
hafa stærstu virkjunarverkefnin á sinni könnu,
hvemig sem eignarfyrirkomulagið verður á fyrir-
tækinu. En fyrirhugaðar breytingar á orkulögum
verða að miðast við, að neytendur fái orkuna á
lægsta mögulega verði og hezta tryggingin fyrir því
er samkeppni orkufyrirtækja."
Úr forystugreinum Mbl. 8. okt.
Handboltinn
„Skattgreiðendur hafa greitt götu íþróttafélaga
með ýmsu móti, svo sem byggt yfir þau hús. Ef nú
bestu liðin í deildinni vilja selja sérstaklega sýning-
arrétt úr „smum“ húsum inn á lokaðar rásir sem
fáum standa til boða þá er komið að tímamótum.
Gleymum því ekki þegar HSÍ ætlaði að selja lands-
leiki inn á lokað áskriftarkerfl Stöðvar 2 fyrir nokkr-
um árum. Handknattleiksunnendur ætluðu vitlausir
að verða, og það með réttu. Opinber stúðningur við
keppnisíþróttir er mikill og félögin verða að skila
skemmtun á móti - fyrir hóflegt verð og aðgengilega
öllum.“
Stefán Jón Hafstein í Degi-Ttmanum 8. okt.
ESB og framsal veiöiréttinda
„Þegar við athugum aðild að ESB er spuming
hvort við getum sætt okkur við Mlveldisframsal í
hendur ESB á þessum sviðum. Geri ESB minni kröf-
ur en við Islendingar gerum sjálfír til vemdunar
hafsins er áhættan af fullveldisframsali mikil. Séu
kröfurnar jafnmiklar eða meiri er áhættan minni.
En þetta er þó ekki öll sagan, þvi eftir stendur rétt-
urinn til veiða og framsal hans. Á þvi sviði getum
við ekki borið okkur saman við nokkurt aðildarríki
ESB í heild sinni.“
Magnús M. Norðdal í Alþbl. 8. okt.