Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Blaðsíða 22
42 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 Afmæli Ólafur Víðir Björnsson Ólafur Víðir Björnsson fram- haldsskólakennari, Lynghaga 1, Reykjavík, er fimmtugur i dag. Starfsferill Ólafur fæddist á Dalvík en ólst upp á Sauðárkróki og á Stóru- Ás- geirsá í Víðidal í Vestur-Húnavatns- sýslu. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1966, BA-prófi í íslensku og sagnfræði frá HÍ 1971, cand. mag.- prófi í íslenskum bókmenntum frá HÍ 1977, prófi í uppeldis- og kennslu- fræði frá KHÍ 1981 og hefur sótt ýmis námskeið er lúta að kennslu, skólamálum og tölvuvinnu. Ólafur kenndi við Barnaskóla Sauðárkróks og kenndi íslensku við Iðnskólann á Sauðárkróki 1966-67, kenndi íslensku við Hagaskólann 1971-81 og var jafhframt deildar- stjóri þar og æfingakennari í ís- lensku 1974-81 og prófstjóri 1976-81, kenndi íslensku við VÍ 1981-82, við MR 1982-85, las prófarkir og veitti málfars- og textaráðgjöf 1985-88 og sinnti síðan slíkum störf- um í hjáverkum, hafði umsjón með þýðingu handbókar yfir rit- vinnsluforritið World Perfect 5.0 og vann við tölvur hjá Einari J. Skúlasyni hf. 1988-89, var deildarsérfræðingur og ritstjóri kennsluefnis í ís- lensku hjá Námsgagna- stofnun 1989-90, ritstjóri hjá Almenna hókafélag- inu hf. 1990-91, hafði um- sjón með útgáfu ritsins Utanríkisþjónusta ís- lands og utanríkismál, eftir Pétur J. Thorsteinsson, útg. 1992, og hefur kennt íslensku við VÍ frá 1993. Þá hefur Ólafur gegnt margs konar sumarvinnu. Hann sinnti m.a. skrif- stofustörfúm hjá bæjarfógetanum á Seyðisfirði í tíu sumur. Ólafur sat í stjóm Stúdentaaka- demíu HÍ 1969-71, var forseti aka- demíunnar 1970-71, formaðm- Kenn- arafélags Hagaskólans 1976-77, í stjórn Félags háskóla- menntaðra kennara 1976-79, var einn stofn- enda Samtaka móður- málskennara 1977, sat í stjórn þeirra frá stofnun til 1982 og var meðrit- stjóri fyrstu tölublaða Skímu, málgagns samtak- anna. Fjölskylda Ólafur kvæntist 10.8. 1968 Halldóru Erlendsdóttur, f. 22.4. 1947, gjaldkera í Búnaðarbanka íslands. Hún er dóttir Erlends Björnssonar, f. 24.9. 1911, d. 26.11. 1980, bæjarfó- geta og sýslumanns á Seyðisfírði, og k.h., Katrinar Jónsdóttur, f. 20.4. 1913, húsmóður. Börn Ólafs og Halldóru eru Er- lendur Þór, f. 17.1. 1970, sölumaður hjá Rekstrarvörum hf. í Reykjavík, en sonur hans og Ástu Sóleyjar Sölvadóttur, fyrrum sambýlikonu hsms, er Jóhann Víðir, f. 17.12.1992; Jóhanna Margrét, f. 30.9.1975, nemi; Birna Halldóra, f. 1.8. 1980, nemi. Systir Ólafs, sammæðra, er Stein- unn Margrét Steingrímsdóttir, f. 2.2. 1942, fulltrúi á Litla-Hrauni, búsett á Eyrarbakka, gift Einari Magnús- syni, varðstjóra á Litla-Hrauni. Albræður Ólafs eru Þórir Dan, f. 13.12.1944, prófessor og deildarstjóri við lyflækningadeildina á Jefferson Medical College við Thomas Jeffer- son University i Fíladelfiu í Banda- ríkjunum, kvæntur Ernu Jakobs- dóttur húsmóður; Pétur Örn, f. 10.4. 1955, arkitekt i Reykjavík, kvæntur Sigurveigu Knútsdóttur kennara. Foreldrar Ólafs: Björn Daníels- son, f. 16.2. 1920, d. 20.6. 1974, skóla- stjóri Barnaskóla Sauðárkróks og forstöðumaður Héraðsbókasafns Skagfirðinga á Sauðárkróki, og k.h., Margrét Ólafsdóttir, f. 30.7. 1916, húsmóðir i Reykjavík, fyrrum bóka- vörður við Héraðsbókasafn Skag- firðinga og síðar við Borgarbóka- safnið í Reykjavík. Ólafur Víðir Björnsson. Ármann Eiríksson Ármann Eiríksson, at- vinnumálafulltrúi Hafn- arfjarðarbæjar, Þúfubarði 9, Hafnarfirði, er fimm- tugur í dag. Starfsferill Ármann fæddist í Reykjavík og ólst þar upp við Brunnstiginn og frá sjö ára aldri í Skjólunum. Hann flutti til Hafnar- fjcuðar tuttugu og tveggja ára og hefur átt þar heima síðan. Ármann lauk verslunarprófi frá VÍ 1965. Ármann stundaði skrifstofustörf um skeið hjá fyrirtækinu Standard Electric AS í Kaupmannahöfn, starf- aði hjá Sölumiðstöð hraðfrystihú- sanna 1966-67, stofnaði ásamt félaga sínum Skóbúðina í Suðurveri 1967 og starfaði þar til 1972, vann við matvöruverslunina Hamrakjör í Suðurveri um tíma, var sölumaður og síðan sölu- stjóri í Glerborg hf. í Hafnarfírði 1973-81, stofnaði þá fyrirtækið Myndrammann sf., sem hann starfrækti með öðr- um mn tveggja ára skeið, sinnti söluumsjón og markaðssetningu hjá 01- íufélaginu hf. 1982-88, starfaði hjá Sölumiðstöð garðyrkjumanna 1988-90, var framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra far- fugla 1990-92 og hefur verið at- vinnumálafulltrúi Hafnaríjarðar- bæjar frá ársbyijun 1993. Ármann var um tíu ára skeið virkur félagi í JC-hreyfingunni, varð forseti JC Hafnarfjörður, svæð- isstjóri Reykjaness og landsforseti JC fsland, var útnefndur heiðursfé- lagi JC íslands og enn fremur senator 32536 af JS International og þar með ævifélagi samtakanna. Þá starfaði hann um skeið í Lions- klúbbnum Víðarri. Fjölskylda Ármann kvæntist 24.5. 1969 Erlu Guðrúnu Gestsdóttur, f. 22.10. 1948, fóstru. Hún er dóttir hjónanna Gests M. Gamalíelssonar, húsa- smíðameistara og síðar kirkjugarð- svarðar í Hafnarfirði, og Jónu Guð- mundsdóttur ritara sem bæði eru látin. Böm Ármanns og Erlu eru Jón Gestur, f. 28.2. 1969, sjúkraskósmið- ur í Hafnarfirði, kvæntur Ástu Bimu Ingólfsdóttur húsmóður, frá Innri- Kleif í Breiðdal, og eiga þau dótturina Erlu Guðnýju, f. 9.5. 1995; Steinunn Eir, f. 31.7. 1974, nemi í Kaupmannahöfn, og á hún dóttur- ina Ölfu Karitas, f. 25.12. 1991; Her- mann, f. 13.4. 1976, matreiðslumað- ur. Ármann kvæntist 5.10. 1996 Sig- rúnu Gísladóttur, f. 16.6. 1950, skóla- ritara í Öldutúnsskóla. Hún er dótt- ir Gísla Guðmundssonar, fyrrv. for- stjóra við vélsmiðjuna Klett í Hafn- arflrði, og Guðlaugar Högnadóttur húsmóður, frá Laxárdal í Gnúp- veijahreppi, sem er látin. Böm Sigrúnar frá fyrra hjóna- bandi eru Hildur Hinriksdóttir, f. 21.2. 1971; Helgi Hinriksson, f. 12.6. 1972; Gísli Pétur Hinriksson, f. 29.5. 1979. Systkini Ármanns eru Ferdinand Róbert, f. 30.6. 1951, sjúkraskósmið- ur, og Jóhanna Erla, f. 20.7. 1957, iðjuþjálfi í Herlev í Danmörku. Foreldrar Ármanns em Eiríkur R. Ferdínandsson, f. 14.6. 1924, og Steinunn Eiríksdóttir, f. 27.2. 1925, húsmóðir. Ármann er að heiman. Ármann Eiríksson. Signý Sigurlaug Tryggvadóttir Signý Sigurlaug Tryggvadóttir húsmóðir, Glæsivöllum 17 B, Grindavík, varð sextug í gær. Starfsferill Signý fæddist á Þórshöfn á Langanesi og átti þar heima til 1943 en síðan í Kópavogi. Hún flutti í Neskaupstað 1961 og bjó þar til 1974 er hún flutti til Grindavíkur þar sem hún hefur átt heima síðan. Fjölskylda Signý giftist 29.9. 1964 Hauki Þórðarsyni, f. 29.9. 1934, sjómanni. Hann er sonur Þórðar Sveinssonar, bónda í Skógum í Mjóafirði, og Sig- ríðar Eiríksdóttur húsfreyju, en þau em bæði látin. Böm Signýjar em Smári Lind- berg Einarsson, f. 25.7.1955, sjómað- ur á Raufarhöfn, kvæntur Guð- björgu Hilmarsdóttur, og eru börn þeirra Hilmar Öm, f. 29.4. 1978, Signý Sjgurlaug, f. 1.12. 1984, d. 15.9. 1985, Haukur Þór, f. 8.4. 1987, og Signý Sigurlaug, f. 16.10. 1991; Stef- anía Huld Gylfadóttir, f. 12.3. 1958, bóndakona á Tjörnesi, gift Smára Kárasyni, og eru börn þeirra Frið- þór, f. 30.9. 1982, Sveinbjörg, f. 13.12. 1985, Sóley, f. 12.11. 1988, Andri, f. 21.10. 1989, og Valur, f. 16.11. 1991; Olga Rán Gylfadóttir, f. 23.2. 1960, húsmóðir í Grindavík, gift Stein- grími Thorarensen, og eru böm þeirra Bjarki Hrafn, f. 15.9. 1981, Klara Dögg, f. 21.9. 1982, Aníta Rós, f. 6.6/ 1986, d. 26.7. 1986, Aron Trausti, f. 19.7.1987, Sylvía Harpa, f. 8.8. 1988, Sindri Marel, f. 7.12. 1994, og Móníka Rós, f. 7.8. 1996; Dagbjört Ýr Gylfadóttir, f. 17.7.1961, verslun- armaður í Keflavík, gift Kristjáni Þór Karlssyni, og eru böm þeirra Karl Vilhjálmur, f. 6.10. 1981, og Stefanía Sigurbjörg, f. 19.4. 1987; Ei- ríkur Óðinn Hauksson, f. 21.2. 1964, búsettur í Danmörku, kvæntur Þor- björgu Stefánsdóttur, og er sonur þeirra Atli Freyr, f. 1.8. 1987; Vío- letta Heiðbrá Hauksdóttir, f. 11.4. 1972, verkakona á Siglufirði, en son- ur hennar er Kristófer Óðinn, f. 7.2. 1993. Systkini Signýjar: Guðrún Tryggvadóttir, bóndi að Þursstöðum í Borgarflrði; Sigfús Tryggvason, nú látinn, verkamaður í Kópavogi; Helga Tryggvadóttir, húsmóðir í Reykjavík; Jakob Tryggvason, nú látinn, leigubílstjóri í Kópavogi; Ólafur Tryggvason, pipulagningar- maður i Kópavogi; Sverrir Tryggva- son, búsettur í Kópavogi; Ingólfur Tryggvason, búsettur í Kópavogi; Alfreð Björnsson, bóndi í Útkoti á Kjalarnesi. Foreldrar Signýjar vom Tryggvi Sigfússon, f. 2.11. 1892, d. 4.12. 1984, bóndi og verkamaður á Þórshöfn og í Kópavogi, og Stefanía Sigurbjörg Kristjánsdóttir, f. 16.11. 1893, d. 1.11. 1981, húsmóðir. og greiöslukorta- afsláttur og stighœkkandi birtingarafsláttur attt miltí hirryns Smáauglýsingar ipsxsi 550 5000 Hrafnhildur Hafnfjörð Þórisdóttir Hrafnhildur Hafnfjörð Þórisdótt- ir, starfsstúlka við sælgætisgerðina Völu, Goðatúni 7, Garðabæ, er fer- tug í dag. Fjölskylda Hrafnhildur fæddist í Hafnarfirði og ólst þar upp. Hún giftist fyrir tuttugu árum, þann 9.10. 1976, Jens Kristni Þorsteinssyni, f. 7.9. 1955, starfsmanni við verslunina Japis. Hann er sonur Þorsteins Þorsteins- son og Guðrúnar Jensdóttur. Böm Hraftihildar og Jens Kristins eru Þórir Hafnfjörð Jensson, f. 5.3. 1976, nemi við Fjöl- brautaskólann í Garða- bæ, og Guðrún Jensdótt- ir, f. 28.11.1981, nemi við Garðaskóla í Garðabæ. Systkini Hrafnhildar eru Óskar, f. 14.10. 1954, búsettur í Hafnarfirði; Magdalena Sirrý, f. 14.4. 1955, búsett í Keflavík; Hrafnhildur Hafn- fjörð Þórisdóttir. Marinó, f. 9.12. 1957, bú- settur í Varmahlíð í Skagafirði; Sverrir, f. 17.12. 1962, búsettur í Hafnarfirði. Foreldrar Hrafnhildar eru Þórir Hafnfjörð Óskars- son, f. 17.4. 1933, bifreiðar- stjóri í Hafnarfirði, og Ingibjörg Kristín Þorgeirs- dóttir, f. 24.9. 1935. DV Tll hamingju með afmælið 9. október 80 ára Aðalheiður Siggeirsdóttir, Kaplaskjólsvegi 61, Reykjavík. 75 ára Sveinn Guðlaugsson, Skálagerði 9, Reykjavík. Kristin Jónsdóttir, Espigerði 4, Reykjavík. 70 ára Eiríkur Nielsen, Melgerði 11, Kópavogi. Júlíus D. Friðriksson, Gröf, Svarfaðardalshreppi. Guðrún Ólafsdóttir, Suðurgötu 4 A, Keflavík. Þorsteinn Júliusson, Laugarbrekku 9, Húsavík. 60 ára Sigurður Þorsteinsson, Háteigi 10, Keflavik. Inga Rósa Hallgrímsdóttir, Engihjalla 9, Kópavogi. Jónas Grétar Sigurðsson, Steinahlíð 5 F, Akureyri. Erla Sigurjónsdóttir, Túngötu 15, Húsavík. 50 ára Hildar Jóhann Pálsson, Hraunbúðum, Vestmannaeyj- um. Steingrímur Þ. Gröndal, Haðalandi 3, Reykjavík. Gísli Snorrason, Brekkukoti, Mosfellsbæ. Helga Magnúsdóttir frá Hreimsstöðum, Hjalta- staðahreppi, nú til heimilis að Útgerði 7, Egilsstöðum. Þorbjörg Bernhard, fulltrúi hjá íslandsbanka, Engjateigi 17, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Sigurjón Gunnars- son. Þau taka á móti gestum í Listhúsinu Laugardal, Engjateigi 17-19, Reykjavík, nk. laugardag, 12.10., kl. 18-21. Marit Anny Einarsson, Silfurtúni, Hrunamanna- hreppi. Hrafn Baldvins Hauksson, Lönguhlíð 9, Reykjavík. Kristín Jóhannsdóttir, Miðvangi 95, Hafnarfirði. Aðalsteinn Tryggvason, Norðurbraut 13, Hvamms- tanga. 40 ára Þórarinn Sigurbjörnsson, Kambaseli 9, Reykjavík. Jóna Margrét Baldursdótt- ir, Miðtúni 78, Reykjavík. Þórunn Helga Guðbjörns- dóttir, Sæbólsbraut 22, Kópavogi. Halla Harðardóttir, Skaftárvöllum 12, Skaftár- hreppi. Guðlaug Auðunsdóttir, Grundarstíg 2, Flateyri. Leah Ann Mauzey, Mararbraut 2, Húsavík. Sólveig Bjarnar Guðmunds- dóttir, Mararbraut 2, Húsavík. Elsa Jenny Halldórsdóttir, Skarðshlíð 6 H, Akureyri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.