Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Side 28
m til nrMkf/s að Wnn^ \ > - ri0/96í7ni0Hl2H18- (20) (21) (22] KIN S LX3 *=c FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 Frá vettvangi slyssins. DV-mynd S Lést eftir umferðarslys Liðlega þrítugur karlmaður lést eftir umferðarslys í Reykjavík um klukkan hálfellefu í gærkvöldi. Ekið var á manninn þar sem hann var á reiðhjóli á mótum Hofsvallagötu og Hringbrautar og er talið að hann hafi látist samstundis. -sv Stjórnsýsluendurskoðun: Byggingasjóður verkamanna í vanda I skýrslu Ríkisendurskoðunar um stjómsýsluendurskoðun á Húsnæð- isstofnun er staða Byggingasjóðs verkamanna talin mjög alvarleg og að gjaldþrot hans sé yfírvofandi. Til að svo fari ekki þurfi tvennt að koma til; annars vegar vaxtahækk- un á félagslegum íbúðalánum eða aukið ríkisframlag. Miðað við að ríkisframlag þessa árs, sem er 400 milljónir, komi að fullu inn í sjóð- inn þá telur Ríkisendurskoðun að vextirnir þurfi að hækka úr 2,4% í 3,6%. Ríkisendurskoðun telur að núver- andi samningur stofnunarinnar við Veðdeild Landsbankans hvetji bankann ekki til þess að reka lánaumsýslu Húsnæðisstofnunar með sem hagkvæmustum hætti. Ríkisendurskoðun dregur einnig í efa hagkvæmni þess að Húsnæðis- stofnun reki sjálf umsýslu með hús- bréf og ráðgjafarstöð fyrir viðskipta- vini og segir ástæðu til að kanna hvort þessi starfsemi sé ekki betur komin hjá t.d. bönkum og lánastofn- unum. Aðkeypt þjónusta Húsnæðisstofh- unar af Veðdeild Landsbankans og Reiknistofu bankanna nemur 43% af heildargöldum stofnunarinnar. -SÁ Flateyri: Eldur í pitsustað Eldur kom upp í pitsustaðnum og sölutuminum Kríunni á Flateyri í morgun. Enginn var í húsinu en töluverður eldur og reykur þegar að var komið. Þegar DV hafði samband vestur um klukkan hálfníu voru menn að berjast við eldinn. Lögregl- an á ísafirði hafði engar upplýsing- ar um eldsupptök né skemmdir á staðnum í morgun. -sv Félagsdómur úrskurðar í deilumáli um niðurstöðu Kjaradóms: Dómarar stefna ríkinu - vilja fá orlof greitt af fastri yfirvinnu Dómarar hafa stefnt ríkissjóði fyrir Félagsdóm og krefjast þess að þeir fái greitt orlof af föstum yfirvinnugreiðslum sem Kjara- dómur úrskurðaði þeim árið 1993. Hér er um að ræða kjaramál sem varðar alla héraðs- og hæstaréttar- dómara landsins. Þegar Kjaradómur kvað upp úr- skurðinn á sínum tíma fengu dóm- arar ákvarðaða fasta yfirvinnu en ekki var gert ráð fyrir að þeir fengju greitt orlof af þessari fostu yfirvinnu sem í raun var kjarabót. í kjölfar þess kom síðan upp ágreiningur um það hvort ríkinu bæri að greiða orlof af yfirvinnu dómaranna. Dómarar hafa ekki viljað sætta sig við túlkun ríkisins og var því ákveðið að láta reyna á málið fyrir Félagsdómi. Þeir dómarar sem hafa dóm- störf að aðalatvinnu og eru í fé- lagsdómi hafa eðli málsins sam- kvæmt nú vikið úr dóminum vegna vanhæfni. „Almennir-1 héraðsdómarar fá 32 klukkustundir greiddar í fasta yfirvinnu á mánuði og svarar það til um 100 þúsund króna á mán- uði. Af þeirri upphæð vilja dómar- ar fá orlofið greitt - 10,17 prósent. Föst heildarlaun héraðsdómara eru hins vegar hátt í 300 þúsund krónur á mánuði. Dómstjórar og héraðsdómarar, sem starfa einir á landsbyggðinni, fá 47 yfirvinnustundir greiddar á mánuði fyrir alla yfirvinnu og aukið álag. Forseti Hæstaréttar fær 42 yfirvinnustundir greiddar á mánuði en aðrir hæstaréttardóm- arar fá 37 stundir greiddar. Dómendur i málinu fyrir félags- dómi verða fimm. Einn af vara- mönnum í félagsdómi er nú dóms- formaður en Hæstiréttur skipaði hins vegar tvo dómara. Málsaðil- ar, dómarar og ríkið, skipuðu síð- an hvor sinn dómarann. Málið hefur verið ílutt og tekið til dóms. Niðurstöðu er að vænta í þessum mánuði. -Ótt Skeiðarársandur í morgun: Ekkert hlaup enn Ekkert bólaði á Skeiðarárhlaupi í morgun og var fremur lítið í ánni, enda hefur verið kalt í veðri þar eystra í gær og nótt. Bryndís Brandsdóttir, jarðeðlis- fræðingur á Raunvísindastofnun, sagði að gosið hefði haldið jafnt og þétt áfram í nótt, en minni sveiflur virtust í því samkvæmt mælum en var fyrir nokkrum dögum. I dag yrði reynt að komast á gosstöðvam- ar og til Grímsvatna til að sjá hvað er að gerast, en það hefur ekki ver- ið hægt vegna veðurs frá því í síð- ustu viku. -SÁ Þjófstart í rjúpu Lögreglan á Patreksfirði hirti í gær tvo menn á ijúpnaveiðum á Dynjandisheiði en eins og menn vita má ekki skjóta hana fyrr en 15. októ- ber. Að sögn Sveins Ólafssonar lög- reglumanns verðm- haft virkt eftirlit með þessum málum á næstu dögum og hvetur hann menn til þess að fara að lögum. Sveinn segir menn geta misst skot- og veiðileyfi verði þeir staðnir að því að þjófstarta í rjúpuna, auk þess sem skotvopnin geti verið gerð upptæk. -sv Friðrik Sophusson tjármálaráöherra í ræðustóli á Alþingi í gær þegar fyrsta umræða um fjárlagafrumvarpiö 1997 fórfram. Hörö gagnrýni kom frá stjórn- arandstöðunni á frumvarpið, einkum á niöurskurö t mennta- og heilbrigðis- málum. DV-mynd GVA Fjárlagaumræða á Alþingi: Hörð gagnrýni frá stjórnarandstöðu - á niðurskurð í mennta- og heilbrigðismálum Fyrsta umræða um fjárlagafrum- varpið fór fram á Alþingi í gær. Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra mælti fyrir frumvarpinu en fékk harða gagnrýni frá þingmönn- um stjómarandstöðunnar. Niður- skurður í mennta- og heilbrigðis- málum var einna helst gagnrýndur. Nokkrir stjórnarandstæðingar sáu þó ástæðu til að fagna stefnu ríkis- stjómarinnar að hallalausum fjár- lögum en frumvarpið er sem kunn- ugt er lagt fram með afgangi upp á 1,1 milljarð króna. Gísli S. Einarsson, þingmaður Jafnaðarmanna, sagði stefnu ríkis- stjórnarinnar í heilbrigðismálum ekki liggja ljósa fyrir. Ekki væri tek- ið á því í fjárlagafrumvarpinu hvemig mæta ætti stöðugt vaxandi kostnaði við heilbrigðisþjónustuna. Afleiðingamar væru lengri sjúkra- biðlistar, meiri lyfiakostnaður, auk- in útgjöld Tryggingarstofnunar og heildarniðurstaðan væri þjóðhags- lega óhagkvæm. Gísli fullyrti að á skorti a.m.k. 1 milljarð króna til að mæta aukinni þörf í heilbrigðisgeir- anum. Friðrik Sophusson efaðist um að það væri rétt mat hjá Gísla að 1 milljarð vantaði í heilbrigðismálin. Ef litið væri sameiginlega á félags- og heilbrigðismál þá hefði ekki ver- ið sá niðurskurður í málaflokkun- um sem haldið hefði verið fram. Friðrik lagði á það áherslu í fram- sögu sinni að ríkisfiármálum yrði að koma í jafnvægi svo grynnka mætti á erlendum skuldum. Vaxta- greiðslur væru orðnar óheyrilega miklar, svo miklar að þær færu upp fyrir útgjöld til skólamála í landinu og væru svipaðar útgjöldum til sjúkrahúsanna á Akureyri og í Reykjavík. Friðrik sagði að tekjuhlið frum- varpsins markaðist af þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar að auka ekki skattbyrðina. Unnið væri að heild- arendurskoðun á tekjuskatti ein- staklinga og ýmsum bótagreiðslum, m.a. til að draga úr svonefndum jað- arsköttum. -bjb L O K I Veðrið á morgun: Skúrir víöa um land Á morgun verður sunnan- og suðaustankaldi og rigning eða skúrir víða um land en að mestu þurrt norðaustanlands. Hiti verður á bilinu 3 til 8 stig. Veðrið í dag er á bls. 44 533-1000 7 Kvöld- og helgarþjónusta Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.