Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1996, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996
Utlönd
Mladic, hers-
höfðingi Bosníu-
Serba, fellst á
að fara frá
Ratko Mladic, sem fór með yf-
irstjórn hers Bosníu-Serba í
átökunum í Bosníu frá 1992 til
1995, hefur fallist á að segja af
sér og binda þar með enda á
valdabaráttu við stjórnmálaleið-
toga Serba, að
sögn óháðrar
júgóslavneskr-
ar fréttastofu.
Fréttastofan
VIP skýrði frá
því að Mladic
hefði skrifað
til borgara-
legra yfir-
valda Bosníu-
Serba i höfuðborg þeirra Pale til
að staðfesta að hann hefði afsal-
að sér völdum í hendur aðstoð-
armanns síns, Manojlos Milo-
vanovics hershöfðingja.
Eitt fyrsta verk Milovanovics
verður síðan að afsala sér yfir-
ráðum yfir hernum í hendur
Peros Colics, sem nýtur stuðn-
ings borgaralegra yfirvalda
Bosníu-Serba.
Ratko Mladic hefur verið
ákærður fyrir stríðsglæpi vegna
hlutverks síns í stríðinu í Bosn-
íu. Reuter
## Verksmiöjum lokaö í Frakklandi og skortur á matvælum:
Ongþveiti ríkir vegna
verkfalls vörubílstjóra
Öngþveiti ríkir nú í Frakklandi
eftir að tilraunir til að binda enda á
11 daga langt verkfall vörubílstjóra
fóru út um þúfur seint í gærkvöld.
Vörubílstjórar kváðust ekki myndu
fjarlægja vegatálma eftir að samn-
ingamenn þeirra tilkynntu að slitn-
að hefði upp úr viðræðunum við at-
vinnurekendur og fulltrúa stjóm-
valda. Vörubílstjórarnir kreíjast
meðal annars hærri launa og styttri
vinnutima.
I gær vom vegatálmar á um 250
stöðum víðs vegar um Frakkland og
eru aðgerðir vörubílstjóra famar að
hafa veruleg áhrif á atvinnulíf.
Vegna vegatálma við olíubirgða-
stöðvar hefur þurft að loka um 2
þúsund af 18 þúsund bensinstöðv-
um. Á sumum stöðum er bensín
skammtað til þess að hægt sé að af-
greiða sjúkrabila og slökkviliðsbíla.
Kalla þurfti lögreglu til nokkurra
bensínstöðva þar sem reiðir öku-
menn höfðu reynt að koma í veg fyr-
VIDEOSPÓLU-
TILBOD
Ný mynd kr. 300.
Eldri myndir kr. 150.
Barnaefni kr. 100.
- ALLTAF NÝTILBOÐ-
Kúlan
Langholtsvegi 130
Sími 588-3320
UPPBOÐ
Á nauðungarsölu sem haldin verður föstudaginn 6. desember 1996,
kl. 16, við Bílaskemmu BG v/Flugvallarveg í Keflavík hefur, að kröfu
ýmissa lögmanna og sýslumannsins í Keflavík, verið krafist sölu á
eftirtöldum bifreiðum og ööru lausafé:
A-4428 A-4856 AX-076 BD- 239 BF-436 DE-669
DP-952 FB-668 FF-553 FÞ-317 GD- 548 GE-739
GF-964 GH-133 GI-260 GM-220 GN- 825 GO-567
GP-104 GP-250 GS-909 GT-288 GU- 373 GU-509
GU-674 GX-605 GY-332 GÞ-745 HB-155 HG-707
HH-871 HO-749 HS-056 HT-417 HT- 629 HX-863
HZ-787 IA-552 IA-837 IC-918 ID-781 IF- 501
IG-380 IL-440 IP-059 IP-325 IP-394 IR- 307
IR-672 IX-984 IZ-681 IÞ-328 IÖ-400 IÖ- 701
1-119 J A-740 JB-784 JB-994 JJ-450 JJ- 897
JL-520 JP-448 JS-918 JT-258 JT-844 JÖ- 842
KA-082 KB-510 KD-863 KD-935 KE- 902 KS-759
KT-024 KU-891 LG-159 LH-150 LL- 666 MA-181
MA-654 MO-711 MS-409 NA-868 ND- 696 NE-345
OA-035 OD-233 OX-955 OZ-281 PA-151 PJ-559
R-1058 R-22810 R-42727 R-70747 R-9258 RY-085
SE-310 SI-255 SM-052 TF-959 VR-594 Y-1864
YA-496 Ö-2827 Ö-4011 Ö-541
Uppboöiö veröur síöan flutt aö Tjarnargötu 31 a, Keflavík, og veröa
eftirfarandi tæki til flatkökugerðar seld: Weisert Losert, færi-
band/fletjuvél, Excelsior-Mix, iðnaðarhrærivél, 40 lítra, og helluborð,
4 stk. með 26 hellum, allt staðsett að Tjarnargötu 31 a, Keflavík.
Greiðsla áskilin við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Keflavík
Franskir vörubílstjórar hlýja sér við eld við vegatálma við Fontainbleau, um 60 kílómetra sunnan viö París.
Simamynd Reuter
ir að neyðarbílar, þar á meðal
læknabílar, fengju afgreiðslu á und-
an öðrum. Verksmiðjum hefur ver-
ið lokað vegna hráefnisskorts og
skortur er á ýmsum matvælum.
Verkfallið í Frakklandi, og hlið-
stætt verkfall í Danmörku, hefur
einnig skapað vandræði í öðrum
evrópskum löndum. Þúsundir vöru-
bílstjóra frá Bretlandi, Spáni,
Þýskalandi og öðrum löndum eru
innlyksa, matarlausir og félausir.
Aukin spenna meðal þeirra hefur
leitt til átáka við franska bílstjóra.
í Þýskalandi ógnar verkfall fran-
skra vörubílstjóra framleiðslunni
hjá bílaframleiðandanum Volkswag-
en AG. Jafnframt hefur verkfallið
hindrað flutninga til Þýskalands á
ferskum ávöxtum, grænmeti, fiski,
áfengi og fleiru frá Frakklandi,
Skandinavíu, Spáni og öðrum lönd-
um.
í Danmörku hafa um 1500 vörubíl-
stjórar hindrað vöruflutninga við
landamærin við Þýskaland frá því á
mánudag. Þeir hafa einnig hindrað
umferð um hafnir frá því á þriðjudag.
Danska vörubílstjóra greinir á við
stjómvöld um skattafrádrátt. Reuter
Stjórnarandstæðingar í Serbíu herða róðurinn: Stuttar fréttir
Krefjast
forseta
Stjórnarandstöðuleiðtogar í
Serbíu segja að ekkert lát verði á
mótmælaaðgerðum þeirra vegna
ógildingar sveitarstjórnarkosninga
og þeir krefjast þess nú að Slobod-
an Milosevic forseti segi af sér.
Vuk Draskovic, einn leiðtoga Za-
jedno, samfylkingar stjórnarand-
stæðinga, sagði mannfjölda í mið-
borg Belgrad í gær að nú snerust
mótmælin ekki lengur um það aö
Milosevic neitaði að viðurkenna
kosningasigur stjórnarandstöðunn-
ar.
„Þar til í gær börðumst við til að
verja kosningasigur okkar. Nú er
takmark uppreisnar okkar afsögn
Slobodans Milosevics," sagði Dra-
skovic.
Stjórnarandstæðingar hafa stað-
ið fyrir mótmælaaðgerðum í rúma
afsagnar
landsins
viku, eða frá því yfirvöld ógiltu úr-
slit bæjar- og sveitarstjómarkosn-
inga þar sem flokkur forsetans fékk
herfilega útreið.
Talið er að milli fimmtiu og átta-
tíu þúsund manns hafi verið á göt-
um Belgrad í gær, í einhverri
stærstu mótmælagöngunni til
þessa.
Fjölmenni hefur verið í svipuð-
um göngum í iðnaðarborgunum
Nis og Kragujevac þar sem Milos-
evic hefur átt traustu fylgi að
fagna.
Forsetinn lét endurtaka kosning-
amar í gær en stjórnarandstæðing-
ar hvöttu fólk til að sitja heima.
Ekki hafa birst neinar tölur inn
kjörsókn en búist er við að úrslit
verði kunn síðar í dag.
Reuter
Tuttugu og
í flugslysi
Tíu flugliðar og þrettán farþegar
létu lífið er rússnesk vöruflutninga-
vél af gerðinni Ilyushin IL- 76 fórst
í Síberíu í gærkvöld. Flugvélin, sem
var með 30 tonn af farmi, var á leið
frá Abakan í suðurhluta Síberíu til
Petropavlovsk-Kamchatsky á
Kamtsjatkaskaga.
Að sögn rússneskra yfirvalda
rofnaði samband við flugvélina að-
eins sjö mínútum eftir flugtak.
Interfaxfréttastofan greindi frá því
þrír létust
í Síberíu
að brak úr flugvélinni og nokkur lík
hefðu fundist i 16 kílómetra fjar-
lægð frá Abakan.
Undanfarna mánuði hafa þó
nokkrar flugvélar af þessari gerð
farist. Þann 12. nóvember rakst
Ilyushin-vél í eigu KazAir flugfé-
lagsins á risafarþegaþotu yfir Ind-
landi með þeim afleiðingum að á
þriðja hundrað manns týndi lífi.
Einnig fórust Ilyushin-vélar í apríl,
júní og ágúst. Reuter
Engin málamiðlun
Bandarísk stjómvöld útiloka
tilslakanir í andstöðu sinni gegn
endurkjöri Boutrosar-Ghalis í
starf framkvæmdastjóra SÞ.
Banvænt námuslys
Fjórir námumenn týndu lifi og
15 er saknað eftir aurskriðu í
demantanámu í Suðúr-Afi-íku í
gærkvöld.
Ekki í NATO
Paavo
Lipponen, for-
sætisráðherra
Finnlands, it-
rekaði eftir við-
ræður við yfir-
menn Atlants-
hafsbandalags-
ins í Brussel í
gær að Finnar hefðu ekki í hyggju
að sækja um aðild að NATO.
Þingmenn reknir
Alexander Lúkasjenkó, forseti
Hvíta-Rússlands, bjó sig undir að
reka andstæðinga sína út úr þing-
húsinu og ætlaði að nota málara
og rafvirkja til verksins en ekki
lögréglu.
Kosið í Alsír
Alsírbúar biðu í röðum við opn-
un kjörstaða í morgun til að kjósa
um nýja stjómarskrá en bókstafs-
trúarmenn og stjómarandstæð-
ingar hvöttu kjósendur til að sitja
heima eða segja nei.
Glæpir í brennidepli
írska þjóðin gengur að kjör-
borðinu í dag til að ákveða hvort
herða eigi reglur sem gilda um
lausn meintra sakamanna gegn
tryggingu. Reuter