Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1996, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1996, Blaðsíða 24
32 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 Sviðsljós Ástfangin af líf- verði sínum Lisa Marie Presley hefur fall- iö fyrir lífveröi sínum sem er kvæntur maður. Lífvörðurinn, Scott Pesch, og Lisa kynntust á fundi hjá Scientology trúfélag- inu sem þau eru bæði félagar í. Lisa bað lífvörðinn og konu hans, Kim, að flytja i hús á land- areign sinni í Los Angeles og fór vel á með þeim þremur í fyrstu. En eiginkonunni fór að mislíka náin vinátta Lisu og eigin- mannsins og fór í fússi. Tommy Lee Pameluspúsi dregur fyrrum hóru heim í kotið: I ástarleikjum ofan á píanói konunnar Ólíkt hafast hjónin að. Á meðan strandvarðagellan og sílíkonkrúttið Pamela Anderson var úti að kaupa fot á litla bamið sitt var eiginmað- urinn Tommy Lee aftur á móti heima með fyrrum þúsund dollara hóru að gamna sér ofan á stofústáss- inu, píanóinu hennar Pamelu. Enda hefur Pamela sótt um skilnað þótt Tommy reyni hvað hann geti til að lappa upp á hjónabandið. Húðflúraði málsveitartrommar- inn hann Tommy var svo aðfram- kominn af losta, fikniefna- og áfeng- isvímu að hann hreinlega stóðst ekki hana Suzie Sterling sem hann komst í kynni við í næturklúbbi og fór með heim. „Þegar hann giftist Pamelu var hún bara nýtt leikfang í hans aug- um. Þegar sonurinn Brandon fædd- ist var hann líka bara nýtt leikfang. En Tommy verður fljótt leiður á leikfongunum sinum og þarf að fá sér ný. Ég var líka nýtt leikfang," segir Suzie sem nú starfar sem fata- fella. Hún var áður á snærum hóru- mömmunnar alræmdu, Heidi Fleiss, sem margir af frammámönn- um Hollywood áttu viðskipti við. Suzie Sterling var með Tommy. Eitthvað hefur innkaupaferð Pa- melu dregist á langinn því Suzie eyddi hvorki meira né minna en þremur sólarhringum með kyns- vallaranum Tommy trommara. „Hann fór með mig heim. Ég vissi að Pamela var ekki heima,“ segir Suzie og lýsir eldheitum ástarleikj- um uppi á píanóinu. Ekki verður farið nánar út í þá sálma hér. En Suzie var greinilega ánægð með rokkarann. „Hann hefur ótrúlegt úthald," segir Suzie um Tommy. MIKIÐ ÚRVAL AI NÝJUM OG NOTUÐUM HLJÓÐFÆRUM Kassagítarar frá kr. 8.000,- 12 strengja gítarar. Kassagítarar með pikkupi. FERNANDES gítarar á tilboðsverði. Sendum í póstkröfu. GÍTARINN ehf. Laugavegi 45 • sími 552 2125 • fax 557 9376 Effektatæki. Strengir. Neglur. Magnarar. Trommusett. Hljóðnemar. Statív. Mandolín. Ukulele. Gítarbækur. og margt fleira. FÖSTUDAGAR f r P gjjp' V t r f ; w 1L^4 Um helgina: Fersk umfjöllun um það helsta sem er á döfinni í menningar- og skemmtanalífinu um helgina. Tónlist: Fjörkálfurinn fjallar ítarlega um íslenska og erlenda tónlist og tónlistarheiminn ásamt því að birta íslenska listan. EI53 Myndbönd: Spennandi þriggja síðna umfjöllun um myndbönd í víðum skilningi er að finna í Fjörkálfinum á föstudögum. Þar er m.a. umfjöllun um nýjustu myndböndin, leikara, stjörnugjafir ásamt myndbandalista vikunnar. - alltaf á föstudögum Fjörkálfurinn: Fjörkálfurinn er mjög skemmtileg 12 síðna útgáfa á föstudögum i DV. Fjörkálfurinn fjallar um það sem er heitast í gangi hverju sinni: Þar sem rússneskir vetur geta verið harðir þykir evrópskum tískuhönnuðum við hæfi að sýna klassískan vetrarfatn- að á sýningum sínum í Moskvu. Vonast þeir til að auðugum Rússum, sem fer ört fjölgandi, lítist vel á fatnaðinn eins og til dæmis þennan sem er frá tískuhúsi Ninu Ricci í París. Símamynd Reuter Branagh vill gera söng- leik eftir Shakespeare Kenneth Branagh, sá breski senu- þjófur, leikari og leikstjóri, hefur áhuga á að gera enn eina kvikmynd eftir leikriti Shakespeares. í þetta sinn í söngleikjaformi. Leikritið, sem hann telur henta vel slíkri með- ferð, er Ástarglettur. Stykki þetta er ekki oft sett á fjal- imar sökum þess hve fjölmennt það er og segir Branagh að það sé skemmtilegt viðfangsefni fýrir leik- konur. „Það eru fimm eða sex góð kven- hlutverk í því,“ segir Branagh. Nýjasta kvikmynd hans er einnig eftir leikriti Shakespeares, sjálfu meistarastykkinu um Hamlet Dana- prins. Hún verður frumsýnd í Holly- wood í næstu viku og ríkir þegar mikil eftirvænting í englahársborg- inni, enda einvalalið sem fer með hlutverkin. Þar skal fyrstan telja Derek Jacobi, sjóaðan Shakespeare- leikara sem íslendingar þekkja bet- ur sem bróður Cadfael. Einnig má sjá þar Gérard Depardieu hinn franska, Judi Dench, Charlton Heston, Julie Christie, Jack Lemm- on og fleiri og fleiri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.