Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1996, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1996, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 37 Hörður Áskelsson stjórnar Schola cantorum og leikur á nýtt orgel í Þoriákshafnarkirkju. Fjögurra radda messa Schola cantorum er nýr kór sem stofnaður hefur verið við Hallgrímskirkju í Reykjavík. Um er að ræða kammerkór sem skipaður er sautján manns sem flestir syngja eða hafa sungið með Mótettukómum. Fyrstu tónleikar kórsins verða haldnir í Þorlákshafharkirkju í kvöld kl. 21.00. Tónleikamir verða endurteknir í Hallgrímskirkju á sunnudaginn kl. 17.00. Á efnisskránni er aðallega ensk tónlist frá sextándu og sautjándu öld. Þar kemur Willi- am Byrd mest við sögu og ber hæst fjögurra radda messa hans. Stjómandi Schola cant- orum er Hörður Áskelsson, org- anisti Haligrímskirkju. Tónleikar Aðventutónleikar Lúðrasveitar Hafnarfjarðar Lúðrasveit Hafnarfjarðar verður með aðventutónleika í Hafnarborg í kvöld kl. 20.30. Efnisskráin er fjölbreytt að vanda og verða flutt innlend og erlend lög ásamt jólalögum. Einnig mun blásarakvintettinn Þeyr koma fram. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Að girnast konu Félag áhugamanna um heim- speki stendur fyrir fyrirlestri í stofu 101 í Odda í kvöld kl. 20.00. Jóhann Bjömsson flytur fyrir- lestur sem hann nefiiir Að gim- ast konu. Fjölskyldan og heimilið Fræðslustundum Reykjavík- urprófastsdæmis eystra í Kópa- vogskirkju verður haldið áfram í kvöld kl. 20.30. Dr. Sigmjón Ámi Eyjólfsson héraðsprestur mun leggja út frá fjórða boðorð- inu í erindi sem hann nefnir Fjölskyldan og heimilið. Samkomur Hreyfimyndafélagið Hreyfimyndafélag Háskólans sýnir óskarsverðlaunavestrann Shane í leikstjóm George Stevens í Háskólabiói í kvöld kl. 23.00. Gaukur á Stöng Hljómsveitin Loðin rotta skemmtir gestum á Gauki á Stöng í kvöld. Tvímenningur Brids, tvímenningur verður spilaður í Risinu í dag kl. 13.00. Félag frímerkjasafnara Félagsfundur verðrn- haldinn i kvöld kl. 20.30. Ólafur Elíasson flytur erindi. Bráðabirgða- tenging á Skeiðarársandi Góð vetrarfærð er á landinu en víða er nokkur snjór og hálka á veg- um. Búið er að opna veginn yfir Skeiðarársand á ný fyrir almenna umferð. Gerðir hafa verið bráð- birgðaslóðar og brýr þar sem mest- ar skemmdir urðu. Slóðarnir em Færð á vegum grófir malarslóðar og em vegfarend- ur beðnir að aka gætilega. Sérstakr- ar aðgæslu er þörf við tengingar slóða við Hringveginn og við brým- ar yfir Gigju og Skeiðará. Unnið er að frekari lagfæringum og merking- um og em vegfarendur beðnir að sýna vinnuumferð tillitssemi. Skemmtanir Þeir félagar KK og Magnús verða með tónleika á Café Royal í kvöld þar sem þeir munu flytja lög af plötunni og sjáifsagt fylgir með eitthvert annað góð- meti. Þeim til halds og trausts á tón- leikunum verður Magnús „mandólín" Einarsson. Tónleikamir hefjast kl. 21.30. KK og Magnús Eiríksson leika lög af nýrri plötu á Café Royal í kvöld. KK og Magnús Eiríksson á Café Royal: Ómissandi fólk í öllu jólaplötuflóðinu, sem nú streymir á markaðinn, er margt athygl- isverðra platna og ein slík er Ómissandi fólk þar sem sameina krafta sína tvö stórmenni í íslenskri dægur- tónlist, KK (Krisfján Kristjánsson) og Magnús Eiríkson. Þeir hafa ekki áður leikið opinberlega saman þannig að um forvitnilegt samstarf er að ræða. Þessir frábæra lagahöfundar og hljóðfæraleik- arar hafa gert góða hluti í hvor í sínu lagi og eftir þá liggur mikið af góðu efni svo víst er að margir em forvitnir um hvemig samvinna þeirra hefur tekist. m Hálka og snjór án fyrirstöðu Lokaö s Vegavinna-aögát m Þungfært @ Öxulþungatakmarkanir (g)Fært flallabílum Ástand vega Frægasti leikari Frakka í dag, Ger- ard Depardieu, leikur annað aöal- hlutverkiö. Verndar- englarnir Meðal mynda sem Háskólabíó sýnir er franska gamanmyndin Verndarenglamir (Les Anges Gardiens). Myndin segir frá Antoine Carco sem er ófyrirleit- inn kaupsýslumaður i París. Dag nokkurn hringir gamall félagi hans úr símaklefa í Hong Kong og biður hann að hjálpa sér að koma fimm ára syni sínum og dá- góðri fjárupphæð úr landi. Þegar þangað kemur er kínverska mafí- an búin að drepa gamla félagann og reynir einnig að koma honum fyrir kattarnef. Carco fær þá til liðs við sig prestinn Hervé Tarain sem fer með stráksa og pening- ana til Parísar. En þegar þangað kemur fyrirhitta bæði Carco og klerkurinn yfirnáttúrlega tvífara sína, eins konar engla og algjörar andstæður þeirra, sem sleppa þeim ekki úr augsýn og gera þeim lífið leitt. *: Kvikmyndir í aðalhlutverkum em Gerard Depardieu og Christian Clavier. Leikstjóri er Jean-Marie Poiré. Nýjar myndir: Háskólabíó: Verndarenglarnir Laugarásbíó: Tll síðasta manns Saga-bíó: Körfuboltahetjan Bíóhöllin: Aðdáandinn Bíóhöllin: Gullgrafararnir Bíóborgin: Hvíti maðurinn Regnboginn: Hetjudáð Stjörnubíó: Hættuspil Krossgátan Lárétt: 1 skjól, 6 keyrði, 8 hlass, 9 snemma, 10 lærlingur, 12 orka, 14 kvendýr, 16 bergmála, 17 prýðileg, 19 drukkin, 21 bleyta, 22 tími, 23 æviskeiðið. Lóðrétt: 1 flugtæki, 2 hreyfi, 3 deila, 4 komist, 5 vofur, 6 belti, 7 óvild, 11 gufa, 13 þekkta, 15 loga, 16 mörg, 18 málmur, 20 svik. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 flensa, 8 rofa, 9 ólm, 10 egndi, 11 dá, 12 studdi, 15 tuðrana, 17 assa, 19 góð, 21 kákaði. Lóðrétt: 1 frestar, 2 log, 3 efnuð, 4 nadd, 5 sói, 6 aldin, 7 smánaði, 13 *" tusk, 14 duga, 16 rak, 18 sá, 20 óð. / Systir Dagnýjar Elísu Litla stúlkan á mynd- inni fæddist á fæðingar- deild Landspítalans 14. nóvember kl. 01.19. Hún var við fæðingu 2.800 Barn dagsins grömm að þyngd og mældist 50 sentímetra löng. Foreldrar hennar era Sigurborg Sturludótt- ir og Þorsteinn Jónasson. Hún á eina systur, Dag- nýju Elísu, sem er þriggja og hálfs árs gömul. Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA ÍÁSKRIFT ÍSÍMA 550 5752

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.